Alþýðublaðið - 25.02.1992, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 25.02.1992, Qupperneq 7
Þriðiudaqur 25. febrúar 1992 7 Umsögn um greinargerð Seðlabanka og starfshóps félagsmálaráðherra Hvað varð um húsnæðismálin? Fóru þau til húsnœðiskaupa? - Sprengdu þau uþp vextina? Hinn 9. janúar 1992 skipaði Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra starfshóp tii að fara yfir og veita umsögn um þau atriði sem ber á milli um hús- næðismál og húsbréfakerfið í greinargerð Seðlabanka íslands frá 4. desember 1991 um þróun og horfur í peningamálum og skýrslu starfshóps frá desember 1991 um reynsluna af húsbréfa- kerfinu fyrstu tvö árin. Starfshóp þennan skipuðu Bjarni Bragi Jónsson, aðstoðarbankastjóri Seðlabanka íslands, Finnur Svein- björnsson, skrifstofustjóri í við- skiptaráðuneytinu, og Grétar J. Guð- mundsson, þjónustuforstjóri Hús- næðisstofnunar ríkisins, sem jafn- framt var formaður starfshópsins. Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu, var ritari hópsins. Starfshópurinn gerir stutta grein fyrir meginniðurstöðum um hús- næðismál og húsnæðislánakerfið í greinargerð Seðlabanka Islands og skýrslu starfshóps fálagsmálaráð- herra, sem fara hér á eftir: Greinargerð Seðlabanka „Meginniðurstöður í greinargerð Seðlabanka íslands um þróun og horfur í peningamálum, gjaldeyris- málum og gengismálum varðandi húsnæðismál og húsnæðislánakerf- ið eru að gífurleg skuldasöfnun ein- staklinga á árunum 1990 og 1991 eigi að langmestu rót sína að rekja til húsbréfa og annarra húsnæðis- lána. Bankinn telur líklegt að ekki meira en helmingur lánsfjárnotkun- ar einstaklinga hafi gengið til fjár- festingar á nýju húsnæði. Jafnframt telur hann engan vafa leika á því að veruiegan hluta af mikilli neyslu og innflutningi siðustu misseri megi rekja til mikillar lánsfjárnotkunar heimilanna. Fram kemur í greinar- gerðinni að ríkið hafi verið frum- kvöðull aukinnar lánsfjáreftirspurn- ar og þar af leiðandi þeirrar þenslu og vaxtahækkunar, sem átt hefur sér stað, annars vegar með halla- rekstri ríkissjóðs og hins vegar með milligöngu um stórfelldar lántökur til húsnæðismála, sem að miklu leyti hafa runnið til annarra þarfa, að mati bankans. Seðlabankinn telur að sú breyting sem gerð var á húsbréfakerfinu í október 1991, þegar hámarksfjár- hæðir voru lækkaðar og skilyrði fyrir skuldabréfaskiptum hert, hafi leitt tii minni útgáfu húsbréfa en ella og þar með haft jákvæð áhrif á láns- fjármarkaðinn. Bankinn telur hins vegar að til að bæta jafnvægið á lánsfjármarkaðinum og ná niður raunvöxtum þurfi að lækka lántök- ur vegna húsnæðismála úr 20 millj- örðum kr. árið 1992 skv. lánsfjár- áætlun í 16 milljarða kr. Ekki er gerð tillaga um það hvernig sú lækkun skuli tryggð. Bankinn bend- ir einnig á að þetta markmið geti verið til endurskoðunar til hækkun- ar eða lækkunar með hliðsjón af vaxtaþróun og heildarjafnvægi á lánamarkaðinum." Skýrsla starfshóps félagsmálaráðherra „Helstu niðurstöður í skýrslu starfshóps félagsmálaráðherra eru að framkvæmd laga um húsbréfa- viðskipti hafi í