Alþýðublaðið - 20.12.1991, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 20.12.1991, Qupperneq 3
Föstudaqur 20. desember 1991 3 Fréttir í hnotsktirn FRAMLAG í ÓSKABRUNNANA: Lionsklúbburinn Týr hefur lengi styrkt starfsemi fatlaðra íþróttamanna. Nú síðast með því að láta gera Óskabrunna. Þeir munu verða víða í verslunum borgarinnar og þar geta menn iagt framlag sitt til góðs starfs — og óskað sér í leiðinni. Á myndinni eru forráðamenn Týs og íþróttafélags fatlaðra við einn Óskabrunninn. SENDIRÁÐ USA Á UPPBOÐI: Meðal þeirra sem fá „jólaglaðn- ing" frá Jóni Skaftasyni yfirborgarfógeta í síðasta Lögbirtingablaði er Sendiráð Bandaríkjanna við Laufásveg. Gjaidheimtan í Reykjavík óskar eftir að eign sendiráðsins verði seld, og uppboðið auglýst í lok janúar á næsta ári. Áreiðanlega er hagur Bandaríkjamanna ekki verri en svo að þeir greiði það sem þeimber, rúmar 54 þúsund krónur. í blað- inu eru um 340 auglýsingar um uppboð. Flestir munu gera hreint fyrir sínum dyrum áður en fógeti hefst handa, enda oft á tíðum um ótrúlega lágar f járhæðir að ræða, allt niður í 3 þúsund krónur. Virðist raunar lítil ástæða til að flækja fógeta í innheimtu slíkra krafna STÖÐ 2 VANN SIGUR í SIÐANEFND: Kristján Már Unnarsson, fréttamaður á Stöð2, sagði í september sl. frá heldur skuggalegum ferli bandaríska kjötkaupmannsins SteveMintz, sem annaðist kjötsölu fyr- ir landbúnaðarráðuneytið til Mexíkó. Ekki stóð á svörum, — Jón Steinar Gunnlaugsson kærði fréttafiutninginn til Siðanefndar Blaðamannafélags íslands. Úrskurður er nú kominn: Kristján Már og Stöð 2 brutu engar reglur. ÞJÓÐÞRIF - BÓKSTAFLEGA MEINT: Skátar, Hjálparstofnun kirkjunnar og Landsbjörg reka saman fyrirtækið Þjóðþrif, sem safnar saman umbúðum í söfnunarkúlur sem víða eru um bæinn. Þjóðþrif bjóða fólki líka upp á að sækja umbúðir í heimahús. Hringið í síma 23190 eða 621390 ef þið viljið láta sækja umbúðirnar heim. ÐNNEMAR FA VIÐURKENNINGU VINNUVEITENDA: sam komulag var gert 18. desember milli Iðnnemasambands Islands og Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda um aukagreiðslu til nema sem taka tvo bekki saman í Hótel- og veitingaskóla ísiands. Þeir nemar sem taka laun á áisgrundvelli og fáeinnig laun meðan þeir eru í skóia og hafa áunnið sér rétt til að taka einungis fagkennslu 1. bekkjar með námi í 2. bekk, þannig að skólaviðveran styttist um eina önn, fá auka- greiðslu sem nemur fjögurra mánaða launum fyrsta árs nema, en sú upphæð er um 100 þúsund krónur. „Þetta er tímamótaviðburður," segja iðnnemar, „þetta er í fyrsta skipti sem Vinnuveitendasamband ís- lands viðurkennir Iðnnemasamband íslands sem samningsaðila um kaup og kjör.“ LAUNAVÍSITALAN ST0PP; HÚSALEIGA LÆKKAR: Engin breyting varð á launavísitölunni fyrir desember, húner sem fyrr 127,8 stig. Hinsvegar á leiga fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði að lækka um 1,1% fyrir desember og fram í mars. Bjúgnakraekir Qluggagægir Qáttaþefur P að styttist til jóla, 5 dagar eftir. í dag kemur jólasveinninn Bjúgnakrækír, Ketkrókur Kertasníkir á morgun er það Qluggagægir, á sunnudaginn kemur Qáttaþefur, á Porláksmessu kemur Ketkrókur og á