Alþýðublaðið - 13.08.1991, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 13.08.1991, Qupperneq 2
2 HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566 Útgefandi: Blaö hf. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson (í starfsleyfi) Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Dreifingarstjóri: Sigurður Jónsson Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Oddi hf. Eftir lokun skiptiborös: Ritstjórn: 625538 Dreifing: 625539 Tæknideild: 620055 Fax: 627019 Má draga fólk í dilka? Eftir það mikla fjaðrafok sem breytingarnar á lyfjareglugerðinni ollu er árangurinn að koma í ljós og margir að átta sig á því að nauð- synlegt var að spyrna duglega við fótum til að ná fram sparnaði í lyfjakostnaði. Sparnaðaraðgerðir heilbrigðisráðherra voru tvíþætt- ar. Annars vegar er um að ræða sparnað ríkissjóðs, sem felst í því að neytendur greiða stærri hlut í verði lyfja og ríkissjóður að sama skapi minni hlut. Hins vegar er um að ræða sparnað fyrir þjóðina í heild með minni lyfjanotkun ogóþarfri, betri nýtingu lyfja og notk- un ódýrari lyfja. Reynsla af breytingum á lyfjareglugerðinni sýnir að þessi meginmarkmið hafa náðst. Áætlað er að velta apótekanna í júlí hafi dregist saman um 40—50% frá því sem áður var, bæði vegna færri lyfjaávísana og ávísunar á ódýrari lyf. Þótt deila megi um hversu stóran hlut lyfjakostnaðar rétt sé að láta sjúklingana sjálfa greiða er það staðreynd að hlutdeild sjúklings í lyfjakostnaði er óvíða minni en hér á landi. Þótt júlímánuður sl. einn og sér sé ekki marktækur hvað umfang lyfsölu varðar gefurlyfsalan í þeim mánuði það sterka vísbendingu um hvert stefnir að ekki verður um villst. Þeir geta nú glaðst sem sérlega hafa verið áhugasamir um að sjá gróða lyfsala minnka jafnt og þeir sem hafa viljað sjá sparnað í lyfjaversluninni í heild. Það sem skiptir þó mestu máli er að þeir sem hafa þörf fyrir lyf hafa áfram greiðan aðgang að þeim á viðráðanlegu verði, ef þeir þurfa á annað borð að greiða fyrir lyfin. Engu að síður geta ávallt komið upp ein- stök tilvik þar sem greiðslubyrði einstaklinga er misboðið en á því þarf að taka sérstaklega. Það er engin ástæða til að ríkið greiði rán- dýr sýklalyf ofan í vellríkan Iyfsala á þeirri forsendu að til séu þeir sem mjög lítið hafa handa á milli. Það er jafn heimskulegt og að krefjast þess að ríkið greiði niður húsnæðisvexti fyrir stóreignafólk og hátekjumenn á þeirri forsendu að láglaunafólk eigi þess ekki kost að eignast húsnæðián aðstoðar í einu eða öðru formi. Með almenn- um sparnaði í velferðarkerfinu hljóta að aukast möguleikar til að sinna þeim betur sem verst eru staddir og hafa mesta þörf fyrir að- stoð. Reyndar geta menn velt þeirri spurningu fyrirsér hvort rétt sé að draga fólk í dilka þegar að þjónustu hins opinbera kemur og velferð- arkerfinu. Fólk er dregið í dilka þegar komið er að hinu félagslega íbúðakerfi þannig að þeir sem eru yfir ákveðnum tekjum eða eiga húseignir eru þar ekki gjaldgengir. Fólk er dregið í dilka þegar kom- ið er að barnabótum þar sem fólk þarf að vera innan ákveðinna tekjumarka til að fá barnabætur. Þar er réttur fólks sértækur, þ.e.a.s. menn verða að uppfylla ákveðin skilyrði til að njóta hans. Er þá út í hött að rétturinn, sem kostnaðarhlutdeild ríkisins í þátttöku vegna heilbrigðismála er, sé að einhverju marki sértækur? Er rétt að heil- brigðiskerfi taki mið af þörfum hins fátækasta og allir aðrir njóti þar góðs af? Þetta eru spurningar sem menn eru að velta fyrir sér hjá þeim þjóðum sem búa við til þess að gera gott og öflugt velferðar- kerfi. Menn standa frammi fyrir hinum óhjákvæmilegu spurningum: Hversu langt á velferðarkerfið að ná? Hversu dýrt má það vera? Þeir sem neita að leita svara við þeim eiga ekkert erindi í pólitík. — TH ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG ÍSAFJARÐAR Fjölskylduferð í Aðalvík Alþýöuflokksfélag ísafjaröar efnir til síðsumarferðar í Aöalvík um næstu helgi. Fariö veröur meö Fagra - nesi aö morgni laugardagsins 17. ágúst og komið til baka á sunnudag. Fararstjóri er Gísli Hjartarson. Hér er um fjölskylduferð að ræöa og er ailt alþýöu- flokksfólk hvar sem er á