Alþýðublaðið - 23.04.1991, Blaðsíða 8
ÍIWÍMIIIÍ GEVAUA
liLJP 1IIU DLilimi Pað er kaffið 687510
Jón Sigurðsson idnaðarráð-
herra leiddi listann á Reykjanesi
þar sem Alþýðuflokkurinn náði
hvað bestum árangri.
„Þessi sigur í Reykjaneskjördæmi,
sem er einhver sá allra besti sem
flokkurinn hefur þar unnið, er at-
hyglisverður ekki síst með tilliti til
þess, að keppt er við flokka sem
leiddir voru af forsætisráðherra,
fjármálaráðherra og umhverfisráð-
herra, sem allir töpuðu í þessum
kosningum.
En við Alþýðuflokksmenn unnum
einhvern allra besta sigur okkar,
bættum við fyigið um 5% og náðum
hlutfalli sem flokkurinn hefur sjald-
an haft undanfarna áratugi, þ.e.a.s. á
mijli 23 og 24 prósent atkvæða.
Ég þakka þennan sigur þrennu,
skýrri stefnu, góðum framboðslista,
og öflugu starfi fórnfúsra starfs-
manna að þessu kjöri og ég vildi sér-
staklega nefna þátt þeirra sem stóðu
að vandaðri og öflugri blaðaútgáfu
og öðru birtingarefni á okkar veg-
um.
Við áttum líka geysimarga fundi á
vinnustöðum. Alit var þetta sam-
stillt, við hófum okkar kosningabar-
áttu snemma. En síðast en ekki síst
vil ég nefna að þessi sigur vannst á
þeim trausta grunni sem sveitar-
stjórnarstarf alþýðuflokksmanna í
kjördæminu er. Við eigum þarna
þéttan kjarna, fjölmennan hóp
manna sem vinna fórnfúst starf og
eru vel metnir hver í sínu byggðar-
lagi. Þannig þyrfti Alþýðuflokkur-
inn alls staðar að vera.“
Þingið yngt upp
Ovenjulegur þingfundur var settur á Alþingi í gær. Þar kom saman nýkjörið þing æskunnar. Ekki var
þó um að ræða sigurvegara úr kosningum stjórnmálaflokkanna heldur var þingfundur liður í dagskrá
á Listahátíð æskunnar sem nú stendur yfir. A-mynd: E.ÓI.
„Tímamót i stjórn-
mólasögunni"
— sagöi Gunnlaugur Stefánsson, nýr þing-
maöur Alþýöuflokksins á Austurlandi
Það sem vakti hvað mesta at-
hygli í þessum kosningum var að
nú eftir langt hlé eignaðist Al-
þýðuflokkurinn á Austurlandi
þingmann að nýju. Gunnlaugur
Stefánsson, prestur í Heydölum,
sat á þingi á árunum
1978—1979, en Gunnlaugur hef-
ur ekki verið áberandi í stjórn-
málastarfi síðan.
„Úrslit kosninganna marka tíma-
mót í stjórnmálasögu Austurlands.
Ég vona að þessi úrslit eigi eftir að
styrkja lífskjör og búsetu fólks á
Austurlandi. Búsetan á í vök að verj-
ast, það þarf að koma til öflugt at-
vinnuátak og það þarf að tryggja
þarna traustan landbúnað og sjávar-
útveg og efla fullvinnslu sjávaraf-
urða og horfa til samgöngumála.
Stuðningsfólki mínu sendi ég bar-
áttukveðjur og við höldum áfram að
starfa saman, sigurinn byggist á
þessu fólki. Sigurinn er sigur fólks-
ins sem ætlar að halda áfram að
starfa eftir kosningar líka en bíða
ekki eftir næstu kosningum."
Jón Sigurösson ráöherra og frú Laufey Þorbjarnardóttir mættu snemma á kjörstað á Seltjarnarnesi á kjördag. Jón leiddi
lista jafnaðarmanna á Reykjanesi, en tvö þúsund kjosendur bættust viö fyrra fylgi A-listans í kjördæminu og er þaö
nú 23,3% en var 18,2% í kosningunum 1987.
„Sveitarstjórnar-
starfið mikilvægt
— sagöi Jón Sigurösson iönaöarráöherra, sem leiddi listann á
Reykjanesi þar sem árangur Alþýöuflokksins er hvaö bestur
Vorum of
sigurvissir
— segir Árni Gunnarsson, sem bauð sig fram í
Suðurlandskjördœmi en náði ekki kosningu.
Árni Gunnarsson, sem hefur
um langa hríð verið í forystu-
sveit Alþýðuflokksins, bauð sig
fram í Suðurlandskjördæmi þar
sem flokkurinn hefur ekki átt
þingmann í átta ár.
„Ég held að meginmálið sé það að
við gerðum mistök í því að vera of
sigurviss. Við fengum góðar undir-
tektir og fljótlega fór af stað mikið
starf. En þrjár vikur fyrir kjördæmi
sem hefur verið þingmannslaust í
átta ár það er fullskammur tími. Við
flöskuðum líka á því að vera ekki á
varðbergi gagnvart hræðsluáróðri
sem var rekin gegn okkur bæði af
Sjálfstæðisflokki og Alþýðubanda-
lagi.
Því er heldur ekki að leyna að
landbúnaðarstefna Alþýðuflokksins
var okkur þung í skauti í kjördæmi
þar sem 80% íbúanna lifa af land-
búnaði beint eða óbeint. Eins mætti
nefna að umræður um þilplötuverk-
smiðju sem Sunnlendingar höfðu
augastað á beindist í þá átt að verk-
smiðjan færi til Reykjavíkur eða á
Reykjanes.
Það mætti einnig nefna að ýms-
um tókst að túlka sjávarútvegs-
stefnu okkar á þann veg að við vild-
um skattleggja útgerðina þannig að
sjómenn fengju skertan hlut. En úr-
slitin liggja fyrir og þá er bara að
taka því.
Það var stórkostlegt hvernig fólk
brást við í upphafi kosningabarátt-
unnar og hvað fólk lagði á sig fyrir
okkur. Þetta fólk á miklar þakkir
skilið.
Þarna voru bundin mörg vina-
bönd sem ég vona að haldi þegar til
lengri tíma er litið."
Vinningstölur laugardaginn
20. apríl 1991
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 1 6.829.033
2. 4^1® 6 118.329
3. 4af 5 192 6.378
4. 3af 5 6.837 417
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
11.614.612 kr.
í Ath. Vinningar undir 12.000 krónum eru greiddir út
á Lottó sölustööum.