Alþýðublaðið - 13.08.1991, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 13.08.1991, Qupperneq 3
Þriðiudaqur 13. áqúst 1991 3 MINNING Grímur E. Thorarensen Selfoss var mitt annað æskuheim- ili. Þar bjuggu Grímur og Dísa með alla krakkana, Gunna í Ingólfi og Ól- afur, Bagga og strákarnir, Dúa, Danni, Grétar og Gulli ásamt fjölda frænda og ástvina. Selfoss sogaði allt til sín. Þangað var farið í bíltúra, á leið í sumarbústaðinn og í sveit- ina. Fyrir ungan strák var Selfoss ein stór paradís. Grímur var óaðskiljanlegur hluti Selfoss. Elsta barn Egils í Sigtúnum, innkaupastjóri kaupfélagsins og kaupfélagsstjóri, kunningi allra í héraðinu, bridgespilari og veiði- maður. Fóstbróðir mjólkurbússtjór- ans, reglubróðir sláturhússtjórans, náfrændi bankastjórans og bróðir forstjóra Meitilsins í Þorlákshöfn, sem byrjaði nánast sem útibú frá kaupfélaginu. Allt fyrirtæki og stofnanir sem pabbi hans hafði sett á laggirnar. Grímur var rammíslenskari flest- um mönnum, sem ég hef þekkt. Fas- mikill, hreinn og beinn, glaðvær og hjartagóður. Fyrir nær fimmtíu ár- um giftist hann móðursystur minni og hefur aldrei brugðið skugga þar á. Mamma sagði oft, að ekki væru frá Sigtúnum mörg vandamálin í henni veröld ef allir væru jafn góðir fjölskyldufeður og Grímur. Annars var þetta ramm- pólitískt hjónaband. Afi minn í Tryggvaskála var nefnilega einn mesti sjálfstæðismaður á Suður- landi en Egill í Sigtúnum auðvitað einn mesti framsóknarmaður hér- aðsins. Þegar vatnsveitan var lögð um Selfoss neitaði gamli maðurinn alfarið að leggja vatnsveitu í Tryggvaskála, vegna þess að hann hafði heyrt að Egill ætlaði að taka vatnið í Sigtún. Sigurður Óli og aðrir félagar hans í flokknum fóru þá með hann á fund Jóns Þorlákssonar, landsverkfræðings og formanns Sjálfstæðisflokksins, sem fullyrti að vatnsveitur væru ekki framsóknar- fyrirbrigði. Þá fyrst kom vatnsveita í Tryggvaskála. Nokkrum árum seinna gifti svo afi dóttur sína elsta syni Egils, Grími. Grímur stofnaði Alþýðuflokksfé- lag Selfoss með Guðmundi heitnum skósmið á Selfossiog fleiri höfðingj- um. Gekk þetta allt mjög vel í byrjun og Grímur leit á sig sem sanna verkalýðshetju. Þá datt mönnum í hug að fara í verkfall, auðvitað gegn kaupfélaginu, sem átti staðinn og mannfólkið nánast líka. Var mikil stemmning á fundinum enda verka- lýðsfélögin og Alþýðuflokkurinn eitt. Þá litu menn á Grím, son kaup- félagsstjórans, sem öllu réð. Grímur dró augað í pung og sagðist þurfa að víkja sér frá. Eftir það var hann heiðursfélagi í Alþýðuflokknum. Grímur var einn bónbesti maður sem ég hef kynnst. Þegar pabbi dó buðust Grímur og Dísa til þess að taka stráklinginn austur, meðan mamma var að jafna sig. Systir mín vann hjá honum. Þegar mamma missti vinnuna við lát frænda síns var Grímur óðara kominn með vinnu. Þegar vantaði pening fyrir námi erlendis var Grímur óðara mættur með fé. Um áratugi var atvinnuuppbygg- ingu á Suðurlandi stjórnað frá Sig- túnum. Kaupfélag Arnesinga var stofnað og tryggði framleiðslu, verslun og þjónustu í héraðinu. Mjólkurbú Flóamanna var stofnað og tryggði streymi hvíta lífdrykkjar- ins vestur yfir heiði í ört vaxandi byggðarlög við Faxaflóann. Slátur- félag Suðurlands