Alþýðublaðið - 16.08.1991, Qupperneq 2
2
fimiiinmiin
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ftitstjóri: Ingólfur Margeirsson (í starfsleyfi)
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Sigurður Jónsson
Setning og umbrot: Leturval sf.
Prentun: Oddi hf.
Eftir lokun skiptiborös:
Ritstjórn: 625538
Dreifing: 625539
Tæknideild: 620055
Fax: 627019
Sjóðasukkinu
verður að linna
Alþýðuflokkurinn hefur í langan tíma gagnrýnt svokallað sjóðasukk
eða þegar opinberu fé er ausið í fyrirtæki út og suður í tilgangsleysi er
virðist og án árangurs. Fyrirgreiðslupólitíkusar allra flokka hafa hins
vegar sett sig upp á móti því að hróflað yrði við velferðarkerfi fyrirtækj-
anna. Það er því afar ánægjulegt þegar Davíð Oddsson forsætisráð-
herra segir opinbera sjóðakerfinu stríð á hendur og fer fram á algera
uppstokkun þess. Fyrirtækjunum í landinu hefur iðulega verið stórlega
mismunað í gegnum opinbera sjóðakerfið og þannig verið staðið í vegi
fyrir eðlilegri og oft nauðsynlegri uppstokkun og endurnýjun í atvinnu-
lífinu. Vonlausum fyrirtækjum hefur verið haldið gangandi fyrir opin-
bert fé og þegar spurt er hvers vegna verður svarið iðulega: Það skuldar
of mikið til að hægt sé að láta það fara á hausinn. Þessi „framsóknarhag-
fræði” hefur alltof víða átt alitof mikinn hljómgrunn. Sjóðasukkinu
verður að linna.
í úttekt Ríkisendurskoðunar á stöðu Framkvæmdasjóðs og Byggða-
stofnunar kemur fram að eðlilegt hefði verið að afskrifa 4,5 milljörðum
meira en gert var eða samtals um 5,8 milljarða. Þar er um að ræða glat-
að fé opinberra sjóða sem hinir almennu skattgreiðendur þurfa að
standa skil á. Hér er um geysiháar upphæðir að ræða, en tapað fé þess-
ara sjóða nemur vel yfir 20 þúsund krónum á hvert mannsbarn í land-
inu. Þessir peningar eru ekki glataðir vegna hreinnar heimsku stjórn-
enda sjóðanna, heldur hefur fyrirtækjum iðulega verið lánað opinbert
fjármagn þegar berlega hefur legið fyrir að það fengist aldrei greitt til
baka. Ríkið hefur oftar en ekki hlaupið undir bagga með fyrirtækjum
í formi trygginga eða lána þegar almennar lánastofnanir hafa verið
búnar að afskrifa gjörsamlega að forsvaranlegt væri að lána viðkom-
andi fyrirtækjum. Það er því fyllilega tímabært að opinber lánafyrir-
greiðsla verði tekin rækilega til endurskoðunar.
Á sama tíma og haldið hefur verið áfram að ausa fé í vonlaus fyrir-
tæki, hvort sem það hefur verið gert í nafni byggðastefnu eða af pólit-
ískri greiðasemi, hefur smánarlega litlu fé verið varið til rannsóknar-
starfsemi og nýsköpunar í atvinnulífinu. Þrátt fyrir að flestir ef ekki allir
séu sammála um að fiskvinnsluhús og fiskiskipafloti landsmanna séu
alltof stór er haldið áfram að viðhalda vonlausum útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækjum. Með þessu er einnig verið að grafá undan þeim fyr-
irtækjum sem standa sig bærilega. Vilji hið opinbera styðja atvinnu-
rekstur verður að gera þá lágmarkskröfu að það sé gert af einhverju viti
og undir réttum formerkjum, þ.e. að um styrki en ekki lán verði að
ræða. Svo virðist sem opinberum lánveitingum fylgi engin fagleg, pólit-
ísk né siðferðisleg ábyrgð þeirra manna sem þeim stýra. Því þarf að
breyta.
TH
Föstudaqur 16. áqúst 1991
n
FÖSTUDAGSGREIN GUÐMUNDAR EINARSSONAR
Stétt með stétt
Eitt af því sem Sjálfstæðisflokk-
urinn telur sér til ágætis er að
margbreytileiki hans og stærð geri
flokkinn ákjósanlegan vettvang til
að ræða og leysa ýmis stærstu
vandamál þjóðarinnar.
Skoðum þessa fullyrðingu. Veljum
landbúnað og sjávarútveg. í
Sjálfstæðisflokknum eru forvígis-
menn beggja greina og fulltrúar
ólíkustu hagsmuna. Hvernig
gengur flokknum með útvegsmál-
in? Á síðasta flokksþingi var ljóst
að hann gat ekki tekið á þeim.
Hvernig gengur flokknum með
landbúnaðarmálin? Hingað til hef-
ur flokkurinn ekki getað lagt fram
tillögur í landbúnaðarmálum, sem
sætta sjónarmið bænda og neyt-
enda.
Hvers vegna hefur flokknum
ekki lánast að leggja fram tillögur
til lausna í þessum greinum?
