Alþýðublaðið - 22.03.1991, Side 8
• ••• •••• • •••••••••• ••••
• •• •••• ••
•••• •••• • • • •••• ••••
• •• •••• ••
• • •••• ••• • •••• • •
NÝ RÍKISSTJÓRN í KÚVEIT: í nýrri ríkisstjórn í Kú-
veit, sem líklega verður mynduð á næstunni eftir að sú
fyrri sagði af sér í kjölfar þess að hún var sökuð um van-
hæfni, ættu að sitja menn sem skipulögðu andspyrnuna
gegn innrásarhermönnum iraka, sagði einn fráfarandi ráð-
herra. Skipulagsráðherrann, Suleiman al-Mutawa, sagði
að nýja stjórnin ætti einnig að vera skipuð hæfum tæknik-
rötum. Hann var ráðherra í stjórninni sem sagði af sér á
mánudaginn eftir að hafa mistekist að endurbyggja þjón-
ustukerfi landsins þremur vikum eftir að Kúveit var frelsað
af fjölþjóðahernum.
FJÖLDA KÚVEITA SLEPPT: írakar hafa látið um
1,500 Kúveita lausa, en þeir voru handteknir á meðan á
hernámi Kúveits stóð. Mennirnir verða fluttir til Saúdí-Ar-
abíu í dag, föstudag, að sögn talsmanna Kúveithers. Tals-
maður Alþjóða Rauða krossins sagði að allir Kúveitarnir
væru hermenn. Hingað til hafa írakar aðeins látið einn kú-
veiskan hermann lausan.
PALESTÍNUMENN DREPNIR í KÚVEIT: Mannrétt-
indasamtök segja að 30 til 40 manns, aðallega Palestínu-
menn, hafi verið drepnir og 2 þúsund fangelsaðir og marg-
ir pyntaðir í hefndaraðgerðum kúveiska hersins og and-
spyrnuhreyfingarinnar á þeim þremur vikum sem liðnar
eru frá lokum Persaflóastríðsins.
HURD VISS UM SAMVINNU RÚSSA: Utanríkis-
ráðherra Bretlands, Douglas Hurd, sagði að yfirvöld í
Moskvu væru reiðubúin til að styðja friðarumleitanir í
Mið-Austurlöndum og einnig viljug til að ná samkomulagi
í deilum við Vesturlönd um afvopnunarmál. Hurd lét þessi
orð falla að loknum viðræðum við Míkhaíl Gorbatsjov,
Sovétleiðtoga og Alexander Bessmertnykh, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna.
BAKER í JAPAN: James
Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hitti jap-
anska utanríkisráðherrann
til að ræða samvinnu við
Japana að loknu Persaflóa-
stríðinu , en ýmsir hafa ver-
ið óánægðir með framlag
Japana til hernaðarins.
MÓTMÆLI í A-ÞÝSKALANDI: Nærri hundrað þús-
und manns efndu til mótmæla og verkfalla í austurhluta
Þýskalands í gær til að krefjast atvinnu og betri lífskjara.
Þetta eru önnur fjöldamótmælin í gamla Austur-Þýska-
landi á undanförnum þremur dögum, að sögn talsmanns
verkalýðsfélaganna á svæðinu. Mótmælendur fordæmdu
stefnu stjórnvalda, sem þeir líktu við frumskógalögmálið
um að þeir hæfari lifðu af.
OEIRÐIR I S-AFRIKU: Fjöldi manns slasaðist þegar
efnt var til afmælisgöngu til að minnast fjöldamorðanna í
Sharpeville fyrir 31 ári, þegar lögreglan skaut 69 svertingja
til bana er þeir mótmæltu aðskilnaðarstefnu stjórnvalda.
Þúsundir mættu ekki til vinnu í gær til að minnast atburð-
arins sem mótaði álit manna um allan heim á minnihluta-
stjórn hvítra í Suður-Afríku.
TOMBA VANN: ítalski skíðakappinn Alberto Tomba
sigraði í síðustu svigkeppni sem haldin var í heimsbikar-
mótinu á skíðum í vetur. Hann vann þar með heimsbikar-
inn í svigi en Lúxemborgarinn Marc Cirardelli sigraði í
heimsbikarkeppninni samanlagt.
Júgóslavía
Rambar á barmi
borgarastríis
Forsætisráðið í Júgó-
slavíu kom í gær saman til
neyðarfundar til þess að
reyna að forða þessu Balk-
anríki hinna mörgu þjóða
frá uppiausn og borgara-
stríði.
Forsætisráðið, sem skipað
er átta mönnum, er marg-
klofið í afstöðu sinni nú þegar
ástandið í Júgóslavíu er verra
en nokkru sinni frá lokum
síðari heimsstyrjaldar. Boris-
av Jovic, hinn serbneski for-
maður ráðsins, sagði að að-
skilnaðaröfl reyndu að mis-
nota lýðræðið til að reyna að
sundra ríkinu. Gífurleg mót-
mæli hafa farið fram undan-
farið, sérstaklega í Serbíu, og
hafa mótmælendur m.a. kraf-
ist afsagnar kommúnista-
stjórnarinnar. Jovic féllst á að
segja af sér sl. föstudag en að
beiðni forseta Serbíu, Slobo-
dans Milosevic, dró hann af-
sögn sína til baka á miðviku-
dag. Þrír aðrir meðlimir for-
sætisráðsins, sem fer með
æðsta valdið í landinu og hef-
ur gert allt frá því að Tito féll
frá, sögðu af sér eða voru
látnir hætta í kjölfar afsagnar
Jovics. Jovic sagði að tiiraun-
ir til að gera ráðið hlutlaust
gætu ýtt undir þjóðernisróst-
ur og borgarastríð, en nú hafa
sex lýðveldi og tvö héruð þar
fulltrúa.
