Alþýðublaðið - 05.01.1991, Qupperneq 2
2
Laugardagur 5. janúar 1991
Nýr framk vœmda-
sijóri Örtölvutækni
Heimir Sigurðsson hefur verið
ráðinn framkvaemdastjóri við
fyrirtækið Örtöivutækni-Tölvu-
kaup hf., fyrirtæki Werners
Rasmussonar og sonar hans,
Karls Wernerssonar. Þeir keyptu
nýlega meirihluta Jóns Olaís-
sonar í fyrirtækinu, en auk þess
hluta Jóns Trausla Leifssonar og
Siguröar S. Pálssonar, fyrrum
framkvæmdastjóra. Sigurður S.
Pálsson heldur nú til starfa hjá
Tulip Computers í Hollandi,
verður einn framkvæmdastjóra
þess fyrirtækis.
Vodkafyrirtæki
heldur keppni i
fatahönnun
Smirnoff er líklega þekktara fyr-
ir framleiðslu á vodka en fata-
hönnun. Fyrirtækið efnir engu
að síður til fatahönnunarkeppni
og gefst íslenskum nemum í
þeirri grein kostur á að taka þátt
í alþjóðlegri keppni fyrirtækis-
ins. íslensk dómnefnd mun velja
þrjá keppendur hér á landi til að
sauma flíkur og taka þátt í úr-
slitakeppni hér á landi. Einn
þessara þriggja mun síðan taka
þátt í úrslitakeppni í Amster-
dam. I fyrra sigraði Þórunn Jóns-
dóttir í keppninni hér en hún var
þá við nám í Frakklandi. Þema
keppninnar er nýöldin. Skila-
frestur fyrir keppnisgögn er til
11. febrúar, endanleg úrslit
verða tilkynnt mánuði síðar. I
dómnefnd eru: Eoa Vilhjálms-
dóttir, fatahönnuður, Sólveig
Baldursdóttir, blaðamaður á
Nýju lífi, og Henrik Árnason,
auglýsingahönnuður.
Eftiriaunamaður
hellir sér i blaða-
útgáfu
Örn Eiðsson, sá landsfrægi
íþróttafrömuður og íþróttafrétta-
maður, er einn þeirra sem á
„unga aldri” kemst á eftirlaun á
vinnustað sínum, Trygginga-
stofnun ríkisins. Örn, 64 ára, sest
ekki í helgan stein, öðru nær.
„Það hefur aldrei verið annað
eins að gera”, sagði Örn, en hann
hefur nú gerst blaðaútgefandi.
Hann gefur út GP- Garðapóstinn,
sem er óháð fréttablað fyrir
Garðbæinga. Slík blöð eiga
miklu fylgi að fagna um þessar
mundir og án efa mun Örn halda
úti glæsilegri fréttamennsku í
blaði sínu, hann kann til verka á
þessu sviði.
FRtTTASK ÝMING
Áfengi út í hafsauga
— segir Ragnar Tómasson, sem fékk jákvæöa umsögn Borgarstjórnar Reykjavíkur viö léttvínsveitingum á veitingastaö sínum.
RagnarTómasson: Ekki á dagskrá að hestamenn geti riðið í hlaö og dreypt
á bjór um lúgu. A-mynd E.Ól.
Niuliu og einn staður
i Reykjavik heffur leyffi
til að veita óffengi með
mat. Þar af eru nokkrir
skyndibitastaðir. Borg-
arráð hefur sett sér
vinnureglu sem veitir
nánast öllum stöðum
vinveitingaleyffi að upp-
ffylltum skilyrðum.
Borgarfulltrúar minni-
hlutans i Reykjavik
gagnrýna ffyrirkomu-
lagið og segja f jölskyld-
ur hvergi i ffriði ffyrir
áffenginu.
Þorlákur Helgason
skrifar
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti á síðasta fundi að mæla
með því að veitingastöðunum
Jarlinum við Tryggvagötu og Jarl-
inum við Bústaðaveg verði veitt
leyfi til léttvínsveitinga. Það er
lögreglustjóri sem veitir endan-
legt leyfi að fenginni umsögn.
Hann getur synjað leyfis þó að
borgarstjórn mæli með því.