öllum meginatriðum reynst vel og valdið verkefni sínu. Útgáfa húsbréfa hafi verið svipuð og gert var ráð fyrir í upphafi, nema hvað varðar þá viðbót sem til kom vegna skuldabréfaskipta vegna greiðsluerfiðleika íbúðareigenda. Starfshópurinn telur að starfsemi húsbréfakerfisins hafi ekki haft í för með sér þenslu á fasteignamarkaði, fjöldi fasteignaviðskipta hafi ekki verið óeðlilega mikill og verðlag hafi verið stöðugt og jafnvel lækkað. Innri fjármögnun er að mati starfs- hópsins í samræmi við það sem að var stefnt í upphafi, eða um helm- ingur húsbréfa sem gefin eru út í tengslum við kaup á notuðu hús- næði. Ekki hafi heldur orðið aukn- ing á nýsmíði í kjölfar húsbréfakerf- isins. Þá hafi almenn lán til húsnæð- ismála (þ.e. að undanskildum lánum Byggingarsjóðs verkamanna) ekki aukist á milli áranna 1990 og 1991. Starfshópurinn rekur hækkun raunvaxta, sem varð á síðustu tveimur misserum, ekki nema að litlu leyti til húsnæðislána og þar með til húsbréfa. Starfshópurinn tel- ur að sá samdráttur, sem varð í sparnaði samfara mikilli lánsfjár- þörf ríkissjóðs og vaxandi ásókn heimila í eyðslulán, eigi einnig sinn þátt í þessari þróun. Telur starfshóp- urinn líklegt að vextir hefðu hækk- að þó svo að engin húsbréf hefðu komið til. Starfshópurinn leggur áherslu á að engar meiriháttar breytingar verði gerðar á húsbréfakerfinu á næstunni. Nauðsynlegt sé að kerfið fái sinn tíma til að festast i sessi." Reynslan af húsbréfakerfinu I skýrslunni segir um greinargerð Seðlabankans og skýrslu starfshóps- ins: ,,Eins og þegar hefur verið rakið telur starfshópur félagsmálaráð- herra að húsbréfakerfið hafi í öllum meginatriðum reynst vel og valdið verkefni sínu. Seðlabankinn er sömuleiðis jákvæður í garð hús- bréfakerfisins sem slíks. Hann telur að megineinkenni kerfisins séu til bóta frá fyrri húsnæðislánakerfum. Bankanum og starfshópnum ber saman um umfang húsbréfakerfis- ins, bæði heildarútgáfu húsbréfa og útgefin húsbréf vegna greiðsluerfið- leika. Starfshópurinn telur að allt að 35% af öllum útgefnum húsbréfum eða um 50% af útgefnum húsbréf- um vegna kaupa á eldra húsnæði verði eftir í eigu seljenda íbúða. Bankinn telur að 50% af útgefnum húsbréfum verði eftir hjá eða séu keypt af heimilunum. I dómi sínum um húsbréfakerfið sem slíkt ber báðum aðilum því saman. Húsnæðislán og raunvaxtaþróun Seðlabankinn bendir á að raun- vaxtastig í landinu ráðist af þróun á verðbréfamarkaði. Telur bankinn greinilegt að mikil útgáfa húsbréfa ásamt vaxandi greiðsluhalla ríkis- sjóðs hafi átt stærstan þátt í umfram- eftirspurn eftir lánsfé og hækkun raunvaxta 1991. Bankinn undirstrik- ar þó að alvarlegasta vandamálið í þessum efnum sé greiðsluhalli ríkis- sjóðs. Starfshópurinn telur hins vegar að meginorsaka hækkandi raun- vaxta sé að leita annars staðar en í útgáfu húsbréfa. í því sambandi bendir hann á minnkandi sparnað, aukna eftirspurn einstaklinga og fjölskyldna eftir lánsfé og mikla lánsfjárþörf ríkissjóðs. Til saman hafa þessir þættir, ásamt mikilli lánsfjárþörf húsnæðiskerfisins, sem m.a. stafar