Alþýðublaðið - 08.02.1991, Side 8
GEVAUA
I Þai er kaHið 687510
• • • • • • • •
• • • • • • • • •
• • • • • • • • • • • • • • • • • • •
• • • • • • • • •
• • • • • • • • • • • • • • • •
SEXIRASKAR FLUGVÉLAR TILIRANS: íranir segja að sex
íraskar flugvélar hafi flogið yfir lofthelgi landsins á miðvikudag og
fimmtudag en aðeins ein þeirra hafi náð að lenda óskemmd.
MIÐ-AUSTURLANDABANKI: James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefur lagt til að stofnaður verði sérstakur banki í
Mið-Austrlöndum, sem hafa það hlutverk að byggja upp eftir eyðilegg-
ingar Persaflóastríðsins.
NVTT ÖRYGGISKERFI í PERSAFLÓA: Yfirvöld í Egyptalandi,
Saúdí-Arabíu og Sýriandi segjast vera að vinna að nýju öryggiskerfi í
Persaflóasvæðinu, sem koma á á um leið og írakar verða hraktir burt
frá Kúvæt.
MOTMÆLI í ALBANÍU: Þúsundir albanskra nema sem eru í verk-
falli söfnuðust saman annan daginn í röð í höfðuborginni Tirana til
þess að krefjast efnahagsumbóta og afsagnar kommúnistastjórnarinn-
ar, að sögn taismanns stjórnarandstöðunnar.
HAGRÆÐING EINS OG ÁSTIN: „Hagræðing er eins og ástin.
Við vitum ekki hvers við förum á mis fyrr en við höfum kynnst henni
af eigin raun,“ segir hún Paula Liukkonen, hagfræðiprófessor í Stokk-
hólmi, og fullyrðir að aðstæður á vinnustöðum skipti miklu máli.
Verkafólk er fjórðu hverja stund frá vegna veikinda og það stafar fyrst
og fremst af því að stjórnendur bæta ekki aðstæður á vinnustað, fuil-
yrðir Paula.
HRYÐJUVERKIDOWNINGSTRÆT110: írski lýðveldisherinn
hefur lýst yfir ábyrgð á sprengjuvörpuárás á bústað breska forsætisráð-
herrans, Johns Majors, í miðborg Lundúna. Hryðjuverkamenn skutu
sprengjum að bústaðnum en forsætisráðherrann og ráðherrar hans
siuppu ómeiddir.
SPRENGJUM VARPAÐ Á ÍRASKA HERMENN: Bandaríkja-
menn og bandamenn þeirra héldu uppi látlausum loftárásum á íraska
hermenn í gær og þykir það benda til að orrusta á landi hefjist innan
tíðar. írakar segjast bíða óþreyjufullir eftir landhernaði. Sprengjuárásir
bandamanna beinast í auknum mæli að vegum og brúm í írak. Á síð-
ustu fjórum dögum hafa sprengjuvéiar og eldflaugar gjöreytt a.m.k.
þremur brúm og sprengt upp helstu vegi sem tengja Baghdad við Jórd-
aníu og Kúvæt.
BANDARÍKJAMAÐUR DREPINN: Byssumaður skaut Banda-
ríkjamann til bana í gær. Maðurinn starfaði við tyrkneska herstöð, sem
notuð var af bandarískum flugvélum til loftárása á írak. Öfgasamtök
vinstri manna segjast bera ábyrgð á morðinu.
FORMAÐURINN REKINN ÚR I
FLOKKNUM? Líklegt er að formað- I
ur Skánska flokksins í Suður-Svíþjóð I
verði rekinn úr eiginn flokki, þar sem B
25. grein flokkslaga segir að þeir sem ■
hafa verið dæmdir fyrir afbrot séu ekki
gjaldgengir. Herslow formaður var tek-
inn fullur undir stýri um daginn og á yf-
ir höfði sér fangelsisvist. Verði hann
sekur fundinn fellur hann sjálfkrafa á
reglum þessa undarlega stjórnmála-
flokks.
Tími hrybjuverka runninn upp?
Sprengjutilræði við
bresku ríkisstjórnina
Sprengjur halda áfram að falla
á Baghdad, tilraun var gerð til að
sprengja bresku ríkisstjórnina í
loft upp og bandaríkjamaður var
drepinn af byssumanni í Tyrk-
landi. Þetta var það helsta sem
gerðist í gær á 22. degi Persa-
flóastríðsins og einnig vakti at-
hygli ræða Husseins Jórdaníu-
konungs þar sem hann varpaði
hlutleysi fyrir róða og tók upp
hanskann fyrir íraka.
Bandarískt herskip skaut úr fall-
byssum á íraskar hersveitir í Kúvæt
í gær á sama tima og bandarískir
landgönguliðar undirbúa orrustu á
landi til að hrekja fraka frá Kúvæt.
í London gerðist það rétt fyrir há-
degi í gær að þremur sprengjum var
skotið úr sprengjuvörpu að Down-
ingstræti 10, forsætisráðherrabú-
staðinn, á sama tíma og John Major
fundaði þar með ráðherrum sínum.
