Alþýðublaðið - 05.11.1991, Síða 3

Alþýðublaðið - 05.11.1991, Síða 3
Þriðjudaqur 5. nóvember 1991 3 BJÖRN E HAFBERG SKRIFAR FRJÁLST, ÓHÁD DAG-BLAÐUR Skóla- og menntamál hafa venju fremur verið mikið til um- fjöllunar í fjölmiðlum á síðustu misserum. Fæstir þeirra sem um þessi mál fjalla hafa iagt það á sig að fjalla um það sem í víðum skilningi má kalla menntun, gildi hennar og þýðingu almennt fyrir einstaklinginn eða samfé- lagið. Umræður um menntun og skólamál á Islandi snúast um þessar mundir, eins og svo oft áður, um offramboð mennta- manna, bruðl námsmanna á al- mannafé, kostnað samfélagsins vegna menntakerfisins og röfl kennara vegna lágra launa. Sjálf bóka- og menningarþjóðin hefur því miður ekki náð að lyfta umræðunni á hærra plan, svo notuð séu orð nóbelskáldsins. Nú skal allt mælt, vegið og metið með reikni- áhöldum hagspekinganna. Þeirsem ekki kunna þær kúnstir skulu halda sig á mottunni. Þeir sem starfa að menntamálum og þekkja ættu best til skólamála hafa ekki snúist til sóknar í þessum umræðum, heldur hafa menn ýmist snúist til þokukenndar varnar eða hreinlega gefist upp og látið um- ræðu þessa framhjá sér fara. Þeir sem tala fyrir hönd hinna svoköll- uðu æðri menntastofnana og starfs- þjálfunarskóla væla um að nauðsyn- legt sé að tengja skólana betur at- vinnulífinu og þar með er þeirri um- ræðu lokið. Hefur menntun ekki annað og göfugra markmið en að vera eingöngu þjálfunarbúðir fyrir atvinnulífið? er að verða áleitin spurning. Almennir framhaldsskóla- og grunnskólakennarar láta ekkert í sér heyra annað en væl um bág kjör, fagleg umræða um skólakerfið hef- ur ekki komið úr þeirri áttinni. Svo- kallaðir menningarfrömuðir virðast ekkert hafa um menntamál al- mennt að segja lengur. Öll umræða kafnar í lágkúrulegu einkapoti um þá peninga sem til skiptanna eru. Hver kannast við að t.d. rithöfundar hafi á síðustu árum látið svo lítið að drepa niður penna og taka þátt í um- ræðum um annað en klíkuskap við úthlutun styrkja? Eða þá hitt, sem er litlu skárra, að upplýstir menntaðir menn, sem hafa komið sér í þá aðstöðu að geta haft áhrif t.d. með skrifum sínum, láta freistast til að skrifa um þennan málaflokk á sama hátt og sú fræga kona sem enginn veit á önnur deili en að hún hefur lengi búið í Vestur- bænum? Leiðarar Dagblaðsins hafa í gegn- um árin oft verið það skynsamleg- asta sem birtist á prenti hjá þessari prentóðu þjóð, en stundum er skotið langt yfir markið. Lítum á dæmi úr leiðara félags- fræðingsins Jónasar Kristjánssonar í Dagblaðinu frá síðasta laugardegi, þar sem hann fjallar á slagorða- kenndan hátt um kreppu íslenska skólakerfisins. „Grunnskólarnir eru að verulegu leyti geymslustofnanir. svo að for- eldrarnir geti unnið í friði. Sem geymslustofnanir eru þeir þó frem- ur óhentugir, því að skóladagurinn er sundurslitinn, lítil aðstaða er tii eiginnáms í skólunum og kennarar eru sí og æ á fundum eða í fríum." Stuttu seinna segir: ,,Börn eru sjö ár í barnaskóla til að læra að lesa, skrifa og reikna. Það þætti lítil arð- semi á mælikvörðum atvinnulífsins, jafnvel þótt einnig sé tekið tillit til þess hlutverks skólanna að geyma börn, svo að þau séu ekki í lausa- gangi heima hjá sér eða úti á göt- um." í sjálfu sér er margt af því sem Jónas segir kórrétt og skynsamlega hugsað. En það er þessi framsetn- ingarmáti, þessir sleggjudómar og alhæfingar, án þess að benda á leið- ir til úrbóta, sem verða til þess að umræðan skilar litlum sem engum árangri. Það er ekki svo að aðeins Jónas Kristjánsson skrifi um þessi mál á þennan hátt, og kannski má segja að aðeins á þennan hátt sé hægt að vekja athygli á vanda skóla- kerfisins okkar og fá fram umræður á hærra plani, eða vitsmunalegum grunni, eins og sumir kynnu að vilja kalla það. Hvað sem öðru líður hlýtur að vera kominn tími til að þeir sem telja menntun æskunnar einhvers virði — umfram það að þjálfa menn í fangbrögðum atvinnulífsins — láti til sín heyra, svo ekki verði látið eftir steingeldum og þröngsýnum