Alþýðublaðið - 02.10.1992, Side 3

Alþýðublaðið - 02.10.1992, Side 3
Föstudagur 2. október 1992 Sm-SIÐflN „TÍMAMÓTA- VERKIÐ MIKLA“ Nöldur,nöldur og aftur nöldur... Þeir aðilar innan SUJ sem hafa verið beðnir um að skila af sér upplýsing- um vegna símaskrár eru vinsamlega áminntir um að gera það sem fyrst. Að öðrum kosti er stórhætta á því að þessu „tímamótaverki" verði ekki lok- ið fyrr en um næstu aldamót, eða þaðan af síðar, og hvaða gagn er í upplýsing- um sem úreltust fyrir 10-20 árum...? Allt í lagi, útlitið er nú kannski ekki svo dökkt en í guðanna bænum, drífið þetta nú af fyrir aðalfundi FUJ-félag- ana í október! Munið að þessi gripur verður okkur öllum til gagns. AUKAÞINGS- TÍÐINDI Á LEIÐINNI Eins og flestir niuna eftir hélt SUJ aukaþing 29.-30. maí sl. Frágangi þingtíðinda af því ágæta og frétt- næma þingi er nú lokið og mun sá gripur verða útgefinn og dreift til SUJ-ara á næstunni. Innihaldið verður hcfðbundið að svo miklu leyti sem SUJ, stefna þess og störf,- getur verið hefðbundið virðingar sinnar vegna... Ef til vill komast einhverjir fróðleiksþyrstir að því við lestur pluggsins, að ungir jafnaðarmenn í dag eru ekki helðbundnir nema að svo miklu leyti sem almennar sið- venjur krefjast þess af fólki, hver veit...!? Staðreyndin er nefnilega sú, að það er af sem áður var þegar menn gátu sagt það fyrir, með nokkurri vissu, hvaða afstöðu SUJ myndi taka til hinna og þessara mála. Það er best hægt að sjá með lestri þessa fyrsta annáls um þingstörf SUJ eftirendurreisnina 1990. Enginn getur lengur bókað SUJ fyrir- fram sem fylgjandi eða mótfallið mál- um. Breiddin innan raða þess er slfk. Menn eru meira að segja löngu hætt- ir að nenna að skilgreina sjálfa sig eða aðra sem vinstri- eða hægrikrata, menn eru bara kratar, óháðir úreltum skil- greiningum sem gengið hafa sér til húðar. punktur og basta... Vafalaust hefðu slík tíðindi verið tal- in undur og stónnerki fyrir ekki svo all- löngu síðan, og ekki er laust við að eldri kynslóð Alþýðuflokksins þyki þessi stefnubreyting SUJ í skilgrein- ingum til mikilla ama og óþæginda, foimsins vegna. En sem sagt, Aukaþingstíðindin 1992 eru á leiðinni og væntanlega tekst að dreifa með þeim símaskránni marg- umnöldruðu ef ekki fer í þeim málum allt á hinn versta veg. KJÖR- DÆMISRÁÐ KRAFT- MIKILLA KRATA Uppi eru hugmyndir um að stofna kjördæmisráð FUJ-félagana á Reykjanesi. Slíkt ráð myndi virka sem satneiginlegur starfsvettvangur félagana og helði það hlutvcrk að styrkja og efla starf þeirra í kjör- dæminu. Allur undirbúningur er á frumstigi framkvæmdalega séð þótt vel á veg sé kominn í huguin fólks. Iif af verður ætti stofnun ráðsins að vera fagnaðarefni fyrir forsvars- menn Alþýðutlokksfélaga á svæð- inu. Oft hvflir mikill þungi á herðum yngri kynslóðarinnar í Alþingis- og sveitarstjómarkosningum og þá er svo sannarlega þörf á vel samstilltu átaki FUJ-félaganna í viðkomandi kjör- dæmi, ef góður árangur á að nást. puu au staðar afn á Auk þess er fyrir langalöngu tími til kominn fyrir Alþýðuflokkinn að reka af sér það slyðruorð að vera fylgis- minnstur íslenskra stjómmálaflokka meðal ungs fólks. Engin áhöld em um það að hvergi annars staðar á landinu er jafn öflug starfsemi ungra jafnað- armanna og á Reykjanesi og er það undantekn- ingin sem sannar áður- n e f n d a reglu. Lætur nærri að þar sé ) FU J-félag starfandi í hverj- um bæ, með örfá- um undantekningum þó. A því verður þó vafa- laust fljótlega unnin bót, og verður það