Alþýðublaðið - 22.10.1991, Blaðsíða 3
Þriðjudaqur 22. október 1991
3
Bræður
á þínai
Bræður tveir sitja Alpingi íslend-
inga þessa dagana. þeir séra Gunn-
laugur Stefánsson í Heydölum og
Guðmundur Árni Stefánsson, bæj-
arstjóri í Hafnarfirði, . báðir Gaflar-
ar góðir og kratar fram í fingur-
góma. Guðmundur Árni situr í for-
föllum Jóns Sigurðssonar, viðskipta-
og iðnaðarráðherra, sem tekur sæti
sitt á þinginu að nýju í dag. Þriðji
bróðirinn, Finnur Torfi Stefánsson,
sat á þingi fyrir Alþýðuflokkinn fyr-
ir nokkrum árum, og þar áður faðir
þeirra, Stefán Gunnlaugsson. Hér
eru þeir bræður, Gunnlaugur og
Guðmundur Árni, í þingsölum í gaer.
A-mynd: E.Ól.
Haustveiðar loðnu hafa skilað 5,4 milljörðum
Tel brýnt að loðnu-
veiðar hefjist strax
- segir Einar K. Guðfinnsson alþingismaður
„Ég tel brýnt að loðnuveiðar
geti hafist strax og mjög brýnt
fyrir þjóðarbúið að fá þær við-
bótartekjur sem fengjust með
því að veiða hana núna,“ sagði
Einar K. Guðfinnsson alþingis-
rnaður við Alþýðublaðið í gær.
„Endanleg mæling Hafrann-
sóknastofnunarinnar liggur að vísu
ekki fyrir, en þær upplýsingar sem
þegar liggja fyrir gefa til kynna að
það sé engin áhætta tekin með því
að hefja loðnuveiðar strax. Einar K.
kvaðst ekki vita hug sjávarútvegs-
ráðherra til þessa máls.
Einar K. Guðfinnsson benti í þessu
sambandi á útreikninga sem Einar
Jónatansson á Bolungarvík hefði
látið gera. Þar kemur fram að verð-
mæti veiddrar loðnu á haustvertíð
frá árinu 1976 væri um 5,4 milljörð-
um króna umfram það sem verið
hefði ef hún hefði verið veidd á vetr-
arvertíð.
Frá árinu 1976 hafa veiðst samtals
10.774.600 tonn af loðnu og þar af
4.681.500 á haustvertíð'. Munurinn á
lýsisnýtingu á haustvertíð umfram
vetrarvertíð er um 5,5%. Ef reiknað
er með að fyrir tonn af lýsi fáist um
350 Bandaríkjadalir gefa þau 4.700
tonn af loðnu sem veiðst hafa á
haustvertíð frá 1976 um 5,4
milljOrðum meira í tekjur en ef sama
loðna hefði verið veidd á vetrarver-
tíð.
IC IIMI U I VSI VÍr 1IC
Yfirmaður fjarskiptaeftirlits
Staða yfirmanns nýstofnaðs fjarskiptaeftirlits er
auglýst laus til umsóknar. Fjarskiptaeftirlitið starfar
á grundvelli reglugerðar um Póst- og símamála-
stofnun, skipulag á verkefni nr. 173/1991. Æskilegt
er að umsækjendur hafi háskólapróf og góða kunn-
áttu í ensku.
Laun verða í samræmi við launakerfi opinberra
starfsmanna. Æskilegt er að sá umsækjandi, sem
valinn verður, geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar veitir starfsmannahald Póst- og síma-
málastofnunar.
Umsóknir skulu sendar samgönguráðuneytinu eigi
síðar en 22. október 1991.
Samgönguráðuneytið.
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatna-
málastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í efn-
isútvegun og smíði á málmhlutum og búnaði í
skólpdælustöð við Faxaskjól.
Yfirlit yfir verkið:
Eftirfarandi er lauslegt yfirlit yfir verkið, en nánari
lýsing kemur fram í verklýsingu. Óskað er eftir til-
boði í málmhlutina tilbúna til uppsetningar með öll-
um smáhlutum sem til þarf.
Um er að ræða eftirfarandi í aðaldráttum:
a) Ryðfríar pípulagnir frá 8 dælum 0 400 mm og 0
500 mm með tilheyrandi lokum.
b) Turn úr ryðfríu stáli 0 1118, með yfirfallshæðar-
röri að innan, 0 500, einnig úr ryðfríu stáli.
c) Öryggisflotloki u.þ.b. 3 m3 úr ryðfríu stáli ásamt
vökvakerfi.
d) Renniloka 2x2 m með gúmmiþéttingum og
snekkjudrifi.
e) Ristar og skermar í dæluþró, hvort um sig u.þ.b.
27 m2.
f) Opnanlegar lúgur í gólfum og þaki.
g) Kranabrautir, göngubrýr, stigar og handrið.
h) Ýmsir innsteyptir hlutir til festingar á búnaði og
pípuhólkar gegnum veggi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 30.000,- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 7.
nóvember 1991, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Bygginga-
deildar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum í
byggingu tveggja timburhúsa í fjölskyldugarðinum
í Laugardal.
Helstu stærðir:
Starfsmannahús: 206 fm.
Geymsluhús 242 fm.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 20.000,- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
6. nóvember 1991, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGA’R
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Bygginga-
deildar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum í
framleiðslu og afhendingu á 56 rúmmetrum af lím-
trésbitum í íþróttamiðstöð í Grafarvogi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 5.
nóvember 1991, kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
jtzxdJ
Laus staða
forstöðumanns
Lyfjaeftirlits ríkisins
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns Lyfjaeft-
irlits ríkisins. Staðan veitist frá 1. janúar 1992. Sam-
kvæmt 49. gr. lyfjalaga skal forstöðumaður Lyfjaeft-
irlits ríkisins uppfylla þær kröfur er lög áskilja til að
geta öðlast lyfsöluleyfi.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um lyfja-
fræðimenntun og lyfjafræðistörf, sendist ráðuneyt-
inu fyrir 15. nóvember 1991.
Frekari upplýsingar veitir ráðuneytið.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
17. október 1991.
Laust lyfsöluleyfi,
sem forseti íslands veitir
Laust ertil umsóknar lyfsöluleyfi á Patreksfirði (Pat-
reks Apótek).
Fráfarandi lyfsali óskar eftir því að viðtakandi lyfsali
kaupi húseign þá er lyfjabúðin er í, sbr. 11. gr. laga
nr. 76/1982, um lyfjadreifingu.
Viðtakandi lyfsali skal hefja rekstur frá og með 1.
janúar 1992.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um lyfja-
fræðimenntun og lyfjafræðistörf, sendist ráðuneyt-
inu fyrir 15. nóvember 1991.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
17. október 1991.
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatna-
málastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í lagn-
ingu holræsis við Skerjafjörð.
Verkið nefnist:
Ægisíðuræsi, 2. áfangi.
Helstu magntölur:
Uppúrtekt: u.þ.b. 10.000 m3
Sprengingar: u.þ.b. 2.500 m3
Grúsarfyllingar: u.þ.b. 3.500 m3
Lagning falsröra: u.þ.b. 1.100 m
Verkinu skal lokið 1. desember 1992.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 20.000,- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
31. október 1991, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800