Alþýðublaðið - 11.03.1993, Síða 6
Stórstraumur aldarinnar
breytti engum ósköpum
Samkvæmt því sem stjamfræðingar segja, var í gær stærri
sjávarstraumur en áður hefur gerst á þessari öld. Tunglið er nær
jörðu en oft áður og togar kröftuglega til sín. Veður á norður-
slóðum voru góð í gær, eins og þessi mynd sannar reyndar.
Krókakarlar í Reykjavík voru hér að huga að bátum sínum í
blíðviðrinu. Þessi metstraumur virtist ekki hafa minnstu áhrif á
, daglegt líf við sjávarsíðuna. A-mynd E.Ol.
Svarar Greenpeace
% fullum hálsi
Norski sjávarútvegsráðherrann, Jan Henry T Olsen, svarar í
gær fullum hálsi ávirðingum Grænfriðinga í garð Norðmanna.
Hann skrifar á leiðarasíðu Svenska Dagbladet í kjölfar greinar
eftir Joakim Bergmann, sem tók þátt í umræðuþætti í sænska
sjónvarpinu, Svar Direkt, en í þeim þætti stóð utanríkisráðherra
vor, Jón Baldvin Hannibalsson, sig með stakri prýði.
Olsen slær öll vopn úr hendi Bergmanns á ritvellinum, eins
og fyrr hafði verið gert í hinum vinsæla sjónvarpsþætti. Hann
bendir á að samkvæmt upplýsingum vísindanefndar Alþjóða
hvalveiðiráðsins, sé hrefnustofninn 86.700 dýr. Að mati hæfra
vísindamanna sé engin fyrirstaða að af þessum stofni sé veitt á
skynsamlegan hátt.
Þá bendir ráðherrann á að tölfræði Greenpeace varðandi
stærð hvalastofna séu ekki beinlínis vísindaleg fræði. Berg-
mann telji stofninn „nánast hálfvciddan". Samtökin í Noregi og
í Englandi segja að aðeins 30% eðlilegs stofns sé á lffi. Síðan
"* hafi þessar tölur breyst milli þriggja tölublaða af upplýsinga-
blaði samtakanna, frá 30% niður í 10%. A upplýsingum Green-
peace sé því lítið að græða. Engin vísindaleg könnun sé að baki
þessara misvísandi talna.
„Það er hræðilegt að verða vitni að því að öflugustu um-
hverfissamtök heims leggi svo mikinn kraft f að hindra það að
nýtt sé endumýjanleg auðlind. Það er nóg af raunverulegum
umhverfisvandamálum til að vinna að“, segir ráðherrann.
Námsgagnstofnun
Lesum saman
Námsgagnastofun hefur gefið út bókina Lesum saman sem
Iðunn Steinsdóttir hefur tekið saman. Um er að ræða nýja lestr-
arbók fyrir böm sem hafa náð tökum á undirstöðuatriðum í
lestri. I bókinni segir frá hópi bama sem búa í sömu blokk og
leika sér saman heima
og í skólanum. Bömin
lesa sögur, leika leik-
rit, læra vísur og lesa
ljóð. Höfundur hefur
safhað saman léttum
lestextum og fléttað þá
saman í eina heild
með ffásögnum af lífi
bamanna í blokkinni.
Bókin er prýdd
fjölda mynda eftir þær
Onnu C. Leplar, Ás-
laugu Jónsdóttur og
Þóru Sigurðardóttur.
Þá er hægt að fá með
vinnubók með fjöl-
breyttum verkefnum
og kennsluleiðbein-
ingum. Bókin er 74
blaðsíður.
Áfram
Þrusk ó
loftinu
Vegna góðrar aðsóknar að Þruski sem
Leynileikhúsið sýnir verður haldið
áfram að sýna það á loftinu á Café Sólon
íslandus enn um sinn. Leikmyndin virð-
ist einföld en hér getur að líta tvo að leik-
urum verksins, þau Jóhönnu Jónas og
Vilhjálm Hjálmarsson.
Fimmtudagur 11. mars 1993
UMFRAM-
RAFMAGN
Landsvirkjun býður þeim rafmagnskaupendum
í atvinnurekstri sem uppfylia ákveðin skilyrði
umframrafmagn til kaups með einnar krónu
afslætti á kWst frá og með 1. janúar 1993 og
næstu 5 árin.
Afslátturinn nemur um 20 til 25% af því
smásöluverði sem viðkomandi kaupendur greiða
nú fyrir forgangsrafmagn og er hann gefinn af
aukningu í rafmagnsnotkun kaupendanna.
Kaupandi greiðir áfram fullt verð fyrir forgangs-
rafmagn að því marki sem hann hefur keypt það
hingað til.
Með þessu móti vill Landsvirkjun gefa
iðnfyrirtækjum og öðrum atvinnurekstri kost á
ódýrara rafmagni en áður til að efla starfsemi sína.
Þau fyrirtæki sem telja sig geta notfært sér
umframrafmagn á þessum kjörum eiga að snúa
sér til viðkomandi rafveitu og gera við hana
sérstakan samning um kaupin.
E immmm