Alþýðublaðið - 22.03.1991, Page 1
FÖSTUDAGUR
22. MARS 1991
Stjórn Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur í Baðstofunni í
gamia iönskólahúsinu eftir að hún var endurgerð. Formaður
félagsins, Gissur Símonarson, stendur að baki Sigríðar
Bjarnadóttur, Sigurodds Magnússonar, Helga Hallgrímsson-
ar varaformanns og Guðmundar J. Kristjánssonar gjaldkera.
ENDURBORIN BAÐSTOFA: Lokið hefur verið við að
gera upp Baðstofu iðnaðarmanna í gamla iðnskólahúsinu
við Lækjargötu sem varð fyrir bruna í júní 1986. Hún hefur
nú verið færið í sína upprunalegu mynd. Mikill útskurður
skreytti baðstofuna sem Ríkharður Jónsson myndhöggv-
ari hafði teiknað og skorið út. Þegar búið var að endurnýja
burðarviði, einangra þak og ganga frá gólfi eftir brunann
ákvað stjórn Iðnaðarmannafélagsins að Baðstofan skyldi
byggð upp alveg eins og hún var fyrir brunann. Við það
verk var stuðst við Ijósmyndir og það af þiljum, öndvegis-
súlum og burðarviðum sem bjargaðist úr brunanum.
FORSTJÓRI EIMSKIPS STJÓRNARFORM.
FLUGLEIÐA ! Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskips
var kjörinn formaður stjórnar Flugleiða á fyrsta stjórnar-
fundi félagsins að aflokn-
um aðalfundi í gær. Á aðal-
fundinum var kosið um
fimm af níu sætum í stjórn
Flugleiða. Allir voru endur-
kjörnir í stjórnina nema
Sigurður Helgason sem
ekki gaf kost á sér áfram
eftir 38 ára starf að íslensk-
um flugrekstri. I hans stað
var kosinn í stjórnina
Benedikt Sveinsson. Á
aðalfundinum var sam-
þykkt að auka hlutafé Flug-
leiða um 400 milljónir
króna að nafnvirði. Auk þess samþykkti fundurinn tillögu
umútgáfu 10%jöfnunarhlutabréfaogum 10% arðgreiðslu
til hluthafa.
EKKI LEIKNAR AUGLÝSINGAR: Flokkarnir munu
ekki birta leiknar stjórnmála- eða kynningarauglýsingar í
sjónvarpi eða útvarpi fram að kjördegi.
í sjónvarpi er hins vegar heimilt að birta skjáauglýsingar
um fundi og samkomur flokkanna vegna kosninganna og
þar mega koma fram merki og/eða vígorð flokkanna. 1
hljóðvarpi er heimilt að flytja auglýsingar lesnar af þul og
þeim auglýsingum má fylgja bakgrunnstónlist viðkom-
andi hljóðvarpsstöðvar eða bakgrunnsstef að vali auglýs-
anda.
Þetta er ákveðið samkvæmt samkomulagi sem formenn
Alþýðuflokks, Alþýðubandalags, Borgaraflokks, Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa undirritað sem og
fulltrúi Kvennalistans.
LEIDARINN I DAG
Leiðarinn í dag fjallar um þá möguleika sem
íslendingum er búnir með virkjun orkulinda landsins
og raforkusölu. Þá er sagt frá hugmyndum iðnaðar-
ráðherra um mögulega einkavæðingu orkufram-
leiðslu- og orkusölufyrirtækja.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4. HIÐ NÝJA LANDNÁM.
Hraður heimur
og hægur
Bjarni Þorsteinsson skrifar
um þá tvo ólíku heima sem
byggja jörðina. Þann harða
heim og kannski hamingju-
sama — og hinn sem er hægari
og fátækari. Fróðleg grein.
Afgreiðsluþingið
113. löggjafarþinginu er lokið
— sannkölluðu afgreiðsluþingi
þar sem einstakir þingmenn
máttu sín lítils, en ráðherrarnir
þeim mun meira. Þorlákur
Helgason skoðar þingstörfin í
vetur.
