Alþýðublaðið - 09.03.1993, Page 1
Opinberir staifsmenn hafna verkfalli
Veikir forystuna
- segir Haukur Helgason skólastjóri - hún áttaði sig ekki
á raunverulegum vilja félagsmanna sinna
Mcirihluti félagsmanna opin-
berra starfsnianna hefur hafnað
verkfallsboðun frá og með 22.
mars í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Innan Kennarasambands Islands
var tillaga stjórnar um verkfail
felld með 1.635 atkvæðum
(49,5%) gegn 1.493 (45,2%). Inn-
an BSRB felldu 16 félög af 23 að-
ildarfélögum samninginn.
Haukur Helgason skólastjóri í
Hafnarfirði, sem lengi starfaði inn-
an vébanda BSRB og síðar KÍ, var
einn þeirra sem taldi óskynsamlegt
að efha til verkfaliá nú. Hann sagði
við Alþýðublaðið í gær, að kosning-
in um verkfall hefði einungis orðið
til þess að veikja forystu opinberra
starfsmanna og greinilegt væri að
hún hefði ekki áttað sig á raunveru-
legum vilja sinna félagsmanna.
Haukur segir að ljóst hafi verið að
svigrúm til samninga hafi verið
mjög lítið og staðan erfið. Akvörð-
un um atkvæðagreiðslu hafi aðeins
orðið til að veikja samstöðuna. Fé-
lagsmenn hefðu bara borið tjón af
því að boða til verkfalls. Ef kennar-
ar hygðu á verkfall væri haustið rétti
tíminn til þess.
I atkvæðagreiðslu BSRB greiddu
samtals 4.865 atkvæði gegn verk-
falli eða 55,8% en 3.607 með því
eða 41,4%. Þau sjö félög innan
BSRB sem samþykktu að fara í
verkfall hafa ákveðið að boða ekki
til verkfalls 22. mars. Félögin sem
samþykktu verkfallsboðun voru
starfsmannafélögin á Neskaupstað,
Borgamesi, og Kópavogi, Lands-
samband slökkviliðsmanna, Fóstru-
félag íslands og félög opinberra
starfsmanna á Austurlandi og Suð-
urlandi.
Samhand Alþýðuflokksfélaga á Suðurnesjum
Vill eignarhaldsfélag
tll atvinnusköpunar
Faghar hugmyndum um að 300 milljónum króna
frá Islenskum Aðalverktökum verði varið tilfjáifestingar
í atvinnulífi Suðurnesja
Samband Alþýðuflokksfélaga á
Suðumesjum fagnar framkomnum
hugmyndum íslenskra aðalverktaka
um 300 milljón króna fjárfestingu
þeirra í arðbærri atvinnuuppbygg-
ingu á Suðumesjum nú á næstunni.
A fundi sambandsins, sl. laugar-
dag, var jafnframt skorað á sveitar-
stjómir á Suðumesjum að taka já-
kvætt í stofnun eignarhaldsfélags í
hlutafélagaformi, sem hafi það að
markntiði að fjárfesta í atvinnu-
skapandi og arðbærri atvinnuupp-
byggingu á Suðurnesjum.
Sambandið bendir „á nauðsyn
þess að heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytið setji hið fyrsta á laggim-
ar opinberan starfshóp sem hafi það
verkefni, að leggja drög að stefnu-
mörkun, markmiðum og framtíðar-
skipan í heilbrigðismálum okkar Is-
lendinga þar sem nokkuð augljóst
virðist að núverandi kerfi standist
ekki þær kröfur sem gerðar munu
verða til þess þegar til lengri tíma er
horft"
Sambandið segir sama gilda um
lífeyrissjóðakerfið sem sé fyrir
löngu gengið sér til húðar. Þá fagn-
aði sambandið því að nægjanlegt
framkvæmdafé fékkst á tjárlögum
til að ljúka framkvæmdum við
seinni áfanga hjúkrunardeildarinnar
í Víðihlíð á árinu.
Heimsmeistarakeppnin í Svíþjóð
- búist við hundruðum íslenskra stuðn-
ingsmanna í Gautaborg
Mikil stenunning ríkir nú með-
al Islendinga í Gautaborg vegna
Heimsmeistarakeppninnar í
handbolta sem hefst í dag.
Hundruð íslenskra stuðnings-
manna frá öðrum borgum í Sví-
þjóð, Noregi og Danmörku hafa
lagt leið sína til Gautaborgar til
þess að styðja við bakið á hand-
boltalandsliðinu, auk þess sem
um 1000 íslendingar eru búsettir
á Gautaborgarsvæðinu og munu
margir mæta og hvetja landann.
íslcnska landsliðið leikur í C- riðli
keppninnar og fara allir leikir
þess riðils fram í Scandinavium
íþróttahöllinni í Gautaborg.
