Alþýðublaðið - 01.10.1991, Blaðsíða 2
2
Þriðjudaqur 1. október 1991
fl hVIHIÍIIMHh
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson (í starfsleyfi)
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Steindór Karvelsson
Setning og umbrot: Leturval sf.
Prentun: Oddi hf.
Eftir lokun skiptiborðs:
Ritstjórn: 625538
Dreifing: 625539
Tæknideild: 620055
Fax: 627019
Gleðileg fækkun
kjarnorkuvopna
Nú hillir undir að kjarnorkuvopnum í heiminum verði fækkað
verulega. Fyrir helgi tilkynnti George Bush Bandaríkjaforseti í
sjónvarpsræðu einhliða fækkun kjarnorkuvopna af hálfu Banda-
ríkjamanna. Hann boðaði eyðileggingu allra vígvallarkjarnorku-
vopna Bandaríkjahers og stórfelldan niðurskurð á stýriflaugum
um borð í kafbátum og herskipum. Þetta framtak Bandaríkja-
manna er mjög lofsvert og merkur áfangi í sögu afvopnunar á
tímum kjarnorkuvopna. Þróun heimsmála á undanförnum árum
og misserum er forsendan fyrir þessari ákvörðun Bandaríkja-
stjórnar. Kommúnisminn í Austur-Evrópu hefur verið að falla og
nú síðast í Sovétríkjunum. í uppsiglinu eru vonandi breyttir og
betri tímar, sem hafi það að lokum í för með sér að öllum kjarn-
orkuvopnum verði eytt.
Bretar hafa fylgt fordæmi Bandaríkjamanna og boðað fækkun
kjarnavopna sinna. Mikhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna,
hefur fagnað niðurskurði Bandaríkjamanna á kjarnorkuvopnum
og segir hann afar mikilvægt framlag til afvopnunar. Sovétforseti
hefur lýst því yfir að Sovetríkin hyggji á samsvarandi niðurskurð
sinna kjarnavopna, auk þess sem hann hefur sagt það langtíma-
markmiði að öllum kjarnorkuvopnum verði útrýmt. Hlýtur það
einnig að vera von allra friðelskandi manna. Ottinn við að út
kynni að brjótast kjarnorkustríð hefur sett mjög svip sinn á allan
síðari hluta þessarar aldar, enda ljóst að slík styrjöld mundi hafa
skelfilegar afleiðingar fyrir allt mannkyn um langan aldur. Eftir
því sem kjarnorkuvopnum hefur fjölgað hefur ótti manna ekki
síður beinst gegn kjarnorkuslysum og þeim afleiðingum sem slík
slys kynnu að hafa. Fækkun kjarnorkuvopna mun því ekki síður
minnka slysahættuna vegna kjarnavopna en hættuna á að til
kjarnorkustyrjaldar komi.
Það sem hlýtur að gleðja okkur íslendinga sérstaklega vegna
fyrirhugaðrar fækkunar kjarnorkuvopna er að verulega verður
dregið úr kjarnorkuvígbúnaði á sjó. Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra hefur haft forgöngu um það á alþjóðavett-
vangi, m.a. innan NATO, að dregið yrði úr kjarnorkuvígbúnaði
á höfunum. Slíkar hugmyndir höfðu hingað til ekki hlotið mikinn
hljómgrunn á alþjóðavettvangi eða meðal bandamanna okkar í
Atlantshafsbandalaginu. Fjöldi kjarnorkuvopna í og á hafinu
umhverfis Islands er stöðug ógnun við afkomu þjóðarinnar. Eitt
alvarlegt kjarnorkuslys á fiskimiðum okkar gæti gert ísiensku
þjóðina nánast að öreigum. Þannig hefur þjóðin ekki síður búið
við slysahættu af völdum kjarnavopna en beinnar styrjaldar-
hættu. Það hlýtur að vera markmið íslendinga að engin kjarn-
orkuvopn verði í og á hafinu umhverfis landið og reyndar að
þeim verði með öllu útrýmt.
