Alþýðublaðið - 08.01.1991, Side 7
7
Þriðjudagur 8. janúar 1991
tKLtNU rKtTTMSK TKiHG'
Rádamenn Hvíta hússins svartsýnir á diplómatíska lausn i Persaflóadeilunni:
Vika i styrjöld?
Ráðamenn Hvila hússins i Washington eru ekki
bjartsýnir á að striði við Íraka verði afstýrt á elleftw
stundu. Talsmaður Bandarikjaferseta, sagði i gær,
að styrjöldinni yrði sennilega ekki afstýrt með dip-
lómatiskum leiðum og neitaði að svara spurningum
um hvort Bandarikjamenn myndu nota kjarnorku-
vopn ef til styr jaldar við Persaflóa kæmi. Niðurtaln-
ingin er hafin: Eftir þ. 15. þessa mánuðar þegar
frestur Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem
gefinn var írökum til að fara með herlið sitt á brott
frá Kúvæt, rennur út.
Er vika i stórstyrjöld við Persaflóa?
James Baker var á leið til Genfar í
gær til fundar við utanríkisráð-
herra íraks, Tareq Aziz, og milli-
lenti í London til að ræða málefni
Persaflóadeilunnar við Douglas
Hurd, utanríkisráðherra Breta.
Fundur utanríkisráðherra
Bandaríkjanna og íraks í Sviss á
morgun er talinn vera síðasta
tækifærið til að þessi tvö ríki nái
diplómatískum sáttum áður en
frestur Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna rennur út þ. 15. janúar
nk. „Þetta verður síðasta tækifær-
ið sem írakar fá til að skilja, að
Bandaríkjamenn muni frelsa Kú-
væt með vopnavaldi, ef þörf kref-
ur,” sagði Marlin Fitzwater, tals-
maður Hvíta hússins í gær.
Baker mun sýna Azix
gervihnatta my ndir_________
Talsmaðurinn sagði ennfremur,
að Baker myndi skýra utanríkis-
ráðherra íraks frá því í smáatrið-
um, hverjar afleiðingarnar yrðu
fyrir írak, ef þeir drægu ekki her-
lið sitt til baka frá Kúvæt og styrj-
öld skylli á. Baker mun einnig
sýna Aziz gervihnattamyndir af
hugsanlegu stríðssvæði og út-
skýra fyrir honum hinar hroða-
legu afleiðingar sem styrjöld milli
íraks og bandamanna myndi hafa
í Ijósi hins mikla eyðilegginga-
máttar hins alþjóðlega herliðs.
Bandaríska stórblaðið Washing-
ton Post birti frétt í gær þess efnis,
að hershöfðingjar Bandaríkjahers
væru svo sannfærðir um vinning-
slíkur hins alþjóðlega hers gegn
Irökum að þeir myndu beita þurfa
að grípa til kjarnorkuvopna eða
efnahernaðar gegn Irökum þótt
þeir síðarnefndu beittu efnavopn-
um eða sýklahernaði.
Talsmaður Hvíta hússins sagði
að Bandaríkjastjórn svaraði aldrei
spurningum fréttamanna um
vopnanotkun eða fyrirhugaðar
hernaðaraðgerðir.
Beila Bandaríkjamenn
kjarnorkuvopnum?____________
Washington Post hefur það eftir
ónefndum embættismanni í
Washington, að aldrei hafi verið
ráðgert að beita efnavopnum eða
DAGSKRÁIN
kjarnorkuvopnum af hálfu Banda-
ríkjamanna.
Tímaritið Newsweek segir hins
vegar að Pentagon hafi beðið um
ítarlega greinaragerð um hugsan-
lega notkun slíkra vopna til að
stytta stríðið eða minnka mann-
fall.
En tímaritið hafði það eftir
heimildum í arabalöndum og í
Evrópu, að Bandaríkjamenn og
bandamenn þeirra við Persaflóa
hefðu ekki í huga að nota slík
vopn.