var sett niður á Selfossi og átti sinn þátt í að bægja hungurvofunni frá, sem ógnað hafði þjóðinni í kreppunni miklu. Ríkis- stofnanir og fjármálastofnanir hér- aðsins voru í seilingarfjarlægð frá Sigtúnum og ráðist var gegn æðandi haföldunni á fjögurhundruð kíló- metra hafnlausri sunnlenskri strönd, sem boðað hafði sæfarend- um grand allt frá landnámsöld, með uppbyggingu hafnar í Þorlákshöfn. Þessi hugsjónabarátta var veganesti Gríms útí Íífið. Enginn verður óbarinn biskup. Grímur tók ótrauður við hugsjóna- starfi föður síns, sem lést 1961, dyggilega studdur af Sambandinu. En Þorlákshöfn reyndist of dýr, kaupfélagið var í erfiðleikum og ör- lögin mótdræg. Grímur lét af kaup- félagsstjórastarfinu 1966 og hefur búið í Kópavogi síðan. Aidrei heyrði ég æðruorð, en það kostaði eldgos í Vestmannaeyjum að Sunnlendingar fengju boðlega höfn í Þorlákshöfn, sem jafnframt tryggir samgöngur við mestu verstöð landsins, Vest- mannaeyjar. Skólasystur Systu, einnar dóttur Gríms og Dísu, höfðu stundum á orði við hana í MR, að hann væri illa bónaður bíllinn pabba hennar, þeg- ar hann var í bænum kominn frá Selfossi yfir Hellisheiði. Langafi Gríms var Skúli Thorarensen, lækn- ir og alþingismaður Rangæinga að Móheiðarhvoli, bróðir Bjarna Thor- arensen, skálds og amtmanns. Afi þeirra var Bjarni Pálsson, fyrsti landlæknir íslendinga. Hugsjónir læknastéttarinnar eru heilbrigði og vellíðan mannfólksins, ekki ytra prjál og skraut. „Læpuskaps ódyggðir" voru Grími jafn fjarlægar og innantóm skrautmynd. Hann var maður hjartalagsins, félagsskapar- ins og hefði farið veröldina á enda fyrir vin sinn, þótt reiðskjótinn yrði svitastorkinn. Grímur og Dísa áttu átta börn, en misstu tvö. Þá aðeins hef ég sé Grími mínum brugðið, þegar þau háðu sitt dauðastríð. Yndislegri móðursystur votta ég mína dýpstu samúð, börnum, barnabörnum og barnabarnabörn- um sem ög öllum ættingjum og vin- um. Alvaldur og algóður Guð ræður og gaf, því erum við hans, hvort sem við lifum eða deyjum. Guðlaugur Tryggvi Karlsson Fóstrur - þroska- þjálfar Víðivellir er fjögurra deilda leikskóli í Hafnar- firði. Hann er vel mannaður fagfólki, hefur börn, á aldrinum 6 mán. til 6 ára, á þremur aldurskiptum deildum, auk sérdeildar. Okkur vantar nú fóstru á almenna deild og þroskaþjálfa á sérdeild. Einnig vantar uppeld- ismenntað fólk til stuðnings við börn með þroskafrávik. Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 52004 og deildarþroskaþjálfi á sérdeild í síma 54835. Hvammur er þriggja deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 2ja til 6 ára þar af er ein dagskóladeild og tvær hálfsdagsdeildir. Önn- ur þeirra er Montessori-deild. Sérstakt þró- unarstarf er unnið innan leikskólans. Okkur vantar fóstrur eða starfsfólk með aðra upp- eldismenntun. Einnig vantar okkur uppeldis- menntað fólk til stuðnings við börn með þroskafrávik. Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 650499. Smáralundur er þriggja deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 2ja til 6 ára, þar af er ein dagskóladeild og tvær hálfsdagsdeildir. Okk- ur vantar nú fóstrur bæði fyrir og eftir hádegi. Upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 54493. Álfaberg er lítill leikskóli miðsvæðis í bæn- um. Okkur vantar tvær fóstrur í 50% starf eftir hádegi. Komið á staðinn eða hringið og ræðið við leikskólastjóra í síma 53021. Arnarberg er einnar deildar leikskóli fyrir 3ja til 6 ára börn. Okkur vantar nú fóstru í fullt starf eða í hlutastarf eftir samkomulagi. Jafn- framt vantar starfsmann í 50% starf eftir hádegi. Upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 53443 og 54403. Norðurberg er tveggja deilda leikskóli. Okkur vantar nú fóstru í fullt starf og aðra í 50% starf eftir hádegi. Einnig vantar okkur uppeld- ismenntað fólk til stuðningsstarfa. Upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 53484. Skóladagheimilið, Kirkjuvegi 7, vantar fós- tru í fullt starf. Upplýsingar veita leikskólastjórar í síma 54720 eða á staðnum. HEILSUGÆSLAN í REYKJAVÍK auglýsir eftir: hjúkrunardeildarstjóra við barnadeild Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur. móttökuritara í 50% starf við sömu deild. hjúkrunarfræðingi í hlutastarf. Upplýsingar um störfin gefur hjúkrunarforstjóri í síma 22400. læknaritara í 80% starf við Heilsugæslustöðina í Árbæ. Upplýsingar gefur starfsmannastjóri í síma 22400. læknaritara í 50% starf við Heilsugæslustöð Mið- bæjar, Vesturgötu 7. Upplýsingar gefur hjúkrunar- forstjóri í síma 625070. hjúkrunarfræðingi í hlutastarf við Heilsugæslu- stöðina í Mjódd. Upplýsingar gefur hjúkrunarfor- stjóri í síma 670440. hjúkrunarfræðingi í 70% starf við Heilsugæslu- stöðina í Fossvogi. Upplýsingargefur hjúkrunarfor- stjóri í síma 696780. hjúkrunarfræðingi í hlutastarf við Heilsugæslu- stöðina í Efra-Breiðholti. Upplýsingar gefur hjúkr- unarforstjóri í síma 670200. Umsóknareyðublöð liggja frammi á afgreiðslu Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg. Umsóknum skal skila til starfsmannastjóra heilsu- gæslustöðva í Reykjavík, Barónsstíg 47, fyrir kl. 16 mánudaginn 19. ágúst nk. Útboð Austurlandsvegur um Teigará Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í gerð Austur- landsvegar um Teigará á Jökuldal. Lengd kafla 0,46 km, fylling og burðarlag 7.000 rúm- metrar og stálplöturæsi 3,5 m í þvermál og 30 m að lengd. Verki skal lokið 15. október 1991. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera), Borgar- túni 5, frá og með 13. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 26. ágúst 1991. Vegamálastjóri. Baðvarsla Laus er til umsóknar 70% staða baðvarðar við íþróttahús Lækjarskóla í Hafnarfirði. Staðan veitist frá og með 1. september nk. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf berist skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 4, eigi síðar en 20. ágúst n.k. Nánari upplýsingar um starfið fást á sama stað í síma 53444. Skólafulltrúinn í Hafnarfirði Þjónustuíbúðir aldraðra Dalbraut 27, Reykjavík óska að ráða starfsfólk í heimilisaðstoð, 75% starf. Vinnutími frá kl. 8 til kl. 14 og kl. 16 til kl. 22, alla virka daga. Einnig vantar starfsfólk til starfa í eldhúsi, 75% starf. Vinnutími frá kl. 8 til kl. 14, unnið aðra hverja helgi. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 685377 milli kl. 10 og kl. 12, alla virka daga.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.