Kjarnorkuvopnabúr stórveldanna hefur verið ógnun við allt
lífríki jarðar og er enn. Kjarnorkuváin er eflaust vá sem flestir
vildu vera lausir við. Nú, þegar er verið að fækka kjarnorkuvopn-
um, er einnig og ekki síður nauðsyniegt að sporna gegn því að
nýir aðilar smíði kjarnorkuvopn. Rannsókn á vegum Sameinuðu
þjóðanna í írak sýnir að ekki er vanþörf á að fylgjast með að hin
ýmsu ríki veraldar fari ekki að koma sér upp kjarnorkuvopnum.
Eftir því sem þau verði í höndum fleiri aðila verður erfiðara að
takmarka útbreiðslu þeirra og jafnframt mun hættan á kjarn-
orkuvopnaátökum aukast. Vonandi mun því sú fækkun kjarn-
orkuvopna, sem nú hefur verið ákveðin, leiða til þess að iokum
að öllum kjarnorkuvopnum verði útrýmt af jarðarkringlunni.
— TH
Trvggvi Harðarson skrifar
Forsætisráðherra
var plataður!
- misnotaði ekkifé almennings vísvitandi eins og
Steingrímur og Olafur, segir stjórnmálafrœðingurinn
Hannes Hólmsteinn
Af viðtali við Davíð Oddsson,
forsætisráðherra og fyrrver-
andi borgarstjóra, í sjónvarps-
fréttum í síðustu viku mátti ráða
að hann væri harla ánægður
með að hið nýja ráðhús Reykja-
víkur skuli enn vera á sínum
stað. Vísar hann þar væntanlega
til viðtals við Gissur Símonarson
í Alþýðublaðinu árið 1988 undir
fyrirsögninni „Mun sökkva nið-
ur — eða lyftast upp“. Virtist þá
litlu skipta hjá forsætisráðherra
hvort kostnaðurinn hefði hlaup-
ið upp um milljarð króna eða
meira, enda skyldi ráðhúsið
reist við Tjörnina hvað sem það
kostaði.
Eitt af því sem ýmsir fundu Stein-
grími Hermannssyni, fyrrverandi
forsætisráðherra, til foráttu var
hversu gjarn hann var á að láta plata
sig. Nú hefur einn af þekktustu
stjórnmálafræðingum landsins bent
á að núverandi forsætisráðherra láti
einnig plata sig. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson stjórnmálafræðingur
segir í kjallaragrein í DV í gær eftir-
farandi: „Munurinn er sá, að Stein-
grímur og Ólafur misnotuðu vísvit-
andi fé almennigs, en Davíð var full-
bjartsýnn á getu starfsmanna sinna
til útreikninga og eftirlits." Þarna er
stjórnmálafræðingurinn að bera
sama forsætisráðherrana, núver-
andi og fyrrverandi, og Ólaf nokk-
urn Grímsson. Af þessum orðum
stjórnmálafræðingsins má glögg-
lega ráöa að Davíð hafi verið platað-
ur og ekki misnotað fé almennings
vísvitandi. Hér sé þvi ólíku saman
að jafna.
Rétt verð en vitlaus áætlun
„Hvað finna menn að ráðhúsinu
og Perlunni?" spyr stjórnmálfræð-
ingurinn og kemst efnislega að
þeirri niðurstöðu að þau séu ekki of
dýr heldur hafi kostnaðaráætlanir
þeirra verið of lágar. „Glæpurinn
hverfur, ef skipt er um viðmiðun,"
segir stjórnmálamaðurinn eins og
sjónhverfingamaður, því hefðu
menn gert áætlanir upp á meiri
kostnað hefði glæpurinn enginn
orðið. Þá kemst hann að þeirri gagn-
merku niðurstöðu að það sé
smekksatriði hvort umrædd hús séu
of dýr eða þess virði sem í þau er
lagt.
