Alþýðublaðið - 17.02.1993, Síða 2
2
Miðvikudagur 17. febrúar 1993
n WIIIIWIÐID
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson
Fréttastjóri: Fjrafn Jökulsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóöur Sigurösson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverö kr. 1.200 á mánuöi. Verö í lausasölu kr. 90
Grænfriðungar á villigötum
Barátta grænfriðunga fyrir bættri umgengni við náttúruna vakti á sín-
um tíma marga til umhugsunar um nauðsyn umhverfisvemdar. Starf
samtakanna skilaði því lofsverðum árangri um sinn. En á síðustu árum
hefur starfsemi samtakanna gengið út í öfgar; þau hafa orðið að
skrifræðisbákni sem vinnur fyrst og fremst að því að viðhalda sjálfu
sér. Raunveruleg umhverfísvemd situr á hakanum.
Islendingar hafa í sjálfu sér æma ástæðu til að grípa til vama gegn
furðulega ósvífnum áróðri grænfriðunga. En þeir og aðrar norður-
hjaraþjóðir, sem samkvæmt hefð em háðar veiðum, em ekki hinir einu
sem hafa goldið kolrangrar vemdunarstefnu samtakanna. Náttúran
sjálf á um sáft að binda; rangar áherslur grænfriðunga hafa lagt stein í
götu nauðsynlegrar umhverfisvemdar í heiminum með því að beina
baráttu umhverfissinna að vandamálum, sem engu skipta.
Barátta grænfriðunga gegn hvalveiðum í norðurhöfum þjónar þannig
engum tilgangi frá sjónarhóli náttúmvemdar. Niðurstöður rannsókna á
norðlægum hvalastofnum sýna það svart á hvítu, að þær hvalategund-
ir sem veiðimenn norðurhjarans hafa nytjað síðustu áratugi, em langt
frá því að vera í nokkurri hættu. Enginn hefur hrakið þessar niðurstöð-
ur, og vísindamaður í stuðningsliði grænfriðunga í sænska sjónarps-
þættinum varð að lokum að viðurkenna, að hvalir við ísland em ekki í
útrýmingarhættu.
Engum vísindamönnum blandast hugur um, að hrefnustofninn er
þannig nægilega burðugur til að þola miklu meiri veiði en menn hafa
þorað að nefna hingað til. I lögsögu Islendinga em taldar vera milli 25
- 30 þúsund hrefnur, og það er út í hött að halda því fram að veiðar á
100 - 200 hrefnum stefni stofninum í voða. Sandreyður og langreyður
em sömuleiðis í ágætu ástandi, og þyldu án nokkurs vafa einhverja
veiði.
Grænfriðungar halda eigi að síður áfram að gera hvalavemd og áróð-
ur gegn hvalveiðiþjóðum að helsta baráttumáli sínu. En um leið er at-
hyglin dregin frá hinum raunvemlegu vandamálum: í stað þess að
berjast af alefli gegn eyðingu regnskóga, sem em helsta uppspretta
súrefnis á jörðunni, og gegn mengun hafanna, sem em matarkista
mannkynsins, þá beina grænfriðungar atgervi vemdunarsinna um all-
an heim í vemdun teguncja, sem em ekki í hættu.
A sínum tíma gagnrýndu grænfriðungar samtök á borð við World
Wildlife Fund, sem einbeittu sér að því að vemda einstakar tegundir í
útrýmingarhættu; svo sem kóalabjöminn og kínversku pönduna. Rök-
semdir grænfriðunga vom einmitt þær, að með þessu væri starfi og
fjármagni umhverfisverndarsinna beint í farveg, sem litlu skilaði,
meðan stærri vandamál lægju óbætt hjá garði. Nákvæmlega þetta er nú
orðið hlutverk grænfriðunga sjálfra; sá er munurinn helstur á þeim og
World Wildlife Fund, að síðamefndu samtökin tóku upp á sína arma
tegundir sem vom sannanlega í mikilli útrýmingarhættu meðan gælu-
dýr grænfriðunganna em við góða heilsu.
✓
Astæðan fyrir þessu er skrifræðiseðlið, sem er orðið hinn sjálfvirki
drifhvati samtakanna. Tilvist þeirra snýst orðið um það eitt að halda
áfram að vera til, - sjálf umhverfisvemdin skiptir minna máli. Auð-
veldasta leiðin til að vekja samúð er að velja sér hvali sem sérstök
gæludýr; hvalirnir eru stórar, tígulegar og gáfaðar skepnur, - það er
auðvelt að fá fólk til að gefa peninga til hvalaverndar með því að ljúga
upp ímyndaðri útrýmingarhættu.