Sprengjunum var skotið úr sendi-
ferðabifreið sem stödd var skammt
frá. Skotið var í gegnum þak bifreið-
arinnar og skömmu síðar varð
sprenging í henni en tveir menn sá-
ust hlaupa frá bílnum. Ein sprengjan
sprakk í garði forsætisráðherrabú-
staðarins en engan ráðherra sakaði,
hins vegar skarst einn maður lítil-
lega af völdum glerbrot. Það var svo
u.þ.b. 5 klukkustundum seinna að
írski lýðveldisherinn, IRA, lýsti
verknaðinum á hendur sér. Talið er
að IRA sé í nánum tengslum við
hryðjuverkasamtök í Mið-Austur-
löndum og er ætlað að írakar standi
Sudur-Afríka:
Pele
fagnar
umbotum
Forseta Suður-Afríku, F.W. de
Klerk, bárust í gær hamingju-
óskir vegna umbótastefnu sinn-
ar og aðgerða til að uppræta að-
skilnaðarstefnuna frá engum
öðrum en Brasilíumanninum,
Edson Arantes Do Nascimento,
sem betur er þekktur undir
nafninu Pele.
Utanríkisráðherrann, Pik Botha,
sagði að bréf frá Pele, sem er einn
besti knattspyrnumaður allra tíma,
hafi borist eftir diplómatískum leið-
um. í bréfi sínu sagði Pele, sem hefur
verið harður andstæðingur aðskiln-
aðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afr-
íku: „Það er mér mikil ánægja að
heyra að þér hafið tekið skref í átt til
að eyða þeim vegg sem verið hefur
á miili svartra og hvítra." Pele bætti
við að sem mannvera óháð lit eða
kynþætti vildi hann hvetja til um-
bóta í landinu sem væru byggðar á
mannlegri grunni.
De Klerk lofaði í síðustu viku að
þurrka út leifar aðskilnaðarstefn-
unnar og leggja drög að lýðræðis-
legu stjórnarfari. Botha sagði að de
Klerk hefði fagnað bréfi Peles.
Margir þjóðhöfðingjar hafa fagn-
að umbótaáætlununum, þ.á m. Ge-
orge Bush Bandaríkjaforseti og
John Major, forsætisráðherra Bret-
lands.
íraskir landgönguliöar bíöa óþreyju-
fullir eftir aö berjast við hermenn fjöl-
þjóöahersins.
á bak við þessa aðgerð. Skömmu
eftir atburðinn hvöttu írakar stuðn-
ingsmenn sína um heim allan að
hefja hryðjuverkastarfsemi gegn
bandamönnum.
Annar atburður sem talinn er
tengjast stríðinu var drápið á banda-
rískum ríkisborgara í Tyrklandi í
gær en hann féll fyrir byssumanni.
Maðurinn hét Bobbie Mozelle og
vann í herstöð Bandaríkjanna í
Tyrklandi, þaðan sem bandarískar
flugvélar halda í loftárásir á írak.
Bandamenn héldu uppi miklum
loftárásum á írak í gær sem endra-
nær og blaðamenn staddir í Baghd-
ad segja að a.m.k. sex óbreyttir
borgarar hafi fallið og 15 slasast.
Þessum loftárásum var að miklu
leyti beint að brúm yfir ánna Tígris
og einnig á lýðveldisvörðinn, írösku
sérsveitirnar við landamæri íraks.
Vegna orðróms um að óbreyttir
borgarar yrðu vægðarlaust fyrir
árásum bandamanna, mun George
Bush Bandaríkjaforseti hafa hringt í
Sýrlandsforseta, Hafez al-Assad, til
að fullvissa hann um að fjölþjóða-
herinn beindi sprengjum sínum
ekki að íbúahverfum né helgum
stöðum.
Irakar segja að bandamenn hafi
farið í 33 árásaferðir á Baghdad í
fyrrinótt en þeir segjast hafa svarað
með eldflaugaárás á ísrael. Þetta
hafði ekki fengist staðfest seint í
gær. Síðast var tilkynnt um eld-
fiaugaárás á ísrael á sunnudag.
Á blaðamannafundi sem banda-
ríski herinn hélt kom fram að
bandarískar orrustuþotur hefðu
skotið niður tvær íraskar Su-22 þot-
ur og mögulega þriðju til viðbótar
þegar þær reyndu að flýja til Irans,
í gær. Talsmaður Bandaríkjahers
segir að bandarískar orrustuþotur
hafi skotið niður a.m.k. 33 íraskar
flugvélar í loftbardögum og þrjár
þyrlur frá byrjun Persaflóastríðsins
þann 17. janúar sl.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, lagði til í gær, er
hann ávarpaði utanríkismálanefnd
bandaríska þingsins, að komið yrði
á laggirnar sérstökum banka í
Mið-Austurlöndum, hliðstæðum
þeim sem stofnaður var í fyrra til að
hjálpa austantjaldsríkjum, í þeim til-
gangi að koma hlutunum í samt
horf eftir stríðið.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA
...Rauttnef
eruppbyggjandi
Sala rauða nefsins er fjrrir lokaátak húsbyggingar
Samtaka endurhæfðra mænuskaddaðra.
• SEM-hópurinn.