Alþýðublaðið - 16.08.1991, Síða 3

Alþýðublaðið - 16.08.1991, Síða 3
Föstudaqur 16. áqúst 1991 Framkvæmdasjóður og Byggðastofnun 3 í lok maí á þessu ári námu sam- anlögð útlán Framkvæmda- sjóðs, Byggðastofnunar og at- vinnutryggingadeildar þeirrar stofnunar um 44 milljörðum króna. Ríkisendurskoðun telur rétt að afskrifa nú þegar nær sex milljarða og telur að samanlagð- ur greiðsluhalli Framkvæmda- sjóðs næstu tíu ár geti numið allt að fimm milljörðum. Greiðslu- staða Byggðasjóðs verður afar viðkvæm frá árinu 1994 að mati Ríkisendurskoðunar. Það er ekki að furða þótt Davíð Oddsson forsætisráðherra væri þungur á brún þegar hann kynnti fréttamönnum úttekt Ríkisendur- skoðunar á fjárhagsstöðu Byggða- stofnunar og Framkvæmdasjóðs, sem gerð var samkvæmt beiðni for- sætisráðuneytisins. Fjárhagsstaðan reyndist alit önnur og verri en árs- reikningar þessara stofnana sýna. Forsætisráðherra segir ekki vafa leika á að sjóðirnir hafi verið mis- notaðir enda megi finna dæmi þess að stórfé hafi verið lánað tii fyrir- tækja sem hafi farið á hausinn nokkrum dögum eftir lánveitingar. Stjórnendum sjóðanna hljóti að hafa verið ljóst að í mörgum tilvik- um gætu fyrirtæki ekki endurgreitt þau lán sem verið væri að veita þeim. Enda hefði stjórn Byggða- stofnunar heykst á að endurlána /200 milljónir króna frá ríkinu til rækjuvinnslustöðva þegar ríkið hefði sett það sem skilyrði að trygg veð yrðu fyrir lánunum. Matthías Bjarnason, alþingismaður og stjórn- arformaður Byggðastofnunar, hefur tekið gagrnýni forsætisráðherra óstinnt upp og segist ekki hafa látið ríkisstjórnir beita sig þrýstingi við ákvarðanir um lánveitingar. Framkvæmdasióður______________ ó hausnum_____________________ Framkvæmdasjóður er eign ríkis- ins og heyrir undir forsætisráð- herra. Ríkissjóður ábyrgist allar skuldbindingar hans. Hlutverk sjóðsins er að annast innan ramma lánsfjárlaga milligöngu um lántöku fyrir fjárfestingarlánasjóði og aðra sambærilega aðila sem þess óska. Má sjóðurinn í því sambandi taka er- lend lán í eigin nafni og endurlána. í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að alls námu útlán Framkvæmdasjóðs þann 31. maí síðastliðinn um 25 milljörðum króna. Þar af námu lán til fjárfest- ingarlánasjóða og opinberra aðila um 21,2 milljörðum eða um 84,4% en önnur útián námu 3,8 milljörð- um, þar af voru 1,8 milljarðar bundnir í lánum vegna fiskeldis sem er um 47% af öðrum útlánum sjóðs- ins. Bókfærðar heildareignir sjóðs- ins voru alls 26,6 milljarðar króna. Framkvæmdasjóður hefur á und- anförnum árum orðið fyrir þungum áföllum, ekki síst vegna lánveitinga til ullariðnaðar og fiskeidis. Vegna gjaldþrota lánþega hefur sjóðurinn í mörgum tilfellum orðið að leysa til sín fjármuni sem veð voru bundin í. Bókfært eigið fé Framkvæmdasjóðs hefur hrapað á síðustu árum. Miðað við verðlag lánskjaravísitölu 1. júní síðastliðinn var bókfært eigið fé sjóðsins 1.500 milljónir árið 1986 og 1.300 miiljónir árið 1988. Árið 1989 var þetta komið niður í 465 milljónir og í lok maí á þessu ári nam bókfært eigið fé aðeins 369 milljónum. Frá