Alþýðublaðið - 14.08.1992, Síða 1
wM
TVÖFALDUR1. vinningur
Föstudagur 14. ágúst 1992
122. TÖLUBLAÐ - 73. ÁRGANGUR
Fiystitogararfá 50 milljóna styrk
REKNIR MED HAGNADI
■ EN FÁ KVÓTATÉKKANA
- „lœt mér gott líka hvernig aðstoðin herst okkur“, segir formaður smáhátaeigenda - formaður fram-
kvœmdastjórnar Alþýðuflokksins gagnrýnir tillögur Byggðastofnunar
Hugsanlega munu eigend-
ur frystitogara landsins senn
fá inn um bréfalúgur sínar
fallega tékka frá ríkissjóði
vegna hagræðingar í sjávar-
útvegi, samkvæmt tillögum
sem Byggðastofnun hefur
gert að beiðni ríkisstjórnar-
innar. Samkvæmt þeim tillög-
um fara 50 milljónir af 500
milljónum til frystitogaranna,
sem reknir hafa verið með all-
verulegum ábata, 8-11% af
aflaverðmæti þeirra.
TiIIögur Byggðastofnunar
eru nú til athugunar hjá stjómar-
flokkunum og ríkisstjóminni.
Sýnist mönnuin sitt hvað um
ágæti þeirra.
Arthúr Bogason, fonnaður
Nyr buvörusamningur
Kjötið stendur i
bændum - neita að
kýngja mjólkinni
Forystumenn bœnda neita að semja um
mjólkwframleiðslu nema gegn tryggingum um
að niðurgreiðslur
Nýr búvörusamningur
um mjólk strandar nú á
kjöti og virðast fulltrúar
bænda ekki tilbúnir að kyn-
gja honum nema að þeir fái
tryggingu fyrir því að
niðurgreiðsur á kjöt minnki
ekki í náinni framtíð.
Samningur um mjólkur-
framleiðslu er annars alls
óskyldur búvörussamning-
uin um kjötframleiðslu.
Svo virðist sem samkomu-
lag liggi fyrir milli samn-
inganefndar ríkisins og bænda
í öllum mégin dráttum um
mjólkurframleiðslu á næsta
búvöruári sem byggir á til-
lögum Sjömannanefndar. For-
svarsmenn bænda neita hins
vegar að semja nema að þeir
fá tryggingu fyrir því að
miðurgreiðslur á kjöl ntinnki
ekki eins og þeir telja sig hafa
fengið pata af að ríkisstjómin
hafi í hyggju.
I mjólkursamningnum er
gert ráð fyrir að heildarfram-
á kjöti lœkki ekki.
leiðsla mjólkur dragist saman
á næsta framleiðsluári, sem
hefst 1. sept., um 5% eða sem
nemur5 milljónum lítra. Fyrir
það fái bændur greiddar 50
krónur á hvem lítra sem þeir
hætta að framleiða. Síðan fái
þeir fasta upphæð fyrir hvem
framleiddan lítra sem nemur
um 47% af því verði sem
kemur í þeirra hlut. Mjólkur-
búin greiða því um 53%
verðsins til bænda en það er
nú um 52 krónur.
Alþýðublaðið hefur það
hins vegar eftir áreiðanlegum
heimildum að Samninganefnd
ríkisins taki það ekki í mál að
fara að blanda saman samn-
ingi um mjólkurframleiðslu
saman við samninga um kjöt-
framleiðslu. í nýjum samningi
um mjólkurframleiðslu er
hins vegar gert ráð fyrir ýmis
konar hagræðingu, lu.a.
áætlað að verja allt að 250
milljónum króna til að úrelda
óhagkvæm mjólkurbú.
Landssambands smábátaeig-
enda, sagði í gær að hann fagn-
aði framkomnum tillögum. „Eg
læt mér gott líka, hvemig sem
aðstoðin berst okkur. I okkar
hópi hafa menn orðið fyrir
mestum skerðingum á undan-
fömum misserum, allt að 60%
hjá smábátum með aflamarki.
