Alþýðublaðið - 23.04.1991, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 23. apríl 1991
5
Hinn nýi þingflokkur Alþýöuflokksins kom saman til fyrsta fundar um hádegisbil. Frá vinstri: Gunnlaugur Stefánsson, Össur Skarphéðinsson, Sighvatur Björgvinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Eiður
Guðnason, Jón Baldvin Hannibalsson, Karl Steinar Guðnason, Sigbjörn Gunnarsson og Jón Sigurðsson.
Fimmta hvert
atkvæði dautt
í Norðurlandi vestra varð fimmta
hvert atkvæði dautt, þar sem þau
nýttust engum lista til að koma
manni að. Áttundi hver kjósandi í'
kjördæminu kaus Alþýðuflokkinn,
en Jón Sæmundur Sigurjónsson,
frambjóðandi flokksins, hlaut ekki
kosningu. Jón Sæmundur hafði
hlutfallslega mest fylgi þeirra fram-
bjóðenda sem ekki hlutu kosningu,
eða 11,7%. Næstur honum kon
einnig frambjóðandi Alþýðuflokks-
ins, Arni Gunnarsson. Alþýðuflokk-
urinn fékk 8,6% fylgi á Suðurlandi
en Árni náði ekki kjöri. Kvennalist-
inn á Vesturlandi fékk 6,8% fylgi en
kom konu ekki að og Þjóðarflokkur-
inn á Norðurlandi eystra hafði sama
fylgishlutfall en fékk ekki mann
kjörinn. Á Reykjanesi voru aðeins
2,4% atkvæða ,,dauð“. Þau skiptust
á fimm framboð.
Alþingiskosningarnar 20. apríl
STJÓRNIN
HÉLT VELLI
Stjórnin hélt velli í Alþingiskosn-
ingunum sl. sunnudag, þrátt fyrir að
einn flokkur og einn stuðningsmað-
ur stjórnarinnar hefði horfið af
þingi. Alþýðuflokkur, Framsóknar-
flokkur og Alþýðubandalag hafa
samtals 32 þingmenn, en Sjálfstæð-
isflokkur og Samtök um kvennalista hafa 31 þingmann (og — konur).
Heildarúrslit urðu þessi:
Sjálfstæðisflokkur: Alþýðuflokkur: 24 454 atkv., eða 15,5%.
Framsóknarflokkur: 29.861 atkv., eða 18,9%.
Sjálfstæðisflokkur: 60.826 atkv., eða 38,6%.
Alþýðubandalag: 22.705 atkv., eða 14,4%.
Kvennalisti: 13.068 atkv., eða 8,3%.
Önnur framboð: 6.832 atkv., eða 4,3%.
Framsókn minnst
Kvennalisti mest
Samtök um kvennalista hafa flest
atkvæði að baki hverri þingkonu
sem flokkurinn hlaut. Hver fram-
sóknarþingmaður hefur hins vegar
fæst atkvæði á bak við sig.
Atkvæði að baki hverjum þing-
jöfnunarmaður (gamla uppbótar-
sætið), hefði frambjóðandi Fram-
unarsæti.
Rv Rn VI Vf Nv Ne Au Su
% % % % % % % %
Alþýðuflokkur 14,8 23,3 14,1 15,8 11,7 9,7 10,2 8,6
Framsóknarfl. 10,1 13,9 28,5 27,9 32,3 34,4 40,8 27,6
Sjálfstæðisfl. 46,3 40,8 28,9 34,7 28,1 23,7 21,3 36,5
Alþýðubandalag 13,3 11,5 17,3 10,9 19,2 17,8 19,2 18,5
Kvennalisti 12,0 7,0 6,8 7,8 5,2 4,8 4,4 3,7
Önnur framboð 3,5 3,5 4,4 2,9 3,5 9,6 4,1 5,1
Borgaraflokkurinn skildi
17 þúsund afkvæði ef tir
manni:
Alþýðuflokkur: 2.445
Framsóknarflokkur: 2.297
Sjálfstæðisflokkur: 2.339
Alþýðubandalag: 2.523
Kvennalisti: 2.614
Alþýðubandalag hefði átt næsta
jöfnunarsæti sem hefði komið til
skiptanna. Minnsta hreyfing í kjör-
fylgi hefði riðlað væntanlegu þing-
liði. Til dæmis vantaði Alþýðuflokk
29 atkvæði í Norðurlandi eystra til
að fá kjördæmakosinn þingmann.
Hefði jafnaðarmaðurinn komist að
sem kjördæmakosinn og ekki sem
Kusu ekki
I Alþingiskosningunum 1987
neyttu 90,1% atkvæðisréttar síns.
Um 27 þúsund íslendingar sem voru
á kjörskrá nú kusu ekki eða skiluðu
auðu. kjörstöðum var lokað klukku-
tíma fyrr nú en í kosningunum 1987
og kann það að vera nokkur skýring
á dræmri kosningaþátttöku.
Gömlu flokkarnir fjórir — að
Framsóknarflokknum undanskild-
um — nutu þess að Borgaraflokkur-
inn hvarf af sjónarsviðinu og skildi
eftir sig um sautján þúsund atkvæði.
Flest runnu þau beint til Sjálfstæðis-
flokksins sem jók fylgi sitt um 40%
frá kosningunum 1987.
Sjálfstæðisflokkur bætti mest við
sig allra frá kosningunum 1987, fékk
fylgi 38,6% kjósenda, 26 þingmenn
og er stærsti flokkurinn í fimm af
átta kjördæmum landsins. Fram-
sóknarflokkurinn hlaut 18,9% fylgi,
eða sama hlutfall og 1987. Þing-
menn Framsóknarflokksins eru 13,
þar af eru 11 samtals í 6 kjördæmum
landsins. Framsókn er stærsti flokk-
urinn í Norðurlandskjördæmunum
báðum og á Austfjörðum.
Alþýðuflokkurinn hefur 15,5%
fylgi og bætti 0,3% við sig frá kosn-
ingum 1987. Þingmannatalan er
óbreytt, eða 10. Langmest varð
aukningin í Reykjanesi, þar sem tvö
þúsund atkvæði bættust við í
hreinni fylgisaukningu miðað við
kosningarnar 1987. Alþýðuflokkur-
inn hafði 18,2% á Reykjanesi 1987
en fékk nú 23,3%. Alþýðuflokkur-
inn hampar nú þingmanni á Austur-
landi og er það í fyrsta skipti eftir að
kjördæmaskipan var breytt árið
1959.
Alþýðubandalagið bætti við sig
einu prósenti og einum þingmanni,
hlaut nú 14,4% fylgi og níu þing-
menn kosna. Flokkurinn bætti mest
við sig á Suðurlandi og á Vestur-
landi og á nú þingmenn í öllum kjör-
dæmum landsins.
Samtök um kvennalista voru einu
frambjóðendurnir sem töpuðu fylgi
nú miðað við síðustu kosningar.
Hlutu nú 8,3% á iandsvísu en höfðu
10,1% við Alþingiskosningarnar
1983. Fimm konur sitja á þingi fyrir
Kvennalistann en voru sex á síðasta
þingi.
Aðrir flokkar og framboð höfðu
ekki erindi sem erfiði og fengu enga
fulltrúa á löggjafarsamkomuna.
6832 atkvæði féllu þeim í skaut sam-
tals. Það hefði nægt til tveggja þing-
manna ef atkvæðin hefði nýst þeim
álíka vel og framsókn, en Fram-
sóknarflokkurinn hefur fæst at-
kvæði að baki hverjum þingmanni.