Alþýðublaðið - 05.11.1991, Page 2
2
Þriðjudaqur 5. nóvember 1991
f'lMMMHÍIIÐ
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margelrsson (í starfsleyfi)
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Steindór Karvelsson
Setning og umbrot: Leturval sf.
Prentun: Oddi hf.
Símar eftir lokun skiptiborös:
Ritstjórn: 625538 - Dreifing: 625539 - Fax: 627019
Tæknideild: 620055
Áskriftarverö kr. 1.200 á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 90
Sala veiðiheimilda eflir
kosfnaðarvitund stjórnvalda
Umræðan um sjávarútvegsmálin verður sífellt Iíflegri en
jafnframt harðari. Pað þarf ekki að koma nokkrum manni
á óvart, þar sem miklir hagsmunir eru í húfi. Sjávarútvegs-
málin koma öllum íslendingum við, enda leggja þau öðru
fremur grundvöllinn að bærilegri lífsafkomu þjóðarinnar.
AUtaf heyrast þó þær raddir að hér sé á ferðinni eitthvert
einkamál milli útgerðarmanna og fiskverkenda annars
vegar og þar til gerðra stjórnvalda hins vegar. bannig er
það tekið heldur óstinnt upp af ýmsum þegar iðnrekendur
fara að ræða um þetta lífshagsmunamál þjóðarinnar, hvað
þá þegar háskólakennarar eða bankastjórar þenja sig um
málið. Sjávarútvegurinn, fiskveiðistjórnun, fiskverkun og
sölumál sjávarafurða eru hins vegar ekkert einkamál þeirra
sem við það vinna. Við búum við verkaskiptingu hér á
landi, sem er forsenda þess að halda gangandi nútímaþjóð-
félagi. Sjávarútvegurinn er því ekkert einkamál þeirra sem
veiða fisk eða vinna, frekar en menntamál eru einkamál
kennara eða heilbrigðismál einkamál lækna.
Kvótakerfið í núverandi mynd er hættulegast fyrir þær sak-
ir að einstaka aðilar geta keypt sér veiðiréttinn til ævarandi
eignar og notfært sér síðan einokunarað§töðu sína til að
koma í veg fyrir eðlilega samkeppni í fiskvéiðum. Dugandi
skipstjórnarmönnum og sjómönnum mun í slíku kerfi
verða gert ókleift að komast yfir kvóta og hefja eigin út-
gerö, þrátt fyrir að þeir kynnu að vera í stakk búnir að
sækja fisk í sjó fyrir minni tilkostnað en einokunarútgerðir,
ef fram heldur sem horfir. Fiskurinn í sjónum er vissulega
verðmæti sem hefur gengið kaupum og sölum mílli útgerð-
araðila, þrátt fyrir að lögum samkvæmt sé hann sameign
þjóðarinnar. Það væri meiriháttar glapræði ef íslensk
stjórnvöld ætluðu að gefa frá sér þessa auðlind þjóðarinnar
fyrir ekki neitt. Það er alveg ljóst að það eru fleiri tilbúnir
að gera út hér á landi en þörf er fyrir og eftirspurn eftir
kvóta langt umfram framboð. Því er eðlilegasti hlutur í
heimi að láta þá, sem tilbúnir eru að greiða mest fyrir að
fá veiðiheimildirnar, sækja sjóinn, en hinir taki pokann
sinn. Hins vegar verður ætíð að gæta þess að til staöar sé
virk samkeppni í fiskveiðum, sem einungis verður tryggt
með því að ávallt sé svo og svo mikið framboð á kvóta á
frjálsum markaði.
Ýmsir meðal þeirra sem tilheyra svokölluðum hagsmuna-
aðilum sjávarútvegsins hafa áttað sig á því að ekki er hægt
að bera því við að útgerðin þoli ekki að greitt sé fyrir veiði-
réttinn á sama tíma og útgerðaraðilar kaupa hann fyrir
milljarða króna. Vilji þjóðin hins vegar auka hagsæld í land-
inu er nauðsynlegt að almenn viðskiptalögmál verði látin
gilda um sjávarútveginn eins og aðrar atvinnugreinar. Það
er ekki hægt að halda heilli atvinnugrein í klakaböndum á
einhverjum óljósum forsendum og vafasömum hagsmun-
um. Sumir halda því fram að frelsi í veiðum og vinnslu feli
í sér dauðadóm yfir landsbyggðinni án þess að koma með
frambærileg rök. Rekstur ýmissa útgerðar- og fiskvinnslu-
fyrirtækja á landsbyggðinni hefur gengið bærilega í gegn-
um árin og mun vafalaust gera áfram. Telji stjórnvöld
ástæðu til að styrkja byggðarlög til útgerðar er þeim það í
lófa lagið í frjálsu fiskveiðikerfi með því að kaupa kvóta og
úthluta. Með því móti mætti efla kostnaðarvitund stjórn-
valda þannig að þau hefðu hugmynd um hvað hvað sam-
þykktir þeirra og stefna hverju sinni í atvinnu- og byggða-
málum kosta.