Margir okkar félaga em nánast
alfarið í þorskinum og verða því
fyrir mikilli skerðingu nú“,
sagði Arthúr í samtali við Al-
þýðublaðið. Hann sagðist ekki
sjá neitt athugavert við að eig-
endur frystitogara fengu úrlausn
eins og aðrir. „Ég sé í sjálfu sér
ekkert réttlæti eða neitt eðiilegt
við að þessar reglur gildi um
alla. Það er svo allt annað mál
hvemig fiskstofnum er sólund-
að með slíkum flotum, þar er á
ferðinni ógæfuleg þróun, sem
ég hef margoft úttalað mig um“,
sagði Arthúr.
DV í gær gagnrýndi tillögur
Byggðastofnunar harðlega í
leiðara Jónasar Kristjánssonar.
Segir Jónas að hér sé á ferðinni
hreinn styrkur til sægreifa, sem
hafa átt vænan þorskkvóta.
„Miklu moldviðri hefur verið
þyrlað upp til að gera ríkis-
stjóminni kleift að taka 500
milljónir af skattgreiðendum án
þess að þeir sjái landslagið að
baki kófinu“, segir í leiðaran-
um.
Guðmundur Oddsson, for-
Afmælisbarnið, Steindór Steindórsson, á tali við gamlan nemanda sinn, Sighvat Björgvinsson heilbrigðisráð-
herra. Sonarsonur Steindórs, Sigbjörn Gunnarsson þingmaður Alþýðuflokksins á Norðurlandi evstra fylgist
með og fyrir aftan má sjá Tryggva Gíslason núverandi skólameistara Menntaskólans á Akureyri, en hann
stjórnaði veisluhöldunum.
ALÞÝÐUFIOKKURINN HEIÐRAR
STEINDÓR STEINDÓRSSON FRÁ HLÖDUM
Steindór Steindórsson fyrr-
um skólameistari Mennta-
skólans á Akureyri hélt upp á
níræðisafmæli sitt síðastliðinn
miðvikudag og af því tilefni
fjölmenntu þingmenn Al-
þýðuflokksins og fylgdarlið til
Akureyrar til þess að heiðra
þennan síunga jafnaðar-
tnann.
Mikið fjölmenni var í veisl-
unni sem haldin var á heimavist
Menntaskólans á Akureyri. Af-
mælisbaminu bámst margar
gjafir og kveðjur og ýmsir
kváðu sér hljóðs og fluttu ræð-
ur, Steindóri til heiðurs.
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðullokksins og
utanríkisráðherra flutti Stein-
dóri kveðju jafnaðarmanna-
hreyfingarinnar á Islandi, en
Steindór var um tíma þingmað-
ur Alþýðuflokksins og bæjar-
fulltrúi á Akureyri.
Þrátt fyrir þennan háa aldur
lét Steindór sér ekki muna um
að flytja ávarp og þakka fyrir
hlýjan hug sem viðstaddir og
Qarstaddir ættingjar og vinir
höfðu sýnt honum á þessum
degi og á sinni löngu lífsleið.
Njarðvík 50 ára
Forseti í opinberri heimsókn í dag
Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, kcmur í op-
inbera heimsókn til Njarð-
víkur í boði bæjarstjórnar
kl. 10 fyrir hádegi í dag. Tek-
ið verður á móti forseta við
leiðsögumerkið á Fitjum.
Fram fer hátíðarmessa í
Ytri-Njarðvíkurkirkju og að
hcnni lokinni mun forseti
sitja hátíðafund bæjar-
stjórnar ásamt gestum í húsi
byggðasafnsins í Innri-
Njarðvík. Forseti mun taka
þátt í viðburðum fyrsta dags
afmælisdagskrárinnar, allt
fram á kvöld.
