Alþýðublaðið - 21.01.1992, Page 2
2
Þriðjudaqur 21. janúar 1992
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson (í starfsleyfi)
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Leturval sf.
Prentun: Oddi hf.
Símar eftir lokun skiptiborðs:
Ritstjórn: 625538 - Dreifing: 625539 - Fax: 627019
Tæknideild: 620055
Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 90
Varnadarord
landlæknis
Ulafur Ólafsson ritar afar áhugaverða grein sem birtist í Morgun-
blaðinu síðastliðinn sunnudag. Landlæknir leggur út frá orðum höf-
undar ritstjórnargreinar Morgunblaðsins fyrir nokkru, þar sem fjall-
að er um markaðsrekna heilbrigðisþjónustu á íslandi. Landlænir
bendir á í grein sinni, að á flestum sviðum þjóðlífsins sé samkeppni
af hinu góða og fagleg samkeppni eigi alls staðar rétt á sér, en rekstr-
arleg samkeppni í heilbrigðisþjónustu hafi marga fylgikvilla. Orð-
rétt segir Ólafur Ólafsson: „Vangeta markaðsrekinnar heilbrigðis-
þjónustu til þess að veita fólki alhliða og jafnvel jafna heilbrigðis-
þjónustu, ásamt misrétti sem yfirleitt fylgir í kjölfarið (þó að misrétti
þurfi ekki að vera bein afleiðing markaðsrekstrar), varð til þess að
íslendingar komu á alþýðutryggingarlögunum frá 1936 og síðar al-
mannatryggingunum fyrir hálfri öld.“ Við þessi orð landlæknis má
bæta, að það var fyrst og fremst verk Alþýðuflokksins, að almanna-
tryggingunum var komið á hérlendis, og kannski stærsta félagslega
afrek Alþýðuflokksins í gegnum tíðina.
Oíðar í grein sinni segir Ólafur, að markaðsrekin heilbrigðisþjón-
usta tryggi ekki einhliða og jafna heilbrigðisþjónustu. Orsakirnar
segir landlæknir vera ýmislegar. Ólafur bendir til að mynda á, að
forgangsröðin muni breytast við læknismeðferð. „Verðleiki" sjúk-
lingsins verði ekki lengur metinn út frá læknisfræðilegum grunni,
heldur út frá efnahag sjúklings. „Ef sá efnaði skal hafa forgang að
öllu jöfnu er hafinn nýr kapítuli í forgangsröðun í heilbrigðisþjónust-
unni,“ skrifar landlæknir.
Wlafur undirstrikar einnig, að meginregla markaðshyggjunnar sé
sú, að neytandinn hafi frjálst val. Hið frjálsa val byggist hins vegar
á undirstöðuþekkingu og reynslu neytandans á þjónustunni sem
hann kaupir. Þekkingu almennings á heilbrigðisþjónustu og læknis-
fræði sé hins vegar ábótavant. „Framboð þjónustunnar á því ekki að
vera einungis í höndum þeirra er eiga hana og veita, heldur þurfa
fulltrúar neytenda að hafa þar hönd í bagga. Landlæknir segir þara
með óbeinum orðum, aö sjúklingar viti ekki hvaöa þjónustu þeir séu
að kaupa í markaðsreknu heilbrigðiskerfi.
Og dæmin verða óhugnanlegri síðar í greininni. Þar segir land-
læknir beinum orðum að samkeppnin, sem er óumdeilanlegur fylgi-
fiskur markaðshyggjunnar, leiði til þess að hátæknisjúkrahúsum
fjölgi, þar sem leitast er við að búa sjúkrahúsin dýrustu tækjunum
til að bjóða upp á „bestu þjónustuna", og læknar fari offari í lækning-
um. Orð landlæknis eru ótvíræð: Markaðshyggja í heilbrigðisþjón-
ustu þýðir dýrari rekstur í heildina og arðbærar lækningar kalla á
„lækningavertíð" hjá læknum í markaðsreknum sjúkrahúsum. Með
öðrum orðum: Gróðasjónarmið ráða ríkjum í lækningunum. Orðrétt
segir Ólafur: „Við könnun á heilbrigðisþjónustu þriggja háþróaðra
landa, þ.e. Bandaríkjanna, Svíþjóðar og Englands, kom m.a. í ljós, að
algengar skurðaðgerðir eru framkvæmdar 60—80% oftar í Banda-
ríkjunum, en þar ræður markaðshyggjan ein ríkjum, heldur en í hin-
um löndunum."
