Alþýðublaðið - 01.10.1991, Side 1
Þriðjudagur 1. október 1991
148.TÖLUBLAÐ - 72. ÁRGANGUR
Möguleikinn ó viðurkenningu
Króatíu til athugunar
íslensk stjómvöld munu hafa samráð við aðrar þjóðir er málið varðar
í yfirlýsingu, sem undir-
rituð var að afloknum
fundi utanríkisráðherra,
Jóns Baldvins Hannibals-
sonar, og hins króatíska
starfsbroður hans í gœr,
er áréttaður stuðningur ís-
lendinga við grundvallar-
regluna um sjálfsákvðrð-
unarrétt þjóða.
Króatíski utanríkisráðherr-
ann, dr. Zvonimir Separovic,
átti í gær fund með Jóni Bald-
vini Hannibalssyni utanríkis-
ráðherra, þar sem rætt var
um ástandið í Júgóslavíu,
stöðu mála á friðarráðstefn-
unni um Júgóslavíu í Haag og
átökin í Króatíu. Dr. Separov-
ic, utanríkisráðherra Króatíu,
fór þess á leit við íslensku rík-
isstjórnina að hún viður-
kenndi fullveldi og sjálfstæði
Króatíu. Hann bauð Jóni
Baldvini Hannibalssyni í
heimsókn til að kynna sér að-
stæður, í því skyni að geta
greint umheiminum frá
ástandinu. Þá lýsti dr. Se-
parovic áhuga á að íslenskir
þingmenn heimsæktu Króa-
tíu.
Jón Baldvin Hannibalsson
áréttaði stuðning íslands við
Alprent hf.
Nýr útgáfuaðili
Alþýðublaðsins
í dag hefur nýr rekstar-
aðili, og gamall þó, Al-
prent hf. að gefa út AI-
þýðublaðið. Alprent var
útgáfufyrirtæki blaðsins
fyrir nokkrum árum, en
þá tók Blað hf. við útgáfu
Alþýðublaðsins, auk þess
að gefa út Pressuna.
Nú verður aðskilnaður í
rekstri þessara tveggja blaða.
Blað hf. annast sem fyrr
rekstur Pressunnar.
1
grundvallarregluna um sjálfs-
ákvörðunarrétt þjóða, og að
íslensk stjórnvöld væru
reiðubúin til að taka þá af-
stöðu sem samræmdist þjóð-
arrétti og færi saman við
hagsmuni allra málsaðila. Þá
mundu hériend stjórnvöld
hafa samráð við önnur ríki
sem málið varðar, einkum
nágrannaríki Króatíu, um
frekari stefnumótun, þ.á m.
möguleikann á viðurkenn-
ingu sjálfstæðis Króatíu.
Dr. Separovic átti einnig
fund með Davíð Oddssyni
forsætisráðherra.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra og hinn króa-
tíski starfsbróðir hans, dr.
Zvonimir Separovic, á blaða-
mannafundi í Ráðherrabú-
staðnum í gær
Norrœna ráðstefnan um vinnuskilyrði fiskverkafólks
Mörg jákvæð teikn á lofti
Á norrænu ráðstefnunni
um starfsumhverfi og
vinnuvernd í fiskvinnslu,
sem haldin var á vegum
Vinnueftirlits ríkisins fyr-
ir helgina, kom fram að
ýmisleg jákvæð teikn eru
á lofti um batnandi vinnu-
skilyrði fiskvinnslufólks.
Fréltir ' f bágbornu heilsu-
fari fólxs í þessum mikil-
vægu starfsgreinum hafa
valdið mörgum áhyggjum.
Fram kom að í fiskvinnslu á
Norðurlöndum er flæðilinan
að breiðast út og losar þá
starfsmenn við að lyfta þung-
um kössum. Snyrting og
pökkun eru nú víða orðnar
vel aðgreindar, sem dregur úr
miklum hávaða í vinnslusaln-
um. Þá hafa menn víðast
hvar verið að hverfa frá ein-
staklingsbundnum bónus, og
það talið draga mjög úr
streitu starfsfólks.
