Alþýðublaðið - 12.11.1991, Page 3
Þriðjudaqur 12. nóvember 1991
3
Lífróöur Árna Trygguasonar
Litríkt líflshlaup
Ailt síðasta sumar unnu þeir
Árni Tryggvason leikari og Ing-
ólfur Margeirsson, ritstjóri og
rithöfundur, að gerð bókarinnar
Lífróðurs, sem kemur út hjá for-
lagi Arnar og Örlygs í fyrramál-
ið. I bókinni opnar Árni Tryggva-
son allar dyr og segir frá ævi
sinni tæpitungulaust.
Árni hefur ekki aðeins heillað
áhorfendur í leikhúsum höfuðstað-
arins á vetrum og dregið þorsk í
Hrísey á sumrum. Hann hefur frá
mörgu að segja sem mun koma les-
endum á óvart. Stundum gat frægð-
in og lífið bak við leiktjöldin orðið
honum ofviða og þá tók við barátt-
an við Svarta hundinn — þunglynd-
ið sem átti til að sækja á hann. Frá
þeirri glímu segir Árni án undan-
bragða. í bókinni koma við sögu
ótal margir samtíðarmenn Árna,
þekkt fólk og annað minna þekkt af
almenningi.
Ingólfur Margeirsson er þekktur
fyrir ritverk sín. Hann hefur þann
hæfileika að nálgast viðmælendur
sína í áreynslulausri frásögn. Flestir
munu þekkja bók hans Lífsjátningu,
endurminningar Guðmundu Elías-
dóttur óperusöngkonu. Sú bók varð
metsölubók tvö ár í röð og var á sín-
um tíma, fyrst ævisagna, tilnefnd til
bókmenntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs.
Arni Tryggvason leikari og Ingólfur
rithöfundur viö Hriseyjarhöfn. Ljúfu
og sólríku sumri eyddu þeir saman í
eyjunni góöu viö ritun Lífróöurs.
!M»/1 IfiLVSIVfi/l R
c, Menntamálaráöuneytiö
Rannsóknarstöður við
Norrænu stofnunina í
kennilegri eðlisfræði
(NORDITA) í Kaupmannahöfn
Norræna stofnunin í kennilegri eðlisfræöi (NORD-
ITA) í Kaupmannahöfn auglýsir tímabundnar rann-
sóknarstöður fyrir norræna eðlisfræðinga á næsta
ári. Stöðurnar eru veittar frá 1. september 1992 og
eru til eins árs, en eru í flestum tilvikum framlengd-
ar a.m.k. eitt ár í viðbót. Við stofnunina eru m.a.
stundaðar rannsóknir í stjarneðlisfræði, þéttefnis-
fræði, kjarneðlisfræði, öreindafræði og eðlisfræði
margbrotinna kerfa.
Þess er vænst að umsækjendur hafi lokið doktors-
prófi, en ungir eðlisfræðingar í framhaldsnámi geta
einnig átt kost á styrk til skemmri dvalar. Umsókn
fylgi staðfest afrit prófskírteina, ásamt ítarlegri
greinargerð um menntun, vísindaleg störf og rit-
smíðar. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást í Raunvísindastofnun Háskólans, Dunhaga 3,
107 Reykjavík. Umsóknir skulu sendar í tvíriti til
NORDITA, Blegdamsvej 17, DK-2100 Köbenhavn Ö,
Danmark, fyrir 1. desember nk. Auk þess skulu 2—3
meðmælabréf send beint til Nordita.
Menntamálaráðuneytiö, 11. nóvember 1991.
Bókasafnsfræðingur óskast að Bókasafni Hafnar-
fjarðar. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist forstöðumanni safnsins, Mjó-
sundi 12, fyrir 21. nóvember nk.
Stjórn Bókasafns Hafnarfjarðar.
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Bygginga-
deildar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum í
smíði og uppsetningu á þakeiningum og þakfrá-
gangi á íþróttamiðstöð í Grafarvogi.
Flatarmál þakeininga er 2.350 fermetrar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 15.000,- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 3.
desember 1991, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Bygginga-
deildar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum í
glugga og útveggjaklæðningu ásamt handriða-
smíði fyrir íþróttamiðstöð í Grafarvogi.
Helstu magntölur eru:
Útveggjaklæðning um 1.500 fm
Gluggar 47 stk.
Handrið úr stáli um 215 stk.
Heimilt er að bjóða sérstaklega í handriðasmíð-
ina.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 3.
desember 1991, kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGA’R
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
E
LANDSVIRKJUN
Landsvirkjun auglýsir til sölu og brottflutnings
vöruskemmu við Blönduvirkjun.
Stærð:
Lengd 30 metrar
Breidd 13 metrar
Vegghæð 8 metrar
Kaupandi skal fjarlægja skemmuna á sinn kostnað
eigi síðar en 15. desember nk.
Nánari upplýsingar veitir byggingardeild Lands-
virkjunar, Reykjavík.
Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar, innkaupa-
deildar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir kl.
14.00, 19. nóvember nk.
Menntamálaráðuneytið
Auglýsing um styrkveitingu
til námsefnisgerðar
á framhaldsskólastigi
Menntamálaráðuneytið auglýsir hér með eftir um-
sóknum um styrki til námsefnisgerðar á framhalds-
skólastigi.
Tilgangurinn með styrkveitingunni er að stuðla að
aukinni námsefnisgerð á framhaldsskólastigi og
draga þannig úr þeim skorti sem er á kennsluefni í
ýmsum námsgreinum, bæði bóklegum og verkleg-
um.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu,
framhaldsskcladeild, fyrir 5. desember nk. á þar til
gerðum eyðublöðum sem hægt erað fá í ráðuneyt-
inu.
*
■Flékksstarfið
Alþýðuflokksfélag
Garðabæjar og Bessastaðahrepps
Almennur fundur
miðvikudaginn 13.
nóvember kl. 20.30, í
Goðatúni 2, Garðabæ
Gestur fundarins: Karl
Steinar Guðnason.
Mætið vel og stundvís-
lega.
Stjórnin
Frá
Félagi frjálslyndra jaf naðarmanna
Fundur verður haldinn
miðvikudaginn 20.
nóvember nk. kl. 20.30 á
Holiday Inn-hótelinu,
efstu hæð.
Gestur fundarins verður
Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra.
Viðtalstími
Össur Skarphéðinsson,
formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins, verður
með viðtalstíma á skrif-
stofu flokksins, Hverfis-
götu 8—10, nk. fimmtu-
dag 14. nóv. kl.
17.00—19.00.
Tímapantanir í síma 91-29244 frá kl. 10.00—16.00.
Skrifstofa Alþýðuflokksins.
Stórfundur
Félag ungra jafnaðar-
manna í Keflavík efnir til
fundar með Karli
Steinari Guðnasyni
alþingismanni næst-
komandi laugardag, þann
16. nóv. kl. 17.00 á
Hafnargötu 31, 3. hæð.
(Keflavík)
Allir velkomnir.
FUJ - fótbolti - FUJ
Ungir jafnaðarmenn reyna með sér í knattspyrnu
laugardaginn 16. nóvember í Njarðvík.
Mótið hefst kl. 19.15.
Nánari upplýsingar um mótið gefur Ólafur Thorder-
sen í síma 92-15022 og 92-12111.
Allir FUJ-félagar velkomnir.