— TH
Stjórnmálaályktun kjördœm isþings
Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks Islands
í Vesturlandskjördœmi
Ný stóriðja á
Vesturlandi
fýsilegur kostur
Kjördæmisþing Alþýðuflokks-
ins í Vesturlandskjördæmi fagn-
ar góðum árangri sem náðist
undir forystu formanns Alþýðu-
flokksins í samningaviðræðum
um Evrópskt efnahagssvæði. Sú
niðurstaða sem nú liggur fyrir
er Islendingum hagfelld og opn-
ar á mörgum sviðum, ekki síst í
sjávarútvegi og fiskvinnslu, ný
sóknarfæri til aukinnar atvinnu
og betri lífskjara. Kjördæmis-
þingið leggur áherslu á mikil-
vægi þess að í þessum samninga-
viðræðum tókst að ná fram
margvíslegum hagsbótum og
jafnframt að verja auðlindir ís-
lensku þjóðarinnar til sjós og
lands. Islendingar eru Evrópu-
þjóð og vilja vera það áfram. Til-
koma hins evrópska efnahags-
svæðis tryggir áframhaldandi
samstarf okkar við þær þjóðir
sem við höfum átt nánust sam-
skipti við, jafnframt því að opna
Islendingum dyr til nýrra tæki-
færa á ótal sviðum.
Blikur á lofti
Blikur eru á lofti í efnahagsmál-
um. Þær vonir vöknuðu fyrr á þessu
ári að botni hagsveiflunnar væri
náð og framundan væri vaxtar-
skeið. Þessar vonir hafa dvínað um
sinn og Ijóst að framundan er
fimmta samdráttarárið í röð í is-
lenskum þjóðarbúskap. Orsakir
þessa eru einkum tvennar: Sam-
dráttur fiskafla á nýju kvótaári og
landlægar hagstjórnarveilur. Kjör-
dæmisþingið hvetur til þess að ráö-
herrar og þingmenn Alþýðuflokks-
ins beiti sér fyrir því að fyrirsjáan-
legur niðurskurður á ýmsum svið-
um verði framkvæmdur með þeim
hætti að ekki leiði til enn frekari bú-
seturöskunar í landinu.
Allur afli á markað
Samdráttur sjávarafla hefur alvar-
legar afleiðingar í för með sér í þeim
byggðarlögum sem að mestu eða
öllu byggja á sjósókn og fiskvinnslu.
Við þessu verður að bregðast. Það
verður að mati kjördæmisþingsins
best gert með því að tryggja að allur
afli sem á land berst fari um íslenska
fiskmarkaði samhliða því að átak
verði gert í fullvinnslu sjávarafurða
og markviss undirbúningur hafinn
til þess að nýta þau tækifæri sem
skapast með tilkomu evrópska efna-
hagssvæðisins. Afnema ber úrelt
lagaákvæði sem banna erlendum
skipum að landa afla hérlendis.
Auðvelda ber innlendum þjónustu-
aðilum að sinna viðgerðum og ann-
arri þjónustu við erlend skip.
Kjördæmisþingið hvetur þing-
flokk Alþýðuflokksins til að hvika
hvergi frá þeirri stefnu að í áföngum
skuli komið á veiðileyfagjaldi í sjáv-
arútvegi, enda eru nytjastofnar á ís-
landsmiðum lögbundin sameign
þjóðarinnar.
Kjarasamningar
Þegar framundan eru samningar
um kaup og kjör við aðstæður eins
og nú ríkja skorar kjördæmisþingið
á aðila vinnumarkaðarins og ríkis-
stjórn að beita sér fyrir nýrri þjóðar-
sátt, sem tryggi áframhaldandi stöð-
ugleika verðlags og aukinn kaup-
mátt launa við lága verðbólgu.
Launafólk hefur undanfarin misseri
búið við áður óþekktan stöðugleika
í efnahagsmálum og á yfirstandandi
samningstímabili hefur tekist að
tryggja kaupmátt eins og að var
stefnt.
Velferðarkerfid treyst
Kjarni jafnaðarstefnunnar er að
verja kjör þeirra sem minnst mega
sín og treysta jafnrétti þegnanna. ls-
lendingar eru meðal þeirra þjóða
heims sem búa við best lífskjör. Vel-
ferðarkerfi samfélagsins á að
tryggja stöðu þeirra sem minnst
mega sín. Hallarekstur ríkissjóðs og
skuldasöfnun stefna nú í hættu því
velferðarkerfi sem Alþýðuflokkur-
inn hefur barist fyrir að byggja upp.
Við því verður að bregðast. Það
verður best gert með þeim hætti að
hætta að reka velferðarkerfið fyrir
lánsfé sem komandi kynslóðum er
ætlað að greiða. Aukinn sparnaður,
hagræðing og aðhald verða til að
koma, jafnframt því sem leitað verði
leiða til að auka skilvirkni í ráðu-
neytum og stofnunum ríkisins yfir-
leitt. Kjördæmisþingið útilokar ekki
hófleg gjöld fyrir veitta þjónustu í af-
mörkuðum tilvikum að teknu tilliti
til lífshagsmuna láglaunafólks og
barnafjölskyldna. Skattleggja ber
fjármagnstekjur eins og aðrar tekj-
ur.