Enn ógeðfelldari er sú staðreynd, að með sjónhverfingum í bókhaldi
fela grænfriðungar þá staðreynd, að einungis örlítill hluti framlaga til
samtakanna fer í raunverulega umhverfísvemd; mestur hluti fer til að
halda úti bákninu sjálfu. Þetta kom skýrt fram í hvössum spurningum
stjómanda sænska umræðuþáttarins.
Samtök grænfriðunga hafa misst sjónar á upphaflegum tilgangi
sínum, og skaða ekki bara þjóðir norðurhjarans; þau koma líka
f veg fyrir þarfa umhverfísvemd í heiminum í dag.
ÚRKLIPPUBÓKIN
Landsleikur í handbolta
Víkurblaðið á Húsavík er eitt
hressilegasta blað landsins; því er rit-
stýrt af Jóhanncsi Sigurjónssyni sem
einatt tekur annan og ferskari pól í
hæðina en aðrir.
I nýjasta tölublaðinu fjallar Jóhann-
es í forystugrein um tvö mál sem hafa
„reynt nokkuð á réttlætiskennd þjóðar-
innar að undanfömu”, - Miksonmálið
og „bamsránsmálið”.
Þar segir: „Flestir virðast styðja
málstað Islendinganna í málinu, það er
Miksons og móðurinnar. Og í báðum
tilfellum virðast engin sérstök rök
liggja að baki afstöðu manna, heldur
fyrst og fremst þjóðemiskennd. Þetta
er einsog í landsleik, menn eiga að
standa með íslendingnum, og víti á ís-
lendinga er ævinlega rangur dómur.”
Jóhannes segir „morgunljóst” að
rökin sem Islendingar beita í máli
Soffíu Hansen henni til stuðnings eigi
einnig við um Bandaríkjamennina;
þarsem þeim hafi verið dæmdur for-
ræðisréttur í Bandaríkjunum.
Meea ellilífeyrisþegar
brjóta lög?
Um Miksonmálið segir síðan í for-
ystugrein Víkurblaðsins:
„Og hvað mál Miksons varðar, þá
virðist meirihluti þjóðarinnar hneyksl-
ast vegna þess að þama sé verið að
níðast á göml-
um manni sem
er íslenskur rík-
isborgari og
hefur unnið
þjóð sinni margt
gott. Sem Is-
lendingur og
gamall maður
hljóti hann að
vera saklaus, og Mikson: Nákvæma
gyðingar kasti rannsókn, segir Vík-
sko steinum úr urblaðið.
glerhúsi, því
þeir séu að drepa Palestínumenn í viku
hverri.
Þetta em náttúrlega engin rök, held-
ur þjóðremba. I fyrsta lagi eru Islend-
ingar ekki betri en aðrar þjóðir og ís-
lenskir ríkisborgarar jafn líklegir til að
vinna voðaverk einsog aðrir. Og það
er engin ástæða til að hlífa öldruðum
sérstaklega, því ef svo væri, ætti
einnig að hætta að lögsækja ellilífeyr-
isþega sem gerðust sekir um glæpi. Og
í þriðja lagi þá getur glæpur eins,
aldrei verið afsökun fyrir voðaverkum.
Málið er, að það er búið að ásaka
Mikson um stríðsglæpi og þessar á-
sakanir munu tengjast nafni hans f
sögunni,” segir Víkurblaðið og leggur
til að fram fari nákvæm rannsókn.
Milljarðaflokkurinn og Tvíhöfði
Yfir í aðra sálma. Gunnar Svav-
arsson formaður Smábátafélags
Reykjaness sendir „Tvíhöfða” tóninn í
Mogganum á laugardaginn. Þar beinir
hann skeytum sínum að þeim hug-
myndum sem
bámst úr tví-
höfðanefndinni
(sem ekki hefur
lokið störfum)
um kvóta á
smábáta.
Gunnar seg-
ir: „Veltum of-
urlftið fyrir okk-
ur hvað slíkar
tillögur, ef þær
næðu fram að
ganga, hefðu í
för með sér fyrir Suðumesin. Atvinnu-
leysi myndi stóraukast, útflutningur
hágæða afurða með flugi myndi drag-
ast saman og fjöldi fjölskyldna myndi
neyðast til að segja sig á sveitina í
formi atvinnuleysisbóta og stuðnings
við að halda híbýlum sínum frá upp-
boðshöldurum.
Kvótasetning smábáta er bein ávís-
un á auknar veiðiheimildir til þeirra er
stjóma bankakerfmu, þ.e. útgerða er
skipa milljarðaflokkinn í skuldsetn-
ingu þjóðarinnar. Milljarðaflokkurinn
myndi klófesta þessar aflaheimildir
áður en langt um liði. Mér er spum:
Hversvegna lætur „Tvíhöfði” ekki
togaraflotann hafa þessi tonn strax,
óþarfi er að vera með þessa sýndar-
mennsku ti! að villa um fyrir almenn-
ingi.”
