Alþýðublaðið - 04.12.1992, Qupperneq 1
Framsókn og EES
KlofninquNitn staðfestur
Samkeppnislagafrumvarpið: Sjö þingmenn með Halldór í broddi fylkingar greiddu ekki
atkvæði gegn ákvœðum um EES
heldur sátu hjá. Þingmenn, sem
blaðið ræddi við í gær, töldu að
sjömenningamir hefðu með
þessu sýnt jákvæða afstöðu sína
til EES, og töldu að í framhald-
inu yrði erfitt fyrir þá að greiða
atkvæði gegn sjálfri aðildinni,
þegar hún kemur til atkvæða
síðar í mánuðinum.
Nokkrar greinar frumvarps-
ins fjölluðu um skyldur íslend-
inga gagnvart evrópska efna-
hagssvæðinu, meðal annars að
íslendingar þyrftu að veita eftir-
litsstofnun EFTA og EFTA
dómstólnum upplýsingar sem
þær kynnu að æskja. Nafnakall
var viðhaft, og andstæðingar
aðildar að EES í Kvennalista og
Framsókn, auk Eyjólfs Konráðs
Jónssonar, Sjálfstæðisflokki,
greiddu atkvæði gegn ákvæð-
unum.
Eggert JJaukdal, Sjálfstæðis-
flokki, sem er yfirlýstur and-
stæðingur aðildar, sat hjá, ásamt
Inga Bimi Albertssyni, sem enn
hefur ekki gefið upp afstöðu
sína til EES. En mesta athygli
vakti, að sjö Framsóknannenn
sátu líka hjá. Þeir voru Halldór
Asgrímsson, Ingibjörg Pálma-
dóttir, Valgerður frá Lómatjöm,
Hinn djúpstæði klofningur
Framsóknarflokksins í afstöð-
unni til EES var staðfestur í at-
kvæðagreiðslu um nýtt sam-
keppnislagafrumvarp á Alþingi
í gær. Sjö þingmenn Framsókn-
arflokksins, ásamt Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur, Kvenna-
lista, greiddu ekki atkvæði gegn
greinum sem vörðuðu EFTA,
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
Jón Kristjánsson, Finnur Ing-
ólfsson og að síðustu Guð-
mundur Bjamason. En hinn síð-
asttaldi hafði verið talinn
myndu greiða atkvæði gegn
EES, og hjáseta hans í gær var
túlkuð þannig, að hann hefði
ákveðið að fylgja Halldóri Ás-
grímssyni í afstöðunni til EES.
Tveir þingmenn Alþýðu-
flokksins studdu breytingartil-
lögu Steingríms J. Sigfússonar
um að markaðsráðandi fyrir-
tækjum í samgöngunt verði
bannað að eiga meira en 25% í
öðrum markaðsráðandi fyrir-
tækjum í greininni. Tillagan
féll.
Sjá baksíðu
daaar
tit jóta
Gjafir, gjafir, gjafir...
I þessum góða mán-
uði, hugsa víst flestir
um hvað gefa skal
ættingjum sínuni í
jólagjof. Þá á leiðin
eftir að liggja í gjafa-
vöruverslanir. Ein
slík var einmitt að
opna í Faxafcni, rétt við Suðurlands-
brautina. Þar voru þau hjónin Skúli Jó-
hannsson og Erla Vilhjálsdóttirað opna
þriðju húðina sína. Tékk-kristall hefur
gegnum árin áunnið sér vinsældir svo
um munar. Nýja húsnæðið er í alla staði
hið glæsilegasta, og þarna er stærsta
verslun fyrirtækisins til þessa.
A-mynd E. Ól.
