Alþýðublaðið - 05.11.1991, Blaðsíða 1
Glasafrjóvganir
í bwrðarlionwm
Undirbúningur verið í gangi síðastliðin tvö ár
„Ég veit ekki til þess að
það séu byrjaðar neinar
glasafrjóvganir hér enn-
þá. Það er búið að vera að
undirbúa glasafrjóvganir
hér á landi síðastliðin tvö
ár og var gert ráð fyrir að
þær kynnu að fara af stað
■ ár,“ sagði Páll Sigurðs-
son, ráðuneytisstjóri heil-
brigðisráðuneytis, í sam-
tali við Alþýðublaðið.
Hjá Landspítalanum feng-
ust þær upplýsingar að undir-
búningur fyrir glasafrjóvgan-
ir væri þar í fullum gangi en
ekki fékkst staðfest hvort þær
væru hafnar eða ekki. Heil-
brigðisráðuneytið er aftur á
móti að undirbúa hvernig
staðið verður að þjónustu við
þá sem æskja glasafrjóvgun-
ar.
Tryggingarstofnun hefur
greitt ákveðinn kostnað
beirra sem leitað hafa glasa-
frjóvgunar í Englandi. Það er
aðallega vegna kostnaðar á
sjúkrastofnun, en fólkið hefur
sjálft þurft að greiða ferðir og
uppihaldskostnað sem hefur
fallið utan sjúkrahúss. Glasa-
frjóvganir hafa því haft tals-
verðan kostnað i för með sér
hjá því fólki sem hefur leitað
til Englands.
Tryggingastofnun greiðir
ennþá hluta kostnaðar vegna
glasafrjóvgunarferða til Eng-
lands og hefur það ekkert
verið takmarkað.
Páll Sigurðsson ráðneytis-
stjóri segir að rætt hafi verið
um að fólk taki meiri þátt í
kostnaði vegna þessarar
þjónustu en gengur og gerist
í heilbrigðiskerfinu, en um
það hafa þó engar ákvarðan-
ir verið teknar ennþá. ,,En af
því að hér verður fyrst og
fremst um göngudeildarstarf-
semi að ræða og lítið um inn-
lagnir er gert ráð fyrir að fólk
þurfi að minnsta kosti að
borga eins og fyrir göngu-
deildarþjónustu, ef til vill eitt-
hvað meira," sagði Páll.
Borgarfulltrúar
Nýs vettvangs
spyrjast jyrir um
Ráðhúsið
Á að
kaupa
upp ná-
grennið?
Fulltrúar Nýs vettvangs í
borgarstjórn Reykjavíkur
munu óska eftir að fá svör
við ýmsum spurningum í
sambandi við Ráðhús
Reykjavíkur í Tjörninni,
þegar borgarstjórn kemur
næst saman til fundar á
fimmtudaginn kemur.
Að sögn Olínu Þorvarðar-
dóttur borgarfulltrúa eru það
sex atriði sem borgarfulltrúar
vilja fá vitneskju um:
1. Er það stefna borgaryfir-
valda að kaupa upp eignir í
næsta nágrenni Ráðhússins
til þess að fjarlægja þær síð-
an. og rýmka þannig fyrir að-
komu að húsinu?
2. Ef svo er. hvaða eignir
eru það þá sem borgin hefur
hug á að kaupa og fjarlægja
— og á hversu löngum tíma?
3. Hafa einhverjar eignir
verið keyptar í þessu skyni nú
þegar — og ef svo er, hvaða
eignir?
4. Sé um það að ræða,
hversu miklir fjármunir hafa
þá farið nú þegar í kaup á
húsnæði í nágrenni Ráðhúss-
ins?
5. Hversu mikið má áætla
að borgin þurfi að kosta til
vegna kaupa á fasteignum i
þessu skyni?
6. Hafaeinhverjirsamning-
ar eða viðræður átt sér stað
milli borgaryfirvalda og íbúa
í næsta nágrenni Ráðhússins
um hugsanleg kaup borgar-
innar á eignum íbúanna?
Borgarfulltrúar Nýs vett-
vangs óska eftir skriflegum
svörum við þessum spurning-
um og munu þær væntanlega
liggja fyrir á fimmtudaginn.
Frá afhendingu sfðustu fbúða. Jóhann Árnason, framkvæmdastjóri Sunnuhlíðar, og Hildur Hálfdánardóttir ásamt lukkulegum íbúðareiganda.
A-mynd E.ÓI.
Sunnuhlíð á tímamótum
Hafa byggt fyrir mill|arð
- þar með eiga 30% Kópavogsbúa, 65 ára og eldri, kost á að búa í vernduðu umhverfi
„ViA erum að sjálfsögdu
afskapiega glöð yfir aA
hafa náA þessum áfanga,“
sagAi Ásgeir Jóhannesson
í SunnuhlíAarsamtökun-
um i gær, en Ásgeir hefur
veriA í fararbroddi í þeim
samtökum í mörg ár. Sam-
tökin hafa náA ótrúlegum
árangri í aó byggja yfir
eldri borgara Kópavogs.
Nú hafa SunnuhlíAarsam-
tökin náA þeim árangri,
ásamt Kópavogsbæ og Or-
yrkjabandalaginu, aA
byggja verndaAar íbúAir
og stofnun fyrir 30% af 65
ára og eldri í bænum. ÞaA
var og er takmark, sem
menn á þessum vettvangi
keppa aA samkvæmt
stefnumótun féiagsmála-
ráAuneytisins.
Sunnuhlíðarsamtökin af-
hentu fyrir helgina síðustu
íbúðirnar sem sarritökin
byggja — að sinni í það
minnsta. Þau hafa þá byggt
108 íbúðir fyrir eldri borgara,
en auk þess fullkomna þjón-
ustumiðstöð sem kemur íbú-
unum á Sunnuhlíðarsvæðinu
að gagni og einnig eldra fólki
utan úr bæ. Framkvæmdirn-
ar hafa kostað um milljarð
króna, en aðeins 10% þess
fjármagns koma frá opinber-
um aðilum. Hlutur Sunnu-
hlíðarsamtakanna í uppbygg-
ingu á þessu sviði er því stór.
Allt byggingarferli Sunnu-
hlíðarsamtakanna og öll sú
hugsun sem að baki býr eru
nú að heita má munstur fyrir
önnur bæjarfélög, nú síðast í
Hafnarfirði.
En hafa Sunnuhlíðarsam-
tökin hér með runnið sitt
skeið á enda?
„Nei, nei, ekki er það nú
svo," segir Ásgeir Jóhannes-
son. „Við spyrjum alltaf hvort
við getum orðið að liði. Telji
menn að við getum það, þá
mun ekki á okkur standa."
RITSTJÓRN (D 625566 - 625538 • FAX 627019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR © 625566