Alþýðublaðið - 05.01.1991, Blaðsíða 8
Iiftryggbngar
lll
rM\\>
VXtlZ/v'
ALÞIÓÐA
LIFTRYGGINGARFÉLAGIÐ HF.
LÁCMÍIU 5 - REYKIAVtX
símjí 681644
GEVAUA
Pai er kaffið 687510
• • • • • • • • • •
• • • • •
• • • • • • • • • •
• • • • •
• • • • • • • • •
• •••••••• ••••
• • • •
• •••• ••••
• • • •
• • • • • • •
42 NATO ÞOTUR TIL TYRKLANDS
F-104 STARFIGHTER (sex frá Italíu)
20mm sexhlaupa fallbyssa, allt aö
fjórar Sidewinder flaugar og til
viðbótar 20mm byssur fyrir
skotmörk á jörðu niðri
m
ALPHA ÞOTA (18 frá Þýskalandi)
Getur beitt vopnum á meira en 75
vegu og getur borið allt að
2.500 kg af sprengjum
IVIIRAGE 5 (18 frá Belgíu)
Tvær 30mm byssur með 125 skotum
hvor oog getur borið 4.000 kg
af sprengjum ^
Heimild: Jane’s All The World’s Aircraft
BUSH: GAGNLEGT SKREF: Bandaríkjaforseti sagði í
gær að hann vonáði að með því að Irakar hafa nú sam-
þykkt að koma til viðræðna í Genf í næstu viku væru þau
teikn á lofti að Saddam Hussein gerði sér nú loks ljósa al-
vöru ástandsins. Bush sagði að ekki yrði hægt að koma að
neins konar málamiðlun eða samningaumleitunum, þegar
hann ræddi stuttlega við blaðamenn á flöt Hvíta hússins,
þar sem hann sté um borð i þyriu sína, sem flutti hann í
sveitasæluna í Camp David.
ELDFLAUGAR VERÐA EKKI STÖÐVAÐAR: yuz-
hak Rabin, fyrrum varnarmálaráðherra ísraels, sagði í gær
í samtali við Visnews-fréttastofuna að eldflaugar íraka
yrðu ekki stöðvaðar, yrði þeim hleypt af. Sagði hann að
hvorki Bandaríkin né heldur ísrael réði yfir neinni þeirri
tækni sem gæti hindrað eldflaugaskotin, eða varist þeim.
Hins vegar sagði hann að ísraelar væru i stakk búnir að
svara kröftuglega fyrir sig, ef á þá yrði ráðist.
VINNUVÉL HINDRAÐI FLUGUMFERÐ: Vinnu-
flokkur að störfum í grennd við New York og New Jersey
mun hafa verið valdur að töfum á lendingum flugvéla á
flugvöllum við New York í eina tvo tíma í gær. Símastreng-
ur var eyðilagður með þeim afleiðingum að erfiðlega gekk
að ná símasambandi við útlönd um tíma, auk þess sem rat-
sjárkerfi flugvallanna varð óvirkt. Simaleysið hafði og þau
áhrif að hinir stóru, alþjóðlegu sölumarkaðir í World Trade
Center urðu að hætta starfsemi.
ÓÐAVERÐBÓLGA í RÚMENÍU: Rúmenska hagstof-
an lýsti verðbólguþróuninni í landinu í nóvember sl. sem
„ótrúlega lágri“. Verðbólgustigið í þeim mánuði var 23,4%.
Orðið verðbólga var ekki til í orðabókum austan gamla
járntjaldsins, — fyrirbærið var sagt einungis eiga við lönd
kapítalistanna.