Lýðveldin Serbía og Króa-
tía hafa átt í blóðugum deil-
um um iangan aldur og deilur
milli þeirra eru helsta orsök
þess óskaparástands sem nú
hefur skapast í landinu.
Kommúnistar fara með völd-
in í Serbíu en andkommúnist-
ar í Króatíu. Eftir að alríkis-
kommúnistaflokkurinn, sem
ráðið hafði ríkjum í Júgóslav-
íu síðustu 45 árin, var leystur
upp á síðasta ári hafa deilur
milli þessara lýðvelda farið
vaxandi.
Milosevic, leiðtogi Serbíu,
vill koma á aftur sterkri mið-
stýringu í landinu og hefur
þrýst á um að herinn verði til
kallaður til að bæla niður
mótmæli og að halda ríkinu
saman. Tudjman, leiðtogi
Króatíu, er harður andstæð-
ingur kommúnista og átti
stóran þátt í að Kommúnista-
flokkurinn var lagður niður.
Hann er hlynntur auknu sjálf-
stæði til handa lýðveldunum
og vill draga úr völdum ríkis-
stjórnarinnar í Belgrad.
Vestrænir stjórnarerind-
rekar telja að ekki verði hægt
að leysa málið án mikilla
árekstra og átaka og spá því
að ástandið muni fara versn-
andi í Júgóslavíu á næstunni.
Stefnubreyting bresku ríkisstjórnarinnar
Nefskattur-
inn burt
Sá merki atburður átti
sér stað í breskum stjórn-
málum að ríkisstjórn
Ihaldsflokksins söðlaði
gjörsamlega um í gær þeg-
ar hún ákvað að fella úr
gildi hinn hataða nefskatt,
sem svo var nefndur og
var hornsteinninn í félags-
og efnahagsstefnu Margr-
étar Thatcher, fyrrum for-
sætisráðherra.
Umhverfismálaráðherr-
ann, Michael Heseltine, sagði
að nýjum skatti yrði komið á
laggirnar til að afla fjár til
þeirrar félagslegu þjónustu
sem sveitarfélögin veita og
yrði þeim falið að innheimta
hann. Tekið verður upp það
skattkerfi sem í gildi var fyrir
tíma nefskattsins, þ.e. skattur-
inn verður byggður á verð-
mæti fasteigna. Heseltine
sagði að tekið yrði mið af
fjölda fullorðna sem búa í
húsi og verðmæti þess.
Nefskatturinn var talinn
ósanngjarn vegna þess að
innheimt var jafnt af ríkum
sem fátækum. Þetta kerfi olli
uppþotum og var ekki líklegt
til að hala inn atkvæði til
handa John Major, hinum
nýja forsætisráðherra, og
Ihaldsflokki hans svona
stuttu fyrir kosningar, en þær
eiga að fara fram ekki seinna
en um mitt næsta ár. Margir
telja að nefskatturinn hafi
öðru fremur orðið Margréti
Thatcher að falli.
Miklar deilur urðu á breska
þinginu þegar ríkisstjórnin
tilkynnti þessa ákvörðun
sina. Neil Kinnock, leiðtogi
Verkamannaflokksins, sagði
að með nefskattinum hefðu
14 milljarðar punda farið í
súginn og hann hvatti Major
til að biðja bresku þjóðina af-
sökunar. Major vísaði þessu á
bug og sakaði Kinnock um að
hvetja borgara til að brjóta
lögin og borga ekki.
Talsmaður Verkamanna-
flokksins, Bryan Gould, sagði
þessa ákvörðun bera vott um
Heseltine umhverfismálaráðherrann er helsti hönnuður nýja
skattsins sem kemur í stað nefskattsins.
stefnu- og ráðaleysi ríkis-
stjórnarinnar og sagði þess
engin dæmi í gjörvallri
stjórnmálasögunni.
Saúdí-Arabía
91 LÉST I
FLUGSLYSI
Saúdí-arabísk herflutn-
ingavél með hermenn frá
Senegal innanborðs hrap-
aði í gær í norðurhluta
Saúdí-Arabíu með þeim af-
leiðingum að 91 lét lífið, að
sögn talsmanna herja
bandamanna í höfuðborg
landsins.
Ekkert er vitað um orsakir
slyssins en vitað er að fimm
manns lifðu af. Senegal var
ein af 33 þjóðum sem sendu
herlið til stuðnings banda-
mönnum undir forystu
Bandaríkjanna í stríðið gegn
írökum. Ekki er ljóst hvort
verið var að flytja hermenn-
ina heim þegar flugvélin
hrapaði.
Fleiri slys urðu í háloftun-
um í gær. Tvær bandarískar
herflugvélar af P-3 Orion
gerð, sem sérhæfðar eru til
kafbátaleitar, rákust á við æf-
ingar yfir Kyrrahafinu og
þeirra 26 manna sem um
borð voru er saknað og ekki
taldir iífs, að sögn talsmanns
bandaríska sjóhersins.
Engin opinber skýring hef-
ur verið gefin á þessu slysi.
Að sögn talsmannsins var
mjög hvassviðrasamt á svæð-
inu þar sem æfingarnar fóru
fram.