vafalaust eitt fyrsta verkefni kjördæmisráðs ungra jafnaðarmanna á Reykjanesi. CINQT FOLK Síða í umsjón saj nugíia] rúmsli fyn V SUJ, FRÉTTAMAT FJÖLMIÐLA OG SUS- ar fyrir SUS að skjóta sinn eigin leið- toga, Davíð Stefánsson, í kaf þegar hann hvatti félaga sína á málefnaþingi í Litlu Moskvu til framsýnnar afstöðu í þessum málum. Hugsanlegt er að and- rúmsloftið í þessu fyrrum komma- bæli hafi eitthvað truflað dóm- greind þeirra í stuttbuxna- deild Sjálf- s t æ ð i s - flokksins. Slíkt og því- líkt var ásig- k o m u I a g ályktana SUS ' frá þessu mis- heppnaða þingi að annað eins bull um áðumefnda mála- flokka hefur ekki komið lengi frá SUS-urum. Davíð Stefánsson fær hér með send- ar innilegustu samúðarkveðjur frá skoðanabræðrum hans í SUJ. Davíð ætti fljótlega að íhuga flokksskipti, sýnist manni á þessari illu meðferð flokksbræðra hans á drengnum. Auk þess er það augljóst að hann, lfkt og helmingur Sjálfstæðisflokksins, á í stöðugri baráttu við að kæfa sinn krat- íska innri mann... Umsóknareyðublað um inngöngu í Alþýöuílokkinn - Jafn- aðannannaflokk Islands verður sett í póst til Davíðs í dag með von um góð viðbrögð! KREPPAI LITLU- MOSKVU Síðastliðinn laugardag flykktust SUJ-arar til Keflavíkur í tilefni af fyrsta Sanibandsstjórnarfundi vetr- arins. Aðalumræðuefnið þennan sól- bjarta dag voru atvinnumálin og starfið sem framundan er hjá ung- um jafnaðarmönnum. Voru menn afar bjartsýnir á starfssaman vetur og gantli góði haustbarlómurinn lét hvergi á sér kræla að þessu sinni. Það var svo sannarlega vel við hæfi að ræða fyrra málefnið þama í hjarta Suðumesja, því fólkið suður með sjó glímir nú við eitt versta atvinnuástand- ið á landinu. Sitthvað þótti ungkrötum um úrlausnir á þessum mikla vanda sem bitnar einna harðast á ungu fólki og konum á öllum aldri. Undir lok fundarins var gengið frá ályktun einni harðorðri um atvinnu- málin, EES og gildi menntunar fyrir ís- lensku þjóðina. Var hún birt í Alþýðu- blaðinu sl. þriðjudag, 29. september. Að auki var ályktunin send til allra fjöl- miðla í landinu, þótt ekki hafi þeir séð ástæðu til að fjalla um hana. Skrýtið atama, maður hefði haldið að ályktun frá ungum jafnaðarmönnum sem inniheldur harða gagnrýni á stjóm- völd og róttækar hugmyndir varðandi atvinnumálin væri athyglinnar verð. Svo reyndist ekki vera í þetta skiptið, e.t.v. er almennt fréttamat í landinu eitthvað að breytast... Fjölmiðlum þóttu t.d. afturhalds- samar og forpokaðar skoðanir Sam- bands ungra sjálfstæðismanna á kvóta, veiðileyfagjaldi og EB, einkar frétt- næmar. Afskaplega leiðinlegt afspum- LANASJOÐ- UR ÍS- LENSKRA NÁMS- MANNA Nefnd sú er fiokksþing Alþýðu- flokksins skipaði í sumar sem leið til að endurskoða nýsett lög um LÍN hefur enn ekki komið saman og bíða námsmenn um land allt spenntir eft- ir að það gerist. Samband ungra jafnaðarmanna hefur undanfarið lagt nótt við dag til að safna gögnuin um málið, allur annar undirbúning- ur fulltrúa SUJ fyrir nefndarstörfin er vel á veg kominn og brátt verður mönnum ekkert að vanbúnaði til að hefja megi nefndarstörf. Fyrir hönd SUJ sitja í nefndinni þeir Sigþór Ari Sigþórsson, formaður FUJ- Hafnarfirði og verkfræðinemi við HÍ, og Jón Þór Sturluson, varaformaður FUJ-Vesturlandi og hagfræðinemi við HÍ. Þingflokkur Alþýðuflokksins á hina tvo fulltrúana í nefnd þessari og eru það þau Sjöfn Sigurbjömsdóttir, þinglóðs, og Sigbjöm Gunnarsson, þingmaður Alþýðuflokksins á Norður- landi-Eystra, er gegna þessu vanda- sama