Alþýðublaðið - 14.01.1993, Síða 1
Forsefri
kemur á
ríkisráðs-
fund
Vigdís Finnbogadóttir, for-
seti Islands, kemur á ríkisráðs-
fund laust fyrir klukkan fjögur
síðdegis í gær. Þar staðfesti hún
með undirskrift sinni lögin um
EES. Talsverð spenna var ríkj-
andi fyrir fundinn þarsem vitað
var að forseti hafði verið beittur
miklum þrýstingi um að skrifa
ekki undir lögin.
Sjá fréttaskýringu bls. 3:
12 mínútur í stjórnarráðinu
AWUGIÐ!
Alþýðublaðinu
ídag
fylgir blað
ungra
jafnaðarmanna
s
Fiskveiðasamningur Islands og EB:
Hqqsmunq íslqnds
er qfqr vel gæt*
- segir Ossur Skarphéðinsson, formaður sjávarútvegsnefndar. Jafngildar veiði-
heimildir. Mjög strangt eftirlit með veiðum EB
„Hagsmuna íslands er af-
ar vel gætt í þessum samn-
ingi, og efasemdarmönnum
er rétt að benda á, að hann
gerir ráð fyrir því að árlega
verði samið um gagnkvæm-
ar veiðiheimildir. Við höfum
því öll tök á að breyta þeim
þætti ef okkur líkar ekki við
útkomuna,“ sagði Össur
Skarphéðinsson, formaður
sjávarútvegsnefndar Alþing-
is í viðtali við Alþýðublaðið í
gær eftir að Alþingi staðfesti
tvíhliða samning Islands og
EB um samstarf á sviði fisk-
veiða.
En um sexleytið hófst at-
kvæðagreiðsla um samning-
inn. Henni lyktaði með því að
32 guldu honum jáyrði, en 29
voru á móti. Þrír stjómarþing-
menn vom á móti; þeir Eyjólf-
ur Konráð Jónsson, Eggert
Haukdal og Ingi Bjöm Al-
bertsson. Guðrún Helgadóttir
(Abl) og Sighvatur Björgvins-
son (A) voru fjarverandi vegna
krankleika.
Össur kvað afar mikilvægt
að Alþingi hefði ekki frestað
gildistöku tvíhliða samnings-
ins uns evrópska efnahags-
svæðið tekur gildi síðar á ár-
inu. Með þvf væri áréttað það
víðhorf Islendinga, að engin
tengsl væm milli samninga um
fiskveiðar annars vegar og
tollfríðinda hins vegar. „Rök
andstæðinga samningsins um
að gagnkvæmar veiðiheimildir
okkar og Evrópubandalagsins
væm ekki jafngildar vom
vandlega hrakin; ég held líka
að allir séu sáttir við þau
ákvæði sem lúta að eftirliti
með veiðum bandalagsins,
sem em ótrúlega ströng. I um-
ræðunni hraktist svo formaður
Framsóknarflokksins upp á
sker, þegar sjávarútvegsráð-
herra upplýsti að það hefði
verið Steingrímur Hennanns-
son sem fyrstur bauð banda-
laginu upp á að veiða innan
lögsögunnar. Eftir það má
segja að öll andstaða í þinginu
hafi lekið niður.“
Sjá leiðara bls. 2:
Framsýni Alþingis
Harrý og Heimir; einkaspœjarar og hrakfallabálkar á Bylgjunni og í steikhúsinu Argentínu
Bolakálfur heiðursgestur
Heiðursgesturinn á kynn-
ingarfundi steikhússins Arg-
entínu í hádeginu í gær var
ársgamall bolakálfur frá
Kiðafelli í Kjós. Hann gekk
inn gólfið á steikhúsinu eftir
dregli, að vísu ekki rauðum,
við dynjandi lófaklapp, en lét
sig svo hafa það að spræna á
gólfið, enda óvanur veitinga-
húsum. Þjónar hússins báru
heiðursgestinum töðu á
bakka, meðan gestir nutu
Ijúffengra steika.
Argentína hefur sérhæft sig í
að gleðja bragðlauka þeirra sem
vilja góðar nautasteikur. Þar
hefur húsið haft góða samvinnu
við Jónas Þór, þann ágæta og
landskunna nautakjötsfræðing.
Argentína hefur tekið að sér
að kosta þætti á Bylgjunni um
þá snillingana Harrý og Heimi,
einkaspæjara. Þættir þessir nutu
gífurlegra vinsælda fyrir nokkr-
um árum á Bylgjunni, meðan
hún var bamung að árum. Nú
eru byrjaðir daglegir þættir af
Hjaðnar bótabólgan?
