Alþýðublaðið - 04.03.1993, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 04.03.1993, Qupperneq 3
Fimmtudagur 4. mars 1993 3 Full atvinna möguleiki ef við viljum Norræna verkalýðssambandið sem erfulltrúi fyrir 7,6 milljónir launafólks á Norðurlöndunum afhenti forsætisráðherrum Norðurlandanna eftiifarandi til- lögur um atvinnumál ífyrradag: Norræna verkalýðssambandið (NFS) tel- ur atvinnuleysið vera lang alvarlegasta vandamálið á Norðurlöndunum öllum. Nú eru 1,5 milljónir atvinnuleysingja á Norðurlöndunum. Atvinnuleysið bitnar þó á mun fleirum. Næstum því tvöfalt fleiri lenda í tímabundnu atvinnuleysi. Við þetta bætast fjölskyldumeðlimir og það óöiyggi sem tengist óttanum við að missa vinnuna. Atvinnuleysið snertir því alla, beint eða óbeint. Ef ekki er gripið til aðgerða hér og nú, munum við ekki aðeins sjá atvinnuleysið ná jafnvægi á óásættanlegu stigi, heldur haldi það jafnvel áfram að aukast. Það er ekki til nein afsökun fyrir því að gera ekkert við vandantálinu. Fullyrðingar um að við höfum ekki efni á að leysa at- vinnuleysisvandann eru rangar. Við höfum ekki efni á að gera ekki neitt. Atvinnuleysi þýðir að við framfærum fjölda fólks á óvirkan liátt, fólk sent bæði vill og getur tekið þátt í framleiðslunni ef störfin væru til. Atvinnuleysi er alltaf merki um skort á störfum. Það er einungis hægt að draga úr atvinnuleysi með því að skapa störf. Til styttri tíma er hægt að draga úr at- vinnuleysi með því að minnka framboð vinnuafls. Það er mikilvægt að slíkar að- gerðir til þess að draga úr framboði séu not- aðar á uppbyggjandi hátt, þannig að þær leiði af sér jákvæð áhrif til lengri tíma. Við berum öll ábyrgð á því að hrinda af stað aðgerðum til bæði skentmri og lengri tíma til þess að draga úr atvinnuleysi. NFS kynnir hér með ftmm sinnum ftntm tillögur til þess að bæta atvinnuástand á Norður- löndunum ftmm. Við vonum að ríkisstjóm- ir Norðurlandanna og atvinnurekendur taki við sér og taki þátt í uppbyggjandi umræð- um um: ★ Að beita sveiflujöfnunaraðgerðum sem virku hagstjómarkerfi. ★ Að vinna að alþjóðlega samhæfðri, þensluaukandi efnahagsstefnu. ★ Að auka fjárfestingar í samgöngukerf- um, umhverfismálum og rannsóknum. ★ Að auka hæfni vinnuaflsins með menntun. ★ Að nota vinnumarkaðsstefnuna á virk- an hátt. Sveiflujöfnunaraðgerðir Fjármálastefnan er enn mikilvægt tæki í efnahagsstjóm. I núverandi stöðu hagsveifl- unnar er flýting fjárfestinga í opinbera geir- anum nauðsynleg í öllum löndum. Það verður að beita virkum aðgerðum til þess að skapa aukinn vöxt, sem felur einnig í sér aukna atvinnu. Hlutverk sveiflujöfnunarað- gerða er að jafna sveiflur í hagkerfinu. Ein- ungis með því að auka eftirspumina á tím- um mikils atvinnuleysis og draga úr eftir- spum á tfmum fullrar atvinnu komumst við hjá hagsveiflum sem eru skaðlegar hagkerf- inu. Ef ekki er gripið inn með eftirspumar- hvetjandi aðgerðum á tímum þegar atvinna fer minnkandi, kemur hið lækkaða atvinn- ustig sjálft til með að skapa stöðugleika- stefnu á tímabilum þegar allt of mikil eftir- spum er eftir vinnuafli. Ef ekki tekst að minnka heildareftirspumina myndast of- þensla í hagkerfinu með auknum viðskipta- halla og verðbólgu sem afleiðingum. Það hefur því mikla þýðingu að fara út í aðgerðir eins og viðhald bygginga og fjár- festingar í samgöngubótum og fjarskipta- kerfum á samdráttartímum. Stöðugleiki í verðlagsmálum hefur afger- andi þýðingu, en hann má ekki fela í sér að áherslur til að draga úr atvinnuleysi lendi í öðm sæti. Að undanfömu hefur orðið vart við til- hneigingu í þá átt að