Alþýðublaðið - 22.05.1990, Blaðsíða 6
6
SMÁFRÉTTIR
Þriðjudagur 22. maí 1990
Þýskir þingmenn um sameiningarmálin:
Skylda að slyðja
bræður sína
Þessa dagana eru staddir hér
á landi tveir þýskir þingmenn,
þeir Reinard Schorlemer og
Dr. Otto Wulff, prófessor. Hing-
að koma þeir til að ræða við ís-
lenska stjórnmálamenn og
kynna þróun mála í Þýska-
landi. Þeir eru báðir þingmenn
kristilegra demókrata en það
er einmitt flokkur Kohls kansl-
ara.
A blaðamannafundi sem hald-
inn var í gær lögðu þeir mikla
áherslu á að sameining þýsku ríkj-
anna fæli í sér vilja til aö vinna
með öllum Evrópubúum en ekki
gegn neinum.
Þeir hafa báðir veriö mikið í
hinu fyrrverandi Austur-Þýska-
landi og orðið vitni að því hvernig
frelsishugsjónin hefur komið upp
á yfirborðið þrátt fyrir fjögurra
áratuga kúgun. Þeir sögðu V-Þjóð-
verja álíta það skyldu sína að
hjálpa bræörum sinum í austur-
hlutanum til að njóta þess sem
þeir sjálfir hafa notið síðustu ára-
tugi. Fyrsta skrefið í þá átt telja
þeir vera gildistöku v-þýska
marksins í A-Þýskalandi. Þannig
skapist möguleiki fyrir öra þróun
bæði á hinu fjárhagslega sviði sem
því félagslega.
Þeir Schorlemer og Wulff telja
félagslegu markmiðin ekki síður
mikilvæg en hin fjárhagslegu. Þeir
vísa þeim hugmyndum að Vest-
ur-Þjóðverjar séu að kaupa upp
arðbærustu eignirnar í austurhlut-
anum algerlega á bug, það sé stað-
ið vörð um að slíkt gerist ekki. Hér
væri um sameiningu að ræða en
ekki útsölu á Austur-Þýskalandi.
Þannig sé það t.d. að Austur-Þjóð-
verjar hafi forkaupsrétt á húsnæði
i Austur-Þýskalandi.
Ymsir hafa þóst sjá fyrir aukna
verðbólgu samfara sameining-
unni en þingmennirnir sögðu aö
þar sem efnahagsuppbyggingin
yröi ekki fjármögnuö með seðla-
prentun heldur með efnahagsaf-
gangi Vestur-Þýskalands væri
þessari hættu afstýrt. Mikiö kapp
yrði lagt á aöhald í peningamálum
og að fjárfestingin kæmi frá einka-
aöilum en ekki ríkinu.
Rík áhersla er lögð á að samein-
ingin fari fram með fullu samþykki
allra þjóða. Enginn þurfi að hræð-
ast sameinað Þýskaland. Það
verði fyrst og fremst evrópskt og
góður nágranni allra þjóða.
Þeir telja einsýnt aö Þýskaland
verði áfram i NATO enda hafi sag-
an sýnt að hlutlaust Þýskaland
raski valdajafnvæginu í álfunni.
Þeir benda á að í upphafi hafi
NATO ekki síður haft stjórnmála-
legt hlutverk en hernaðarlegt og
hugsanlegt sé að með breyttum
aðstæðum í heimsmálunum auk-
ist þetta stjórnmálalega hlutverk.
Nú þegar sé farið að ræða endur-
skipulagningu samtakanna. Vera í
NATO skapi stjórnmálalegt sam-
band við Vestur-Evrópu og því vilji
Þjóðverjar ekki tapa. Afstaða
Austur-Þjóðverja í þessu máli sé sú
að þeir vilji fara varlega í sakirnar.
Það þýði ekki að þeir séu mótfalln-
ir því að ganga í NATO heldur óski
þeir að tillit sé tekið til Sovét-
manna. Þýskalandi sé enginn akk-
ur í því að klekkja á Sovétmönn-
um, þvert á móti vilji þeir taka þátt
í þeirri uppbyggingu sem þar
stendur fyrir dyrum.