Gjöf ríkisstjórnar kemur að góðum notum fyrir tryggingafélögin
Afmælisgjöf ríkisstjórnar-
innar til Landspítalans á 60
ára afmæiinu í fyrra, flókið og
dýrt segulómunartæki, hefur
komið í góðar þarfir, meðal
annars vegna hinna tíðu háls-
hnykksáverka, sem nú sýnast
svo mjög í tísku og kostað
hafa tryggingafélögin á annan
milljarð króna á síðasta ári að
mati sérfróðra.
Ásmundur Brekkan, yfir-
læknir og forstöðumaður
Myndgreiningardeildar Land-
spftalans, sagði í samtali við Al-
þýðublaðið í gær að tækið hefði
komið að geysigóðum notum í
starfsemi spítalans. Háls-
hnykksfólkið væri þar í raun að-
eins minniháttar búgrein, ef svo
mætti að orði komast.
Segulómunartækið segir til
um af töluverðri nákvæmni
hvemig ástandi hinna ýmsu
vefja líkamans er háttað. Sýnir
tækið í smáatriðum ástand vefj-
anna og skemmdir, ef um þær er
að ræða. Hinsvegar sagði Ás-
mundur Brekkan að ýmsar
taugavefjatruflanir gætu hugs-
anlega komið ífam, án þess að
tækið gæti sýnt þær.
Ljóst er þó að tækið á Land-
spítala auðveldar læknum mjög
að meta örorku sjúklinga, sé
henni yfirhöfuð til að dreifa.
Kemur þessi gjöf ríkisstjómar-
innar sér því vel fyrir trygginga-
félögin, sem þurfa að sæta
læknisfræðilegu mati, þegar
bótagreiðslur eru ákveðnar
vegna hálshnykkjanna.
Hálshnykkjafaraldurinn hef-
ur annars gert vart við sig víðar
en á íslandi. Ljóst er að fjöl-
margir sem lent hafa í umferð-
arslysum reyna að fá skaðabæt-
ur frá tryggingafélögum, en til
að svo megi verða þarf örorkan
að vera yfir 10% samkvæmt ís-
lenskum lögum. Oft eru greidd-
ar bætur upp á hundmð þúsunda
króna hér á landi, og jafnvel á
aðra milljón, og það þótt við-
komandi hafi ekki misst dag úr
vinnu sinni.
Bandarískir læknar hafa
meira segja smíðað orð yfir
þennan nýjasta sjúkdóm, com-
pensitis, latneskt orð, sem trú-
lega má þýða sem bótabólgu
eða jafnvel skaðabótabólgu.
þeim félögum, sem leiknir em
af Karli Ágústi Úlfssyni og Sig-
urði Sigurjónssyni, en sögu-
maður er Öm Ámason.
Öm Ámason sagði í gær að
þættimir yrðu 40 talsins, sam-
fellt hrakfallasaga þeirra félaga,
sem hafa fengið það verkeífti að
finna frú Díönu Klein fyrir eig-
inmanninn, sem farinn er að
sakna þeirrar gömlu.
Óskar Finnsson í Argentínu
sagði að veitingahúsið mundi
frá og með næsta þriðjudags-
kvöldi bjóðatil „svakamálamál-
tíðar“ á viðráðanlegu verði.
Andi þeirra einkaspæjaranna
mun því svífa yfir vötnunum.
Matargestum verður gefinn
kostur á að leysa létta og
skemmtilega svakamálaþraut
og eiga þannig möguleika á
veglegum vinningi og verður þá
dregið úr réttum lausnum á
Bylgjunni á miðvikudögum.
Heiðursgesturinn frá Kiða-
feili i Kjós vakti mikta
lukku matargesta í
Argentínu, enda hinn
fríðasti grípur og gæfur vel.
A-mynd E. Ót.
Unnið íslenskt efni á íslensk-
um útvarpsstöðvum er því mið-
ur í algjöru lágmarki, og því
spor í rétta átt að fá þá Harrý og
Heimi á öldur ljósvakans, - ekki
veitir af smáglensi eins og nú er
háttað í þjóðlífinu. Jón Axel Ól-
afsson, dagskrárstjóri Bylgj-
unnar sagði í gær að útvarps-
stöðin hygðist nú gera meira í
dagskrárgerð á innlendum vett-
vangi. I næsta mánuði verða ís-
lenskar vikur á Bylgjunni, og í
tilefni af 20 ára gosafmæli í
Vestmannaeyjum 23. janúar
verður mikið lagt undir af hálfu
Bylgjunnar.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík - Simi 62-55-66 - FAX-númer 62-92-44