Alþýðublaðið - 08.03.1991, Side 5
Föstudagur 8. mars 1991
5
Þvert yfir Laugardalinn á aö koma hraðbraut sem tengir saman Miklubraut og Kleppsveg. Gert er ráö fyrir að hraöbrautin liggi meðfram skemmtigarðin-
um og núverandi skrúðgarði, þar sem Holtavegur er nú. Bílastæði við tónlistarhúsið er álíka stórt og knattspyrnuvöllurinn í Laugardalnum og mun vænt-
anlega standa autt að örfáum kvöldum ársins undanskildum.
Hraöbrautir um Laugardalinn
Í fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar er gert ráð
fyrir 32 milljónum til lagningar hraðbrautar þvert
og endilangt yfir Laugardalinn. Bilastæði við fyrir-
hugað Tónlistarhús i Laugardalnum tvöfalt stærra
en Austurvöllur. Væn sneið Laugardalsins ætluð
undir það sem kallað er á máli borgarskipulags
stofnanalóðir með útivistargildi.
Ólína Þorvarðardóttir segir að
þegar þetta mál hafi komið til af-
greiðslu í borgarstjórn hafi fulltrú-
ar Nýs Vettvangs lagst gegn lagn-
ingu vegar þvert yfir Laugardal-
inn. ,,Ég tel að allt sem gert er á
þessu svæði þurfi að gera í nánu
samráði við íbúana á svæðinu,
Laugardalurinn er auk þess ein
helsta perla borgarinnar og því
þarf að yfirvega sérstaklega vel
allar framkvæmdir á þessu svæði"
Ólína sagði að þessar fram-
kvæmdir nú vektu vissa furðu í
ljósi þess að borgarmálahópur
Sjálfstæðisflokksins hefði verið
mótfallinn þessum áformum.
Ólína benti á að Sjálfstæðis-
menn hafa löngun gert það sem
kalla mætti friðun Laugardalsins
að sínu helsta kosningamáli en nú
væru uppi áform um meiri bygg-
ingar á þessu svæði en nokkru
sinni fyrr.
Guðrún Jónsdóttir, arkitekt og
varaborgarfulltrúi, segir að þegar
vinstri meirihlutinn í borgarstjórn
hafi haft uppi áform um að byggja
íbúðir á litlum hluta þess svæðis
sem nú er ætlaður undir stórhýsi
hafi komið fram kröftug mótmæli
og því hafi verið hætt við fram-
kvæmdir. ,,En nú á að leyfa bygg-
ingu stórhýsa, og bílastæða og
hraðbrauta á margfalt stærra
svæði. Þetta mun valda aukinni
mengun í Laugardalnum og rýra
gildi hans sem útivistarsvæðis,"
sagði Guðrún.
Fyrirhugaðri vegalagningu er
ætlað að tengja saman Miklubraut
og Kleppsveg þvert yfir Laugar-
dalinn nokkru austar en núver-
andi göngustígur liggur.
Jón Guðmundsson forustumað-
ur i Laugardalshreyfingunni segir:
,,Ég tel þetta vera faglegt stórslys,
og að þessar framkvæmdir muni
hluta Laugardalinn i nokkrar um-
ferðareyjar einangraðar hverja frá
annarri með hraðbraut. Þetta er
mál þjóðarinnar allrar og benda
má á að framsýnir menn bentu á
það strax í upphafi aldarinnar að í
Laugardalnum væri ákjósanleg-
asti staðurinn fyrir ræktaðan garð
sem væri útivistarsvæði allrar fjöl-
skyldunnar, líkt og þekktist víða í
borgum erlendis."
Jón sagði að svokölluð Laugar-
dalssamtök sem stöðvuðu á sínum
tíma byggingu á 150 húsum í
Laugardalnum með undirskrift
9000 manna hyggist fara fram á
það við borgarstjórann að hann
fresti framkvæmdum þar til borg-
arbúum hafi gefist kostur umræð-
um um málið, og vænta þess að
borgarstjórinn bregðist vel við
þessari málaleitan.
Laugardalssamtökin ætla að
halda fund í veitingahúsinu Ölveri
kl. 15.00 laugardaginn 9. mars.
' Ólafur Laufdal
KOMST AD
ÞVIEINN
DAGINN AD
EGATTI
EKKINEITT
^L>- JLr JL.-
*UaHlcUCAUátct
ýuzMt&já&eudcvi
tcýcíÚelcUáMt&
Hverjir eru þeir og til hvers voru
þeir að bjóða fram?
DULRÆNA
HAGKERFIÐ
VELTIR150
MILLJONUM
Margir hafa gert nýöldina að
féþúfu
★ ★ ★
Dannaður
piparsveinn
Sævar Jónsson, knattspyrnu-
maður og kvennagull, í viðtali
REYKJAVÍK MUN
SÖKKVA í SÆ OG
HAFNARFJÖRÐUR
FER UNDIR
HRAUN
Draumspakir sjá fyrir
gífurlegar náttúruhamfarir á
næstu árum
Fullt blað af slúðri