Dæmi landlæknis eru fleiri: Forvörnum er lítið sinnt í markaðsrek-
inni heilbrigðisþjónustu. Orð Ólafs Ólafssonar landlæknis eru alvar-
leg varnaðarorð til þeirra ráðamanna sem íhuga í alvöru að ráðast
gegn vandaðri heilbrigðisþjónustu á íslandi og innleiða markaðs-
hyggju í þá grein. Heilbrigðisráðherra, Sighvatur Björgvinsson, hef-
ur verið gagnrýndur fyrir ýmsar gerðir sínar sem heilbrigðisráð-
herra. Ráðherra hefur svarað þeirri gagnrýni þannig, að hann sé að
standa vörð um velferðarkerfið með hagræðingaraðgerðum. Það er
engin ástæða til að efast um orð heilbrigðisráðherra, enda hafa að-
gerðir hans, m.a. í lyfjamálum, sýnt og sannað heilbrigðan niður-
skurð í ríkisútgjöldum til heilbrigðismála. Markaðsrekin heilbrigðis-
þjónusta er allt annar handleggur. Alþýðuflokkurinn byggði upp al-
mannatryggingakerfið. Heilbrigðisþjónusta á grunni samkenndar
og samhjálpar hefur skapað eitt besta heilbrigðiskerfi heims á ís-
landi. Stöndum áfram vörð um það kerfi.
— IM
Að afla umboðs á
réttum f orsendum
FUJ Kópavogi
Aðalfundur Félags ungra jafnaðarmanna í Kópavogi
verður haldinn fimmtudaginn 23. janúar nk., kl.
20.00 í Hamraborg 14, 2. hæð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Nýir félagar eru sérstaklega hvattir til að mæta á
fundinn.
Stjórnin
í málefnalegum og að ýmsu
leyti ágætum leiðara Alþýðu-
blaðsins síðastliðinn föstudag er
þess farið á leit við mig að ég
botni tiltekna hugsun sem ég
setti fram á fundi i Austurbæjar-
bíói fyrr í vikunni. Þar bar ég ís-
lenska þjóðfélagið saman við
rekstur fyrirtækis. Ég staðhæfði
að sitthvað mætti betur fara í
rekstri þjóðfélagsins væru mál-
in skoðuð f rá þessum sjónarhóli,
sem vissulega væri vert að gera.
En ég bætti því við að þótt þessi
samanburður ætti rétt á sér þá næði
hann engu að síður skammt. Þegar
öllu væri á botninn hvolft byggjum
við ekki í fyrirtæki heldur samfélagi
sem við öll gerðum tilkall til og vild-
um taka þátt í að móta.
í fyrrnefndum leiðara Alþýðu-
blaðsins segir orðrétt: „Þegar for-
maður BSRB talar um að við eigum
rétt til að skipuleggja og móta sam-
félagið, og að það sé ekki einkamál
ráðherra með stuttan valdaferil, þá
þarf formaðurinn að botna þessa
hugsun. Ríkjandi ríkisstjórn verður
að stjórna. Hún verður að hafa þor
til að taka ákvarðanir og standa við
stefnu sína, hver sem hún er. Ríkis-
stjórnir eru einskis virði ef þær eru
myndaðar til þess eins að viðhalda
óbreyttu gölluðu kerfi og verja sér-
hagsmuni umbjóðenda sinna. Kjör-
tímabilið er fjögur ár. Þá eru verk
ríkisstjórnarflokkanna lögð í dóm
kjósenda. Það er lýðræðislegur rétt-
ur okkar að velja eða hafna stjórnar-
herrum, en við getum ekki heimtað
að grípa fram í verk einstakra ráð-
herra í formi reglugerðar frá ráðu-
neyti eða frumvarps á Alþingi sem
meirihluti þingmanna styður. Þá er-
um við að biðja um stjórnleysi."
