Alþýðublaðið - 05.03.1993, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 05.03.1993, Blaðsíða 5
Föstudagur 5. mars 1993 Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra svarar spurningum Alþýðuhlaðsins um bankakerfið og vaxtamál 5 Sígandi lukka er best Bankakerfið og vaxtamálin hafa verið mikið til umræðu að undanförnu. Mörg- um þykir að vcxtir séu háir. Ekki síst kemur þetta niður á fyrirtækjum og ein- staklingum seni eru skuidum vafnir vegna íbúðakaupa. Vextir og bankamál koma mjög við sögu þegar rætt er um gerð nýrra kjarasamninga. Æðsti yfir- maður bankamála í landinu er viðskipta- ráðherrann, Jón Sigurðsson. Alþýðu- blaðið tók hann tali og beindi nokkrum spurningum til hans í vikunni. Það virðist vera almennt viðhorfað vext- ir hér á landi séu of háir og standi efna- hagsbata fyrirþrifum. Af liverju lœkka þá ekki vextirnir? Það er satt að vextir hafa verið nokkuð háir hér á landi um skeið. Ég bendi hins veg- ar á að vextir hafa verið háir í flestum ná- grannaríkjum okkar á undanfömum árum og einstaklingar og fyrirtæki víða um lönd þurft að greiða hærri vexti en hér á landi. Hér á landi hafa mikil lánsfjárþörf opinberra aðila og tiltölulega lítill spamaður þjóðar- innar viðhaldið háum vöxtum. Með aðhaldi í ríkisfjármálum hefur hins vegar dregið úr lánsfjárþörf opinbetra aðila. Aðstæður hafa því skapast fyrir lækkun vaxta sem þegar er farið að gæta í bankakerfinu, á verðbréfa- markaði og í útboðum ríkisvíxla. Framund- an gæti því verið vaxtalækkun ef stöðug- leiki í verðlags- og launamálum helst. Afhverju flýta stjórnvöld ekki fyrirþess- ari þróun og lœkka vextina með handafli? Reynsla síðasta árs sýndi að vaxtalækkun sem stjómvöld knýja fram fær ekki staðist ef hún er meiri en aðstæður á fjármagns- markaði gefa tilefni til. Nú þurfa stjómvöld að gæta þess að fylgja eftir þeirri vaxtalækk- un sem þegar hefur orðið með því að beita stjómtækjum peningamála til að lækka vextina enn frekar. Það má hins vegar ekki gerast í óraunhæfunt stökkum, sígandi lukka á best við núna. Bendir afkoma bankanna ekki til þess að vextir muni varla lœkka að ráði, þeir þurfa jú ákveðinn vaxtamun til að standa undir rekstrinum? Vegna samkeppni erlendis frá, frá fjár- festingarlánasjóðum, eignarleigufyrirtækj- um og öðrum aðiium á innlendum fjár- magnsmarkaði geta bankamir ekki haldið uppi háum útlánsvöxtum til lengdar. Þegar innlánsvextir eru mjög lágir verða bankar að leita allra leiða til að hagræða í rekstri svo þeir geti dregið úr vaxtamun og lækkað þar með útlánsvexti. Þeir hafa þegar gripið til ýmissa aðgerða en verða greinilega að gera enn betur. Þú hefur verið talsmaður þess að breyta ríkisbönkunum tveimur í hlutafélags- banka og selja síðan hlutabréf ríkisins í öðrum eða báðum eftir því sem aðstœður leyfa? Sýna ekki erfiðleikar í bankarekstri á Norðurlöndum að það sé traustast að hafa ríkisbanka? Alls ekki. Erfiðleikar banka á Norður- löndum stafa ekki af eignarhaldinu heldur fyrst og fremst af þrengingum t efnahags- málurn og ógætilegri útlánastefnu. Ég tel einmitt að það sé meiri hætta á að ríkisbanki sýni óvarkámi í útlánum sínum en einka- banki sem býr við aðhald frá hluthöfum. Út- vegsbankamálið sýndi einmitt þetta. Einnig tel ég að einkabankar bregðist fyrr við versnandi afkomu n ríkisbankar með að- haldi í rekstri og öðrum aðgerðum. Erfiðleikar banka á Norðurlöndum og veruleg útlánatöp íslenskra banka sýna okk- ur að það getur verið afar varasamt að treysta um of á veð fyrir skuldum. Þess í stað verður að leggja aðaláhersluna á þau verkefni sem verið er að lána til og arðsemi þeirra og meta þetta af miklu raunsæi. Ég bendi líka á að engri ríkisstjóm á Norðurlöndum, þar sem bankar hafa lent í vandræðunt og ríkið hefur þurft að koma þeim til bjargar, hefur dottið í hug að breyta hlutafélagsbönkum í ríkisbanka. Þvert á móti vilja menn reka bankana á sama formi, hlutafélagsforminu, til að skapa eðlileg samkeppnisskilyrði. / síðasta rnánuði voru samþykkt á Al- þingi þrenn ný lög um verðbréfamarkað- inn. A hvern liátt snertirþessi nýja löggjöf almenning? yggissjónarmið sitja hér í fyrirrúmi. Þút hefur haft forgöngu um aukið frelsi í gjaldeyrismálum. Er ekki varhugavert að leyfa stórum aðilum, eins og lífeytissjóð- um, að