Bjórinn og allt áffengi
út i haffsauga
Það er kaldhæðni örlaganna að
einn af eigendum matsölustaðar-
ins, sem lenti milli tannanna á
borgarstjórnarfulltrúum síðast, er
á móti sölu áfengis. Matsölustað-
urinn Jarlinn er kallaður „skyndi-
bitastaður” en í því felst meðal
annars að afgreitt er í gegnum
lúgu. Hestamenn, sem eru næstu
nágrannar við Jarlinn á Bústaða-
vegi, munu ekki verða afgreiddir
með vín í gegnum lúgu, kjósi þeir
að æja við staðinn. Slíkt er brot á
landslögum.
Og það er reyndar allsendis
óvíst hvort eigendur nýti sér tæki-
færi til að afgreiða léttvín með
mat á Jarlinum.
„Við sendum inn bréf og rædd-
um hvorki við kóng né prest. Það
var aðeins talað um léttvínsleyfi til
þess að geta haft bjór með mat, ef
okkur sýndist svo. En það hefur
ekki verið tekin nein ákvörðun
um það hvort við nýtum okkur
leyfið, ef lögreglustjóri gefur
grænt ljós,“ segir Ragnar Tómas-
son, talsmaður eigenda. Ragnar
segir að eigendur hafi viljað hafa
réttinn sín megin. Ragnar segir
sölu í Jarlinum hafa verið líflega
það sem af er frá því að fjölskylda
hans og önnur fjölskylda til eign-
uðust staðinn. 2900 steikur voru
afgreiddar út af staðnum í des-
ember sl. og um 30 þúsund
skammtar á mánuði. Því finnst
þeim ómaklega að staðnum vegið
að kalla hann næsta þrep við
sjoppu eins og heyrst hefur. Jarl-
inn sé eitt stærsta steikhús lands-
ins.
Ragnar Tómasson, sem væntan-
lega getur nýtt sér vínveitingaleyf-
ið á næstunni, er bindindisfröm-
uður og vill eiginlega ekkert hafa
með vín að gera í kringum sig. „Ég
vil fá bjórinn og allt áfengi út í
hafsauga," segir hann.
Þrir staðir haffa
misst leyffið__________________
í fyrra setti Borgarstjórn
Reykjavíkur sér starfsreglur vegna
umsókna um vínveitingaleyfi.
Gunnar Þorláksson hjá Félags-
málastofnun borgarinnar segir að
með þeim séu í raun öll leyfi veitt,
mæli ekki neitt sérstakt gegn leyf-
isveitingu. Elín G. Ólafsdóttir,
borgarfulltrúi Kvennalista og sem
á sæti í félagsmálaráði, sagði í um-
ræðum í borgarstjórn að „einungis
sérstakir hnökrar" kæmu í veg fyr-
ir leyfi. Félagsmálaráð fær beiðni
til umsagnar, en áður fyrr var það
áfengisvarnarnefnd sem fjallaði
um umsóknir áður en borgarráð
afgreiddi mál.
Frá því að leyfisdveitingar voru
rýmkaðar verulega í Reykjavík,
hafa þrír staðir verið sviptir leyfi.
Tveir þeirra munu hafa hætt
rekstri, en einn staður varð að láta
sér lynda að veita ekki áfengi um
tíma. Samkvæmt upplýsingum
lögreglustjóraembættisins í
Reykjavík var í gær 91 staður í
Reykjavík með vínveitingaleyfi.
Ýmist er um að ræða alhliða leyfi
eða bara leyfi til að veita léttvín og
bjór á tilteknum tíma. Staðirnir
eru af ýmsum stærðum og gerð-
um. Minnstur er Blásteinn í
Hraunbergi, þar sem leyfilegur
gestafjöldi er 20, og stærstu stað-.
irnir Hótel Saga með 2055 gesta
hámark og Hótel ísland, þar sem
2155 gestir mega súpa á í einu.
Laugavegur á sérkjörum
Gunnar Þorláksson segir að
engan hafi órað fyrir því að vín-
veitingastöðum myndi fjölga svo
ört sem orðið hefur eftir að slakað
var á leyfisveitingum. Veitinga-
menn virði reglur. Engar kvartan-
ir hafi t.d. borist um ónæði vegna
staða sem ekki hafa opið að nóttu
til. Eitt af því sem reynt sé að taka
tillit til séu ummæli granna. Fyrir
liggi umsókn frá veitingastað við
Arnarbakka, en á annað þúsund
manns úr hverfinu hafi lagst gegn
vínveitingaleyfinu.
