Alþýðublaðið - 09.03.1993, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 09.03.1993, Qupperneq 8
POLAR RAFGEYMAR 618401 POLAR RAFGEYMAR 618401 RAUDUR KOTTUR Slund Gaupunnar Höfundur: Per OIov Enquist Þýðing: Þórarinn Eldjárn Leikstjórn: Bríet Héðinsdóttir Leikmynd og búningar: Elín Edda Arna- dóttir Lýsing: Asmundur Karlsson Sýningarstaður: Þjóðleikhúsið, Litla sviðið Stjörnugjöf: ★ ★ ★ ★ (frábær sýning) Hvað er velferðarríki? Hversu langt get- ur „kerl'iö" gengið í nafni réttlætisins, sann- leikans, meirihlutavaklsins? Er í góðsem- inni falin mesta grimmdin? Getur rauður köttur verið guð? Er það þá eitthvað verri guð en hver annar? Hver er staða einstak- lingsins gagnvart þeim vísindum, sem birt- ast okkur í líki sálarfræði, félagsfræði og guðfræði? Skarast líf fræðingsins og við- fangsefnisins einhversstaðar, eða eru þeir dæmdir í hlutverk herrans og þjónsins? Hvor með sinn sjóndeildarhring, sitt tungu- mál, sína helgu dóma? Dæmdir til að ferð- ast saman í gegnum lífið, byggja saman samfélagið, sem á sfðustu áratugum hefur þróast yfir í eitthvað er kallast velferðar- samfélag? Sem því miður birtist oftar en ekki t því að lífi og frelsi einstaklingsins er fómað á altari velferðar fjöldans. Með réttu eða röngu. Er meiri mannúð og réttlæti fólgið í því að læsa einstakling inn á hæli og murka þar úr honum lífið hægt og hægt með félags- og sálfræðilegum tilraunum, en að drepa með líkamlegu ofbeldi einstakling, sem virðir ekki hin helgu vé náttúrubamsins og „ein- Drengurinn (Ingvar Sigurösson). feldningsins"? Hvert er hlutverk guðdóms- ins í þessu lífsspili öllu? Þessar og þvflíkar hugsanir sóttu að mér undir sýningu Þjóðleikhússins á Icikriti Per Olov Enquist „Stund Gaupunnar". Þessi Yngri konan (Lilja Þórisdóttir). hljóðláta dæmisaga er sett saman af mikilli íþrótt og næmum skilningi á eðli mannssál- arinnar. Aleitið og kröfuhart verk. jafnt við leikara og áhorfendur. Vekur fjölmargar spumingar, án þess að ætla sér þá dul að kunna öll svörin. Ingvar E. Sigurðsson fer með hlutverk drengsins, sem er andlega truflaður ntorð- ingi miðaldra hjóna og virðist hafa sýnt af sér ótrúlega tilgangslaust ofbeldi. Því tilval- ið fómardýr félags- og sálfræðilegrar til- raunar, sem háskólinn stendur fyrir. Vinna Ingvars í þessu hlutverki er glæsileg. Af ótrúlegri næmni og öryggi sýnir hann okk- ur inn í hugarheim drengsins, opnar smátt og smátt á ástæður voðaverksins,’ sveiflast á milli nakinnar grimmdar og barnslegrar blíðu og trúnaðartrausts. Tök Ingvars á þessu hlutverki sanna enn einu sinni hversu hæfileikamikill leikari hann er. Hafi hann nógu sterk bein til að þola velgengnina og haldi hann í þá einlægni og alúð, sem hefur verið aðal hans til þessa, á hann glæsilegan feril fyrir höndum. Frammistaða hans ein og sér er fullgild ástæða, fyrir alla leikhús- unnendur til að sjá þessa sýningu. Lil ja Þórisdóttir fer með hlutverk yngri konunnar og fræðingsins í verkinu. Van- þakklátt hlutverk og vandmeðfarið. Eftir örlítið óöryggi í byrjun, náði Lilja góðum tökum á hlutverkinu og skilaði því með sóma. Guðrún Þ. Stephensen leikureldri kon- una, kvenprest.sem fræðingurinn hefur fengið sér til aðstoðar, við að nálgast dreng- inn og ástæður verknaðar hans. Guðrún skapar þessa persónu af festu og öryggi, leikur hennar lýsir víðsýni og lífsreynslu kvenprestins af trúverðugleika og áhorf- andinn á auðvelt með að fylgja henni eftir í gegnum verkið. Leikstjórn Bríetar Héðinsdóttur er lát- laus og ömgg. Einkennist af þeirri ástúð og einlægni,sem hún leggur jafnan í verk sín. Leikmynd og búningar Elínar Eddu Ámadóttur þjóna verkinu vel. Leikinyndin köld og nöturleg, svo sem vera ber og búningarnir blátt áfram. Lýsing Ásmundar Karlssonar er unnin af næmni og alúð og þjónar verkinu hið besta. Þýðing Þórarins Eldjáms hljómaði lipur- lega. Niðurstaða: Glæsileg leiksýning, þar sem saman fer gott leikrit og frábær vinna leikhússins, með Ingvar