Alþýðublaðið - 14.01.1993, Blaðsíða 2
Ungir jafnaðarmenn
2
Ungir jafnaðarmenn
HVERFISGÖTU 8-10 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI 91-29244 - FAX 91-629244
Útgefandi:
Samband ungra jafnaöarmanna
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Stefán Hrafn Hagalín og Ingvar Sverrisson
Setning og umbrot: Leturval
Prentun: Oddi hf.
LOKSINS,
LOKSINS...EES!
Loksins hefur samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði hlotið
samþykki Alþingis. Eftir málþóf stjómarandstæðinga varð því ekki
lengur frestað að ganga á hólm og afgreiða málið. Þetta þýðir, að á
sumri komanda mun líta dagsins ljós einn opinn markaður 380
milljóna manna, sem nær allt frá Norður-íshafi til Miðjarðarhafs.
Hann gefur færi á eflingu atvinnu og viðskipta í Vestur-Evrópu, öll-
um til hagsbóta.
Samþykki EES-samningsins gefur tilefni til að lofa og þakka
þeim, sem drýgstan þátt áttu í gerð hans. í því efni er þáttur Alþýðu-
flokksins góður. Einn flokka hefur hann haldið haus allan tímann
og ekki lagst niður á sama plan tækifærismennsku og Alþýðu-
bandalag, Framsóknarflokkur og reyndar Sjálfstæðisflokkur á fyrra
kjörtímabili.
En samningurinn markar ekki „The End of History“, svo vísað sé
til þekkts bókarheitis Japanans Francis Fukuyama. Karl Steinar
Guðnason alþingismaður hefur bent á, að það væri glapræði að
ganga ekki á lagið nú og sækja um aðild að Evrópubandalaginu, í
flokki með hinum EFTA-ríkjunum.
Karl Steinar hrósaði einmitt í þeirri yfirlýsingu sinni á Alþingi
ungum jafnaðarmönnum fyrir framsýni og dug. En við höfum ár-
um saman hvatt til þess að ísland sækji um aðild að EB. Bæði utan-
ríkisráðherra og forsætisráðherra hafa ýjað að því sama. Þeir hafa
bent á, að einmitt nú, sem aldrei fyrr, gæti gefist tækifæri til að ná
góðum samningi við EB í samfloti með Finnlandi, Noregi og Sví-
þjóð.
Það er nefnilega svo, að þó að EES-samningurinn sé mikið heilla-
spor, þá kann að þurfa meira til og líklega endist hann skemur en
margir ætla. Má þá telja víst, að áhrif okkar muni verða meiri inn-
an EB en utan. Það gæti orðið harla napurt hlutskipti fyrir Alþingi,
ef það hefði lítil áhrif á mótun lagasetningar í Brussel. Þá er senni-
legt að neitunarvald íslands gagnvart lögum frá bandalaginu verði
meira í orði en á borði.
Það, sem eftir stendur er, að við höfum meðtekið 95% af því sem
EB stendur fyrir, en viljum ekki fá vald til að móta lagasetningu
innan þess! Allar líkur eru nefnilega á því, að við komum til með að
hafa meira sjálfræði innan EB en í EES, hvað þá ef við værum ut-
an þeirra beggja.
/
I nýlegu sérhefti tímaritsins The Economist, sem ber heitið The
World in 1993, er spáð í það hverjir muni fá inngöngu í EB á þess-
um áratug. Spádómur tímaritsins er eftirfarandi: Fyrstir verða Aust-
urríkismenn, Finnar og Svíar, en þeir fá inngöngu 1995-6; því næst
Sviss (spáin var gerð fyrir þjóðaratkvæði Svisslendinga um EES)
og Noregur 1996-7; þar næst Ungverjaland, Tékkneska lýðveldið,
Pólland, Slóvakía og Tyrkland 1998-9; og að síðustu Malta, Kýpur
og ísland árið 2000.
Ef þessi spádómur The Economist rætist mun mikið vatn renna til
sjávar áður en ísland gerist aðili að EB. Biðlar EB eru margir og
stórir og þrýsta mjög á um fulla aðild. Við þessu geta Brussel-menn
ekki skellt skollaeyrum. EES er því engin endastöð fyrir ísland.
Það er því hlutverk núverandi ríkisstjómar að glutra ekki niður
tækifærum okkar heldur grípa gæsina meðan hún gefst.
Kjartan Emil Sigurðsson -
formaður utanríkismálanefndar SUJ
Fimmtudagur 14. janúar 1993
ÞÓRSMERKURFERÐ SUJ
9.-11. JÚLÍ1993
Framkvæmdastjórn Sam-
bands ungra jafnaðarmanna tók
sig til á dögunum og pantaði 40
manna skála í Þórsmörk helgina
9.-11. júlí næsta sumar. Skálinn
er í eigu Austurleiðar hf. og
munu þeir sjá um að selflytja
unga jafnaðarmenn á staðinn
gegn vægu gjaldi. Helgin í skál-
anum, plús ferðir fram og til-
baka (Reykjavík/Þórsmörk),
mun kosta hvern SUJ-ara um
það bil 3.500 krónur og eru þeg-
ar farnar að streyma inn pantan-
ir. Ef góð þátttaka verður er
hugsanlegt að bæta við svefn-
plássum í öðrum skála Austur-
leiðar hf. á staðnum.