því má draga afskriftir sem sam- kvæmt mati Ríkisendurskoðunar þurfa að vera 1.600 milljónir og þá verður eigið fé sjóðsins neikvætt um 1.200 milljónir króna. Niðurstöður útreikninga Ríkisendurskoðunar sýna að samanlagður greiðsluhalli Framkvæmdasjóöur, Byggðastofn- un og Ríkisábyrgðarsjóður tapa samtais um 2.640 milljónum á lán- um og ábyrgðum til fiskeldisfyrir- tækja. sjóðsins næstu tíu ár að teknu tilliti til áfallinna vaxta gæti numið 3 til 4,7 milljörðum króna. Ríkisendurskoðun telur tímabært að stjórnvöld íhu@ að leggja Fram- kvæmdasjóð niður enda sé hlutverk Lánasýslu ríkisins sem tók til starfa í fyrra ekki ósvipað. Hefur forsætis- ráðherra þegar tekið undir þetta og ákveðið að Framkvæmdasjóður verði aflagður. Stjórnarformaður Framkvæmdasjóðs er Þórður Frið- jónsson. Ríkisendurskoðun telur að gera megi ráð fyrir að rekstrar- kostnaður sjóðsins verði um 60 milljónir á þessu ári. Þá á Fram- kvæmdasjóður eigið skrifstofuhús- næði sem metið er á 130 milljónir sem verður þá væntanlega hægt að selja. UHáw Byggða«»ofwunar Byggðastofnun starfar á grund- velli laga frá 1985 og er meginhlut- verk hennar að stuðla að þjóðhags- kvæmilegri þróun byggðar í land- inu. Hún getur stuðlað að stofnun nýrra fyrirtækja og tekið þátt í fjár- festingar- eða atvinnuþróunarfélög- um. í maílok á þessu ári námu útlán Byggðastofnunar liðlega 9,5 millj- örðum króna. Þar af höfðu 1.656 milljónir verið færðar í afskriftar- reikning útlána og þá er tekið tillit til afskrifta að f járhæð 1.200 milljón- ir sem stjórn Byggðastofnunar sam- þykkti í byrjun ágúst. Útlánareikn- ingur stofnunarinnar stóð því í 7.875 milljónum nettó. Af útlánum Byggðastofnunar höfðu 5.567 milljónir króna runnið til aðila í sjávarútvegi eða 58%. Fisk- eidisfyrirtæki höfðu fengið um 1.300 milljónir og iðnfyrirtæki lið- lega milljarð. Útistandandi lán opin- berra sjóða og stofnana námu 490 milljónum og hótel og veitingastað- ir skulduðu stofnuninni nær 400 milljónir. Lán til annarra námu um 720 milljónum. Eignir stofnunarinn- ar voru í maílok samtals 8.844 millj- ónir en lántökur Byggðastofnunar námu tæpum sjö milljörðum. Eignir umfram skuldir voru um 1.700 millj- ónir. Ewdurmat og afakrHHr úHówa_________________________ Ríkisendurskoðun telur að á næstu árum gætu um 1.540 milljón- ir króna af útlánum Byggðastofnun- ar tapast. Þar vega lán til fiskeldis- fyritækja þyngst eða nær 800 millj- ónir. Af 340 milljón króna kröfum á fyrirtæki sem eru komin í Jirot munu tapast um 180 milljónir. Áætl- að er að tap vegna annarra geti numi um 570 milljónum, þar af 140 miiljónir vegna einstaklinga. Lán til fyrirtækja í sjávarútvegi, iðnaði og ýmiss konar þjónustustarfsemi eru færð niður um 430 milljónir. Sam- tals telur Ríkisendurskoðun rétt að afskrifa aðrar eignir Byggðastofn- unar en útistandandi lán niður um 185 milljónir og nema þá saman- lagðar afskriftir 1.725 milljónum. Að auki er talið rétt að færa ábyrgðir utan efnahags niður um 22 milljónir. Byggðastofnun hafði ákveðið að færa 506 milljónir í afskriftarsjóð en þegar Ríkisendurskoðun