Bandarikjaþing greiðir
atkvæði um strið
George Bush Bandaríkjaforseti
hélt fund um Persaflóadeiluna síð-
astliðið sunnudagskvöld með hátt-
settum mönnum innan Banda-
ríkjahers og átti fund í gær með
Dick Cheney, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna.
Talsmaður Hvíta hússins sagði í
gær, að Bandaríkjaforseti myndi
eiga nokkra fundi með bandarísk-
um þingmönnum til að fá stuðning
fyrir fyrirhuguðum aðgerðum
Bandaríkjaforseta í Persaflóadeil-
unni.
Forseti fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings, Thomas Foley, ákvað
að halda þingumræður á næstu
dögum um málefni Persaflóadeil-
unnar. Atkvæðagreiðsla mun fara
fram að loknum umræðum, hvort
Bandaríkjaþing leyfi notkun her-
valds í deilunni.
„Pað er kominn tími til að þing-
menn segi hug sinn,” sagði Foley
við fréttamenn í gær. Umræðurn-
ar fara fram nk. fimmtudag.
Bandarískir fjölmiðlar telja að at-
kvæðagreiðslan fari fram nk.
föstudag. Foley sagði fréttamönn-
um að hann byggist við að Banda-
ríkjaþing myndi samþykkja beit-
ingu vopnavalds, en sennilega
ekki með þeim meirihluta sem að
Bush óskaði eftir.
Robert Dole, leiðtogi repúblik-
ana í Öldungadeild, sagði i sjón-
varpsviðtali sl. sunnudag, að
sennilega féllu atkvæði hlutfalls-
lega 60- 40, vopnabeitingu í vil.
Kveðjustund með kossi: Bandarískur sjóliði kveður ástina sína áður en hann stígur um borð í herskip sitt í Norfolk,
Virginíu og siglir til Persaflóa. Er aðeins vika í stórstyrjöld?
Stríð um qllq veröld?
Meðan klukkan tifar á styrjöld í
Persaflóa, færist Saddam Hussein
íraksleiðtogi allur í aukana. Sadd-
am sagði í útvarpsræðu í gær, að ef
alþjóðlegt herlið undir stjórn
Bandaríkjanna ræðst inn í Kúvæt,
muni barátta Iraka vera háð um
allan hnöttinn.
Bandarískir embættismenn
svöruðu þessari ógnun á þá lund í
gær, að Bandaríkjamenn væru
búnir undir hugsanlegar aðgerðir
íraska skæruliða í Bandaríkjunum
eða gegn bandarískum þegnum
um víða veröld.
Spennan magnast því með
hverjum degi. Vika er nú eftir
þangað til frestur Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna rennur út.
Náist ekki friðarsamningar fyrir
þann tíma eru líkur á styrjöld
orðnar nær algerar.