1. Eru íslenskir stjórnmálaflokk-
ar yfirleitt ófærir um að leggja
fram, ræða og kryfja mál? Vantar
okkur hefð? Vantar okkur þá að-
ferð sem ýmsir erlendir stjórn-
málaflokkar beita til að móta
stefnu með hvítum bókum, ráð-
stefnum og opnum umræðum?
Þetta er ekki nægjanleg skýring
fyrir tregðu Sjálfstæðisflokksins.
Islenskir flokkar hafa að vísu ekki
náð sömu tökum á stefnumótun
og ýmsir erlendir flokkar. Sumum
þeirra hefur þó tekist að rífa sig í
gegnum flókin mál og komast að
niðurstöðu. Alþýðuflokkurinn hef-
ur t.d. komist að niðurstöðu um
sölu veiðileyfa og uppstokkun
landbúnaðarkerfis.
2. Eru hagsmunasamtökin at-
vinnugreinasamböndin í landinu
svo sterk, að landstjórnin öil og þá
auðvitað Sjálfstæðisflokkurinn sé
vanmáttug til breytinga?
í þessu liggur hluti skýringar-
innar. Samtök atvinnugreinanna
eru fiest í höndum Sjálfstæðis-
flokksins. Flokkurinn hefur ekki
getað nýtt sér þetta til úrvinnslu
mála, hefur ekki getað beitt þeim
til lausna, heldur lamast af átökun-
um.
3. Hefur Sjálfstæðisflokkinn
skort aga til að knýja sjálfan sig til
að leiða mál til lykta?
Ýmislegt bendir til að hér sé
einnig hluti skýringarinnar. Dæmi
þar um er ótti flokksins við að
ganga til kosninga milli þeirra
Davíðs og Þorsteins á vordögum.
Það er áhyggjuefni að flokkur
sem hefur safnað svo mörgum
spottum í sínar hendur skuli eiga
svo erfitt með að komast að niður-
stöðu. Lýðræðið er að vísu jórtur-
dýr, sem liggur lengi og meltir. En
það er í lagi meðan iðrin stíflast
ekki. Ef stór flokkur þarf að nota
mikinn tíma til að klóra sér í höfð-
inu versnar stjórnarfarið.
Bendir eitthvað til að breytingar
verði á þessu á næstunni?
Davíð Oddsson virðist fljótari að
hugsa en flokkurinn hans. Ýmis
orðaskipti hans og annarra for-
ystumanna Sjálfstæðisflokksins
benda til að hann ætli sér að hafa
meiri aga.
Starfsleyfistillögur
fyrir álver Atlantsáls
á Keilisnesi
í samræmi við ákvæði 8. kafla í mengunarvarnareglu-
gerð nr. 389/1990, liggja frammi á skrifstofu Vatns-
leysustrandarhrepps, til kynningarfrá 16. ágúst til 27.
september 1991, starfsleyfistillögur fyrir álver Atlants-
áls, Vatnsleysustrandarhreppi.
Rétt til að gera athugasemdir við starfsleyfistillögurn-
ar hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvars-
menn og starfsmenn tengdrar eða nálægrar starf-
semi.
2. íbúar þess svæðis, sem ætla má að geti orðið fyrir
óþægindum vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir, sem málið
varðar.
Skriflegar athugasemdir við starfsleyfistillögurnar
skulu hafa borist Hollustuvernd ríkisins fyrir 1. október
1991.
Reykjavík 6. ágúst 1991
Hollustuvernd ríkisins
Mengunarvarnir
#cm w*/m ww
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
Stöðupróf í
framhaldsskólum
Stöðupróf í framhaldsskólum á haustönn 1991 eru
haldin sem hér segir:
Þriðjud. 20. ágúst kl. 1&00 Enska
Miðvikud. 21. ágúst kl. 18.00 Franska, spænska
Fimmtud. 22. ágúst kl. 18.00 Þýska
Föstud. 23. ágúst kr. 18.00 Stærðfræði, norska,
sænska
Prófin eru haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð
og eru opin nemendum úr öllum framhaldsskólum.
Þeir sem ætla að gangast undir þessi próf eru beðn-
ir um að tilkynna þátttöku sína á skrifstofu Mennta-
skólans við Hamrahlíð. Skráning er hafin.
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Bygging-
ardeildar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum
í jarðvinnu vegna fyrirhugaðrar frjálsíþróttaaðstöðu
í Laugardal.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 8.500 m3
Fylling 12.100 m3
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 5.
september 1991, kl.11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
Auglýsing
um viðtalstíma iðnaðar- og
viðskiptaráðherra á Eskifirði og
Akureyri
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
verður með viðtalstíma á Eskifirði og Akureyri, sem
hér segir:
Áskrifstofu Eskifjarðarkaupstaðar, þriðjudaginn 20.
ágúst nk. kl. 9—12. Þeir sem áhuga hafa á að panta
viðtalstíma við ráðherrann skrái sig á skrifstofunni
í síma 97-61170.
Á skrifstofu Akureyrarbæjar, miðvikudaginn 28.
ágúst nk. kl. 9—12. Skráning viðtalstíma í síma skrif-
stofunnar, 96-21000.
Reykjavík 15. ágúst
Iðnaðarráðuneytið.
Viðskiptaráðuneytið.