Alþýðublaðið - 30.08.1991, Page 4

Alþýðublaðið - 30.08.1991, Page 4
Laugardaga 10-17 Sunnudaga 14-17 TM-HUSGÖGN SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822 MÞYBUBllBlfl Verslunin HLJÓMBÆJARHÚSINU HVERFISGÖTU 25999 Fréttir í hnotskum FÆREYJA-OG GRÆNLANDSFLUG REYKLAUST: Flugleið- ir hafa ákveðið að banna reykingar í Færeyja-og Grænlandsflugi sínu frá og með 1. september. Nú stendur yfir könnun meðal farþega í flugi til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar um hvort þeir séu hlynntir reyklausu Norðurlandaflugi. Ef mikill meirihluti farþega reynist hlynntur slíku banni hyggjast Flugleiðir banna reykingar í flugi milli Norðurlandanna frá og með 1. nóvember. Þá verða nikótínfíklar að hætta að ferðast til Norðurlandanna eða halda í sér, nema þeir svali fíkn sinn með neftóbaki eða skroi. LEIKHUSLINA: í dag opnar Upplýsingasíminn 99 1000 leikhús- línu. Á leikhúslínunni verða fyrst um sinn upplýsingar um starfsemi Leikfélags Reykjavíkur. Sagt verður frá viðfangsefnum leikársins, höfundum leikverka, leikurum og öðrum sem þátt taka í leiksýning- um. Þá verða upplýsingar um sýningartíma ogsölu áskriftarkorta og línan mun fylgjast með aðsókn og viðbrögðum gagnrýnenda. Leik- húslínan verður opin allan sólarhringinn og síminn 99 10 15. KVIKMYNDAGREININGARNÁMSKEIÐ: Kvikmyndasjóður og Endurmenntunarnefnd Háskóla íslands efna til námskeiðs í kvik- myndagreiningu fyrir almenning 3. til 12. september. Það er einkum ætlað kvikmyndaáhugafólki, gagnrýnendum, blaðamönnum, rithöf- undum, kennurum og öðrum sem vilja kynnast myndmáli og bygg- ingarlögmálum kvikmynda. Martin Daniel handritshöfundur verð- ur leiðbeinandi á námskeiðinu, en á því verða myndirnar Amadeus og Closely Watched Trains sýndar og greindar. ÚT Á FLÓA UM B0RÐ í T0GARA: Náttúruverndarfélag Suðvesturlands kynnir á morgun, í samvinnu við Granda hf,. hluta af starfsemi útgerðarfyrirtækis í Reykjavík, skuttogara og veiðarfæri hans og minnir á þörfina fyrir aukna kynningu á lífríkinu í sjónum umhverfis landið. Skuttogarinn Jón Baldvinsson verður til sýnis frá kl. 10—16, fullbúinn til veiða. Togarinn mun liggja við Grófar- bryggju, skipalægi Akraborgar, og verður almenningi boðið upp á um klukkustundar siglingu um Kollafjörð og út á Flóa. Farið verður kl. 11.30 og 14.30. Tilgangur þessarar kynningar er að vekja athygli á nauðsyn þess að skólanemendur og almenningur eigi þess kost að kynna sér betur aðalatvinnuveg þjóðarinnar, fiskveiðar. SÍÐUSTU ÞRIÐJUDAGSTÓNLEIKARNIR: Síðustu þriðjud- asgstónleikar sumarsins í Listasafni Sigurjóns Olafssonar verða nk. þriðjudagskvöld. Þá halda tónleika Björn Th. Árnason fagottleikari og Hrefna Eggertsdóttir píanóleikari. Safnið verður opið um helg- ar í vetur frá kl. 14—17 og kaffistofa safnsins á sama tíma. Þjóðarútajöld vaxa um 2-2,5% milli 1990-'91 segir í spá Félags íslenskra iðnrekenda í þjóðhagsspá Félags íslenskra iðnrekenda er gert ráð fyrir að landsframleiðslan 1992 verði 3% minni en hún var árið 1987. Þá gerir spáin ráð fyrir að þjóð- arútgjöld vaxi um 2—2,5% á milli áranna 1990 og 1991 og um 1,5% á milli áranna 1991—1992. Þá segir í spánni að helsta ástæða lítils hagvaxtar árin 1990—1992 sé samdráttur í út- flutningi. I spánni er gert ráð fyrir að samn- ingum um byggingu 200 þúsund tonna álvers verði lokið og orku- framkvæmdir hef jist af fullum krafti á næsta ári. Hins vegar er ekki búist við miklum framkvæmdum vegna álversins sjálfs fyrr en undir lok næsta árs og þá einungis vegna lóð- ar og hafnarmannvirkja. Þótt end- anlegar ákvarðanir hafi ekki verið teknar eru vaxandi líkur á að þetta verði, segir í frétt frá félaginu. í spá félagsins frá því í maí var einnig gert ráð fyrir nýju álveri. Þar var í aðalatriðum reiknað með óbreyttum afla á næsta ári en engar tillögur lágu þá fyrir um fiskafla. Niðurstaðan varð sú að landsfram- leiðslan gæti vaxið um allt að 3,5% á næsta ári.þótt um það ríkti veru- leg óvissa. Áhrifin af breyttum for- sendum um sjávarafla eru þau að landsframleiðslan verður að líkind- um nær óbreytt milli áranna 1991 og 1992. Ef þetta gengur eftir verð- ur landsframleiðslan 1992 3% minni en hún var 1987, segir að lokum í þjóðhagsspá Félags íslenskra iðn- rekenda. Líflegri og menmngar- legri miðbæ - stefnt að ýmsum framkvœmdum til að auka fjölbreytni mannlífs ( miðbœnum Á allra síðustu árum hefur starfs- mönnum á svæðinu sem kennt er við Kvosina fækkað úr rúmum 5.000 í tæp 2.800. Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, formaður Þróunarfélags Reykjavíkur, segir að nú sé komið að því að snúa vörn í sókn og stefnt sé að því að grípa á næstu misserum til ýmissa ráða til að gera miðbæinn eftirsóttari fyrir íbúana. Frá vinstri: Pétur Sveinbjarnarson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Markús Örn Antonsson borgarstjóri. INNLAUSNARVERÐ VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS Í2. FL.B.1985 Hinn 10. september 1991 er tólfti fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 2. fl.B 1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr.12 verður frá og með 10. september n.k. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 50.000,-kr. skírteini = kr. 4.241,55 Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. mars 1991 til lO.september 1991 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1239 hinn 1. september 1985 til 3185 hinn 1. september 1991. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða nr.12 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. september 1991. Reykjavík, 30. ágúst 1991. SEÐLABANKI ÍSLANDS 1 nýju deildarskipulagi miðborgar- innar er gengið út frá því að mið- borgin verði með „glæsilegu og virðulegu yfirbragði sem sæmi mið- borg höfuðstaðar landsins", eins og segir í nýrri skýrslu Þróunarfélags- ins. Samkvæmt hugmyndum félags- ins ber að leggja höfuðáherslu á eft- irtalin atriði á næstu árum. Yfir- bragð borgarinnar verði styrkt með því að byggja í skörð og eyður, sem myndast hafa. Sem dæmi um fram- kvæmd í þessa áttina má nefna hús- ið við Aðalstræti 8 og Lækjargötu 4 og endurbyggðu húsin við Tryggva- götu 20 og Hafnarstræti 19. Þá Ieggur Þróunarfélagið til að stór hluti miðborgarinnar verði gerður að göngusvæði. Nú er aust- urhluti Austurstrætis göngugata en tillaga liggur fyrir borgarstjórn um að opna götuna fyrir umferð. Á þessari stundu er allt óljóst um hvert verður framhald þess máls. Þá er stefnt að því að Vallarstræti verði gert að göngugötu og myndi göngu- svæði borgarinnar stækka nokkuð við það. Þá vill Þróunarfélagið leggja áherslu á að bakgarðar verði hreins- aðir og gæddir lífi, meðal annars með stígum í gegnum þá og á milli. í þessu sambandi má nefna svæði við Tryggvagötu og að reiturinn í kringum Alþingishúsið verði lag- færður. Þá benda menn á að nauð- synlegt sé að gróðursett verði tré til að ljá miðborginni hlýlegt yfirbragð og undirstrika götulínur. Við Lækj- argötu hafa verið sett niður tré á miðeyju svo og meðfram göngustíg við Fríkirkjuveg. Og að lokum bendir Þróunarfélagið á að æskilegt sé að íbúðum verði fjölgað, til að líf í miðbænum deyi ekki út eftir að verslunum og skrifstofum er lokað. I því sambandi bendir Þróunarnefnd- in á að á síðustu árum hafi aukið líf færst í miðbæinn vegna fjölda nýrra veitingastaða. Þá benda þeir jafn- framt á að árið 1985 hafi íbúðir í Kvosinni verið 17 en nú séu þær 26 og fyrirhugað er að byggja íbúðir of- an á hús Miðbæjarmarkaðarins við Aðalstræti. Gerð hefur verið framkvæmda- áætlun til 5 ára og allar helstu fram- kvæmdir tímasettar. í þessari áætl- un er m.a. kveðið á um að stofna skuli þróunar- og framkvæmdasjóð sem hefði það hlutverk að flýta fyrir framkvæmdum við nýtt skipulag í miðbænum. í frétt frá Þróunarfélaginu segir m.a. að við uppbyggingu miðborg- arinnar sé þýðingarmest að skapa sem mest aðdráttarafl. Því sé mikil- vægt að kvikmyndahús, söfn og menningarhús rísi í miðborginni, starfsemi sem hefur aðdráttarafl alla daga vikunnar. „í Grófinni, við Borgartorg (Skúlatorg) og við Aust- urbugt er aðstaða fyrir slíka starf- semi og ekki síður í húsunum við Tryggvagötu. Má sem dæmi nefna upplýsinga- og menningarmiðstöð við Borgartorg, kvikmyndahús í Grófinni, sædýrasafn og skipasafn í og við Reykjarvíkurhöfn og land- námsbæ við Aðalstræti.' Þá eru uppi ýmsar hugmyndir um breytingar á gjaldtöku vegna bíla- stæða, hugmyndir um byggingu fleiri bílageymsluh úsa og annað það sem gerði miðbæinn aðgengilegri fyrir íbúana, segir í frétt Þróunarfé- lagsins. Formaður Þróunarfélags Reykjavíkur er Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson og framkvæmdastjóri Pétur Sveinbjarnarson.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.