Alþýðublaðið - 14.01.1993, Side 3
Ungir jafnaðarmenn
Fimmtudagur 14. janúar 1993
3
Samband ungra jafnaðarmanna:
FRAMKVÆMDASTJÓRN SUJ
1992-1994
-Kynning á þeim ungu jafnaðarmönnum sem 7. nóvember árið 1992 voru kosnir affulltrúum á 40.
þingi SUJ til að sitja íframkvœmdastjórn Sambands ungra jafnaðarmanna nœstu tvö árin.
Sigurður Pétursson - formaður SUJ
34 ára sagnfræðingur og kennari við fjöl-
brautaskólann Flensborg í Hafnarfirði (FUJ-
Reykjavík).
Sigurður býr við Framnesveg í Reykjavík, en
er fæddur og uppalinn á ísafirði. Hann er giftur
Ólínu Þorvarðardóttur borgarfulltrúa og eiga þau
fjögur böm.
Sigurður var endurkjörinn sem formaður SUJ á
síðasta þingi þess en hann hefur gegnt því emb-
ætti síðan á 39. þingi SUJ árið 1990.
Magnús Hafsteinsson - gjaldkeri SUJ
34 ára framkvæmdastjóri hjá eigin verktaka-
fyrirtæki (FUJ- Hafnarfirði).
Magnús býr við Þúfubarð í Hafnarfirði en er
fæddur og uppalinn í Keflavík. Unnusta hans er
Hrefna Kristjánsdóttir og eiga þau eitt bam.
Magnús telst varla til nýliða í starfinu því hann
var virkur í SUJ og Félögum ungra jafnaðar-
manna í Hafnarfirði og Keflavík í eina tfð. Hann
kom aftur til starfa snemma á þessu ári. Nýliði í
framkvæmdastjóm.
Benóný Vaiur Jakobsson - formaður
stjórnmála- og verkalýðsnefndar SUJ
24 ára matreiðslunemi hjá Pizzahúsinu (FUJ-
Reykjavík).
Benóný Valur býr við Blómvallagötu í Reykja-
vík, en er fæddur og uppalinn á Húsavík. Unnusta
Benónýs Vals er Fríða Sjöfn Lúðvíksdóttir.
Benóný Valur hefur verið virkur í Félagi ungra
jafnaðarmanna í Reykjavík í nokkur ár. Hann er
núverandi forseti málstofu félagsins um borgar-
mál. Nýliði í framkvæmdastjóm.
Magnús Árni Magnússon
varaformaður SUJ
24 ára nemi í heimspeki við Háskóla Islands
(FUJ-Kópavogi).
Magnús Ámi býr við Skólatröð í Kópavogi og
hefur búið þar frá fæðingu. Hann er giftur Sigríði
Björku Jónsdóttur.
Magnús Ámi hefur starfað innan SUJ í fjölda-
mörg ár. Hann var formaður Félags ungrajafnað-
armanna í Kópavogi í nokkur ár og formaður ut-
anríkismálanefndar SUJ í þrjú ár, 1988 - 1990 og
1991 - 1992. Magnús Ámi sat í framkvæmda-
stjóm SUJ 1986 - 1988 sem meðstjómandi.
ína Björk Hannesdóttir
meðstjórnandi SUJ
20 ára nemi við Menntaskólann í Reykjavík
(FUJ-Keflavík).
ína Björk býr við Sogaveg í Reykjavík en er
fædd og uppalin í Keflavík. Unnusti hennnar er
Eðvarð Ólafsson.
fna Björk er ein af þeim sem endurreistu Félag
ungra jafnaðarmanna í Keflavík árið 1990 og er
þar nú formaður. Nýliði í framkvæmdastjóm.
Steinn Eiríksson
formaður umhverfismálanefndar SUJ
27 ára iðnrekstrarfræðingur hjá Sindra hf.
(FU J - Austurlandi).