„G0RBATSJ0V" RÆNDIBANKA: Þjófur með and-
litsgrímu sovéska forsetans, Mihkails Gorbastjovs, rétti við
efnahagsmál sín á sinn hátt í Stokkhólmi í gær, segir Reut-
er. Hann rændi banka í Stokkhólmi ásamt náunga sem bar
grimu gamals manns. Létu þeir félagar, Gorbi og sá gamli,
greipar sópa um 100 öryggishólf í kjallara bankans. Talið
er að meira en einni milljón sænskra króna kunni að hafa
verið rænt, sögðu heimildir í Stokkhólmi. Öryggismynda-
vél tók myndir af ræningjunum. Þeir komust undan, og
hleyptu af skotum, þegar reynt var að stöðva þá á flóttan-
um með því að leggja bíl í veg fyrir þá, en honum ók sá
þriðji í þessum hópi.
MITTERRAND VILL D0KAVIÐ: Frakklandsforseti,
Francois Mitterrand, sagði i gær í París að Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna ætti að koma saman til fundar um
ástandið við Persaflóa enn á ný fyrir 15. janúar ef írakar
hundsa síðustu aðvörun um að fara frá Kúvæt og stríð virð-
ist óhjákvæmilegt.
OLÍUELDAR Í SEX MÁNUÐI: Fari svo að olíueldar
verði kveiktir í Kúvæt, kynnu þeir að loga í allt að hálft ár,
sögðu heimildarmenn Reuter-fréttastofunnar í gær í Lond-
on. Sömu aðilar drógu þó mjög úr hættunni af vistfræði-
legri ógn af eldum sem þessum.
ERLENDAR FRÉTTIR
Nýr forsœtisráöherra Póllands:
Bielecki fékk yfirgnæf-
andi stuðning þingsins
Hinn róttæki hagfræð-
ingur, Jan Krzysztof Bi-
elecki, var samþykktur
sem næsti forsætisráð-
herra Póllands af þingi
landsins. Hann hlaut
stuðning 276 þingmanna
gegn 58 og 52 sátu hjá.
Hinn nýkjörni forseti Pól-
lands, Lech Walesa, út-
nefndi Bielecki sem for-
sætisráðherra iandsins.
Bielecki, fulltrúi Samstöðu,
hafði áður gert þinginu grein
fyrir að hann ætlaði að halda
áfram breytingum fyrirrenn-
ara síns í átt til frjáls markaðs-
kerfis. „Ég er Samstöðumað-
ur,“ sagði Bielecki. „Ég held
að frjálst markaðskerfi sé
grunnurinn að því frelsi sem
þessi öflugu samtök börðust
fyrir.‘
Bielecki hefur hvatt til
hraðari einkavæðingar og
nánari samskipta við Vestur-
lönd. Hann tekur við af
Mazowiecki sem sagði af sér
sem forsætisráðherra eftir að
hafa beðið lægri hlut í fyrri
umferð forsetakosninganna í
nóvember fyrir Walesa og at-
hafnamanninum Tyminski
sem búið hafði í Bandaríkjun-
um.
Þingheimur fagnaði því
þegar Bielecki gekk yfir þing-
salinn til þess að setjast á ráð-
herrabekkinn við hliðina á
Leszek Balcerowicz fjármála-
ráðherra. Balcerowicz er sá
sem hefur lagt drögin að hin-
um róttæku efnahagsbreyt-
ingum í Póllandi og þykir lík-
legur til að sitja áfram sem
fjármálaráðherra og varafor-
sætisráðherra þegar Bielecki
kynnir nýja ríkisstjórn sína.
Farþegaflug til Persaflóaríkja:
FERÐUM FJÖLGAÐ
— og flugi síðan hætt
Styrjaldarhættan við
Persaflóa hefur orðið til
þess að mörg flugfélög
hafa orðið að breyta áætl-
unarleiðum til og frá
Mið-Austurlöndum vegna
stórhækkunar á trygg-
ingagjöldum. Þetta á við
um stærstu flugfélögin í
Evrópu, Mið-Austurlönd-
um og Asíu. Mörg félög
hafa sett upp aukaferðir til
að anna eftirspurn eftir
ferðum frá löndum við
Persaflóa fram aö 15. janú-
ar þegar frestur Samein-
uðu þjóðanna rennur út
sem Irak fékk til að draga
lið sitt til baka frá Kúvæt.
