Alþýðublaðið - 05.01.1991, Síða 5
I
Snæbjörn Einarsson
i Kletlsbúð Hellissandi
Fœddur 11. des. 1897 Dáinn 26. des. 1990
Laugardagur 5. janúar 1991
Útför Snæbjarnar Einarssonar
Klettsbúð á Hellissandi var gerð
frá Ingjaldshólskirkju í gær. Hann
kvaddi sitt jarðlíf á spítalanum í
Stykkishólmi á annan í jólum. Á
þeim spítala hafði hann dvalið við
góða umönnun undanfarin átta ár.
Hann hafði fótaferð, fullt minni og
sjón alveg fram undir það síðasta.
Foreldrar Snæbjarnar voru þau
hjónin í Klettsbúð, Jónína Sigfríð-
ur Jónsdóttir, fædd 1858 í Trölla-
tungu við Steingrímsfjörð, og Ein-
ar Hákonarson, fæddur 1863 í
Flatey. Systkini Snæbjarnar voru,
talin eftir aldri, Hákon, átti heima
í Flatey, Guðrún, húsmóðir á ísa-
firði og síðar í Reykjavík, Guð-
mundur, var jafnan heimilismaður
í Klettsbúð, Anna húsmóðir á Hell-
issandi og Reykjavík, Þórunn, hús-
móðir í Reykjavík, og Einar sem
dó nýfæddur. Þau Anna og Guð-
mundur eru nú vistmenn á Hrafn-
istu í Reykjavík.
Árið 1919, 2. nóvember, gekk
Snæbjörn að eiga Steinunni Val-
gerði Bjarnadóttur úr Garði á
Reykjanesi, fædda 28. okt. 1895,
mikla myndarkonu. Þeim varð
tveggja barna auðið. Þau eru Ein-
ar, fyrrverandi verslunarstjóri hjá
S.K.F. í Reykjavík, og Svanhildur,
húsmóðir á Hellu á Hellissandi.
Afkomendur Snæbjarnar á lífi eru
alls 33.
Samvistir þeirra Steinunnar og
Snæbjarnar voru styttri en vonir
stóðu til um. Steinunn lést 11. nóv-
ember 1925 eftir erfið veikindi, frá
vordögum það ár. Börn Snæbjarn-
ar voru tekin í fóstur. Einar var hjá
ömmu sinni í Klettsbúð en Svan-
hildur fór til Isaf jarðar til Guðrún-
ar föðursystur sinnar.
Snæbjörn stundaði sjóinn frá
ungdómsárum. Hann varð þó ekki
formaður á áraskipum en var
margar vertíðir dragreipismaður
hjá Jóhanni Jónssyni frá Munaðar-
hóli. Snæbjörn aflaði sér skip-
stjórnarréttinda og var skipstjóri
og stýrimaður á seglskútum og
síðar vélbátum frá ísafirði og
Dýrafirði. Þegar Karvel Ögmunds-
son réðst í fyrsta skipti á skútu árið
1919, þá 16 ára gamall, var það á
seglskútuna Mary frá Þingeyri
sem Snæbjörn var skipstjóri á.
Karvel segir Snæbjörn hafa verið
sérstaklega laginn sjómann og sér-
stakt snyrtimenni. Föðurbróðir
Snæbjarnar, Guðmundur Hákon-
arson á Stóru-Hellu og formaður á
Rauðseying, var þekktur sem einn
af bestu formönnum sem gerðu út
frá Keflavík undir Jökli í lok 19.
aldar og í upphafi þeirrar 20.
Kannski hefur Snæbjörn lært hjá
þessum frænda sínum rétt og ör-
ugg handtök við stýri og segl og
útsjónarsemi sem að gagni varð,
þegar hann sjálfur þurfti að
stjórna og bera ábyrgð á skipi og
skipshöfn sem honum tókst jafnan
giftusamlega.
Eftir að Snæbjörn var orðinn
ekkjumaður var hann á Isafirði
rúman áratug. Þar var hann bæði
skipstjóri og stýrimaður á ýmsum
bátum, m.a. hjá Samvinnuútgerð-
inni. Hann fluttist svo aftur heim í
Klettsbúð nokkru eftir að móðir
hans hafði fengið slag og orðið eft-
ir það rúmliggjandi öryrki.
Þeir bræður Snæbjörn og Guð-
mundur önnuðust um móður sína
heima í Klettsbúð af sérstakri um-
hyggju. Jónína lést 1946 en Einar
1920.
Guðmundur vann heimilinu út í
frá en Snæbjörn tók nú að sér for-
sjá heimilisins, heimilishald og
umhirðu á bústofni sem á tímabili
var þónokkur. Þetta heimilishald
var nokkuð sérstakt þar sem
venjuleg húsmóðurstörf féllu einn-
ig í hendi húsbóndans.
Kostir Snæbjarnar sem sjó-
manns nýttust hér, einnig lagnin
við bústörfin og snyrtimennskan
bæði úti sem inni var alla jafna svo
sem best mátti vera.
Kynni okkar Snæbjarnar í
Klettsbúð hófust í desember 1953.
Þá hafði hópur vinstrisinnaðs
fólks, undirbúið framboð til
hreppsnefndarkosninga hér í Nes-
hreppi sem fram áttu að fara í jan-
úar 1954. Ég haf ði tekið að mér að
vera í fyrsta sæti listans og var
Snæbjörn í öðru sæti. Þetta var
samfylkingarlisti, skipaður þannig
í fjögur efstu sætin, í fyrsta og
þriðja sæti voru sósíalistar, undir-
ritaður og Teitur Þorleifsson, í
öðru sæti alþýðuflokksmaðurinn
Snæbjörn og í fjórða sæti fram-
sóknarmaður, Ársæll Jónsson.
Þetta framboð stakk nokkuð í
stúf við það sem algengt var í þess-
um sveitarstjórnarkosningum.
Kalda stríðið var í algleymingi
með mikilli fordæmingu á okkur
sem töldumst vera með skoðanir
vinstra megin við Alþýðuflokkinn.
Það gerðist þó að þessi listi fékk
Framh. á bls. 7