Alþýðublaðið - 31.01.1991, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 31.01.1991, Qupperneq 3
Fimmtudagur 31. janúar 1991 INNLENDAR FRETTIR 3 FRÉTTIR í HNOTSKURN TIL MINNINGAR UM VILHJÁLM: Breiðvangur frumsýnir á laugardagskvöldið söng- og skemmtidag- skrána Vid eigum samleið, dagskrá sem byggð er á söng- ferli Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, sem lést í bílslysi í Lúxembúrg í blóma lífsins árið 1976. Tólf ára litríkur ferill Vilhjálms verður rifjaður upp af mörgum okkar bestu söngvurum, og þar koma við sögu margir okkar bestu krafta. Egill Eðvarðsson setur sýninguna upp. Á mynd- inni eru þeir sem við sögu koma í sýningunni. GOLFMÓT Á ÞORRANUM: Það er skammt öfganna á milli í veðurfarinu hér á landi. Dagur á Akureyri greinir frá því á þriðjudaginn að þar í bæ hafi farið fram þorramót í golfi helgina á undan. Um 20 kylfingar tóku þátt í mótinu á Jaðarsvelli. Á sunnudag léku golf á vellinum einir hundr- að félagar í Golfklúbbi Akureyrar. Gísli Bragi Hjartar- son, formaður GA segir: „Ég man nú ekki eftir að hér hafi verið haldið mót á þorranum fyrr og elstu menn ekki held- ur.“ Hann segist vona að vorið sé komið. Búast má við að þeim norðanmenn setji á mót með stuttum fyrirvara hald- ist „vorið“ áfram. UMHVERFISÍMYND 0G HAGSÆLD: Ingvi Þor- steinsson, náttúrufræðingur, stýrir málþingi íslands- nefndar Norræna umhverfisársins í Norræna húsinu á laugardaginn kl. 14. Málþingið heitir Umhverfisímynd og hagsæld á Islandi. Málshefjendur eru sjö, Júlíus Sól- nes, ráðherra umhverfismála, Kristín Halldórsdóttir, formaður Ferðamálaráðs, Haukur Halldórsson, formað- ur Stéttarsambands bænda, dr. Alda Möller, matvæla- fræðingur hjá SH, Jakob Björnsson orkumálastjóri, dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor, og Sigþrúður Gunnarsdóttir menntaskólanemi. Málþingið er öllum op- ið. Persaflóastríðid og ferdamannastraumurinn: LÍTIL ÁHRIF Á ÍSLANDI Sáralítid hefur dregid úr ferðum útlendinga til landsins á síðustu dög- um að því er virðist — gagnstætt því sem nú er að gerast í mörgum lönd- um heims. „Lítið hefur verið um að fólk afbóki gistingu," segir Jónas Hvannberg, hótel- stjóri á Hótel Sögu. Hann sagði að fólk væri hikandi og spyrðist fyrir um með hve löngum fyrirvara þyrfti að afbóka gistingu. Jónas sagði að ekki hefði borið á því að fólk frá Norðurlönd- unum hefði afbókað, og nýting á hótelinu væri eðli- leg miðað við árstíma, reyndar nokkru betri en þeir hefðu gert ráð fyrir í áætlunum sínum. Evrópubúar lelja sig ttruggq á Islandi Helgi Jóhannsson, for- stjóri hjá Samvinnuferð- um-Landsýn, sagði að eitt- hvað hefði verið um að menn afpöntuðu ferðir en það væri ekki mikið. Hann sagði að ekki væri að sjá að munur væri á því hvort um ferðir frá Ameríku eða Evr- ópu væri að ræða í þessum afbókunum. „Það sem er mest áberandi er að menn eru að doka við og færa bókanir aftur í tímann. Pantanir sem gerðar hafa verið fyrir sumarið eru síst minni en áður, það er greinilegt að Evrópubúar telja það mjög öruggt að fara í sumarfrí til íslands," sagði Helgi. Ekki verður hægt með góðu móti að átta sig á því hvort Islendingar sem hyggja á ferðir til útlanda láta ástandið hafa áhrif á sig fyrr en nokkuð verður liðið á febrúar og ferða- skrifstofurnar byrjaðar af krafti að bóka fyrir sumar- ferðir. Helgi sagði að áætl- anir um vetrarsólarferðir hefðu ekkert breyst. Eitt- hvað mun hafa verið um það að ferðum erlendra starfshópa, sem koma áttu til íslands í stuttar skemmti- ferðir, hafi verið aflýst. Meg Minsloff, flugfreyja: Á allt eins von á aö þurfa aö fljúga meö vopn til Persa- flóa. A-myndir: E.