Steinn býr við Vesturgötu í Reykjavík, en er
fæddur og uppalinn á Fáskrúðsfirði.
Steinn er einn af þeim sem stofnuðu Félag
ungra jafnaðannanna á Austurlandi árið 1992 og
er þar formaður. Steinn kom inn í starfið fyrir
hálfu öðru ári. Nýliði í framkvæmdastjóm.
Ingvar Sverrisson
ritstjóri málgagna SUJ
22 ára nýstúdent ffá Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti (FUJ- Reykjavík).
ingvar býr við Eyjabakka í Reykjavík, hann er
fæddur og uppalinn í borginni. Unnusta hans er
Hólmfríður Björk Óskarsdóttir.
Ingvar er tiltölulega nýkominn inn f starfið en
hefur þó starfað nokkuð innan Félags ungra jafn-
aðamianna í Reykjavík. Nýliði í framkvæmda-
stjóm.
Bolli Runólfur Valgarðsson
meðstjórnandi SUJ
31 árs íslenskufræðingur, starfar hjá Kynningu
og Markaði hf. (FUJ-Reykjavík).
Bolli Runólfur býr við Barónsstíg í Reykjavík,
en er fæddur og uppalinn í Hveragerði. Unnusta
hans er Soffía Huld Friðbjamardóttir.
Bolli Runólfur hefur starfað í nokkur ár í Fé-
lagi ungra jafnaðarmanna í Reykjavík og er þar
nú formaður. Hann gegndi embætti ritstjóra mál-
gagna SUJ í eitt ár, 1991 - 1992.
Kjartan Emil Sigurðsson
formaður utanríkismálanefndar SUJ
22 ára nerni í stjómmálafræði við Háskóla ís-
lands (FUJ- Reykjavík).
Kjartan Emil býr við Raufarsel í Reykjavík og
er fæddur og uppalinn í borginni.
Kjartan Emil hefur verið virkur í Félagi ungra
jafnaðamianna í Reykjavík um nokkurt skeið og
situr nú þar í aðalstjóm. Nýliði í framkvæmda-
stjóm.
Jón Þór Sturluson - ritari SUJ
22 ára nemi í hagfræði við Háskóla Islands
(FUJ-Vesturlandi).
Jón Þór býr við Eggertsgötu í Reykjavík, en er
uppalinn í Stykkishólmi. Unnusta hans er Anna
Sigrún Baldursdóttir.
Jón Þór er einn af þeim sem stofnuðu Félag
ungra jafnaðarmanna á Vesturlandi árið 1991.
Var endurkjörinn sem ritari SUJ á síðasta þingi
þess og er þetta annað kjörtímabil hans í því emb-
ætti.
Sigþór Ari Sigþórsson
formaður menningar- og menntamála-
nefndar SUJ
24 ára nemi í verkfræði við Háskóla íslands
(FUJ-Hafnarfirði).
Sigþór Ari býr við Smárahvamm í Hafnarfirði
og er fæddur og uppalinn þar í bæ. Unnusta hans
er Þjóðbjörg Gunnarsdóttir.
Sigþór Ari hefur verið virkur í starfinu til
fjölda ára og er nýendurkjörinn formaður Félags
ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði. Nýliði í fram-
kvæmdastjóm.
•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Stefán Hrafn Hagalín
framkvæmdastjóri SUJ
21 árs framkvæmdastjóri SUJ og aðstoðar-
maður framkvæmdastjóra Alþýðuflokksins
(FUJ-Kópavogi). ■
Stefán Hrafn býr við Skipasund í Reykjavík en
er uppalinn á Akureyri. Unnusta hans er Hildur
Björk Sigbjömsdóttir. Stefán Hrafn á einn son.
Stefán Hrafn byrjaði að starfa innan SUJ upp
úr miðjum síðasta áratug og hefur gegnt
fjölmörgum embættum. Er nú fonnaður Félags
ungra jafnaðarmanna í Kópavogi.