Þá eru menn víða að fikra
sig áfram með einshvers kon-
ar starfavíx! þannig að álag
verði mismunandi og starfs-
menn ekki bundnir sömu ein-
hliða hreyfingunum daginn
langan. Þá bjóðast starfs-
mönnum nú oft námskeið og
jafnvel allformlegt nám, sem
er talið auka virðingu starfs-
ins og tengja fólk því betur en
ella.
Það kom og fram á ráð-
stefnunni að hvarvetna geng-
ur illa að fá fólk til að vinna í
fiski og þurfa fleiri en íslend-
ingar að sækjast eftir erlendu
vinnuafli.
í Færeyjum er nú unnið að
þróunarverkefni sem greint
var ítarlega frá á ráðstefn-
unni, — fyrirmyndarfrysti-
húsinu „Nykur". Þar hefur
skapast samstarf milli Vinnu-
eftirlits Færeyja og samtaka
fiskframleiðenda um að
skapa slíkt frystihús, en nor-
ræna ráðherranefndin og
færeyski rannsóknasjóðurinn
styðja við tilraunina með
styrkjum.
í þessu húsi verður ný teg-
und flæðilínusamstæðu sem
marka á tímamót frá sjónar-
miði vinnuverndar. Línan
mun flytja flökin að hverjum
og einum eftir þörfum, hvort
sem unnið er í hópbónuskerfi
eða eftir öðru kerfi. Hver
starfsmaður getur unnið sjálf-
stætt og ákveðið hraðann og
fengið upplýsingar jafnóðum
um vinnsluna. Hávaði á ekki
að verða meiri en svo að
hægt verði að ræða saman
hvar sem er í vinnslusalnum.
Hitastig á að vera þægilegt og
ekkert vatn á gólfum.
Ljóst er þeim sem til þekkja
að ekki eru fiskvinnslufyrir-
tæki á íslandi öll svo kræsi-
leg, sum reyndar fyrir neðan
allt velsæmi. Fram kom í er-
indi Víðis Kristjánssonar,
deildarstjóra hollustuverndar
Vinnueftirlitsins, að hávaða-
mælingar sýna að enn eru
næstum allir sem vinna í
tækjasölum og véiasölum
frystihúsa í hávaða sem mæl-
ist yfir hættumörkum, eða 85
desibel.
Tveir sjálhtæðismenn
segja sig úr útvarpsráði
Mótmœla því að gengið var framhjá Ingu Jónu
Magnús Erlendsson,
fulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins í útvarpsráði, tilkynnti
úrsögn sína úr ráðinu í
gær og sagði það gert í
mótmælaskyni við þá
ákvörðun Ólafs G. Einars-
sonar menntamálaráð-
herra að ganga framhjá
Ingu Jónu Þórðardóttur í
embætti útvarpsstjóra.
Friðrik Friðriksson, vara-
maður sjálfstæðismanna í
ráðinu, sagði sig einnig úr
því, en hann tók við sæti
Ingu Jónu sem aðalmaður.
Það virðist því ætla að
draga dilk á eftir sér að séra
Heimir Steinsson, þjóðgarð-
svörður á Þingvöllum, var
ráðinn útvarpsstjóri. Hann
mun taka við stöðunni í dag.
Inga Jóna sagði sig hins veg-
ar úr ráðinu fyrir skömmu og
bar við trúnaðarbresti miili
sín og menntamálaráðherra.
Svo virðist sem nokkur kurr
sé meðal sjálfstæðismanna
vegna veitingarinnar á stöðu
útvarpsstjóra og margir hafa
talið sjálfsagt að ráðinn yrði
maður úr röðum sjálfstæðis-
manna.
Inga Jóna hafði setið í út-
varpsráði í átta ár, þar af sjö
ár sem formaður. Magnús ber
því við að gengið hafi verið
framhjá hæfri manneskju
með víðtæka þekkingu á
rekstri útvarpsins á sama
tíma og reynslulaus maður
var ráðinn. Alls hafa því þrír,
eða helmingur af útvarps-
ráðsmönnum, aðal- og vara-
mönnum, sagt sig úr útvarps-
ráði vegna raðningar Heimis
Steinssonar í stöðu úrvarps-
stjóra.
.. ' . —■ .....—...........- ■■ -------------------------
RITSTJÓRN (D 625566 - 625538 • FAX 627019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR l 625566