Vandamálin framundan eru þó
ekki auðleysanleg. Nú eru um
400.000 sovéskir hermenn í
A-Þýskalandi. Brottflutningur
þeirra getur reynst erfiður þar
sem Sovétríkin sjálf eru ekki í
stakk búin til að taka við þeim. Þar
vantar húsnæði, atvinnu og fé-
lagslega þjónustu fyrir þennan
stóra hóp manna. Þeir Schorlemer
og Wulff spá því að í framtíðinni
verði samskipti austurs og vesturs
ekki helsta vandamálið, heldur
það ójafnvægi sem skapast hefur
milli norðurhvels og suðurhvels
jarðarinnar. Það sé það vandamál
sem erfiðast verði að leysa.
Þeir segja að ekki sé rétt að
túlka tap kristilegra demókrata í
nýafstöðnum þingkosningum sem
andstöðu gegn sameiningunni.
Aftur á móti sé ágreiningur um í
hvað eyða eigi þeim fjármunum
sem til hennar fara.
RAÐAUGLÝSINGAR
Starfslaun Ríkisútvarpsins
til höfunda útvarps- og sjónvarpsefnis
Ríkisútvarpiö auglýsir starfslaun til höfundar eöa
höfunda, til að vinna aö verkum til frumflutnings í
Ríkisútvarpinu, hljóðvarpi eða sjónvarpi. Starfs-
launum geta fylgt ókeypis afnot af íbúö Ríkisút-
varpsins í Skjaldarvík í Eyjafirði.
Starfslaun eru veitt til 6 mánaöa hiö lengsta og
fylgja þau mánaðarlaunum skv. 5. þrepi 143. Ifl. í
kjarasamningum Bandalags háskólamanna og fjár-
málaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs.
Umsóknum ásamt greinargerð um fyrirhuguð við-
fangsefni skal skilað til skrifstofu útvarpsstjóra,
Efstaleiti 1, Reykjavík, fyrir 1. júní nk. Þar eru enn-
fremur veittar nánari upplýsingar um starfslaunin.
jffor
RÍKISÚTVARPIÐ
m
Fjórðungssjúkrahúsiö á Akureyri
Staða meinatæknis við Rannsóknadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri er laus til umsóknar.
Staðan verður veitt frá 1. september 1990 til eins
árs.
Allar nánari upplýsingar veitir yfirmeinatæknir.
Umsóknir sendist framkvæmdastjóra fyrir 28. maí
nk.
Læknaritara vantartil sumarafleysinga á Fæðinga-
og kvensjúkdómadeild.
Upplýsingar veitir læknafulltrúi.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
sími 96-22100.
Menntamálaráðuneytið
Lausar stöður
Við íþróttakennaraskóla íslands, eru lausar tvær
stöður íþróttakennara.
Æskilegar kennslugreinar: Sund, leikfimi og knatt-
leikir.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 1990.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri.
Kosningaskýrslur 1874—1987
Alþingiskosningar frá 1874.
Sveitarstjórnarkosningar frá 1930.
Forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslur.
Tvö bindi — 1.160 bls. Verð 4.800 kr. með vsk.
Omissandi fyrir spámenn og spekúlanta um kosn-
ingaúrslit.
Hagstofan — Skuggasundi 3 — 150 Reykjavík
Afgreiðsla bóka í síma 609860.
W
Oskum eftir blaðberum
í eftirtalin hverfi
Fossvogur
A-löndin, B-löndin, E-löndin.
Seljahverfi, Breiðholti
S-sel, T-sel, V-sel, L-sel, M-sel.
Vesturbær
Kvisthagi, Fornhagi, Hjarðarhagi, Hofsvallagata,
Fálkagata, Lynghagi, Starhagi, Grímshagi.
Þeir sem hafa áhuga á þessum hverfum, vinsam-
legast hafi samband við afgreiðslu Alþýðublaðsins
í síma 681866.
Breyting á skipulagi „Óla Run tún"
Útivist
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti 8. maí sl.
breytingu á skipulagi svæðis milli Ásbrautar,
Brekkuhvamms og Lindarhvamms (Óla Run tún).
Samkvæmt gildandi skipulagsáætlunum var gert
ráð fyrir íbúðabyggð (u.þ.b. 18 íbúðir) á þessu
svæði.
Tillaga að nýju skipulagi gerir ráð fyrir skipulögðum
leiksvæðum, gróðurreitum og sleðabrekkum.
Tillagan er til sýnis og kynningar á skrifstofu bæjar-
verkfræðings á Strandgötu 6, frá föstudeginum 18.
maí 1990.
Hafnarfirði, 17. maí 1990.
Skipulagsstjóri Hafnarfjarðar.
Ungir jafnaðarmenn
Tryggjum Bjarna P. í borgarstjórn.
Félag ungra jafnaðarmanna Reykjavík.