Umboðsmenn togara óánœgðir þegar fersk flök
frá Sandgerði komu á markaðinn í Bremerhaven í
gœrmorgun
EINS OG AÐ
FLYTJA ÚT AF-
HÝDDA BANANA
- segir umboðsmaður togarannna, - vel hepppnuð
tilraun, segja fulltrúi Miðness hf. og umboðsmað-
urþess í Hamborg
Eldsnemma í gærmorgun
landaði togarinn Hegranes
afla sínum í Bremerhaven og
var aflinn seldur á allgóðu
verði á markaðnum þar. Á
sama markaði gátu kaupend-
ur keypt fersk fiskflök sem
flogið var á markaðinn frá
Miðnesi hf. í Sandgerði.
Umboðsmaður togaranna,
Samúel Hreinsson, var vægast
sagt óánægður með þessa flaka-
sölu Miðness, þegar Alþýðu-
blaðið ræddi við hann í gær.
Hann líkti þessu við að banana-
framleiðendur flyttu út vöru
sína afhýdda.
Samúel sagði að ferski fisk-
urinn væri seldur á allt of lágu
verði, þetta væri nánast „fær-
eyskt dæmi“. Slík viðbót á
markaðinn gæti skaðað sölur ís-
lenskra togara í framtíðinni.
Annað hljóð var í þeim Mið-
nessmönnum, en hjá þeim
starfa á annað hundrað manns.
„Þetta gekk bærilega og lofar
mjög góðu“, sagði Hreiðar Júlí-
usson, fulltrúi fyrirtækisins,
sem sinnirerlendum mörkuðum
þess. Hreiðar sagði aðfinnslur
og kvartanir Samúels hlægileg-
ar og varla svara verðar. Hann
spáir því að togarasölur í er-
lendum höfnum heyri senn for-
tíðinni til, þegar Evrópska efna-
hagssvæðið verður að vem-
leika. Islendingar muni full-
vinna matvælin hér á landi og
noti íslenska farkosti til að flytja
vöruna utan.
SJÁ NÁNAR Á BLS. 2
ísland og Evrópubankinn
Sjóður til að kaupa
íslenska tækni
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
ef'tir að hafa skrifað undir samn-
ing um stofnun tækniaðstoðar-
sjóð. A-mynd/E.öl.
ráðgjöf við skipulag og fram-
kvæmd einstakra verkefna,
einkum á sviði fiskveiða og
fiskvinnslu, orku- og umhverf-
ismála. Sjóðnum er eingöngu
ætlað að tjármagna vinnu ís-
lenskra ráðgjafa.
Flest af aðildarríkjum bank-
ans hafa stofnað slíka sjóði.
Stofnun tækniaðstoðarsjóðs
kemur til móts við mikla þörf
ríkja Mið- og Austur-Evrópu og
fyrrunt lýðvelda Sovétríkjanna
við að skipuleggja og hrinda af
stað verkefnum sem stuðla að
breytingum í átt að opnu ntark-
aðshagketfi.
- semfari til endurreisnar og efnahagsþróunar í ríkjum Mið- og
Austur-Evrópu og lýðvelda fyrrum Sovétríkja
Samningur um stofnun
tækniaðstoðarsjóð íslands við
Endurreisnar- og þróunar-
banka Evrópu var undirrit-
aður í gær af Jón Sigurðssyni
iðnaðarráðherra og Ullrich
Kiermayr að hálfu Evrópu-
bankans. Tilgangur sjóðsins
yerður að kaupa ráðgjöf frá
íslandi fyrir ríki Mið- og
Austur-Evrópu.
Það er Island sem stofnar
þennan sjóð við Evrópubank-
ann og leggur til hans 7,7 millj-
ónir króna, helminginn strax og
afganginn á tveimur árum.
Tækniaðstoðarsjóðurinn skal
nýttur samkvæmt nánari
ákvörðun Evrópubankans til að
fjármagna kaup á tæknilegri
EYJASLÖÐ 7«101 REYKJAVlK»S. 91-621780
niiiH Ixip
| ÉX -IvW*' fP vi:- (iflyf jrkjS / fýj'l f''-\ f / ^