Alþýðublaðið - 04.12.1992, Síða 10
I
10
Laus störf hjá
Fiskistofu
Frá 1. janúar 1993 mun Fiskistofa annast framkvæmd
laga um meöferö sjávarafuröa og eftirlit meö framleiöslu
þeirra. í því felst útgáfa vinnsluleyfa til þeirra sem meö-
höndla sjávarafurðir, löggilding sérstakra skoöunarstofa
og eftirlit meö starfsemi þeirra. Til aö vinna aö þessum
verkefnum óskar Fiskistofa aö ráöa dugmikiö fólk til
starfa á gæðastjórnunarsviði. Um er að ræöa:
Forstöðumann gæðastjórnunarsviðs, deildarstjóra og
sérfræöing á sviöi eftirlits meö matvælum, hreinlæti og
búnaði.
Laun skv. launakjörum starfsmanna ríkisins. Umsóknir
sendist til Fiskistofu Ingólfsstræti 1, 150 Reykjavík, fyrir
10. desember 1992. Frekari upplýsingar veittar í síma
697900 milli kl. 16.00 og 17.00.
Fiskistofustjóri
✓
°ADW
&
við erum vandlát
I Lóninu á Loftleiðum
verður framreitt glæsilegt
jólahlaðborð á aðventunni,
frá 27. nóvember -
22. desember.
Matreiðslumeistarar
hótelsins sjá til þess að
hlaðborðið svigni undan
ljúffengum réttum -
bæði í hádeginu og á
kvöldin; hvítlauksrist-
aður smáhumar, síld,
hunangsreyktur lax,
Svartaskógar paté,
í HÁDEGIM 1.395 KR. Á MM grísasteik, reyksteikt
Á KVÖLDIIV 1.980 KR. Á MAM lambalæri, hreindýra-
; buff, ris á l'amande, kanelkrydduð epli,
| íslenskir ostar og ótal margt fleira.
| Allir jólahlaðborðsgestir eru sjálfkrafa þátt-
: takendur í glæsilegu ferðahappdrætti. Dregið
I verður 23. desember um flugfar fyrir tvo með
Flugleiðum til London. Það fer vel um þig í
Lóninu og starfsfólk okkar leggur sig fram um
að gera þér borðhaldið sem ánægjulegast.
Borðapantanir í síma 22321.
FLUGLEIÐIR
HOTEL LOFTLEIÐIR
Þegar jólin liggja í loftinu
Föstudaqur 27. nóvember 1992
Áður en Svisslendingar gera upp
hug sinn um EES- samninginn er for-
vitnilegt að heyra hver afstaða mikil-
vægasta samningsaðilans er. Frans
Andriessen, varaforseti fram-
kvæmdastjómar EB og fulltrúi henn-
ar í EES-viðræðunum, svaraði
nokkrum spumingum blaðamanna
svissnesks dagblaðs (Neue Zuricher
Zeitung) í Bmssel á dögunum.
(Greinin birtist 29. nóvember sl.)
Blaðamaður: Herra Andriessen,
hvert verður hlut-
verk EES í þeirri
Evrópu nú er í mót-
un?
Andriessen: EES
ef mikilvægt skref í
þeirri samrunaþróun
sem nú á sér stað,
a.m.k. hvað varðar
viðskiptaþróunina.
EES er afsprengi
„opnunarstefnu"
bandalagsins þótt
stækkun bandalags-
ins hafi ekki verið til
umræðu þegar við-
ræður um EES hóf-
ust. Þá skipti mestu
máli hvemig mætti
gera þau riki sem
standa hvað næst EB
í efnahagslegum
skilningi þátttakend-
ur í fjórfrelsinu svo-
kallaða. Markmiðið
var að auka enn þá
samvinnu sem fyrir
hendi var milli EB og
EFTA-ríkja. Það
samstarf sem nú er í
uppbyggingu milli
EB og ríkja Mið- og
Austur-Evrópu er allt
annars eðlis, þau
standa EFTA-ríkjun-
um efnahagslega
langt að baki og það
er alls ekki tímabært
að þau verði þátttak-
endur í hinum innri
markaði. EES er fyrs-
ta þýðingarmikla skrefið í átt til frek-
ari sammna í Evrópu.