aðfanga- daginn sjálfan kemur Kertasníkir. Allir koma þeir í Pjóðminjasafnið kl. 11 og skemmta krökkunum Mikil samkeppni í matvöruverslun, segja Neytendasamtökin Bónus langt undir meðalverði búðanna Gífurleg samkeppni er í mat- vöruverslun landsmanna, segja Neytendasamtökin. Verðmunur á einstökum vörutegundum get- ur verið ótrúlegur, t.d. allt að fimmfaldur á kartöflum, segja samtökin, sem nýlega könnuðu AUusi ' * /! •» Samkeppnin á jólagjafamark- aði stendur í ár milli bóka — og geisladiska. Hin nýja hljóm- tækni hefur rutt sér hressilega til rúms á íslandiá fáeinum miss- erum. Á geisladiskamarkaði hefur Alþýðublaðið séð all- marga býsna góða. Gullmenn hjá Skífunni Egill Ólafssoner i verulega góðu formi á diskinum Tifa Tifa enda hafa viðtökurnar verið sérlega góð- ar við þessari fyrstu sólóplötu Egils. i gær afhenti Halldór Bachmann, markaðsstjóri Skífunnar, Agli gull- plötu. Enn önnur plata Skífunnar hefur hlotið gullið, það er plata Sléttuúlfanna, stórskemmtileg og í mikiili sölu og með lag sem trónir efst á vinsældalistunum um þessar mundir. Hinn þjóðsöngurinn Draumur aldamótabarnsins er kominn út á geisladisk í fyrsta sinn. Þvílíkur munur að hlusta á „hinn þjóðsönginn", sem sumir kalla svo, „Island er land þitt“ eftir Magnús Þór Sigmundsson, og önnur góð lög hans á þessum diski. Þetta sí- gilda lag, sem margir hafa sagt að ætti skilið að verða þjóðsöngur okk- ar, er flutt í tveimur útgáfum á disk- inum, aftast er hátíðarútgáfan með Agli Olafssyni. Og ekki nóg með það. Kvik- myndafélagið Útí hött hefur gefið út myndbandið „Lifandi póstkort". Þetta er stutt landkynningarmynd og sannarlega fallegt verk. Þar er lagið „ísland er land þitt“ notað sem snoturt ívaf með faliegum myndum af landinu okkar. Sérlega góð kveðja frá okkur til vina erlendis. Þá hefur PS: Músík gefið út plöt- una og diskinn „Álfar“ með tónlist Magnúsar Þórs. Þessi tónlist, sem og Draumurinn, hefur verið ófáanleg lengi og bætir úr brýnni þörf. Nokkrar góðar Um jólin munu menn hlusta á alls konar tónlist ef að líkum lætur. Ein af góðu skífunum fyrir þessi jól er frá Sverri Stormskeri, með ljótu nafni reyndar, Greitest (s)hits, 18 bestu lög listamannsins. Og nú fá menn að hlýða á Sverri á geisla- diski. Jólaball með Dengsa og félög- um er tvímælalaust skemmtilegt verk. Þetta er jólaplata, sem ekki bara börnin hafa gaman af. Auk Dengsa kemur Hemmi Gunn við sögu, svo og þeir Skrámur, Saxi læknir, Jólasveinninn og fleiri. Með helgum hljóm heitir geisla- diskur Fóstbræðra, líklega besta karlakórs okkar í dag. Þetta er end- urútgáfa á jólasálmum og áramóta- lögum, hátíðlegur diskur og nauð- synlegur í jólahakdinu. Syngdu með. Nú rætist draumur ansi margra. Fyrsti diskurinn og hljómsnældan í „karaoké-stíl. Hér er undirleikur 11 þekktra íslenskra dægurlaga og fylgir texti með öllum lögunum. Nú er það bara að fylgja hljómsveitinni og bakröddunum og syngja af öllum lífsog sálar kröftum. Þetta er, satt best að segja, stórkost- lega skemmtilegur diskur. matvöruverðið í 85 verslunum víða um land, og þá ekki síst ut- an höfuðborgarsvæðisins, en f imm verslanir á þvi svæði voru hafðar með til viðmiðunar. Kannaðar