E. Sig- urðsson í aðalhlutverki. Arnór Benónýsson Drcngurinn og eldri ktinam ' V TTIR J T '1 Frumsýningar ó litio og stóro hjó LR Það verður annasamt hjá Leikfélagi Reykjavíkur í þessari viku, - frumsýnt bæði á litla og stóra sviði. Á fimmtudagskvöldið verður frumsýnt á litla sviðinu leikritið Dauðinn og stúlkan eftir chileanska rithöfundinn Ariel Dorfman í þýðingu Ingi- bjargar Haraldsdóttur. Verkið er tveggja ára gamalt, en hefur verið sýnt í nær þrjá- tíu löndum og vakið mikið umtal. Bandaríska fmmsýningin var með stjömur eins og Glenn Close, Gene Hackman og Richard Dreyfuss og vakti alþjóðlega athygli. Á sviði Borgarleikhússins spreyta sig góðir leikarar, Guðrún S. Gísladóttir, Valdimar Örn Flygenring og Þorsteinn Gunnarsson. Þá verður frumsýndur sígildur skop- leikur, Tartuffe á stóra sviðinu á föstudagskvöld. Verkið er eftir „konung gaman- leikjanna“, Jean Babtiste Poquelin Moliére. Verkið vará fjölunum í gömlu Iðnó ár- ið 1931 og voru þau hjónin Anna Borgog Poul Reumert þá í aðalhlutverkum. Lóro og Ögmundur ræöo otvinnuástondiö Miðstöð fólks í atvinnuleit er op- in mánudaga til föstudaga frá kl. 14 til 17. Hún er að Lækjargötu 14, gamla iðnaðarmannahúsinu, og sfm- inn þar er 628180. í dag kl. 15 ræðir Lára Júlíusdóttir, framkvæmda- stjóri Alþýðusambands Islands um atvinnuástandið. Á fimmtudaginn á sama tíma mun Ögmundur Jónas- Lára Júlíusdóttir Ogmundur Jónasson son formaður Bandalags starfs- manna ríkis og bæja, ræða um atvinnuástand opinberra starfsmanna. Á föstudag kl. 15 er skemmtidagskrá. Ostaúrr alið eykst í sífellu og er til mesta sóma. €nn eykst soion ó ostum ó ísiondi Eins og um mörg undanfarin ár varð aukning á neyslu osta á Islandi á árinu 1992. Osta og smjörsalan jók sölu sína um 188 lonn á árinu, eða sem nentur 720 grömmum á hvem einasta landsmann. Ekki svo lítið það. Meðalneyslan er þá orðin 11,8 kíló, en var 11,16 kíló árið 1991. Sala á smjöri minnkaði nokkuð, einnig á Smjörva og Léttu og laggóðu, sem stafar trúlega af tilkomu KIípu sem aftur vann upp muninn. Rekstur fyrirtækisins var með sóma eins og ævinlega. Hagnaður varð af reglulegri starfsemi, 65,1 milljón. Hognaöur hjá Sæplasti á Dalvík Dalvíkingar sýna og sanna að það er hægt að reka góðan iðnað á landsbyggðinni. Sæplast hf. hefur verið að gera það gott á Dalvík í nokkur ár. í fyrra skilaði fyrirtæk- ið hagnaði enn eina ferðina, núna 11,4 milljónum lesum við í Bæjarpóstinum. Heildarsalan var nærri 300 milljónir. Útflutningsverðmæti fiskikara Sæplasts hf jókst milli ára um 40%. Er svo komið að meira en helmingur frámleiðslunnar er seldur lil útlanda, kör, trollkúlur og annað til útgerðar. Vestur til Vínlonds Út er komin hjá bókaútgáfunni Iðnúbókin Vestur til Vínlands. Hefur hún að geyma tvær íslendingasögur, Grænlendinga sögu og Eiríks sögu rauða. Það er Dr. Eysteinn Sigurðsson sem bjó sögumar til prentunar og ritar ítarlegan formála um siglingar og siglingatækni víkingatímans, landnámið í Grænlandi og Vínlandsferðimar. Hér er um að ræða skólaútgáfu, hinar fyrstu sem gefnar eru út og mun bókin því gagnast nemendum í framhaldsskólum sem og áhugamönnum um þessi eftii. Fromliðnir knattspyrnumenn! Framarar eru ekkert yfir sig kátir þessa stundina. Nokkrir meistaraflokksmenn .hverfa nú frá félaginu, þeir em kallaðir „framliðnir" leikmenn í fréttabréfi Fram. Jón Erling Ragnarsson fer aftur til síns fimleikafélags t Hafnarfirði og gerist Vinur Hafnarfjarðar, Pétur Óskarsson hverfur til KA og leikur í 2. deild, Anton Björn Markússon fer til Eyjqiog segir fréttabréfið enga tilkynningu hafa komið frá Eyjum enn sem komiðer um félagaskiptin. „Var það kannski félagið Amor í Eyjunt sem Toni ætlar (?“ er spurt; Tveir lejkmenn fara úr Frajn í Fylkt, Friðrik Ingi Þorsteins- san, sem var o'rðinn Ieiðúr á varamannabekknum, og Asgeir Már Ásgeirsson. Öll- • um er þessum fyrrum Frönjurum þakkað fyrir skemmtilegt s&mstarf.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.