Mikill fjöldi fólks hyggst
koma sér burt af hættu-
svæðinu fyrir þann tíma.
Flugfélagið Gulf Air, sem er
í eigu Bahrain, Oman, Abu
Dhabi og Qatar, hefur ákveð-
ið sex aukaferðir til London,
10 til Bombay og þrjár til Kar-
achi fyrir I5.janúar. British
Airways, sem er stærsta er-
lenda flugfélagið sem heldur
uppi flugi á þessar slóðir, hef-
ur ákveðið fimm aukaferðir
og Saudi Arabian Airlines
ætiar einnig að fjölga ferðum
í næstu viku. British Airways
hefur jafnframt ákveðið að
fækka áætlunarferðum til og
frá ísrael úr sex í fjórar á viku
eftir 15. janúar.
Talsmaður bandaríska flug-
félagsins Pan Am segir að
tryggingagjöld hafi tífaldast
til Riyadh í Saúdi-Arabíu og
hafi farið upp í 162.500 doll-
ara fyrir hverja flugferð. Það
sé því ekki lengur fjárhags-
legur grundvöllur til að halda
þessu flugi áfram. Félagið
hefur einnig hætt flugi til Tel
Aviv í ísrael eftir að trygg-
ingagjöld á þeirri flugleið
tuttugufölduðust. Þá hefur
hollenska fiugfélagið KLM
hætt vikulegu áætlunarflugi
milli Amsterdam og Amman
og fækkað ferðum til Tel Av-
iv. Eini viðkomustaður SAS í
Mið-Austurlöndum er Tel Av-
iv og hefur SAS ákveðið að
hætta því flugi frá 9. janúar.
Swissair hefur hækkað far-
gjöld til áfangastaða við
Persaflóa vegna hækkunar
tryggingagjalda.
Egypska flugfélagið Egypt
Air ætlar hins vegar að halda
uppi áframhaldandi áætlun-
arflugi til ríkja við Persaflóa
og í Mið-Austurlöndum með-
an flugvöllum þar er haldið
opnum að því er forseti fé-
lagsins sagði í gær í viðtali
við dagblaðið al-Akbar.
Utanríkisráöherra ír-
aks, Tareq Aziz, tilkynnti í
gær að hann mundi fara til
Genfar þriðjudaginn 8.
janúar og eiga viðræöur
við James Baker utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna
um Persaflóadeiluna dag-
inn eftir. Áður höfðu sviss-
nesk yfirvöld sagt að bor-
ist hefði tilkynning frá
Hvíta húsinu um aö James
Baker kæmi til Genfar síð-
Hið ríkisrekna flugfélag í ír-
ak hefur tapað milljónum
dollara eftir að landið var ein-
angrað eftir innrásina í Kú-
væt. Hins vegar hefur félagið
degis á þriðjudag og
dveldi þar í sólarhring.
Fyrir nokkru hafði Georg
Bush forseti Bandaríkjanna
lagt til að viðræður utanríkis-
ráðherranna færu fram á
fimmtudag. Fundur utanrík-
isráðherra íraks og Banda-
ríkjanna verður haldinn að-
eins sex dögum áður en frest-
ur sá er Sameinuðu þjóðirnar
gáfu Saddam Hussein til að
draga innrásarlið sitt til baka
haft nokkrar tekjur af ieigu-
flugi með erlenda gísla úr
landinu þar sem erlendum
flugfélögum var bannað að
senda vélar eftir fólkinu.
frá Kdvæt rennur út.
Utanríkisráðherrar Efna-
hagsbandalagsins sam-
þykktu á fundi sínum í gær að
leggja til að utanríkisráð-
herra Lúxemborgar, Jacques
Poos og Aziz ættu með sér
fund í Lúxemborg fimmtu-
daginn 10. janúar. Hins vegar
hafði ekki borist svar frá Aziz
seint í gærdag varðandi fund-
arboð Efnahagsbandalags-
ins.
BAKER OG AZIZ
HITTAST Í GENF