voru 77 algengar mat- og hreinlætisvörur. Ljóst er af könnuninni að fólk úti á landi situr að öllu jöfnu ekki við sama borð og höfuðborgarfólk hvað matvöruverð áhrærir. Bónus-búðirnar koma langbest út í þessari könnun. Sé meðalbúðinni stillt í 100% — er verðið í Bónus 68,7%! Samsvarandi tala hjá Kaup- félagi Árnesinga á Laugarvatni er 112,4%. Raunar eru 57 verslananna yfir 100% markinu, margar hverjar yfir 110%. Vissulega verður að túlka þessar tölur með nokkurri varúð, — en engu að síður gefa þær nokkuð örugga vísbendingu um verðlag í hverri verslun. Munurinn á Bónus- verði og dýrustu búðinni var 63,7%. í verslunum á Suðurnesjum var munurinn mikill, 35,6%, en þar var Hagkaup ódýrast með 80,9% af meðalverðinu. í Reykjavík var Hag- kaup í öðru sæti með 81,6%, Mikli- garður með 90,5%. Úti á landi bauð KEA Nettó upp á góð kjör, 80,4% af meðalverði skoð- aðra vara, Hagkaup á Akureyri 90,8%. Dæmi um mikinn verðmun: Kjúk- lingur kostaði minnst 375 krónur en mest 966 krónur! ORA-rauðkál kost- aði minnst 79 kr. 450 gramma dósin, en mest 133 krónur. Græn paprika kostaði minnst 159 kr. kílóið, en mest 680 krónur. SS-sinnep mátti fá á 47 krónur minnst, en dýrast var það 96 krónur. Dansukker-púður- sykur kostaði frá 49 krónum upp í 103 krónur. Sýróp frá Golden Lyle kostaði á bilinu frá 82 krónum upp í 175 krónur. Einn og hálfur lítri af Egils appelsíni kostaði frá 136 krón- um upp í 244 krónur. Greinilegt er að besta aðferðin til að hækka launin í dag er að kaupa matvöruna þar sem hún er ódýrust hverju sinni. Munurinn er ótrúlegur, og trúlega meiri en nokkru sinni hefur mælst áður. Bónus Ekki að fara á hausinn „Þetta kemur okkur ekki á óvart, þetta er hlutlaust og ábendandi,“ sagði Jóhann- es Jónsson, kaupmaður í Bónus, í gær um niðurstöð- ur könnunar Neytendasam- takanna. Jóhannes sagði að Bónus gæfi hvorki eitt né neitt, þar væri unnið eftir vissu kerfi. „Við vöndum okkur og leggj- um okkur alla fram. Við erum líka svo heppnir að hafa fengið fylgi meðal viðskiptavina, það koma til okkar 2—3 þúsund manns á dag að versla," sagði Jóhannes. í Morgunblaðinu gat að líta á dögunum að Bónus væri að fara á hausinn. „Við erum ekki að fara á hausinn, ekki það ég veit, og ætti ég nú að vita það. Hitt er annað mál að ýmsir sam- keppnisaðilar og heildsalar og framleiðendur sem ekki selja vöru sína hjá okkur fara með þennan þvætting um allt. Stað- reyndin er sú að Bónus byrjaði mep nánast tvær hendur tóm- ar. 1 dag er fyrirtækið sterkt, og aldrei sterkara en nú,“ sagði Jó- hannes. Húsbréf Útdráttur húsbréfa Nú hefur fariö fram fimmti útdráttur húsbréfa í 1.flokki1989 og annar útdráttur húsbréfa í 1. flokki 1990. Einnig fyrsti útdráttur í 2. flokki 1990. Koma bréf þessi til innlausnar 15. febrúar 1992. Öll númerin veröa birt í næsta Lögbirtingablaði og upplýsingar liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæöisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóöum og verðbréf afy ri rtækj u m. Ún HÚSNÆÐISSTOFNUN RIKISINS LJ HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24- 108 REYKJAVÍK • SÍMI91-696900

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.