„Enn annar munur er á verkum
þeirra Steingríms og Ólafs annars
vegar og Davíðs hins vegar," segir
stjórnmálafræðingurinn: „Þeir pen-
ingar, sem Steingrímur og Ólafur
hafa ausið i vonlaus fyrirtæki, koma
engum að gagni að lokum. En þeir
peningar, sem farið hafa i Perluna
og ráðhúsið, standa áfram í þessum
húsum og verða Reykvíkingum og
landsmönnum öllum til ánægju um
ókomin ár.“
Um gagnsemi þess að ausa ríkisfé
í fyrirtæki má deila. Hins vegar er
vafasamt að ætla að því fjármagni,
sem varið er til að halda atvinnulíf-
inu gangandi, sé verr varið en þvi
sem fer í skrauthallir. Vissulega má
hugsa sér það hlutverk Perlunnar í
framtíðinni að atvinnnuleysingjum
af landsbyggðinni verði boðið þar
að borða og þeir fái síðan húsaskjól
yfir nóttina í ráðhúskjallaranum
meðan bílastæðin standa auð.
Á meðan enginn veit
Það er í reynd makalaust að halda
því fram, að þegar ákvarðanir eru
teknar, eins og um byggingu ráð-
hússins í Reykjavík, skipti engu
hvort raunhæf kostnaðaráætlun
liggi fyrir eða ekki. Enginn stjórn-
málamaður getur leyft sér að halda
því fram að kostnaður skipti ekki
máli þegar ákvarðanir eru teknar
um hvernig skattfé almennings
skuli varið, burtséð frá hversu mikið
menn eru tilbúnir að leggja til ein-
stakra verkefna. Við skulum vona
að slíkt verði ekki vinnuregla í ríkis-
stjórn Davíðs Oddssonar.
Þegar lagt er út í framkvæmd eða
verkefni af hálfu opinberra aðila
hlýtur það að vera grundvallarkrafa
í lýðræðisþjóðfélagi að fyrir liggi
sem nákvæmust kostnaðaráætlun.
Áætlanir, sem eru settar fram löngu
eftir að ákvarðanir eru teknar, hafa
ekkert gildi varðandi forsendur
sjálfrar ákvarðanatökunnar.
Þegar stjórnmálamenn taka
ákvarðanir um framkvæmdir, án
þess að kostnaður við þær liggi fyr-
ir, er þeim svipað farið og Friðrik
Sophusson fjármálaráðherra bendir
á í viðtali við Morgunblaðið um
helgina, þegar hann talar um að
verðskyn og verðvitund almenn-
ings fái ekki notið sín varðandi þjón-
ustu ríkisins. Hann segir: „Á meðan
enginn veit hvað hlutirnir kosta fá
stjórnmálamennirnir hvorki það að-
hald né þann stuðning sem þeir
þurfa til að takast á við þessi vanda-
mál."
.íöon sU hug-
J aðhyggja tái
khala verið
Kagsljósið og
SGAR
<ból»t'0-
H sjávar hcokV^®
K að ráðhús.
■b hælla al.
Wtil mótmæli to,^;
iamtaka þ.á.m. ibu ,.
n Tiarnarinnar.
Simonarson, Iram-
sl|órl Gluggasmlö)-
lur lyrlr hönd Al-
kslns i Byggingar-
Lkjavikurborgnr.
tii Gunnari H.
Lni, lulllrUa AlþýöU'
Bsamþykklu ekki
■n að veila „graltr-
■ helja Iram- 1
Hj geróu grei.n l\Æ
■fni i bókun.
■að belur l>láaH
E mólmm^
Braðhusr^l
Rúöhúsiö í Tjöriuniu:
m uaonusiu * o”.
SÖKKVA NIÐUR
LYFTAST UPP“
— r
aö sljó
bergi i
skipan
..Ég^- .
kosl aó i \
lcga en l
teíkning:;
mill þel
ekki plái 1
semi. en 1
mikil i kril
borgarinpl
— Nú T
gala og r j
hvernig rl
„Húsj
meó a'j
veróF
Vió
stra
el Þ A
mu í
niótl
mjógl
aó
sunni
garóv: *
lyrir
pega-
skur