Stóriðja
Flest bendir nú til þess að nýtt ál-
ver muni rísa á Keilisnesi og að í
tengslum við það verði ráðist í mikl-
ar virkjunarframkvæmdir. Með
þeim framkvæmdum lýkur löngu
stöðnunartímabili í nýtingu orku-
linda til stóriðju. Bygging álvers á
Keilisnesi mun hafa jákvæð áhrif í
atvinnumálum um land allt. Kjör-
dæmisþingið minnir á að víða á
Vesturlandi er hagkvæmt að stað-
setja nýja stóriðju og bendir í því
sambandi sérstaklega á Grundar-
tangasvæðið sem fýsiiegan kost.
Samgöngur
- ' ' ' " 1 ............... —
I byggðamálum minnir kjördæm-
isþingið á að góðar samgöngur, og
bundið slitlag á þjóðvegum, er for-
senda farsællar byggðastefnu. For-
gangsverkefni í vegamálum kjör-
dæmisins er að Ijúka vegabótum um
Mýrar og hefja síðan tengingu
byggðanna á norðanverðu Snæfells-
nesi þannig að nýr vegur um Bú-
landshöfða og bundið slitlag auð-
veldi flutninga og vinnusókn milli
þéttbýlisstaða. Kjördæmisþingið
leggur áherslu á tengingu Dala-
byggðar við nágrannahéruðin og ít-
rekar mikilvægi Gilsfjarðarbrúar
fyrir það svæði. Þingið hvetur til
þess að viðhaldi malarvega verði
betur sinnt en gert hefur verið til
þessa. Fagnað er að undirbúningur
jarðganga undir Hvalfjörð er kom-
inn á góðan rekspöl. Brýnt er að efla
rannsóknir á notkun innlendra
orkugjafa á samgöngusviðinu.
Jöfnun hitunarkostnaðar
Þingið ítrekar fyrri ályktanir um
jöfnun húshitunarkostnaðar og
fagnar þeim áfanga sem náðst hefur
í þeim efnum fyrir forgöngu Alþýðu-
flokksins. Jafnframt er undirstrikað
að halda þarf áframaðgerðum til að
draga úr hitunarkostnaði þar sem
hann er hæstur til að uppræta það
misrétti sem enn ríkir í þessum efn-
um.
Landbúnaður
Kjördæmisþingið fagnar aðgerð-
um sem beinast að því að laga bú-
vöruframleiðsluna að innanlands-
þörfum þannig að vöruverð geti
lækkað. Jafnhliða því sem störfum
fækkar í landbúnaði verður að
fjölga störfum við landgræðslu,
skógrækt og gróðurvernd þannig
að snúa megi vörn í sókn og stöðva
þá eyðileggingu sem náttúruöflin
og gegndarlaus ofbeit hafa valdið á
gróðri landsins. Kjördæmisþingið
leggur ríka áherslu á að land-
græðsla og skógrækt verði flutt á
verksvið umhverfisráðuneytis þar
sem þeir málaflokkar eiga heima
samkvæmt eðli máls.
Umhverfismál
Kjördæmisþing Alþýðuflokksins
á Vesturlandi fagnar því að mála-
flokkur nútíðar og framtíðar, um-
hverfismálin, skuli hafa komið í hlut
Alþýðuflokksins við ríkisstjórnar-
myndun í vor. Minnt er á að í skoð-
anakönnun síðastliðið sumar töldu
86% þjóðarinnar umhverfismálin
vera forgangsverkefni. Umhverfis-
ráðuneytið er ungt ráðuneyti. Fjár-
veitingavaldinu ber að tryggja að
það geti sinnt þeim mikilvægu verk-
efnum sem því hafa verið falin.
Þingið minnir á að framundan eru
stórverkefni þannig að koma megi
sorphirðu og frárennslismálum
sveitarfélaga í viðunandi horf. Sam-
vinna sveitarfélaga um sorphirðu-
mál er forsenda farsælla lausna í
þeim efnum en ljóst er að sveitarfé-
lögin ráða yfirleitt ekki við þann
stofnkostnað sem þessum verkefn-
um er samfara án atbeina ríkisvalds-
ins. Þingið hvetur ráðherra og þing-
menn Alþýðuflokksins til að beita
sér fyrir fjárveitingum tii umhverfis-
mála sem tryggi að sveitarfélögun-
um verði gert kleift að hefjast handa
um úrlausn þessara brýnu verkefna.
Óspillt náttúra og heilnæmt um-
hverfi eru grundvöllur góöra lífs-
kjara. Það er skylda núlifandi kyn-
slóða að skila landinu og lífríki sjáv-
ar heilu og höldnu í hendur kom-
andi kynslóða. í því sambandi er
minnt á mikilvægt frumkvæði for-
manns Alþýðuflokksins um afvopn-
un á höfunum.