einblína nær eingöngu á skipulagsvandamál í atvinnulífinu og leggja áherslu á skipulagsbreytingar sem leiðina lil að leysa atvinnuleysisvandann. Norræn verkalýðshreyfing neitar því ekki að þörf sé skipulagsbreytinga, en telur að ekki sé hægt að leysa atvinnuleysisvandann með skipulagsbreytingum einutn saman. Til þess að skipulagsbreytingar heppnist vel verða pólitískar og efnahagslegar aðstæður að vera stöðugar. Þeir sem lenda í skipu- lagsbreytingum verða að geta litið til stjóm- valda og skynjað öryggi. Við hvetjum því ríkisstjómir Norður- landanna til: að viðurkenna atvinnuleysið sem stærsta efnahagsvandamál nútfmans og hætta að nota fjárlagahalla og svipuð rök sent afsök- un fyrir aðgerðarleysi, að beita sveiflujöfnunaraðgerðum til þess að tryggja stöðuga efnahagsþróun, að tryggja að sveiflujöfnunaraðgerðir og skipulagsbreytingar fari saman, að nota núverandi samdráttarskeið til viðhalds og uppbyggingar í samgöngum og viðhaldi bygginga, að styðja viðleitni einkaaðila til orku- spamaðar og viðhalds íbúðarhúsnæðis. Alþjóðlega samhæft þenslustefna Öll Norðurlöndin em nú svo háð þróun- inni í öðmm löndum, að alþjóðleg efna- hagsstefna er nauðsynleg forsenda til lausn- ar vandans í efttahagsmálum. Aður fyrr hafði hvert einstakt ríki mögu- leika á því að örva hagkerfið á samdráttar- tímum og gat dregið úr hagsveiflunni með þenslustefnu í efnahagsmálum. Með frjálsu flæði fjármagns, vöm, þjónustu og vinnu- afls er þetta ekki lengur nægilegt. Ef hvert einstakt land framkvæmir einangrað um- talsverða þenslustefnu mun slíkt geta skap- að ný störf, en við höfum enga tryggingu fyrir því hvar þessi störf verða til. Hin aukna alþjóðlega samtvinnun hefur sem sagt í sjálfu sér leitt til þess að þörf er á al- þjóðlegri samvinnu. Þegar fleiri ríki beita í sameiningu samhæfðri efnahagsstefnu minnka neikvæðu áhrifin. Þetta var m.a. sýnt fram á með sameiginlegum rannsókn- um NFS og þýska alþýðusambandsins, DGB. Tilkoma innri markaðar EB og samstarf- ið innan EES felur einnig í sér skyldur fyrir þátttökulöndin til þess að tryggja sameigin- lega nauðsynlega efhahagsstefnu. Þörfin fyrir alþjóðlega samvinnu um hagstjóm og peningamál kom greinilega fram í sam- bandi við óróleikann í gjaldeyrismálum á síðasta ári. Með alþjóðlegri samvinnu finn- um við einnig til alþjóðlegrar ábyrgðar. Við styðjum því og bindum miklar vonir við ráðstefnuna þann 19. apríl 1993 þar sem fjármálaráðherrar frá EFTA og EB munu ræða sameiginlegar aðgerðir til að auka vöxt og atvinnu. Norðurlöndin verða sameiginlega að efla hjálparstarfið gagnvart Austur-Evrópuríkj- unum, nteð sérstakri áherslu á Baltísku rík- in og norðvesturhluta Rússlands. Efnahags- legur stöðugleiki hefur mikil áhrif á ltinn pólitíska stöðugleika. Ef við hjálpunt ekki þessum svæðunt minnka möguleikar þeirra á hagstæðri þróun. Núverandi hjálparað- gerðir frá Norðurlöndununt eru ósæmilega litlar. Ein af leiðunum til þess að ná upp vexti í hagkerfinu er að skapa litlum og meðalstór- unt fyrirtækjum fjárfestingarumhverll sent eykur möguleika þess. Til þess að auðvelda fyrirtækjunum aðgang að útflutningsmark- aði þarf að auka verulega bæði útflutnings- lán og aðstoð við alþjóðlega ntarkaðssókn. Við krefjumst þess að ríkisstjómimar vinni að því: að atvinnumálin fái forgang í alþjóðlegri efnahagssamvinnu, að unnið verði að sameiginlegri evrópskri efnahagsáætlun lil þess áð lækka vaxtastigið, að aðilum vinnumarkaðarins verði boðið að taka þátt í fundi fjármála- og efna- hagsmálaráðherra EFTA- og EB-ríkj- annaþann 19. aprfl 1993, að komið verði