Alþýðublaðið - 04.03.1993, Síða 5
5
Fimmtudagur 4. mars 1993
Jón Baldvinsson formaður Alþýðuflokks-
ins flutti frumvörp árin 1924,1925 og 1926
um gagngerar breytingar á fátækralöggjöf-
inni og auknum mannréttindum bótaþega.
Þær náðu hins vegar ekki fram að ganga.
Málununt var vfsað til nefndar sem skilaði
aldrei áliti. Ríkisstjómin lagði hins vegar
fram breytingar á fátækralöggjöfinni árið
1927 og var frumvarpið samþykkt án telj-
andi breytinga 1928.
Alþýðuflokkurinn hélt hins vegar áfram
að knýja á um veigamiklar breytingar.
Héðinn Valdintarsson gerði til að mynda
margar breytingar við frumvarp ríkis-
stjómarinnar. Tvær þeirra vom algjör ný-
mæli. Önnur var sú að „ríkið allt“ skyldi
vera „sameiginlegt framfærslufélag." Hver
sá sem hafði íslenskan ríkisborgararétt
skyldi eiga „framfærslurétt í dvalarsveit
sinni." Hin tillagan var unt jöfnun fram-
færslukostnaðarins. Tillögur Héðins náðu
ekki fram að ganga á þinginu.
Meginstyrinn á Alþingi átti þó eftir að
snúast um þær grunnhugmyndir sem Héð-
inn Valdimarsson og aðrir alþýðuflokks-
rnenn höfðu beitt sér fyrir. Engar stórvægi-
legar breytingar gerast fyrr en í árslok 1934
er Haraldur Guðmundsson atvinnumála-
ráðherra skipar nefnd til að undirbúa lög-
gjöf um almennar tryggingar og til þess að
gera breytingar á fátækralöggjöfinni.
Alþýðutryggingarnar: Stærsta
framfarasporið
Eftir kosningar til Alþingis 1934 mynd-
uðu Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur
ríkisstjóm undir forsæli Hermanns Jónas-
sonar. Fjánnálaráðherra varð Eysteinn
Jónsson en atvinnumálaráðherra Haraldur
Guðmundsson, sem fyrstur gegndi ráð-
herraembætti að hálfu Alþýðuflokksins.
Milliþinganefndin sem Haraldur Guð-
mundsson skipaði í árslok 1934 endur-
skoðaði fátækralögin og undirbjó trygg-
ingalöggjöf. Mikiivægar breytingar voru
gerðar á fátækralöggjöfinni þar sem sveit-
festatíminn var afnuminn með öllu, hver
maður skyldi eignast framfærslurétt í
heimasveit sinni, sveitarflutningar voru af-
numdir og ríkissjóði gert að jafna fram-
færslukostnað sveitarfélaga.
Á þinginu 1935 var að tilhlutan Haralds
Guðmundssonar atvinnumálaráðherra lagt
fram í neðri deild fmmvarp um alþýðu-
tryggingar sem milliþinganefndin hafði
saniið. Flutningsmenn voru allir þingmenn
Alþýðuflokksins í deildinni. Sjálfstæðis-
menn sem voru í stjómarandstöðu, fluttu
nokkrar breytingartillögur við frumvarpið
en lýstu yfir stuðningi við meginhugsun
þess. Talsverðar umræður og deilur urðu
milli stjómarsinna og stjómarandstöðu um
atvinnuleysistryggingar. Hinn mikli og rót-
tæki lagabálkur sent Alþýðuflokkurinn átti
stærstan heiður að, varð að lögum 1. febrú-
ar 1936. Til framkvæmda komu lögin 1.
apríl sama ár. Gils Guðmundsson segir
orðrétt í bók sinni: „Mun ekki ofmælt, þótt
fullyrt sé, að setning þessarar löggjafar
ásamt framfærslulögunum nýju, sem fyrr
getur, sé stærsta framfaraspor í sögu ís-
lenskra félagsmála fyrrog síðar. Alla stund
síðan hefur verið á þeint grundvelli byggt,
sem þá var lagður og tryggingamar smám
saman auknar og efldar...“
Tryggingastofnun ríkisins
Lögin frá 1936 lögðu drögin að Trygg-
ingastofnun ríkisins. Hún var lögum sam-
kvæmt í fjórum deildum: Slysatrygginga-
deild, sjúkratryggingadeild, elli - og ör-
orkutryggingadeild og atvinnuleysistrygg-
ingadeild. Auk hinna eiginlegu alþýðu-
trygginga var stofnuninni falið að hafa með
höndum stjóm lífeyrissjóða embættis-
manna, bamakennara og ljósmæðra. Ríkis-
stjóm hafði yfirstjóm og umsjón með al-
þýðutryggingunum, ráðherra félagsmála
réði forstjóra Tryggingastofnunarinnar,
svo og deildarstjóra og tryggingayfirlækni,
að fcngnum tillögum forstjórans.
Ráðherra skipaði einnig þriggja manna
tryggingaráð.
