Alþýðublaðið - 05.03.1993, Blaðsíða 8
RAFGEYMAR
618401
MMðUBUÐIÐ
mm
RAFGEYMAR
618401
Veðhlaupahross sólgin í íslenskt gras
Fyrir harðfvlgi ýmissa aðila, meðal
annarra umhverfisráðherra, Eiðs
Guðnasonar, Gunnars Snorra Gunnars-
sonar, í utanríkisráðuneytinu, Einars
Sigurðssonar sendiráðsritara, Brynjólfs
Sandholt, yfirdýralæknis og Sigurðar
Sigurðssonar, formanns Sauðfjársjúk-
dómanefndar, hefur náðst lausn mála við
norsk yfirvöld um útflutning héðan á
Fersk-Gras framleiðslunni frá Stórólf-
svelli við Hvolsvöll.
Til Stórólfsvallabúsins hafa borist pant-
anir frá Noregi upp á rúm 400 tonn frá ára-
mótum, og hefur búið ekki getað annað eft-
irspum að sögn Sigurbjöms A. Friðriksson-
ar, framkvæmdastjóra Fersk-Gras. Fyrir-
tækið hefur þurft að sinna viðskiptavinum í
tólf löndum, sem keypt hafa íslenskt, ferskt
gras síðan 1989, þegar starfsemin hófst.
En Norðmenn hafa mikinn áhuga á hey-
inu. Sigurbjöm segir að Norðmenn haft hug
á viðbótarpöntunum upp á 500 tonn til við-
bótar, sem afgreiðast eiga nú í vor og næsta
haust og vetur. Á annað hundrað tonn voru
flutt út til annarra landa fyrir síðustu áramót,
aukningin á þessu ári verður því veruleg.
HorseHage/Fersk-Gras er framleitt hér á
landi með einkaleyfi frá Marksways Horse-
Hage, en það fyrirtæki útvegar breska
Olympíuliðinu í hestaíþróttum hágæða
hestafóður.
Vörunni er pakkað í 25 kílóa lofttæmdar
umbúðir og er nánast ferskt og gerjast í um-
búðunum og sagt vera hið mesta lostæti fyr-
ir sport- og veðhlaupahesta í Evrópu. I Nor-
egi og í Færeyjum bjóða menn öllum skepn-
um sínum þetta fóður.
Fersk-Gras á hinsvegar ekki miklar vin-
sældir hér á landi. íslenskt þurrhey er kjam-
gott og ódýrt á heimamarkaði, og verður því
fyrir valinu fremur en þessi framleiðsla
Stórólfsvallabúsins, sem kostar talsvert
meira fé.
Arthur Bogason
Enginn
botai í
hverju er
kasfað
Kristjáni Þórarmssyni svarað
Kristján Þórarinsson, stofnvistfræðingur hjá LÍÚ,
er föðurlegur við ritstjóra Alþýðublaðsins þann 3.
mars s.l þegar hann „leiðréttir“ skrif blaðsins frá því
25. febrúar s.l. í leiðaranum er því haldið fram að
færa megi að því sterk rök að“... meira magn þorsks
megi afla úr stofni af tiltekinni lífþyngd á króka en
önnur veiðarfæri“. Telur Kristján að leiðarhöfundi
blaðsins hafi orðið það á að „ganga út frá röngum
upplýsingum hvað íslenskar þorskveiðar varðar...“
o.sv.frv.
Kristján er hins vegar með réttu upplýsingamar að
hann telur og vitnar þar.í samantekt upplýsinga frá Haf-
rannsóknastofnun um aldursdreifingu og meðalþyngd í
þorskafla eftir veiðarfæmm. Skýrsla sú er leiðarahöfund-
ur Alþýðublaðsins notar sér til stuðnings er unnin af
tveimur erlendum fiskifræðingum, Asmund Bjömdal frá
Noregi og Finnanum Taivo Leavastu. Niðurstaðan er
ótvíræð krókaveiðum í hag en í stað þess að taka til ræki-
legrar skoðunar hverju þessi niðurstaða sæti kýs Kristján
Þórarinsson að nota einungis súlurit Hafrannsóknastofn-
unar sem segja aðeins hluta sannleikans.
Það sem Krisján kýs að minnast ekkert á er kjami
málsins:
í hinu svokailað „krókakerfi" er engin hvatning til að
henda fiski; menn koma með það að landi sem þeir afla.
Raunar er í fyrirkomulagi krókakerfisins nú beinlínis
hvattning til að koma með allt að landi. Svokölluð línu-
tvöföldunartímabil hefur svipaða innbyggða hvata, þó
ekki eins augljósa og í hinu tilfellinu.
í mínum huga er þetta kostur: Stýrikerfið á veiðunum,
sem gerir það að verkum að það er veiðimanninum í hag
að kasta hluta þess sem hann fangar, er vont kerfi. Það er
kunnara en frá þurfi að segja, að aflamarkskerfið býður
þeirri hættu heim að fiski sé kastað. Enginn botn hefur
fengist í hversu mikið magn er þar á ferðinni og svo sorg-
lega vildi til að könnun sú sem samstarfshópur um bætta
umgengni við auðlindir sjávar ætlaði að framkvæma á úr-
kasti frá botnvörpuskipum mistókst.
Önnur athyglísverð hlið á þessu máli er sú staðreynd
sem Kristján minnist á að eftir allar æfingamar með
möskvastærðina. svæðislokanir og margra ára linnulaus-
ar rannsóknir á botnvörpunni til að auka valhæfileika
hennar hefur ekki tekist betur til en raun ber vitni. Engar
rannsóknir hafa hins vegar verið framkvæmdar á línunni
eða handfærum á því sviði.
Þaðer íþessu sem stofnvistfræðingnum ætti að finnast
súlutit Hafrannsóknastofnunar forvitnilegt.
WlNDOWS FOR WORKGROUPS
ENN EIN SNILLDARIAUSN FRÁ MlCROSOFT
FORDRKGRDUPS
TENGSL
SEM BORGA SIG HRATT
SAMNÝTINC
FORRITA OC GAGNA
LEIÐIR TIL HAGKVÆMNI
OG HRAÐARI VINNSLU
Windows fyrir vinnuhópa
er eina netkerfið sem hefur
innbyggt dagbókarkerfi
og tölvupóst jafnhliða pví
sem það gefur möguleika
á samnýtingu hugbúnaðar,
gagna, prentara
og annarra jaðartækja.
SAMNÝTINC
ARA OC JAÐARTÆKJA
SPARAR FÉ
OG NÝTIR BETUR GÖGN
DAGBÓKARKERFI
HUGVITSSAMLEG LAUSN
TIL BETRI SKIPULAGNINGAR
OG NÝTINGU TÍMANS
TÖLVUPÓSTUR
FRÁBÆR LEIÐ TIL AÐ BÆTA SÁMSKIPTW
JAFNT INNAN HÚSS SEM ÚT Á VIÐ
Windows fyrir vinnuhópa hefur verið prófað og viðurkennt
af íslenskri forritaþróun, Ráðhugbúnaði, Kerfisþróun, TOK, og Streng
EINAR J. SKULASON HF
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík, Sími 63 3000