ÓI. Sumir eigq' alltaf von q hinu versta Að því best verður séð hefur stríðið við Persaflóa og hræðsla fólks við hryðjuverk ekki haft veru- leg áhrif á ferðir til eða frá íslandi. Alþýðublaðið hafði samband við útlendinga sem voru staddir hér á landi og bar þeim saman um að það hefði ekki breytt þeirra ferðaáætlunum þótt stríð geysaði við Persaflóa. Meg Minsloff, flugfreyja frá Chicago, sagði að þegar staðið hefði til að hún færi til íslands hefðu henni síst af öllu dottið í hug hryðju- verk. Hún sagði að í Banda- ríkjunum væri mikil við- búnaður á flugvöllum og það skapaði öryggistilfinn- ingu hjá fólki. Hún sagðist í starfi sínu allt eins eiga von á því að þurfa að fljúga með vopn til Saúdí-Arabíu og hún hefði engar áhyggjur. McKinloch-hjónin bresku, sem blaðamaður Alþýðublaðsins rakst á í snjómuggunni fyrir utan Hótel Loftleiðir, sögðu að fólk mætti alltaf eiga von á því að eitthvað kæmi fyrir á ferðalögum. Ef menn væru alltaf að ímynda sér allt það versta, færu engir í ferða- lög. Þau sögðust hafa kom- ið til íslands til þess að kom- ast í snjó og kulda og draumar þeirra hefðu full- komlega ræst. McKinloch-hjónin sögðust hafa komið til að fá kulda og snjó — draumar þeirra rættust fullkomlega. SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN Á ALÞJÓÐAMARK- AÐ: Svo kann að fara að geisladiskar og hljómplötur með leik Sinfóníuhljómsveitar ísiands fari á alþjóðlegan markað. Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu mennta- málaráðherra um að tryggja Sinfóníuhljómsveitinni allt að 3 milljónir króna á ári í þrjú ár til að unnt verði að standa við samning við hið virta útgáfufyrirtæki Chandos um upptökur. Gert er ráð fyrir að gefa út þrjár plötur eða diska með hljómsveitinni á ári, alls 9 á samningstímanum. Fyrir- tækið ræður yfir öflugu sölukerfi í 32 löndum. Fyrsta upp- taka verður í lok febrúar. PÓSTUR 0G SÍMI HÆKKAR: Sími og póstburðar- gjöld hækka um 3,5% til jafnaðar um mánaðamótin. Póst- ur & sími segir að þetta sé nauðsynlegt til þess að stofnunin geti staðið undir rekstri, þ.e. fjárfestingum ársins og greiðslu 550 milljón króna framlags til ríkissjóðs sam- kvæmt forsendum fjárlaga ársins. Þriggja mínútna símtal til Egilsstaða mun nú kosta 20 krónur og 55 aura en kostaði áður 19,80 krónur,- á nóttunni kostar sama símtal 11,80 krónur í stað 11,40 kr. áður. SKÆÐAR PESTIR í GANGI: Héraðslæknirinn í Reykjavík gefur út tilkynningu um farsóttir í umdæmi höf- uðborgarinnar. I síðasta mánuði kvað rammt að kvefi og veirusýkingum í efri loftvegum eins og læknar orða það. Blaðið hefur fregnir af að enn kveður mjög að sjúkdómum sem þessum. Fólki er ráðlagt að fara varlega, fái það slíkar pestir, eftirköst hafa orðið slæm hjá mörgum sem fara of snemma af stað eftir legu. HÆKKUNUM MÓTMÆLT: Miðstjórn Alþýðusam- ísland í A-flo bands íslands lýsir yfir vonbrigðum með að sjá einstaka aðila ganga fram með stórfelldar hækkanir eins og nú ger- ist, fasteignagjöld, fasteignatryggingar hjá tryggingafélög- unum og fleira. Varað er við afleiðingum slíkra hækkana og þeim mótmælt. Áframhald þjóðarsáttar ráðist af því að samstaða haldist. Miðstjórnin ályktaði ennfremur um ástandið við Persaflóa og vildi láta reyna enn frekar á frið- samlega lausn. Ísland i A-flokk! Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins og utanríkisráðherra, heldur ræðu á fjölmennum og líflegum fundi norður á Akureyri. Sigbjörn Gunnarsson sem skipar fyrsta sæti A-lista Alþýðuflokksins í norðurlandskjördæmi — eystra stýrið fundi. Jóahanna Sigurðardóttir, varaformaður Alþýðuflokksins og félagsmálaráðherra, flutti einnig ræðu á fundinum og sátu ráðherrarnir síðan fyrir svörum. Fundurinn var upphaf á fundarherferð Alþýðuflokksins undir kjör- orðinu ísland í A-flokk!

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.