á samvinnu um aðstoð við baltísku ríkin og Norðvestur-Rússland, að öll Norðurlöndin auki stórlega útflutn- ingslán til Austur-Evrópu. í Nnrræna verkalýðssambandinu eru eflirtalin 11 verklýðssamtök: Danska Alþýðusambandið (LO) Samtök opinbera starfsmanna (FTF) í Danmörku Samtök háskólamanna (AC) í Danmörku Finnska Alþýðusambandið (SAK) Samtök háskólamanna (AKAVA) í Finnlandi Samtök tæknimanna (FTFC) í Finnlandi Alþýðusamband Islands (ASÍ) Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) Norska Alþýðusambandið (LO) Sænska Alþýðusambandið (LO) Samtök Opinberra Starfsmanna (TCO) í Svíþjóð Hagsmunir íslands tryggðir með hjálp annara Norðurlanda Frá Skúla G. Johnsen, Osló í gær: Á blaðamannafundi sem norrænir utanríkisviðskiptaráðherrar héldu að loknum fundi sínum sem haldinn er í tengslum við Norðurlandaráðsþing, sem nú stendur yfir í Osló, kom fram hjá Jóni Sigurðssyni, viðskiptaráð- herra, að rætt hetði verið uni það hvernig þau Norðurlönd sem sótt hafa um aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu muni reyna að tryggja að ekki myndist tollamúrar ntilli Islands annars vegar og þeirra Norðurlanda hinsvegar, sem gætu orðið aðilar að EB innan fárra ára. Með þessuin hætti yrði tryggt að ekki kæmi til þess, að fríverslun með fisk og aðrar vörur, sein nú eru í fullu gildi innan EFTA, verði ekki numdir úr gildi að því er Norðurlöndin varðar. Það kom fram í ntáli sænska utanríkis- viðskiptaráðherrans, að yfirstandandi samningar EB og Bandaríkjanna innan GATT gætu haft veruleg áhrif á það hvemig samningar við umsækjendur inn í EB muni fara fram. Fyrmefndu samning- amir séu langt komnir og margt í þeim Jón Sigurösson, iönaöar- og viðskiptaráðherra gæti orðið til þess að rýmka til muna þá stöðu, sem nú ríkir á alþjóðlegum við- skiptamarkaði. Utkoman úr samningunum innan GATT hefði því veruleg áhrif á framgang samninga um fjölgun ríkjanna í EB. FUJ Reykjavík Félag ungra jafnaðarmanna í Reykjavík heldur al- mennan félagsfund þriðjudaginn, 10. mars, í Ró- sinni, Hverfisgötu 8-10. Gestur fundarins verður s Þröstur Olafsson aðstoðarmaður ráðherra og annar formanna Tvíhöfðanefndar- innar Hann mun ræða um smábátaútgerðina og reyfa þær hugmyndir sem upp hafa verið í nefndinni um málefni hennar Allir félagar eru hvattir til að mæta Stjórnin Velkomin til Bandaríkjanna Sérstakt tilboð ríkisstjórnar Bandaríkjanna gefur þér nú tækifæri til að flytjast til Bandaríkjanna með innflytjendaleyfi til frambúðar samkvæmt AA-1 kerfinu, verðir þú fyrir valinu. Þú getur fengið tækifæri til að lifa og starfa í Bandaríkjunum með fast aðsetur (handhafi Græna kortsins). Síðasti frestur til að sækja um rennur út 31. mars 1993. Þú þarft því að bregðast við tímanlega til að vera réttu megin við umsókn- arfrestinn. Þú eða annað hvort foreldra þinna verður að hafa fæðst á íslandi/Bretlandi/írlandi til að eiga möguleika. Sendið póstávísun upp á $45 fyrir hvern umsækjanda sem ósk- ar eftir skjótri skráningarþjónustu ásamt eftirfarandi upplýsing- um, sem skrifa þarf skýrt og greinilega á ensku: Nafn umsækjanda, heimilisfang, fæðingardagur og ár, fæð- ingarstaður, nafn maka, ef umsækjandi er í hjónabandi, og nöfn og heimilisföng barna yngri en 21 árs, séu þau ekki í hjónabandi. Sendið póstávísun upp á 45 Bandaríkjadali fyrir hvern um- sækjanda, sem stílaður er á: Visa USA, P.O. Box no. 822211, Dallas, Texas 75382, U.S.A. Jay Jacobson, VISA U.S.A. 7604 Fair Oaks, Suite 200B, Dallas, Texas, U.S.A. sími: (214) 497-1737 fax: (214) 342-0953

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.