af þvi að húsnæðislána- kerfinu frá 1986 var ekki lokað, og útgáfu húsbréfa vegna greiðsluerf- iðleika, valdið hækkun raunvaxta. Ljóst er að þróun raunvaxta ræðst af flóknu samspili ýmissa þátta á lánsfjármarkaði. Peningalegur sparnaður ræður framboði af lánsfé og á árinu 1991 jókst hann einungis um 29 milljarða kr. samanborðið við 36 milljarða kr. árið 1990. Enn- fremur er ljóst að á árinu 1991 réðst heildareftirspurn eftir lánsfé fyrst og fremst af mikilli lánsfjárþörf ríkis- sjóðs vegna hallarekstrar og láns- fjárþörf húsnæðiskerfisins. Lánsfjár- þörf húsnæðiskerfisins var óvenju- mikil á árinu 1991 vegna þess að þá fóru saman lokaskrefin í uppbygg- ingu húsbréfakerfisins, útgáfa hús- bréfa til einstaklinga og fjölskyldna í greiðsluerfiðleikum, lánveitingar úr húsnæðiskerfinu frá 1986, sem ekki var lokað þegar húsbréfakerf- inu var komið á, og auknar lánveit- ingar úr félagslega kerfinu frá fyrra ári. Verður ekki annað séð en að við uppbyggingu húsbréfakerfisins hafi þess ekki verið gætt sem skyldi að öðrum þáttum húsnæðiskerfisins, sérstaklega húsnæðiskerfinu frá 1986, hafi ekki verið lokað fyrr en raun ber vitni. Af framansögðu ætti að vera Ijóst að ekki er unnt að fullyrða að útgáfa húsbréfa til almenhrar fyrirgreiðslu sé meginorsök raunvaxtahækkunar á árinu 1991 heldur sé þeirra víðar að leita. Húsnæðislán, neysla og fjárfesting í greinargerð Seðlabankans kem- ur fram að líkur benda til þess að ekki meira en helmingur lánsfjár- notkunar heimilanna hafi gengið til fjárfestingar í nýju húsnæði. Af- gangurinn hafi því verið til ráðstöf- unar til annarrar fjárfestingar eða neyslu. Starfshópur félagsmála- ráðherra fjallar ekki um þetta til- tekna atriði í skýrslu sinni. Þar sem hópurinn kemst að þeirri niður- stöðu að húsbréfakerfið hafi í öllum meginatriðum reynst vel og valdið verkefni sínu er ekki úr vegi að álykta sem svo að hann telji að láns- fénu hafi verið varið til húsnæðis- mála og að það hafi ekki runnið til annarra þarfa. Um þessa afstöðu starfshóps félagsmálaráðherra verður þó ekki fullyrt. í þeim gögnum, sem liggja til grundvallar, kemur fram að raun- aukning útlána til heimilanna á tólf mánaða tímabili til septemberloka 1991 hafi numið 35,7 milljörðum kr. Af þessari fjárhæð eru 24,5 mrð. kr. úr opinbera húsnæðiskerfinu. Skv. áætlun Þjóðhagsstofnunar er verg fjármunamyndun í íbúðarhúsnæði talin nema 15,9 mrð. kr. á árinu 1991. A grundvelli þessara talna ályktar Seðlabankinn að ekki meira en helmingur lánsfjárnotkunar heimilanna hafi gengið til fjárfest- ingar í nýju húsnæði. Við þessa greiningu er ýmislegt að athuga, enda er henni aðeins ætlað að gefa grófa vísbendingu. í fyrsta lagi eru meiri háttar viðhald og endurbætur undanskilin í tölum um fjárfestingu í íbúðarhúsnæði, en ávallt gengur nokkur hluti af lántök- um einstaklinga og fjölskyldna til slíkra þarfa. Séu húsbréf reiknuð á markaðsvirði í stað nafnverðs lækka húsnæðislánin um 2—3 mrð. kr. Greiðsluerfiðleikalánin námu tæplega 3 mrð. kr. árið 1991 og í flestum tilvikum er þeim varið til að greiða