Bl: Má ekki segja að með EES sé
EB að skora sjálfsmark?
Delors, forseti framkvæmdastjóm-
arinnar, virðist upprunalega hafa haft
í huga að með EES mætti koma í veg
fyrir eða a.m.k. fresta um tíma aðild-
arumsóknum EFTA-ríkja. Nú hafa
hins vegar öll ríkin, að undanskildu
Islandi og Liechtenstein, sótt um inn-
göngu.
A: Þessi túlkun á fmmkvæði Del-
ors í janúar 1989 er að mínu mati
ekki rétt. Þá hafði ekkert EFTA-ríkj-
anna sótt um aðild að bandalaginu.
Markmið þeirra var að hafa betri að-
gang og hagnað af innri markaðin-
um. Hugsunin að baki frumkvæði
Delors hefur án efa verið að fengju
ríki aðgang að innri markaði EB væri
sjálfsagt að þau tækju á móti á sig
einhvetjar skyldur. Að sjálfsögðu
dregur EES úr nauðsyn þess fyrir
EFTA- ríki að sækja um aðild að EB
vegna þess að með EES er EB á
margan hátt víkkað út, þ.e.a.s. gmnn-
atriði þess. Eg útiloka hins vegar ekki
þann möguleika að ágreiningur sá
sem upp kom um stofnanir EES hafi
átt nokkum þátt í að nokkur EFTA-
ríki ákváðu að stíga skrefið til fulls.
Bl: Er EES þá einungis biðstofa
fyrir framtíðarmeðlimi?
A: Fyrir þau EFTA-ríki sem sótt
hafa um aðild að EB er EES vissu-
lega biðstofa og sú bið ætti að gagn-
ast þeim vel m.a. vegna þess að með
EES fæst reynsla í aðlögun að gerð-
um EB. Enginn veit jú hversu lengi
aðildarsamningaviðræðumar munu
standa. Að mínu mati em menn utan
EB á stundum nokkuð bjartsýnir í
því efni.
Bl: Eigið þér við Austurríkis-
menn íþví samhengi?
A: Já, og ég á einnig við Svíþjóð.
Að mati framkvæmdastjóra EB em
mörg Ijón í veginum og mörg vanda-
málin sem kljást þarf við. Tökum
landbúnaðarmál sem dæmi, þeim var
haldið utan EES vegna þess að of
mörg vandamál voru því tengd að
taka þann málaflokk með í samning-
inn. Semjist um þessi mál í Úrúgvæ-
lotu GATT mun það einfalda málin
eitthvað en ég er ekki á því að við f
EB getum samþykkt langan aðlögun-
artíma eins og fyrirsjáanlegt er í
GATT. Það er sem sagt mörgum
flóknum spumingum ósvarað.
Bl: Hvenœr geta fyrstu EFTA-
ríkin orðið meðlimir CEB?
A: Best væri ef öll þau ríki sem
æskja inngöngu gætu á einhverjum
tímapunkti, eftir að samningaviðræð-
um er lokið, orðið meðlimir sama
dag, því þegar ný ríki bætast í hópinn
fer af stað ferli aðlögunar sem erfitt
væri að endurtaka í sífellu.
Bl: Þér hafið stundum rcett um
aukaaðild í umrœðu um framtíðar-
þróun bandalagsins, eru EFTA-rík-
in hlutiþeirrar umrœðu?
A: Hugmyndin um aukaaðild var
ekki mótuð með EFTA-ríkin í huga.