Undirbúningur á vegum Islend-
ingafélaganna í Svíþjóð hefur stað-
ið yfir síðan í haust og hefur sérstök
undirbúningsnefnd skipulagt dag-
skrá fyrir íslensku stuðningsmenn-
ina á meðan á keppninni stendur, í
samvinnu við HSI. Islenski hópur-
inn hefur hreiðrað um sig á krá í
miðborg Gautaborgar sem nefnist
Rix. Þar gefst stuðningsmönnum
kostur á að hittast, bæði fyrir og eft-
ir leiki íslenska liðsins, en aðeins er
um 10 mínútna gangur frá Rix-
kránni til Scandinavium þar sent
keppnin fer fram.
Jón Ólafur Björgvinsson formað-
ur undirbúningsnefndarinnar segir
að það sé mikill áhugi fyrir heims-
meistaramótinu meðal Islending-
anna sem búsettir eru á Norðurlönd-
um og því niegi búast við fjölmennu
stuðningsmannaliði á leikina. „Það
er ætlunin að reyna að hita-upp fyrir
leikina með því að hittast á þessari
krá, sem reyndar er stuðnings-
mannakrá IFK Göteborg, þegar fót-
boltavertíðin stendur yfír. Síðan
verður auðvitað safnast saman eftir
leikina og þá gefst mönnum kostur
á að horfa á þá aftur á myndbandi,
en á staðnum er búið að koma fyrir
stórum sýningarskjá og 6 minni
sjónvarpsskjám. Nú, það ætti að
vera auðvelt fyrir landann að finna
staðinn því íslenski fáninn mun
blakta þar fyrir utan á meðan á
keppninni stendur", sagði Jón Ólaf-
ur handboltaáhugamaður í Gauta-
borg.
Fornmenn og fagrar meyjar
Aðsóknin að stærstu hárgreiðslu-, tískulínu- og fiirðunarkeppni ársins, seni fram fór um hclgina. var meiri en oft gerist á landsleikjum í þeini góða leik, handbolta.
Á annað þúsund nianns horlði á litríka og vel undirbúna skemmtan, og á þriðja hundrað tóku þátt í þessari alþjóðlegu keppni, sem dró hingað fólk frá vmsum
heimshornum. Mikið var um að vera og keppt var á 6 stöðum í húsinu í einu. Hér getur að líta fornmenn ieðurklædda og hispursmeyjar í einu atriða sýningarinn-
ar, sem tímaritiö Hár og fegurð gcngst fvrir árlega. A-mvnd E.ÓI.
HM í handbolta hefst í dag
Pressan er á Svíum
- segir Kristján Arason, en spáir engu að síður að Svíar vinni Islendinga
22-19 ífyrsta leik liðanna í mótinu
íslcnsku handknattleikslands-
liðið leikur sinn fyrsta leik á
Heimsmeistaramótinu í Svíþjóð í
dag kl. 18. Leikið verður gegn
Svíum í Gautaborg. Hinn kunni
handknattleiksmaður og þjáll'ari
Kristján Arason, sem lék með
landsliðinu tilskamnis tíma, spáir
Svíuni sigri, 22-19, þrátt fyrir að
allt geti gerst í handbolta eins og
öðruin íþróttúm.
Svíar er nú taídir með sterkara lið
en íslendingar og því er ætlast til
þess að þeir vinni okkur á heima-
velli", segir Kristján Arason.
„Pressan er því á Svíum og okkar
menn ættu að geta leikið afslappað.
Staðan var öðru vfsi þegar þessi Iið
voru metin í svipuð að styrkleika og
meiri. væntingar voru til íslenska
liðsi'ns, en því fylgdi jafnframt meiri
spenna.“
Aðspurður urn Svíagrýluna sagði
Kristján áð það væri ekkert eins-
dæmi að einu liði gengi sérlega illa
á móti öðru liði, burtséð frá styrk-
leika. Þannig hafi t.d. Spánverjar
lengst af átt mjög erfitt með Júgó-
slava en á sama tíma haft Júgóslav-
ar, senr þá voru geysisterkir, átt í
miklurn erfiðleikum með Islend-
inga.
Kristján segir að nú verði allt lagt
upp úr því að sigra Ungverjana auk
þess að vinna Bandaríkjamenn.
Hann sagði að þrátt fyrir slæmt
gengi Islands á móti Svíum undan-
farin ár hefði hann tvisvar eða þrisv-
ar á sínum ferli unnið Svíana og
einu sinni gert jafntefli. „Við höfum
tapað fyrir þeim á stórmótum und-
anfarin ár enda verið mikil spenna
fyrir þá leiki", segir Kristján.
Svo er bara að bíða og sjá hvort
íslendingum takist ekki að velgja
Svíum ventlega undir uggum nú
þegar væntingar urn sigur eru minni
en oft áður.
Islensk
handboltakrá