Alþýðublaðið - 22.03.1991, Blaðsíða 6
6
Föstudagur 22. mars 1991
Baráttngleði
iafnaðarmaniia
í kvöld,
föstudaginn 22. mars
í Fóstbræðraheimilinu
y/Langholtsveg.
Gleðin hefst kl 21.00.
Boðið upp á hanastél
og pinna.
Hljómsveit hússins leikur
fyrir dansi til kl. 03.00.
Aðgangseyrir kr. 500.-
Dundrandi fjör.
Övæntar uppákomur.
Kaupmenn
vilja
öliði
búðirnar
„Starfsmönnum almennra
verslana er ekkert síður treyst-
andi en afgreiðslumönnum hjá
ÁTVR til þess að krefjast skil-
ríkja um aldur viðkomandi
kaupanda, ef vafi leikur þar á
um,“ segir í ályktun aðaifundar
Félags matvörukaupmanna í
Reykjavík.
Félag matvörukaupmanna í
Reykjavík og nágrenni hefur marg-
sinnis á undanförnum árum áréttað
þá skoðun sína að matvöruverslanir
ættu að fá að selja bjór og jafnvel
borðvín eins og aðrar neysluvörur.
Magnús E. Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasamtak-
anna, sagði í gær að mál þessi hefðu
ítrekað verið reifuð við rétt yfirvöld,
en án árangurs.
„Við bendum á að kaupmenn hafa
til umráða gott og viðurkennt hús-
næði til sölu á hverskonar matvæl-
um. I verslunum kaupmanna starfar
þjálfað verslunarfólk og starfsemi
búðanna er undir eftirliti heilbrigð-
isyfirvalda. Við teljum að starfsfólki
okkar verslana sé ekkert síður
treystandi í þessum efnum en starfs-
mönnum Áfengisverslunar ríkisins,"
sagði Magnús.
Á aðalfundi matvörukaupmanna
var skorað á yfirvöld af fella úr gildi
aðstöðugjöld á matvöruverslunum.
Slíkt gjald telja kaupmenn óeðlilegt
og úr samræmi við nútímann og um
of íþyngjandi fyrir starfsemina.
Getraunaspá
fjölmiðlanna
ro
LEIKVIKA NR.: 12
Chelsea Southampton 1 1 1 1 1 1 1 1 1 X
Coventry ManchesterC X 1 X 1 1 2 X 2 X X
Derby Liverpool 2 2 2 2 2 2 2 X 2 2
Everton Nott.Forest 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Leeds C.Palace 1 1 1 1 X X 1 1 1 X
Manchester Ut... Luton 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Norwich Arsenal 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2
Sunderland Aston Villa X X X 1 X 1 X X X 2
Tottenham Q.P.R 1 1 1 1 1 1 1 2 1 1
Wimbledon Sheffield Utd 1 1 1 1 1 1 1 X X 1
Blackburn .:....Oldham 2 2 X 2 2 2 2 X 2 1
Portsmouth Newcastle 1 1 2 2 X 1 2 1 X 2
Árangur eftir tiu vikur.: 43 53 39 52 45 50 50 39 42 39
Stefnum á 12 rétia
Fjölmiðlarnir tippa á að toppliðin vinni sína leiki um helgina, þ.e. Ar-
senal og Liverpool. Eina undantekningin er Stöð 2 sem spáir að Derby
nái jafntefli við Liverpool, en bæði Arsenal og Liverpool leika á útivelli
um helgina. Þessi tvö lið hafa talsvert forskot á næstu lið og heyja nú
einvígi um Englandsmeistaratitilinn. Arsenal hefur 61 stig, eða stigi
betur en Liverpool.
Það er enginn ástæða til að fjölyrða um frammistöðu okkar á Al-
þýðublaðinu að þessu sinni. Við vorum ekki meðal þeirra fjögurra sem
voru með 12 rétta um síðustu helgi. Við stefnum hins vegar að því að
ná tólfunni nú um helgina. Erfiðasti leikurinn er hins vegar sjónvarps-
leikurinn milli Sunderland og Aston Villa. Við spáum jafntefli í þeim
leik en maður veit aldrei upp á hverjum andsk... ensku liðin kunna taka
á þessum seinustu og verstu tímum. Annars er okkar spá svohljóðandi:
1X2/111/2X1/X2X.
Rauður:
þríhymingur
= Viðvörun
Gera aukaverkanir lyfsins
sem þú tekur þig hættulegan
í umferöinni?
Félagsfundur
veröur haldinn mánudaginn 25. mars 1991, kl. 20.00
aö Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Dagskrá:
1. Félagsmál — starfsnefndir félagsins.
2. Atvinnumál og launaþróun.
3. Önnur mál.
Mætið stundvíslega.
Stjórnin.
JT
Alver og atvinna
Opinn fundur
með Jóni Sigurðssyni, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, í Glaðheimum í Vogum, föstudaginn 22. mars
kl. 20.30.
Fundarstjóri: Jón Gunnarsson oddviti.
S.U.J. - Tungumálanámskeið
Umsóknareyðublöð um tungumálanámskeiðin er-
lendis á vegum Æ.S.Í. fyrir æskulýðsleiðtoga eru
komin.
Skilyrði til þátttöku:
1. Aldur 18 til 30 ára.
2. Grunnþekking á viðkomandi tungumáli.
3. Vera virkur þáttakandi í æskulýðsstarfi og vel
upplýst(ur) um starfsemi síns félags/sambands.
4. Hafa áhuga á alþjóðlegu samstarfi.
Tungumálanámskeiðin fara fram á eftirfarandi
tungumálum: Þýsku, ítölsku, spænsku, portú-
gölsku, ensku og frönsku.
Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 25. mars.
Nánari upplýsingar eru gefnar hjá Gylfa í síma
29244.
Kratar til
Cuxhaven
Alþýðuflokksfélögin í Hafnarfirði hafa ákveðið að
endurgjalda heimsókn flokkssystkina sinna frá
Cuxhaven frá því sl. vor og fara í hópferð til Cuxhav-
en um mánaðamótin maí-júní.
Áætlað er að ferðin standi í viku og að í hópnum
verði 30 manns.
Örfá sæti enn laus.
Þeir sem áhuga hafa á þessari skemmtilegu ferð,
hafi samband við Ingvar í síma 52609 eða 50499
eða Valgerði í síma 51920 eða 52615.
Alþýðuflokksfélagön í Hafnarfirði.
Fulltrúaráð
Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði
Aðalfundur
verður haldinn mánudaginn 25. mars kl. 20.30 í Al-
þýðuhúsinu við Strandgötu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Áhersluatriði í kosningabaráttunni. Guðmundur
Einarsson flytur framsögn.
Stjórnin.
í fararbroddi framfara
Verkalýðs- og stjórnmálanefnd S.U.J. og Alþýðu-
flokksfélag Reykjavíkur boða til opins fundar mið-
vikudaginn 27. mars nk. kl. 20.15 í Félagsmiðstöð
jafnaðarmanna í Reykjavík (Rósinni).
Gestur fundarins og framsögumaður verður Jón
Sigurðsson ráðherra og efsti maður á lista Alþýðu-
flokksins í Reykjaneskjördæmi.
Fundarstjóri verður Jón Baldur Lorange, form.
Verkalýðs- og stjórnmálanefndar S.U.J.
Allir jafnaðarmenn velkomnir.