Þau vandamál sem standa í vegi fyrir
fullri aðild þeirra að EB em ekki
óleysanleg. Onnur ríki vilja gjaman
taka þátt í samrunaferli Evrópu án
þess að vera í stakk búin til þess að
taka á sig þær skuidbindingar sem
fylgja fullri aðild. Eg er þeirrar skoð-
unar að við verðum að finna stofn-
analega lausn fyrir ríki Mið- og Aust-
ur-Evrópu svo þau geti gerst þátttak-
endur í samvinnu Evrópuríkja.
Bl: Hver er ávinningur EFTA-
ríkja af EES?
A: EES færir öllum aðildarríkjum
þess allan ávinning hins innri mark-
aðar. Samvinnan verður mun nánari
en hún er nú með fríverslunarsamn-
ingum EFTA-ríkja og EB. Hafa ber í
huga að meira en 60 af hundraði allra
viðskipta EFTA-ríkja er við EB, við-
skiptatengsl EFTA-ríkja og EB em
mun mikilvægari en tengsl þessara
ríkja við Bandaríkin og Japan til
samans. Kostimir hljóta því að liggja
í augum uppi.
Bl: Vœruð þér Svisslendingur
mynduð þér sam-
þykkja EES án nokk-
urra efasemda?
A: Svo sannarlega.
Eg sem Hollendingur
hef ekki nokkrar efa-
semdir um aðild okk-
ar að EB og er þess
fullviss að efnahags-
legt mikilvægi lands
mín væri ekki það
sem það er nú án EB.
Framtíð evrópskra
ríkja liggur í aukinni
samvinnu. Að standa
utan við þá samvinnu
er engin lausn. Menn
kæmust væntanlega
að því í Sviss hafni
þjóðin EES. Það
verður æ mikilvæg-
ara, sérstaklega fyrir
smærri riki að taka
þátt í því samrunaferli
sem nú á sér stað. Það
á einnig við um stærri
ríki. Eg hef enga trú á
því að eitthvert ríki
Evrópu komist af eitt
síns liðs nú til dags -
nema ef væri Þýska-
land.
Bl: Hverjar verða
afleiðingarnar hafni
Svisslendingar EES
6. desember nk.?
A: Þá stæði Sviss
einfaldlega utan EES
og það er mjög
ósennilegt að eftirþað
gætu Sviss og EB
komist að einhvers konar tvíhliða
EES-samkomuIagi með þeim undan-
tekningum sem Svisslendingar vilja.
Tvíhliða „rúsínuplokk" býðst ekki.
Bl: Hvaða þýðingu hefði neitun
Sviss á möguleika landsins á EB-
aðild?
A: Það eru einungis getgátur, en
líklega myndu margir túlka höfnun á
EES sem mögulega höfnun á EB.
Sagt yrði að þjóð sem ekki treystir
sér til að taka lítil skref taki vart stór
skref. Við erum um þessar mundir að
mynda okkur skoðun á umsókn
Sviss. Höfnum á EES hefði mikil
áhrif og hún kæmi sér ekki vel. Það
þýddi hins vegar ekki, nú er öllu lok-
ið við ræðum ekki frekar við Sviss-
lendinga.
Bl: Gœti Sviss sótt um aðild að
EES síðar?
A: Þá þyrfti að koma til ný ákvörð-
un. Ekki er hægt að vera viss um það
að kasti menn frá sér tækifæri nú
bjóðist það enn að nokkrum árum
liðnum. Eftir höfnun Sviss yrði að
efna til fundar allra aðildarríkja og
breyta þyrfti samningnum. Ekki er
víst að sérákvæði Sviss héldust
óbreytt, líklegra er að þau yrði að
semja að nýju síðar.
Bl: En vœri EB reiðubúið til að
semja um stöðu Sviss síðar?
A: Um það get ég ekkert sagt nú
því að sá möguleiki hefur ekki verið
ræddur innan EB. Samningar milii
Sviss og EB kæmu hins vegarekki af
sjálfu sér.
Frans Andriessen, varaforseti framkvæmdastjórnar EB og fuiltrúi
hennar í EES-viðræðunum.