landinu hvatt til að slást í hópinn. Allarnánari upplýsingargefurÓðinn ísíma 94-4707 eða 94-4770. Þriðjudaqur 13. ágúst 1991 Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir að nú sé komið að því að útvega fjármagn, en gengið hafi verið frá öllu öðru sem máli skipti. Til vinstri við ráðherrann er Jóhannes Nordal, formaður íslensku viðræðunefndarinnar, en honum á hægri hönd sitja forystumenn álfyrirtækjanna. S Alversbygging á Keilisnesi Efnislegt samkomu- lag í álversmálinu Náðst hefur samkomulag í öll- um meginatriðum varðandi byggingu álvers á Keilisnesi. Jón Sigurðsson iðnaðarráð- herra sagði í viðtali við Alþýðu- blaðið að fundurinn nú hefði verið mjög árangursríkur og það hefði verið staðfest að niður- staða sé fengin í öllum atriðum sem máli skipti. „Þess vegna geta nú álfélögin þrjú sem ætla að mynda Atlantsál snúið sér að því af fullum krafti að afla fjár til framkvæmdanna. Það er í raun það sem eftir stendur og allir hljóta að skilja að ekki verður í fram- kvæmdina ráðist án þess að fjár- magn fáist á viðunandi kjörum. Þessir samningar eru sem sagt komnir í höfn, og kominn samn- ingapakki sem þeir ætla að sýna lánardrottnum væntanlegum." Fram kom í máli forystumanna Atlantsálshópsins að virtir bankar á meginlandi Evrópu hefðu sýnt mál- inu áhuga og gefið góða von um að viöunandi samningar gætu náðst. Og þegar forystumennirnir voru spurðir hvort það væri sannfæring þeirra að álverið myndi rísa á Keilis- nesi svöruðu þeir spurningunni allir játandi. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra sagði að þessi framkvæmd gæti varla komið á betri tíma. ,,í fyrsta lagi verða tilboð í framkvæmdirnar hagstæð vegna lægðar í efnahags- málum víða um lönd. í öðru lagi er okkur mikil þörf á svona viðbót við útflutning okkar og atvinnu, og hafi fyrr verið þörf þá er nú nauðsyn á því að auka fjölbreytni útflutnings- ins. Þá verða verktakaframkvæmd- irnar og það sem tengist virkjana- framkvæmdum og verksmiðjubygg- ingu sannarlega himnasending í ís- lensku atvinnulífi," sagði iðnaðar- ráðherra. ,,Ég vona því að niðurstaða fáist sem allra fyrst í þessar fjármögnun- arviðræður þannig að menn geti tekið til óspilltra málanna og ég vona svo sannarlega að þessu máli verði ekki spillt." Iðnaðarráðherra segir að hugsan- lega geti einhverjar undirbúnings- framkvæmdir hafist strax í vetur og síðan af fullum krafti næsta vor. ,.Aö því er stefnt að fá heimildir stjórna félaganna og Alþingis til að ljúka þessum samningum á vetrinum og þannig stendur málið núna. Það er að vísu eftir töluverð tæknileg vinna við að ganga frá lögformleg- um textum um sumt af því sem við urðum sammála um í dag á grund- velli margra vikna og mánaða starfs undirnefnda og samningahópa, en efnisatriðin eru í höfn,“ sagði iðnað- arráðherra að lokum. í viðtali við Alþýðublaðið segir Karl Steinar Guðnason alþingismað- ur að niðurstaðan sýni að haldið hafi verið vel og rétt á málum. Þetta sé nauðsynleg viðbót við atvinnulíf- ið á Suðurnesjum og komi á hentug- um tíma, m.a. vegna aflasamdráttar og fækkunar starfa á vegum varnar- liðsins. IMfJt IfiLVSIVft/l K Útboð Lýsing Óshlíðar 1991 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lýsingu á Djúpvegi (61) milli Hnífsdals og Bolungarvíkur. Helstu magntölur: Ljósastaurar 68 stk., tengikassar 8 stk., lengd lagnaskurða 3.000 metrar og frágangur axla 2.200 ferm. Verki skal lokið 15. nóvember 1991. Útboðsgögn veröa afhent hjá Vegagerö ríkisins á ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera), Borgartúni 5, frá og með 12. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stööum fyrir kl. 14.00 þann 26. ágúst 1991. Vegamálastjóri. Kennarar athugið Kennara vantar í Víðistaðaskóla, Hafnarfirði, í almenna kennslu, fullt starf. Einnig vantar forfallakennara vegna barnseignarleyfis. Æskilegt í báðum tilvikum að viðkomandi geti kennt stærðfr. í 8. og 9. bekk. Þá vant- ar einnig myndmenntakennara í hálft starf. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 52911 eða 651511 og skólaskrifstofa Hafn- arfjarðar í síma 53444. Skólafulltrúinn íHafnarfirði.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.