Tiyggingalögin voru veigamikil og
margþætt og því eðlilegt að þau væru end-
urskoðuð og bætt. Á Alþingi 1937 voru
lögð l'ram þrjú frumvörp um mismunandi
veigamiklar breytingar á tryggingalöggjöf-
inni. Eflir allmiklar umræður varð frum-
varpið að lögum með nokkrum breyting-
um. Helstu ákvæði hinna nýju laga snertu
skipun tryggingaráðs, verksvið trygginga-
ráðs, tryggingaráð og sjúkrasamlög (nt.a.
að Tryggingastofnunin skipi formenn allra
sjúkrasamlaga), slysatryggingar, sjúkra-
tryggingar og elli - og örorkutryggingar.
Fyrsti forstjóri Tryggingastofnunar rík-
isins var skipaður Brynjólfur Stefánsson
sem þá var framkvæmdastjóri Sjóvátrygg-
ingafélags íslands. Fyrstu húsakynni
Tryggingastofnunar voru í hinu nýbyggða
Alþýðuhúsi á homi Hverfisgötu og lng-
ólfsstrætis þar sem m.a. Alþýðublaðið er
nú til húsa.
í ársbyrjun 1938 lét Brynjólfur Stefáns-
son af forstjórastörfum en Jón Blöndal
gegndi forstjórastarfmu um þriggja mán-
Starfsfólk Tryggingastofnunar ríkisins á ferðalagi 1953.
kjölfar þessara breytinga, eins og hækkað
verðlag. Til að draga úr kjaraskerðingunni
var gripið til ýmissa ráðstafana eins og
hækkana á bótum almannatrygginga.
Heildarbótagreiðslur almannatrygginga
um það bil tvöfölduöust. Tryggingakerfið
efldist stórlega.
Endurskoðun laga um almannatrygging-
ar hélt áfram. Ýntsar breytingar á löggjöf-
inni hafa verið samþykktar í gegnum árin
til að endurbæta almannatryggingakerfið.
Gils Guðmundsson rekur helstu lagabreyt-
ingamar gegnunt tíðina frá stofnun Trygg-
ingastofnunar og frá setningu almanna-
tryggingalaganna. Þannig má nefna lög um^
lífeyrissjóði, breytingar á tjölskyldubótum,
hækkun á fæðingarorloli og ekkjulífeyri og
inargar fleiri. Hugntyndir um einn sameig-
inlegan lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn er
frá sjöunda áratugnunt en mál þetta hefur
öðm hvoru flotið upp sem kosningamál
síðan, síðast sem stór liður í stefnuskrá Al-
þýðuflokksins fyrir Alþingiskosningamar
1987.
Með breytingu á skiptingu ráðuneyta í
ársbyrjun 1970 var nýtt ráðuneyti stofnað
að hluta til úr félagsmálaráðuneyti og að
hluta til úr dóms - og kirkjumálaráðuneyti.
Ráðuneytið hlaut nafnið Heilbrigðis - og
tryggingamálaráðuneytið.
Fyrsti ráðherra þessa nýja ráðuneytis var
Eggert G. Þorsteinsson. Sama ár skipaði
Eggert G. Þorsteinsson nefnd til að endur--*"-
skoða gildandi lög um almannatryggingar.
Árangurinn var fmmvarp að nýrri heildar-
löggjöf um almannatryggingar. Þær endur-
bætur voru um margt róttækar. Ýmsar aðr-
ar endurbætur hafa farið fram á trygginga-
löggjöfinni síðan og síðasta endurskoðun-
amefnd almannatryggingalaga starfaði á
aða skeið en 7. apríl var Haraldur Guð-
ntundsson skipaður forstjóri. Gegndi hann
þeirri stöðu til ársins 1957 er hann varð
sendiherra í Osló.
Almannatrygeingar
sjá dagsins ljós
Alþýðutryggingalögin voru í stöðugri
endurskoðun. Árið 1943 var þremur sér-
fróðum mönnum falið að hálfu félagsmála-
ráðherra að undirbúa heildarlöggjöf um al-
mannatryggingar.
í októbemiánuði 1944 var ntynduð ný
ríkisstjóm undir forsæti Olafs Thors, hin
svonefnda nýsköpunarstjóm. Að stjóminni
stóðu Sjálfstæðisflokkur, Alþýðuflokkur
og Sósíalistafiokkur. Hin nýja stjóm setti
sér m.a. það markmið að koma á almanna-
tryggingum á Islandi.
Það kom í hlut Finns Jónssonar félags-
málaráðherra (Alþýðuflokki) að sjá um
undirbúning löggjafar um almannatrygg-
ingar á Islandi. Nefnd sem félagsmálaráð-
herra skipaði til að undirbúa löggjöfina
sendi frá sér stórfróðlega álitsgerð sem gef-
in var út árið 1945 undir heitinu „Al-
mannatryggingar á íslandi. - Skýrslur og
tillögur uin almannatryggingar, heilsu-
gæslu og atvinnuleysismál." Milliþinga-
nefnd var sett á laggimar til að vinna úr
álitsgerðinni undir forystu Haralds Guð-
mundssonar og var fmmvarp til laga urn al-
mannatryggingar fullsamið í nóvember
1945. Það varð að lögum 7. maí 1946 og
tóku lögin gildi 1. janúar 1947.