Hverju svarar svo Tvíhöfði?
Hvert er hlutverk skálda?
I splunkunýju tímariti ASÍ, Vinn-
unni, er fróðlegt spjall eftir Einar Má
Guðmundsson rithöfund. Þar leggur
hann útaf ályktun síðasta þings Al-
þýðusambandsins um menningarmál.
I ályktuninni komu fram þungar - en
gamalkunnar - áhyggjur af sambandi
listamanna og samfélags. ASÍ-þingið
spurði: „Erum við að sigla inn í þjóð-
félag þarsem lislamenn em hættir
landvinningum? Er þjóðfélagsádeila
horfm úr verkum þeirra? Fá listamenn
ekki lengur aðhald vegna þess að
neytendahópur þeirra er afmarkaður
við millistétt og peningafólk sem nýt-
ur þess að sýna sig og sjá aðra á
mannamótum og vill ekki láta tmfla
sig með kröfum um félagslegar um-
bætur?”
Þessu svarar Einar Már með einörð-
um hætti:
„Það er hlut-
verk Alþýðu-
sambandsins að
koma því sem
verið er að
skapa í menn-
ingu og listum
á ffamfæri við
alþýðuna, en
það er ekki
hlutverk þess
að velja við-
fangsefnin fyr-
ir listamenn.
Þeir hljóta sjálfir að glíma við list-
sköpun sfna. Þeir sem heimta sérstaka
list fyrir verkamenn, sérstaka list fyrir
bændur eða konur eru á villigötum og
tala í rauninni niður til þeirra sem þeir
þykjast bera umhyggju fyrir.”
Og þar höfum við það.
Gunnar: Fjöldi fjöl-
skyldna mun þurfa
að segja sig á sveitina.
Einar Már: Ekki
hlutverk ASÍ að segja
skáldum til um yrkis-
Atburðir dagsins
Afmœlisbörn dagsins
1405 Safnast hefur til feðra sinna Timúr höfðingi Mongóla
sem reisti pýramída úr höfuðkúpum útum alla Mið-Asíu.
Hann varð 68 ára; blóðþyrstur drottnari á stóru landsvæði
sem teygði sig frá Mongólíu til Indlands, og frá Baghdad
til Egyptalands. Hann bæklaðist í æsku en lét það lítt aftra
sér; var einatt fluttur á börum útá vígvöllinn. Timúr áleit
sig beinan afkomanda Genghis Khan. Timúr gaf upp önd-
ina í leiðangri sem farinn var til að sigrast á Kínverjum.
Synir hans, fjórir talsins, taka við veldi gamla mannsins.
1855 Kínverski keisaraherinn nær loksins að yfirbuga
gengi „Stuttsverðaþrenningarinnar” með hjálp franskra
herdeilda.
Andrew „Banjo” Paterson 1864: ljóðskáld frá Ástralíu.
Barry Humphries 1934: skemmtikraftur frá Ástralíu;
þetta er greinilega mikill hátíðisdagur hjá andfætlingum
vorum.
Alan Bates 1934: breskur leikari, lét til sín taka á sviðinu
og hvíta tjaldinu.
1880 Alexander II Rússakeisari sleppur
naumlega undan sprengjutilræði nihilista
í Vetrargarðinum í St. Pétursborg.
1909 Goðsögn deyr. Geronimo, höfðingi
Apache-indíána, hvarf á vit hinna eilífu
veiðilendna í dag, áttræður að aldri. Hann
barðist af illvígri kænsku gegn hvíta
manninum í Nýju Mexíkó og Arizona.
Að endingu gafst hann upp árið 1886 og
sneri sér að búskap.
1968 Franski skíðamaðurinn Jean-
Claude Killy vinnur öll þrenn verðlaunin
í kariaflokki á Olympíuleikunum í
Grenoble í Frakklandi. Aðeins einn hefur
leikið þetta áður, Austurríkismaðurinn
Toni Sailer á Ítalíu 1956. Jean-Claude
Killy er margfaldur heimsmeistari fyrir
og hefur nú endanlega skráð nafn sitt á
spjöld sögunnar sem einn mesti
skíðamaður allra tíma.
1856 Heinrich Heine deyr; þýskt skáld sem hafði mjög
mikil áhrif á íslensk skáld 19. aldar, m.a.
Jónas Hallgrímsson sem
þýddi mörg ljóða hans.
Goðsögnin Geronimo.