Ingólfur Margeirsson
skrifar
Sjónvarpið
17.50 Einu sinni var 18.20 íþrótta-
spegill 18.55 Táknmálsfréttir 19.00
Fjölskyldulíf 19.20 Brauðstrit 19.50
Hökki hundur 20.00 Fréttir og veður
20.35 ísland í Evrópu 21.00 Mannvíg
22.00 Nýjasta tækni og vísindi 22.15
Kastljós á þriðjudegi 23.00 Ellefu-
fréttir og dagskrárlok
Stöð 2
16.45 Nágrannar 17.30 Maja býfluga
17.55 Fimm félagar 18.30 Eðaltónar
19.19 19:19 20.15 Neyðarlínan 21.05
Sjónaukinn 21.35 Hunter 22.25
Hundaheppni 23.15 Hjólabrettalýð-
urinn 01.45 Dagskrárlok
Rós 1
09.00 Fréttir 09.03 Laufskálinn 09.45
Laufskálasagan 10.00 Fréttir 10.03
Við leik og störf 11.00 Fréttir 11.03
Árdegistónar 11.53 Dagbókin 12.00
Fréttayfirlitá hádegi 12.01 Endurtek-
inn morgunauki 12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir 12.48 Auðlindin
12.55 Dánarfregnir 13.05 I dagsins
önn 13.30 Hornsófinn 14.00 Fréttir
14.03 Útvarpssagan: Maðurinn sem
alltaf vantaði klósettpappír eftir Bill
Valgarðsson 14.30 Miðdegistónlist
15.00 Fréttir 15.03 Kíkt út um kýraug-
að 16.00 Fréttir 16.05 Völuskrín 16.15
Veðurfregnir 16.20 Á förnum vegi
16.40 Ég man þá tið 17.00 Fréttir
17.03 Vita skaltu 17.30 Tónlist á sið-
degi 18.00 Fréttir 18.03 Hér og nú
18.18 Að utan 18.30 Auglýsingar
18.45 Veðurfregnir 19.00 Kvöldfréttir
19.35 Kviksjá 19.55 Daglegt mál
20.00 í tónleikasal 21.30 Stundar-
korn í dúr og moll 22.00 Fréttir 22.07
Að utan 22.15 Veðurfregnir 22.20
Orð kvöldsins 22.30 Leikrit vikunnar:
Hann kemur, hann kemur eftir Gunn-
ar Gunnarsson 23.15 Djassþáttur
24.00 Fréttir 00.10 Miðnaeturtónar
01.00 Veðurfregnir 01.10 Næturút-
varp á báðum rásum til morguns.
Rús 2
07.03 Morgunútvarpið 08.00 Morg-
unf rétt ir 09.03 N í u fjögu r 11.30 Þarfa-
þing 12.00 Fréttayfirlit og veður
12.20 Hádegisfréttir 12.45 Níu fjögur
13.20 Vinnustaðaþrautirnar þrjár
14.10 Gettu beturl 16.03 Dagskrá
18.03 Þjóðarsálin 19.00 Kvöldfréttir
19.32 Gullskífan 20.00 Lausa rásin
21.07 Á tónleikum með Michelle
Schocked 22.07 Landið og miðin
00.10 í háttinn 01.00 Næturútvarp á
báðum rásum til morguns.
Bylgjan
07.00 Eiríkur Jónsson 09.00 Páll Þor-
steinsson 11.00 Valdís Gunnarsdóttir
14.00 Snorri Sturluson 17.00 ísland í
dag 18.30 Hafþór Freyr Sigmunds-
son 22.00 Kristófer Helgson 23.00
Kvöldsögur 24.00 Kristófer 02.00
Þráinn Brjánsson.
Stjarnan
07.00 Dýragarðurinn 09.00 Bjarni
Haukur Þórsson 11.00 Geðdeildin
stofa 102 12.00 Sigurður Helgi Hlöð-
versson 14.00 Sigurður Ragnarsson
17.00 Björn Sigurðsson 20.00 Jó-
hannes B. Skúlason 22.00 Ólöf Marín
Úlfarsdóttir 02.00 Næturpopp á
Stjörnunni.
Aðalstöðin
07.00 Á besta aldri. Morgunandakt
09.00 Morgunverk Margrétar 09.30
Húsmæðrahornið 10.00 Hvað gerðir
þú við peningana sem frúin í Ham-
borg gaf þér? 10.30 Mitt útlit — þitt
útlit 11.00 Tónlist Aðalstöðvarinnar
11.30 Slétt og brugðið 12.00 Hádeg-
isspjall 13.00 Strætin úti að aka 13.30
Gluggað í síðdegisblaðið 14.00
Brugðið á leik í dagsins önn 14.30
Saga dagsins 15.00 Topparnir takast
á 15.30 Efst á bau gi vestanhafs 16.30
Mitt hjartans mál 18.30 Tónlist á Að-
alstöðinni 19.00 Eðaltónar 22.00 Á
nótum vináttunnar 24.00 Næturtón-
ar Aðalstöðvarinnar.