í bók Gils segir um hina nýju löggjöf:
„Með almannatryggingalögunum vom
gerðar stórfelldar breytingar á alþýðu-
tryggingalögunum frá 1936. Meginstefnan
var að sameina í eitt allsherjar trygginga-
kerfi sem flestar tryggingar og ýmsa opin-
bera forsjá, og nái það til hvers einasta
þjóðfélagsþegns frá vöggu til grafar."
Hér má til dæmis nefna, að gmndvelli
ellitrygginga var gjörbreytt og úthlutun og
greiðsla elliktuna flutt frá sveitarfélögum
og falin Tryggingastofnun ríkisins. Svið
trygginga var víkkað vemlega. Rétt til líf-
eyris öðluðust allir þeir sem orðnir voru 67
ára án tillits til efnahags, að undanskildum
þeim sem nutu lífeyris úr sérstökum eftir-
launasjóðum. Þá var tekið upp það nýmæli
að greiða bamalífeyri til ekkna, elli - og ör-
orkulífeyrisþega sem höfðu á framfæri
sínu böm innan 16 ára aldurs. Fjölskyldu-
bætur vom einnig nýmæli í lögununt,
sömuleiðis ekkjubætur og sjúkrabætur,
öðru nafni sjúkradagpeningar. Þá var gert
ráð fyrir að koma á fót almennri heilsu-
gæslu og samkvæmt hinum nýju lögum var
skylt að reka sjúkrasamlög í öllum kaup-
stöðum landsins svo og í þeim hreppum
sem það kusu. Tryggingastofnun var falið
að hafa á hendi yfirstjómun allra sjúkra-
samlaga. Frá og með 1. október 1951 urðu
allir landsmenn sjúkratryggðir þar eð svo
var fyrir mælt að stofnuð skyldu sjúkra-
samlög alls staðar á landinu.
Viðreisnin stórefldi
tryggingakerfið
Bætur til almennings jukust stórlega á
Starfsfólk Læknadeildar Tryggingastofnunar í októbcr 1986.
Evjólfur Jónsson skrifstofustjóri Tryggingastofnunar ríkisins 1949 -1991.
sjötta áratugnum með vaxandi framlagi til
tryggingamála. Viðreisnarstjómin svo-
nefnda sem mynduð var í árslok 1959 af
Alþýðuflokki og Sjálfstæðisflokki beitti
sér einkum fyrir því að koma atvinnulífi
þjóðarinnar á traustan grundvöll með því
að auka markaðsstefnu og draga úr ntið-
stýringu og bótakerfi atvinnuveganna.
Ákveðin kjaraskerðing fylgdi í fyrstu í
ámnum 1988 - 1991 undir fonnennsku
Finns Ingólfssonar aðstoðarmanns heil-
brigðisráðherra.
Sífellt viðameiri bætur
Atvinnuleysistryggingar hljóta veglegan
kafla í bók Gils Guðmundssonar unt sögu
Tryggingastofnunar ríkisins. Einnig er^.
fjallað (tarlega um hin síðari ár líkt og
frumbýlisárin. Frant kemur að allt frá því
að fyrsta heildarlöggjöfin á sviði almanna-
trygginga var sett árið 1936, hafi hún verið
í stöðugri endurskoðun og miklum breyt-
ingum háð.
Fjöldi þeirra einstaklinga sem fengu
bætur frá Tryggingastofnun fór stöðugt
vaxandi allt fram á áttunda áratuginn enda"*^ *
bættust nýir bótaflokkar við og verksvið
annarra færðir út. Til samanburðar má
nefna, að árið 1950 vom bótaþegar alls unt
19 þúsund en árið 1990 vom þeir orðnir
alls um 50 þúsund.
I dag stjómar forstjóri Tryggingastofn-
unar ríkisins stolnuninni og ber ábyrgð á
rekstri hennar gagnvart tryggingaráði ann-
ars vegar og ráðuneyti hins vegar. Trygg-
ingaráð sem er kosið af Al|iingi skal hafa
eftirlit með fjárhag, rekstri og starfsemW*.
Tryggingastofnunar og gæta þess að hún
starfi í samræmi við lög og reglur.
Helstu deildir Tryggingastofnunar í dag
eru lífeyrisdeild, sjúkra - og slysatrygg-
ingadeild, innheimtu - og lánadeild, bók-
haldsdeild, gjaldkeradeild, afgreiðsludeild,
afgreiðslu - og tölvudeild og endurskoðun-
ardeild. Auk þess sérTryggingastofnun ura
rekstur og afgreiðslu ýmissa sjóða.
Forstjórar Tryggingastofnunar ríkisins
hafa verið sjö til þessa, Brynjólfur Stefáns-
son(1936- 1937), Jón Blöndal(íþrjámán-
uði árið 1938), Haraldur Guðntundsson
(1938 - 1957), Sverrir Þorbjömsson (1957
- 1970), Sigurður Ingimundarson (1970 -
1978) , Gunnar J. Möller (1970 og 1978 -
1979) og Eggert G. Þorsteinsson sem verið ~
hefur forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins
frá 1979.