fór að krukka í málin var 1.200 milljónum bætt við. Með þessu telur Ríkisend- urskoðun hafi að mestu verið tekið tillit til þeirrar óvissu sem fylgir út- lánum Byggðastofnunar. Athugun fór fram á líklegri þróun á greiðslustöðu Byggðastofnunar á komandi árum. Ef gert er ráð fyrir að um 1.500 milljónir króna af út- lánum tapist á næstu árum mun greiðslustaða hennar verða afar viðkvæm frá árinu 1994. Miðað við þessar forsendur munu útgreiðslur verða hærri en inngreiðslur árið 1997 og greiðslustaðan verða nei- kvæð næstu ár þar á eftir. Valasawi* gildi_______________ IggahaÍwiBdar_________________ I maílok í ár námu útlán atvinnu- tryggingadeildar Byggðastofnunar 9.136 milljónum króna. Þar af höfðu 409 milljónir verið færðar í afskrift- arsjóð og var nettóstaða útlána því 8.726 milljónir. Eignir deildarinnar námu samtals 8.839 milljónum en lántökur hennar voru hins vegar 8.853 milljónir og skuldir við við- skiptamenn 15 milljónir. Skuldir voru því 29 milljónum hærri en eignir. Athugun Ríkisendurskoðunar á stöðu deildarinnar gefur til kynna að um 1.760 milljónir af útlánum gætu tapast. Framlög í afskriftar- reikning útlána þyrftu því að vera um 1.350 milijónir til viðbótar. Fyrstu fimm mánuði þessa árs námu gjaldfallnir vextir og afborganir 319 milljónum en ekki hafði verið greitt af þessu nema 171 milljón og van- skilahlutfali þessa tímabils því 46,5%. Jafnvel þótt gert sé ráð fyrir að allir lánþegar standi í skilum þarf deildin á um 1.250 milljón króna viðbótarfjármagni að halda á árun- um 1992 til 1994. í lögum er mælt fyrir um heimild Byggðastofnunar til að fella niður eða breyta í víkjcmdi lán kröfum at- vinnutryggingadeildar. Þetta telur Ríkisendurskoðun ekki góða latínu og í skýrslu hennar segir orðrétt: ,,Að mati Ríkisendurskoðunar er gildi umræddrar lagaheimildar vafasamt. Heimildin er í raun mjög rúm og vandmeðfarin í framkvæmd þar sem hætta er á að aðilum, sem eins er ástatt um, sé mismunað ef ýtrustu varúðar er ekki gætt. Spyrja má hvers þeir, sem standa í skilum við deildina eða þurfa jafnvel að þola uppboðs- og gjaldþrotameð- ferð vegna vanskila, eigi að gjalda gagnvart þeim sem væru í vanskil- um en nytu fyrirgreiðslu á grund- velli umræddrar lagaheimildar. Þá kann heimild af þessu tagi í reynd að draga úr möguieikum á innheimtu útistandandi lána hjá deildinni. Loks telur stofnunin að ábyrgð og framkvæmd heimildar sem þessar- ar, þó viðkvæm sé, eigi alfarið að vera í höndum og á ábyrgð stjórnar Byggðastofnunar með sama hætti og gildir um aðrar veigamiklar ákvarðanit varðandi starfsemi stofnunarinnar." Tap á tap ofan__________________ Þá er ógetið umfjöllunar Ríkis- endurskoðunar um Hlutafjársjóð Byggðastofnunar. Hlutverk hans er að taka þátt í fjárhagslegri endur- skipulagningu útflutningsgreina með kaupum á hlutabréfum í starf- andi fyrirtækjum og þátttöku í stofnun nýrra fyrirtækja er taka skyldu við starfsemi eldri útflutn- ingsfyrirtækja. Ríkisendurskoðun telur líklegt að ríkissjóður tapi 260 milljónum króna á þátttöku í þeim sjóði. Eins og fram kom í frétt blaðsins í