hag- spekingum að ráða öllu sem máli skiptir hér á landi. í menntun felst framtíðarfjárfest- ing þjóðarinnar, segja ráðamenn á tyllidögum, þekkingin gerir þig frjálsan, segja spekingarnir. Hag- fræðingarnir kunna greinilega ekki að mæla þessa þætti. Svo er kannski helsti vandinn fólginn í því að þeir sem fengið hafa tækifæri til að mennta sig hafa ekki litið á mennt- un sína sem menntun, heldur sem starfsþjálfun, og ef réttu tækifærin bíða ekki að námi loknu fer allt í hnút. Píanóleikarar mundu sjálfsagt líta á það sem lítilsvirðingu ef þeim væri boðið tímabundið starf við pó- stútburð að námi loknu. Og lög- ‘fræðingur, sem í mörg ár hefði stefnt að því að komast í að sleikja frímerki á einhverjum innheimtu- kontór, teldi sér sjálfsagt misboðið ef honum yrði boðið starf strætis- vagnsbílstjóra í sumarafleysingum. Þannig hafa margir gert sjálfa sig að þrælum eigin menntunar í stað þess að vera þakklátir fyrir lífsgildið sem felst í því að fá að víkka sjóndeildar- hringinn með því að menntast. Menntun er einskonar ferðalag — og heimskur er sá er heima situr! Sundrung eða samstarf? Félag ungra jafnaöar- manna í Reykjavík, FUJ, boðar til fundar allra Al- þýðuflokksfélaganna í Reykjavík, fimmtudags- kvöldið 7. nóvember nk. kl. 20.30 í Rósinni, Hverf- isgötu 8—10. Fundarefni: Sundrung eða samstarf Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík? Frummælandi: Guðmundur Einarsson, aðstoðarmaður iðnaðar- ráðherra. Léttar veitingar. Stjórnin Eiður Guðnason umhverlisráðherra verður með viðtalstíma á skrifstofu Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8-10 í Reykjavík, fimmtudaginn 6. nóvember frá kl. 17,00-19.00. Tímapantanir á skrifstofu flokksins í síma 91-29244 frá kl. 10.00-16.00. Skrifstofa Alþýðuflokksins R10.-1 IfiLVSIVft/l K Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatna- málastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í gatnagerð, lagningu holræsa, gerð bílastæða og vinnu fyrir veitustofnanir í nýju hverfi í Borgarholti. Verkið nefnist: Borgarholt I, 6. áfangi. Helstu magntölur: Heildarlengd gatna: u.þ.b. 2.000 m Heildarlengd holræsa: u.þ.b. 3.000 rri Verkinu skal lokið fyrir 1. ágúst 1992. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, fró og með þriðjudeginum 5. nóvember gegn kr. 20.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 14. nóvember 1991, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGA'R Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 j Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í að leggja Suður- æð — Áfanga A2. Verkið felst í að leggja 2,8 km langa einangraða pípu í plastkápu frá Elliðaám meðfram Suðurfelli og Breiðholtsbraut að Reykjanesbraut. Pípan er að hluta 0 800 mm víð og 0 700 mm að hluta. Verkinu skal lokið 15. október 1992. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 20.000,- skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 13. nóvember 1990, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 tækniskóli íslands Tækniskóli íslands auglýsir eftir umsóknum um starf deildarstjóra á bókasafni. Miðað er við ráðningu í starfið 1. janúar 1991. Umsækjendur þurfa að hafa lokið prófi í bókasafns- fræði. Starfið felst í daglegum rekstri safnsins, öllum að- fanga og samskiptum við aðila innan skólans. Um er að ræða áhugavert starf við bókasafn, sem er í örri þróun. Umsóknir ásamt afritum prófskírteina og staðfest- um upplýsingum um fyrri störf berist undirrituðum fyrir 15. nóvember 1991. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags bóka- safnsfræðinga. Reykjavík, 25. október 1991. Bæjarmálaráð Alþýðuflokksins í Hafnarfirði Fundur bæjarmálaráðs verður haldinn mánudag- inn 11. nóvember nk. kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu, Strandgötu 32. Fundarstjóri: Jóna Ósk Guðjónsdóttir. Allt nefndarfólk Alþýðuflokksins í Hafnarfirði og annað stuðningsfólk er hvatt til að mæta vel og stundvíslega. Bæjarmálaráð

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.