SUJ-arar munu þessa helgi eiga
þess kost að sýna sig og sjá aðra og
halda upp á EES-samninginn (hann
mun taka gildi þann 1. júlí 1993)
með pompi og prakt í fögrum
fjallasal.
Varðeldar, grillveislur og....,
(uhmmm!). Sem sagt mikil gleði
og glaumur í góðra vina hópi. Þetta
er frábært tækifæri til að taka sér al-
gjört frí frá pólitíkinni og væntan-
lega mun sólin leika um SUJ-ara á
einum fegursta stað landsins, Þórs-
mörk
Það er von okkar í framkvæmda-
stjóm SUJ að allir sem vettlingi
geta valdið láti sjá sig og taki þátt í
hinum mikla unaði sem hátíðar-
hugsjónir jafnaðarmanna og nátt-
úra landsins munu ná að skapa í
anda evrópskrar sameiningarhug-
sjónar.
Eitt orð í viðbót um þessa fræknu
Þórsmerkurferð SUJ: SKYLDU-
MÆTING!
IS
Ekkert
sumarhlé
hjá SUJ
A fundi framkvæmdastjómar
SUJ síðastliðinn laugardag var það
ákveðið að reynt yrði í sumar að
koma í veg fyrir að starfíð leggðist
gjörsamlega niður yfir sumarið
eins og ávallt hefur gerst. Það er
vitaskuld ófært að starfsár SUJ sé
einungis 7-8 mánuðir vegna ein-
hvers óskilgreinds sumardofa. Pól-
itíkin er lífið sjálft, flest sem við
segjum og gemm, óháð flokkspól-
itískum línum.
í því skyni að hrista upp í lands-
lýð og SUJ næsta sumar er líklegt
að fundir og/eða ráðstefnur mál-
efnanefndanna muni halda áfram
yfir sumarmánuðina. Einnig kemur
þar Þórsmerkurferð SUJ inn í
dæmið.
Væntanlega verður farið eitthvað
út á landsbyggðina í sumar og þá í
þeim tilgangi að stofna ný félög þar
sem engin em og enn fremur verð-
ur eitthvað um funda- og ráðstefnu-
höld sem ekki tengjast málefna-
nefndunum beint.
Stjórn-
málaskól-
inn gang-
settur á
nýjan leik!
Ungir jafnaðarmenn verða væg-
ast sagt á ferð og flugi um landið
nú í vetur og langt frarn á sumar.
Nú í janúar fer stjómmálaskóli
fræðsluráðs Alþýðuflokksins og
Sambands ungra jafnaðarmanna í
gang á nýjan Íeik. Verða dagsem-
ingar og áætlaðir skólastaðir aug-
lýstir síðar.
Fundaröð á
vegum mál-
efnanefnda
SUJ
Það er af öðmm áformuðum
uppákomum helst að frétta að ráð-
gert að málefnanefndir SUJ standi
fyrir stómm fundum eða jafnvel
ráðstefnum að minnsta kosti einu
sinni í mánuði fram á næsta haust.
Mun þar hver nefnd sjá um einn
mánuð í senn. Ekkert hlé verður
þar gert á í sumar!
UTANRIKISMALANEFND
SAMBANDS UNGRA
JAFNAÐARMANNA
Utanríkismálanefnd SUJ auglýsir eftir umsóknum ungra
jafnaðarmanna í eftirtaldar tvœrferðir semfarnar verða á
vegum Sambands ungra jafnaðarmanna nú á nœstunni.
(A) 12.-13. febrúar: Finnland - Helsinki. miðstöðinni sem staðsett er í Strasbourg og verða
allar ferðir, fæði og húsnæði greitt 100 %. Þátttak-
Ráðstefna Norðurlandasambands ungra jafnað- endur SUJ verða tveir, af sitthvom kyninu.
armanna (FNSU) um málefni Eystrasaltslandanna.
Ráðstefnan verður haldin í Eystrasaltsmiðstöð-
inni í Kellokoski og verða allar ferðir, fæði og hús-
næði greitt 75 %. Þátttakendur á vegum SUJ verða
þrír, tvær og einn eða ein og tveir.
(B) 7.-14. mars: Frakkland - Strasbourg.
Ráðstefna á vegum Aljrjóðasambands ungra
jafnaðarmanna (IUSY). Yfirskrift ráðstefnunnar
er: „í ÁTT TIL SAMEVRÓPSKRAR MENNTA-
STEFNU - MARKMIÐ & LEIÐIR“.
Ráðstefnan verður haldin í Evrópsku Æskulýðs-
ATHUGIÐ! Frestur til að skila inn umsókn-
um rennur út föstudaginn 22. janúar. Utanrík-
ismálanefnd SUJ mun velja úr þeim umsóknum
sem berast.
ATHUGIÐ! Umsóknum ber að skila inn
munnlega til framkvæmdastjóra SUJ, Stefáns
Hrafns Hagalín, á skrifstofu SUJ, sími 91-
29244. Hjá honum er einnig hægt að fá allar
frekari upplýsingar um báðar ferðirnar (verð,
ferðir o.s.frv.).