skammtímaskuldir einstak- linga og fjölskyldna í bankakerfinu vegna fyrri fjárfestinga í íbúðarhús- næði. Vegna eiginleika húsnæðis- lánakerfisins frá 1986 voru öll lán, sem veitt voru úr því á árinu 1991, vegna fjárfestinga á fyrri árum. Þá má nefna að allt að 35% af húsbréf- um verða eftir í eigu einstaklinga og fjölskyldna, þannig að hluti af hús- næðislánum á sér eðlilegt mótvægi í húsbréfaeign. Þegar tekið hefur verið tillit til allra ofangreindra þátta er munur- inn á milli lánveitinga og fjárfesting- ar í íbúðarhúsnæði á árinu 1991 mun minni en fram kemur í greinar- gerð Seðlabankans. Húsnæðislán og skuldir heimilanna Seðlabankinn undirstrikar að skuldir heimilanna hafa vaxið hrað- ar frá árinu 1990 en skuldir nokk- urra annarra aðila, þ.m.t. ríkisins. Bankinn fullyrðir að þessi gífurlega skuldasöfnun heimilanna á tólf mánaða tímabilinu til september- loka 1991 hafi að langmestu leyti átt rót sína að rekja til húsbréfa og ann- arra lána hins opinbera íbúðalána- kerfis. Starfshópurinn heldur því aftur á móti fram að almenn útlán til húsnæðismála hafi nánast staðið í stað milli áranna 1990 og 1991. Að lánum úr Byggingarsjóði verka- manna meðtöldum hafi hins vegar orðið 1 mrðs. kr. aukning á milli ára. Þessar misvísandi niðurstöður um þátt húsnæðislána í mikilli skulda- aukningu heimilanna má að ein- hverju leyti rekja til mismunandi viðmiðunartímabila. Útgáfa hús- bréfa, og þar með húsnæðislán, snarjókst á síðast ársfjórðungi 1990 þegar gefa mátti út húsbréf til að fjármagna nýbyggingar. Þar veldur að vöxtur í útgáfu húsbréfa er mun meiri þegar hann er mældur frá september til september en þegar miðað er við almanaksár. Seðlabankinn nefnir réttilega að fyrirgreiðsla á vegum opinbera hús- næðislánakerfisins hefur vaxið ört, enda var tilgangurinn með hús- bréfakerfinu að veita sem mestu af lánafyrirgreiðslu vegna fasteigna- viðskipta í einn farveg. Hið sama gerir starfshópur félagsmálaráð- herra. Hann leggur hins vegar áherslu á að samfara því að fyrir- greiðsla á vegum opinbera húsnæð- islánakerfisins hefur aukist hefur dregið úr húsnæðislánum frá bankakerfinu og lífeyrissjóðum. Á það skal einnig bent að sam- hliða því sem húsnæðislán hafa í auknum mæli verið veitt úr eða fyr- ir milligöngu hins opinbera hús- næðiskerfis, einkum húsbréfakerfis- ins, og dregið hefur úr húsnæðislán- um bankakerfisins og lífeyrissjóða hefur orðið samsvarandi aukning í öðrum lánveitingum þessara aðila til einstaklinga og fjölskyldna. Því virðist sem það svigrúm, sem vax- andi hlutur opinbera húsnæðislána- kerfisins skapaði bankakerfinu og lífeyrissjóðunum, hafi ekki verið nýtt til aukinna lánveitinga til ann- arra aðila í þjóðfélaginu. Hvort það stafar af lítilli eftirspurn atvinnulífs- ins eftir fjármagni vegna efnahags- ástandsins, vilja þessara lánastofn- ana til að beina útlánum sínum í auknum mæli frá atvinnulífi í ljósi efnahagsástandsins eða vegna tryggðar þessara lánastofnana við einstaklinga og fjölskyldur skal 'ósagt látið.“

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.