Á tali í þinginu
Meira um þingstörfin frá
Guðmundi Einarsyni. Hann
skrifar á sinn skemmtilega hátt
um Alþingi og alþingismenn —
það er greinilega á tali hjá fleir-
um en Hemma Gunn.
Orkuvinnsla Islendinga stefnir í óþekktar hœöir. Iönadarráöherra vill
EINKAVÆÐA
RAFORKUVER
Tjörnin í Reykjavík minnkar nú ár frá ári og haldi áfram sem horfir verúur hún ekki annað en
lítill andapollur að lokum. Nú er verið að fylla upp i hana frá Iðnó að nýja ráðhúsinu sem tók
sinn skerf af Tjörninni. Unga stúlkan á myndinni lætur það þó ekki á sig fá en ekki verður
betur séð en endurnar standi á öndinni yfir ósköpunum og að gæsirnar séu komnar með
gæsahúð. Eflaust verður þessi uppfyll.ng dúfnaveisla fyrir dúfurnar meðan svanirnir syngia
sinn svanasöng. A-mynd: E.Ól.
Sala á raforku gæti veitt
þjóðinni 30—40 miiljarða
króna á ári í hreinar tekjur
á næstu öld. Jón Sigurðs-
son iðnaðarráðherra vill
að lífeyrissjóðum verði
gert kleift að fjárfesta í raf-
orkuvinnslu og að stofnað
verði sérstakt fyrirtæki
um næstu virkjanir.
Jón Sigurðsson sagði á árs-
fundi Orkustofnunar að
reynslan hefði kennt mönn-
um að það væru alvarlegir
gallar á skipulagi orkuiðnað-
arins og að athugandi væri
að stofna sérstakt fyrirtæki
um næstu stórvirkjanir á eftir
þeim sem væru á dagskrá.
Verðmyndun á raforku væri
meingölluð, og æskilegra að
einkavæða „einokunarfyrir-
tæki orkuiðnaðarins." Frjáls
samkeppni veitti æskilegra
aðhald en opinberar eftirlits-
og verðlagsnefndir, sem
venjulega framreiknuðu
kostnað út frá löngu úreltum
forsendum.
Jakob Björnsson orku-
málastjóri dró upp mynd af
framtíðarorkubúskap íslend-
inga. Sagði hann að gengju
áform eftir um nýtingu raf-
orkunnar í nánustu framtíð
mætti gera ráð fyrir allt að tí-
földun raforkuframleiðslunn-
ar til ársins 2030 og að á síð-
asta þriðjungi 21.aldar yrðu
hreinar tekjur þjóðarbúsins
30—40 milljarðar króna á nú-
verandi verðlagi. Reiknað er
með að árið 2030 verði þriðj-
ungur raforkuframleiðslunn-
ar fluttur út, raforkufrekur
iðnaður nýti 53,9% rafork-
unnar, en aðeins 11,2% fari til
einkanota.
Dómur í
Töggsmáli
Fyrrverandi stjórnarfor-
maður Töggs hf. var
dæmdur í 18 mánaða fang-
elsi í Sakadómi Reykjavík-
ur í gær og til sviptingar
verslunarleyfis ævilangt
fyrir að hafa haft fé úr fyr-
irtækinu fyrir gjaldþrot
þess.
Þá var lögmaður Töggs
dæmdur til skilorðsbundins
fangelsis í þrjá mánuði og
sviptur leyfi til málflutnings í
sex mánuði fyrir að hafa mis-
notað aðstöðu sína. Ákæru á
hendur fyrrverandi deildar-
stjóra Töggs og tveggja
stjórnarmanna verður frest-
að og fellur niður eftir þrjú ár
ef þeir gera ekkert af sér á
meðan. Sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Reykjavíkur og
deildarstjóri Sparisjóðsins
voru líka ákærð í málinu en
sýknuð í Sakadómi.
Tjörnin að verða andapollur
RITSTJÓRN © 625566 - 625538 • FAX 627019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR © 625566