hlutverki íyrir hönd þingflokks- ins. Spennandi verður að sjá hvað kemur út úr þessu öllu saman... Verður það “status quo“ eða gagnger uppstokkun á LÍN? Vonast er til þess að nefndin nái að skila áliti sínu einhvem tímann á næstu tveimur mánuðum, svo að botn verði fenginn í þetta erfiða og við- Sveitarstjórnarráð Alþýðuflokksins í framhaldi af flokksstjórnarfundi þann 3. október n.k. verður haldinn fundur í Sveitarstjórnarráði Alþýðu- flokksins kl. 16.00 sama dag. Dagskrá fundarins veröur sem hér segir: 1. Afnám endurgreiðslna á virðisaukaskatti og áhrif þess á sveitarfélögin. 2. Afnám aðstöðugjalda og endurskoðun tekjustofna sveitarfélaga. 3. Sameining sveitarfélaga. F.h. stjórnar Sveitarstjórnarráðs Alþýöuflokksins, Ólína Þorvaröardóttir, formaöur. SJONARHORNIÐ SUqsuumgIíh, í öáku Ijó&l Magnús Árni Magnússon: Sérstaka athygli mína í þeirri viku sem nú er að líða vakti undarlegt lesendahréf Magnúsar nokkurs Guðmundssonar á síðum Tímans. Þar segir hann meðal annars: ...,,Ef EES-samningurinn verður undirritaður án vilja íslendinga, er það skjalafals, en það er háttur einræðisherrans. Þeir sem fremja slíkt ódæði, kalla á hefndina yfir sig. Það er ekki nýtt fyrirbrigði á Islandi að nasistar líti dagsins ljós.“... ...„Vilt þú opna Island fyrir hundruðum þúsunda atvinnuleysingja EB? Vilt þú hleypa EB-fiskveiði- flota inní fiskveiðilögsöguna til þess eins að skapa stríð og gengið verði af fiskistofnunum dauðum? Vilt þú að útlendingar kaupi hér land og þar með hafi frjálsar hendur með hverskonar athafn- ir? Vilt þú gerast aðili í hemaði og að vopnaburður verði tekinn upp á íslandi? Vilt þú að Reykjavík verði önnur Belfast? Fleira og fleira er hægt að telja upp, en ég læt stjómarand- stöðuna um að fræða okkur bet- ur. Það er kominn tími til að hún geri það.“.„Þjóðin hefur orðið fyrir miklum þrengingum og áföllum í gegnum tíðina - Móðuharðindi og svartadauða, svo eitthvað sé nefnt - en það var ekki af mannavöldum. En ef við göngum í EES verða það miklu meiri hörmungar, sem dynja yfir þjóðina, en áður hefur þekkst.“... (Ath.s. blm. - Gr.skil & feitl: M.G.) Hvaðan hefur maðurinn þessar afkáralegu hugmyndir um EES og ís- lenska ráðamenn? Eru það svona heimsendaskoðanir sem eiga að hlakta í Evrápuumrœðunni? Spurningu vil ég heina til ritstjórnar Tímans: fíer hún enga ábyrgð á hótunarbréfum óupplýstra öfgamanna sem birtast á síðum blaðsins? Hefur Magnúsþessi Guðmundsson eftil villþessi „sann- indi" sín um EES og afleiðingar þess úr Tímanum, þessu hlaði sem telur sig vera einn helsta málsvara frjálslyttdis, samvinnu og félagshyggju hér- lendis...? VERSUJNARMANNAFEIAG SUÐURNESJA Stjórn og trúnaðarmannaráð félagsins hefur ákveðið að viðhafa allsherjar atkvæðagreiðslu um kjör 5. aðalfull- trúa félagsins og 5 til vara á 37. þing ASÍ, sem haldið verður á Akureyri dagana 23.-27. nóvember 1992. Framboðslistum sé skilað til formanns kjörstjórnar, Þór- arins Péturssonar, Fífumóa 1-B, Njarðvík, eigi síðar en fimmtudaginn 8. október nk. kl. 20.00. Kjörstjórn. Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur um fulltrúa á 37. þing Alþýðusambands Islands. Kjörnir verða 58 fulltrúar og jafnmargir til vara. Listar ásamt meðmælum 100 fullgildra félagsmanna V.R. þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu Verzl- unarmannafélags Reykjavíkur, Húsi verslunarinnar fyrir kl. 12.00 á hádegi, mánudaginn 5. október n.k. Kjörstjórn.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.