Það er mikið rétt að kjósendur
geta hafnað stjórnarherrum sem
fara illa að ráði sínu og framkvæma
breytingar sem almenningur er
mjög andvígur, eins og nú á sér stað.
Almenningur hlýtur engu að síður
að eiga kröfu á því að heiðarlega sé
staðið að verki þegar gera á grund-
vallarbreytingar á samfélaginu.
Meginmáli skiptir að fyrirhugaðar
breytingar séu kynntar áður en
gengið er til kosninga þannig að
kjósandinn kaupi ekki köttinn í
sekknum, viti að hverju hann geng-
ur. Því fer víðs fjarri að þær breyt-
ingar sem nú eru gerðar eða boðað-
ar á ýmsum sviðum þjóðlífsins hafi
verið kynntar kjósendum fyrir síð-
ustu kosningar. Stjórnmálamenn
stjórna í umboði kjósenda en þeir
verða að afla sér umboðsins á rétt-
um forsendum. Og með þetta í huga
ítreka ég orð mín frá fundinum í
Austurbæjarbíóí að „engar breyt-
ingar á sjálfum grundvelli samfé-
lagsins eigi rétt á sér sem eru þving-
aðar fram gegn almannavilja".
Hvað varðar áhrif á einstakar
reglugerðir og frumvörp þá hefur
það löngum tíðkast að leitað sé álits
aðskiljanlegra aðila í þjóðféiaginu
áður en framkvæmt er. Því fer fjarri
að þetta hafi nokkuð með stjórn-
leysi að gera. Þvert á móti ber það
vott um vönduð og lýðræðisleg
vinnubrögð þegar sá háttur er hafð-
ur á að heyra sem flest sjónarmið
áður en ákvarðanir eru teknar eða
lög sett á Alþingi. Þetta vinnulag
hefur hinsvegar ekki verið mjög í
tísku upp á síðkastið og er það mið-
ur. Til hvaða sjónarmiða stjórnmála-
menn taka að lokum tillit, þegar að
því kemur að taka ákvörðun, er háð
pólitískri stefnu þeirra og grundvall-
arviðhorfum.
Það er umhugsunarefni hve litlu
kjósandinn fær í raun ráðið á Is-
landi. Hann hefur enga vissu fyrir
því hvernig atkvæði hans nýtist þeg-
ar til kastanna kemur. Hann hefur
þannig engin áhrif á myndun ríkis-
stjórna, en stjórnarmynstur skiptir
að sjálfsögðu miklu máli varðandi
alla stefnumörkun og áherslur.
Þetta kom berlega í ljós í kjölfar síð-
ustu kosninga þegar vilji örfárra ein-
staklinga réð úrslitum bæði varð-
- eftir Ögmund Jónasson,
formann Bandalags
starfsmanna ríkis og bœja
andi stjórnarmyndun og einnig mál-
efnagrundvöll.
Það hlýtur að vera lágmarkskrafa
af háifu kjósandans að fá vitneskju
um það áður en kosið er fyrir hverju
einstakir flokkar ætla að beita sér
að kosningum loknum og með
hverjum þeir ætla að starfa. Það er
eitt að stjórna í umboði kjósenda.
Annað er að líta á umboð sitt sem
eins konar ótútfylltan tékka sem
kjósendum komi ekki við hvernig
nýttur er fyrr en kemur að skulda-
dögum.
En það er rétt hjá Alþýðublaðinu
að sá tími rennur upp að kjósandinn
fellir sinn dóm. Og það er vissulega
holl ábending fyrir kjósendur og
ekki síður stjórnmálamenn.
Frá fjölmennum fundi ríkis- og bæj-
arstarfsmanna í Austurbæjarbíói á
dögunum. Þar mættu um þúsund
manns til fundar. A-mynd: E.ÓI.