flytjafé úr landi á sama tíma og at- vinnuleysifer vaxandi og atvinnulífmu hér á landi sárvantar áhœttufé til uppbygging- ar? Boð og bönn í gjaldeyrismálum, sem á öðrum sviðum viðskiptalífsins, hafa hvorki gefist þessari þjóð né öðrum vel. Um það er ótrúlega hratt fall kommúnistaríkjanna nær- tækasta dæmið. Með auknu frelsi í gjaldeyr- ismálum verður enn brýnna en áður að treysta undirstöður öflugs atvinnulífs þann- ig að lífeyrissjóðir og aðrir sjái sér hag í því að fjárfesta innanlands. Ég er reyndar þein- ar skoðunar að það sé eðlilegt að lífeyris- sjóðir kaupi erlend verðbréf og dreifi þann- ig þeirri áhættu sem jafnan er samfara því að fjárfesta í verðbréfum. Með auknum mögu- leikum til áhættudreifingar fá þeir jafnframt meira svigrúm en áður til að taka þátt í ný- sköpun íslensks atvinnulífs með iilutafjár- framlögum. Aðalatriðið er að lífeyrissjóðir og aðrir kunni fótum sínum foiráð við nýjar aðstæður í gjaldeyrismálum og láti ekki glepjast af skrúðmælgi erlendra sölumanna. Svo er það líka dálítið skondið að heyra sömu mennina halda því fram að mikil hætta sé á útstreymi fjár frá ísíandi um leið og þcir halda því fram að vextir séu hvergi hæn i en hér á landi. Hvort tveggja fær ekki staðist í senn. Er í þessu sambandi e.t.v. ástceða til að rýrnka enn frekar um heimildir útlendinga til að fjárfesta í íslensku atvinnulifijafnvel fiskveiðum og fiskvinnslu? Það er þegar búið að rýmka ntikið um heimildir erlendra aðila til að fjárfesta í at- vinnurekstri hér á landi. Ég hef nýlega flutt á Alþingi frumvarp um að þær reglur verði rýmkaðar enn frekar til samræmis við skuldbindingar okkar skv. EES-samningn- um. í því fmmvarpi erhins vegarekki hrófl- að við banni erlendra aðila til að fjárfesta í fiskveiðum og fiskvinnslu hér á landi. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að fara gæti- lega í því að heimila erlendum aðilum að fjárfesta í þessum greinum. Við eigum hins vegar að ræða þennan möguleika opinskátt og kanna kosti hans og galla til hlítar. I mín- um huga skiptir mestu máli að auðlindin sé sameign þjóðarinnar og að þjóðinni sé tryggður arðurinn af henni. I byrjun þessa mánaðar tóku gildi sam- keppnislög í stað verðlagslaga frá 1978. Skipta nýju lögin einltverju máli? Hér er um grundvallarbreytingar á lög- gjöfinni að ræða sem ég efa ekki að eigi eft- ir að koma almenningi til góða. Frá 1978 hafa orðið gífurlegar breytingar í þjóðfélag- inu, það hefur stórlega dregið úr verðlagsaf- skiptum en þess í stað hafa ýmis atriði varð- andi samkeppnismál farið vaxandi. Þessi þróun er staðfest í nýju lögunum þar sem meginmarkmiðið er efling virkrar sam- keppni en ekki verðlagsafskipti. Þá legg ég áherslu á að með þessari nýju löggjöf verð- ur auðveldara en áður að vinna gegn einok- un og hringamyndun og gegn samþjöppun efnahagslegs valds. Þetta hefur m.a. þýð- ingu í bankakerfinu. Að lokum Jón. Ertþií á leið ístarf seðla- bankastjóra? Bankaráð Seðlabankans, sem gerir tillögu til ráðherra um skipan í stöðu seðlabanka- stjóra, hefur. eftir því sem ég best veit. ekki rætt um hugsanlega eftirmenn þeirra tveggja seðlabankastjóra sem láta af starfi á þessu ári. Vangaveltur um að ég skipti um starf á árinu eru á þessu stigi einungis hugarflugs- æfingar þeirra manna sem ávallt hafa af því nokkra skemmtan að búa til sögitr um mannabreytingar í pólitík. Þessa dagana er ég með huga og hendur fuliar af spennandi verkutn í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytum og á Alþingi. „Vangaveltur um að ég skipti uin start a arinu eru á pessu stigi einungis hugarttugsætingar þeirra manna sem ávallt hafa af því nokkra skemmtan að búa til sögur um mannabrevtingar í pólitík.“ Með nýjum lögum um verðbréfavið- skiptþ um verðbréfasjóði og um Verðbréfa- þing Islands verður löggjöf á þessu sviði nú- tímalegri og jafnframt ítarlegri en áður. Þar er að finna fjölmörg ákvæði sem beinlínis eru til þess fallin að vemda hag þeirra sem ávaxta fé sitt á verðbréfamarkaði. Trúlega mun almenningur helst verða var breytinga á verðbréfasjóðunum því strangari reglur munu gilda um starfsemi þeirra en áður, einkum hvemig þeir ávaxta fé almennings og upplýsingaskyldu við almenning. Ör-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.