„Grenndarsjónarmið" vega ekki
jafnþungt í öllum borgarhlutum.
Fyrir nokkru mótmæltu íbúar í
Þingholtum fyrirhugaðri krá á
horni Þingholtsstrætis og Banka-
strætis. Þá varð niðurstaða borgar-
kerfisins sú að stutt væri í fleiri
vínveitingastaði og því ekki fært
að mæla gegn vínveitingum.
Gunnar Þorláksson, sem fær
beiðnir inn á sitt borð áður en þær
fara fyrir félagsmálaráð og borgar-
ráð, segir að svo hafi verið litið á
að fólk við Laugaveg og nágrenni
verði að gera sér ljóst á hvaða
svæði það býr.
Ef litið er í skrá yfir staði þá sem
vínveitingar eru leyfðar kemur og
í ljós að af 91 stað sem hefur leyfi
eru 58 í miðbæ Reykjavíkur. Þar
býr hins vegar aðeins lítill minni-
hluti borgarbúa.
Yffir 24 þúsund manns
geta drukkið i einu__________
Á þeim 91 stað þar sem má veita
vín geta 24 þúsund manns drukk-
ið í einu. Meira en fjórði hver
Reykvíkingur getur því dreypt á
dýrum veigum, án þess að eiga á
hættu að troða öðrum um tær.
Mörgum er það hulin ráðgáta
hvernig staðirnir geta borið sig og
ekki eru allir sáttir við aukin tæki-
færi til drykkju. Umsókn veitinga-
hússins Jarlsins varð t.d. tilefni
gagnrýni á stefnu borgarinnar.
Olína Þorvarðardóttir, borgarfull-
trúi Nýs vettvangs, segir óheppi-
legt að fjölskyldur geti ekki farið
út án þess að vín sé þar haft um
hönd. Undir það sjónarmið tekur
Elín G. Ólafsdóttir, sem sagði á
borgarstjórnarfundi í fyrradag að
skyndibitastaðir ættu að vera
„friðhelgir'
Spjéffkastari getur ekki
leyfft sér neina sérvisku
Á borgarstjórnarfundinum var
lýst yfir efasemdum um að hægt
væri að hafa nægilegt eftirlit með
öllum stöðunum. Fyrir nokkrum
árum þegar veitingastaðir voru 14
voru fjórir eftirlitsmenn á ferðum
milli staða. Nú lengstum hafa þeir
verið tveir og áttu þeir að gæta,
tæplega eitt hundrað staða. Eftir-
litsmönnum hefur verið fjölgað
aftur í fjóra. Svo undarlega vill til
að það eru eigendur veitinga- og
skemmtistaðanna sjálfra sem
greiða eftirlitsmönnunum laun,
þó að þeir séu á vegum lögreglu-
stjóra. Lítil brögð virðast hafa ver-
ið að því að reglur séu brotnar og
ekki ástæða til að ætla að þeir sem
bætast við í hóp þeirra sem fá leyfi
gerist brotlegir.
Eigendur veitingastaða hafa
ekki talið sig geta rekið staðina í
þeirri miklu samkeppni sem nú er
án vínveitingaleyfis. Ragnar Tóm-
asson á Jarlinum telur erfitt fyrir
hvaða rekstur sem er að hundsa
algjörlega ríkjandi fyrirkomulag.
Þó að hann væri persónulega á
móti neyslu áfengis, væri spurning
hvort hann gæti litið á Jarlinn sem
geðþóttafyrirtæki eigin hug-
mynda eða málamiðlun til að
þjónusta markaðinn og ganga
ekki feti lengra en markaðurinn
krefst. „Þetta er rétt eins og með
Einar Vilhjálmsson spjótkastara.
Hann getur haft skoðanir á því
hvort tiltekin tegund af spjóti sé
heppileg, en ef ákveðið er þrátt
fyrir andstöðu hans og annarra að
leyfa þetta spjót, sem hann telur
að tryggi árangur hans, getur
hann ekki leyft sér neina sér-
visku," segir Ragnar.
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur
opnað dyrnar upp á gátt. Borgar-
fulltrúar hafa af því „nokkrar
áhyggjur," en erfitt^etur reynst að
halla þeim aftur. Á meðan renna
sætar veigar um gættir.