gær telur Ríkisendurskoðun að Framkvæmdastofnun, Byggða- stofnun og Ríkisábyrgðasjóður tapi samtals 2.640 milljónum króna vegna lána og ábyrgða tii fiskeldis- fyrirtækja. Davíð Oddsson forsætis- ráðherra nefndi sérstaklega á frétta- mannafundinum Miklalax í Fljótum sem hefði fengið hundruð milljóna króna að láni þvert ofan í ráðlegg- ingar fagmanna. í fréttum útvarps í gær sagði framkvæmdastjóri Byggðastofnunar að Miklilax væri hinn mikli höfuðverkur stofnunar- innar. En ákvarðanir um lánveiting- ar til Miklaiax hefðu verið teknar í tíð ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar. Þótt ekki megi bara einblína á af- föll á útlánum sjóðanna þegar starf- semi þeirra er metin fer ekki hjá því að tekið sé undir það sjónarmið for- sætisráðherra að þessir sjóðir hafi verið misnotaðir. Það er ekki eðli- legt að lána milljarða króna af opin- beru fé til fyrirtækja sem fyrirsjáan- lega geta ekki greitt lánin til baka. Þessi þáttur í starfi sjóðanna er ekk- ert annað en sjóðasukk. Og því má ekki gleyma að eftir er að gera út- tekt á fjölmörgum sjóðum tii viðbót- ar. IM 0/1 I f.M S I VÍ* t K fFÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Síðumúla 39 — 108 Reykjavík — Sími 678500 Fél agsráðgjaf i Laus er 75% staöa félagsráðgjafa á félagsráðgjafar- sviði öldrunarþjónustudeildar í Síðumúla 39. Starfið er fólgið í ráðgjöf og aðstoð við aldraða, mati á húsnæðis- og og þjónustuþörf og meðferð umsókna um húsnæði og fjárhagsaðstoð. Nánari upplýsingar veita yfirmaður öldrunarþjónustu- deildar, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, og forstöðumaður félagsráðgjafarsviðs, Ásta Þórðardóttir, í síma 678500. Umsóknarfrestur er til 30. ágúst n.k. .Þroskaþjálfi — meðferðarfulltrúi Fjölskylduheimili fatlaðra barna, Akurgerði 20, óskar eftir að ráða þroskaþjálfa og/eða meðferðarfulltrúa. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af starfi með fötluðum börnum. Um er að ræða dag-, kvöld- og helg- arvaktir. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 681311 og 21682. Umsóknarfrestur er til 30. ágúst n.k. Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar Reykja- víkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðublöðum sem þar fást. KENNARASAMBAND ÍSLANDS Umsóknir um námslaun Verkefna- og námsstyrkjasjóður Kennarasambands ís- lands hefur ákveðið að úthluta námslaunum til kenn- ara sem hyggjast stunda framhaldsnám skólaárið 1992—1993. Um er að ræða styrkveitingar samkvæmt a.lið 6. greinar um Verkefna- og námsstyrkjasjóð Kenn- arasambands íslands. Væntanlegir styrkþegar munu fá greidd laun á náms- leyfistíma í alltað 12 mánuði eftir lengd náms. Hlutfall launagreiðslna verður í samræmi við umfang námsins. Umsóknum ber að skila á skrifstofu Kennarasam- bands íslands, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík. Eyðublöð liggja frammi á skrifstofu Kennarasam- bandsins, skrifstofu BKNE á Akureyri, fræðsluskrif- stofum og hjá trúnaðarmönnum í skólum. Umsóknarfrestur rennur út 10. september 1991.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.