Fni Vigdís mun, venjunni
samkvæmt, gróðursetja trjá-
plöntur í Njarðvíkurbæ. Al-
þýðublaðið heimsótti Njarð-
vfkurbæ fyrir nokkrum vikum
og gaf þá út sérstakt blað um
þetta öfluga og svipsterka bæj-
arfélag.
Fimmtíu ára afmæli Njarð-
Gamli torfbærinn i Innri-Njarð-
vík, þar sem byggðasafn Njarð-
víkinga er varðveitt.
víkur sem sjálfstæðs sveitarfé-
lags var í raun í mars á þessu
ári og var áfangans þá minnst.
Næstu dagana, allt til 23. ágúst,
verður hinsvegar viðamikil af-
ntælisdagskrá Njarðvíkinga,
og eru landsmenn hvattir til að
heimsækja afmælisbamið og
njóta þeirra atburða sem í boði
verða.
Alþýðublaðið sendir Njarð-
víkingum enn á ný ámaðarósk-
ir í tilefni afmælisins, og vonar
að hátíðahöldin megi ganga
sem best.
maður framkvæmdastjómar Al-
þýðuflokksins skrifar um málið
í skeleggri grein í blaðinu í dag.
Þar segir Guðmundur m.a.:
„Þau vinnubrögð sem hér hefur
verið lýst eru ríkisstjóm ekki
sæmandi. Það er a.m.k. óratjarri
því, að AlþýðuIJokkurinn eigi
að láta svona vinnubrögð líð-
ast“. Guðmundur segir að hér sé
verið að gefa útgerðinni 500
milljónir sem ekki em til sam-
kvæmt fjárlögum ársins.
I tillögum sem Byggðastofn-
un sendi forsætisráðherra um
síðustu helgi segir að tillögur
hennar „taka aðeins á litlum
hluta vandans". Ganga tillög-
umar út á að fyrirtækjunum
verði gert kleift að kaupa afla-
heimildir fyrir 500 milljónir
króna, eins og kunnugt er.
/
Matthías A. Mathiesen
Klagar
skrif Al-
þýðublaðs
Hafnar-
f jarðar tíl
bæjarráðs
Matthías A. Mathiesen,
fyrrverandi alþingismaður og
ráðherra, er ekki ánægður
með skrif Alþýðublaðs Hafn-
arfjarðar um eignarnámsmál
Hafnarfjarðarbæjar á hend-
ur Kinari Þorgilssyni og Co.
hf. varðandi svokaílaðan Ein-
arsreit í Hafnarfirði og hefur
skrifað bæjarráði kvörtunar-
bréf þar um.
Matthías vill fá tæpar 100
milljónir króna fyrir lóðarskik-
ann og bragga sem þar er að
finna. Bærinn vill hins vegar
aðeins greiða um 13 milljónir
fyrir það. Telur hann skrif Al-
þýðublaðs Hafnarfjarðar tilraun
til að hafa áhrif á niðurstöður
Matnefndar eignamámsbóta
m.a. með því að hafa í hótun-
um. Sérstaklega finnur Matthí-
as að því að Ingvar Viktorsson
skuli vera f senn ábyrgðarmað-
ur Alþýðublaðs Hafnarfjarðar
og ritstjóri, jafnframt þvf að
vera formaður bæjairáðs Hafn-
arfjaröar.
Það kemur hins vegar ekki
fram í kvörtunarbréfl ráðherr-
ans fyrrverandi. að hann notaði
skrif Alþýðublaðs Hafnarfjarð-
ar sem gögn í málflutningi sín-
urn fyrir Matsnefndinni þar sem
sagt er að Einarsreiturinn sé
kjörið byggingasvæði. Rétt er
að taka fram að bæjarfulltrúi
Þorgils Óttar, sonur Matthíasar,
sat ekki bæjarráðsfundinn þar
sem bréfið var lagt fram.