Alþýðublaðið - 11.03.1993, Qupperneq 7
Fimmtudagur 11. mars 1993
/
Yfirlýsing aðila vinnumarkaðarins um
MARKMIÐ í
ATVINNUMÁLUM
Samninganefndir Alþýðusambands ís-
lands, Vinnuveitendasambands íslands og
Vinnumálasambands samvinnufélaganna
hafa á undangengnum vikum fjallað ítar-
lega unr ástand og horfur í atvinnumálum.
Þetta starf helur tengst þeim samningavið-
ræðum sem nú standa yfir milli samtaka at-
vinnurekenda og launafólks og er veiga-
mikill hluti þeirra markmiða sem aðilar hafa
orðið ásáttir um að leggja til grundvallar
samningsgerðinni að þessu sinni.
Vaxandi atvinnuleysi og versnandi af-
koma heimila og fyrirtækja hljóta að
ákvarða ineginviðfangsefni hagstjómar á
næstunni. Þessar aðstæður setja mark sitt á
kjarasamninga umhverfi þeirra og forsend-
ur. I þessu felst að efnahagsstjóm verður að
stuðla að auknum vexti og verðmætasköp-
un til lengri tíma með áframhaldandi stöð-
ugleika og bættri samkeppnisstöðu fyrir-
tækja. Jafnframt þarf að skapa ný störf með
markvissum aðgerðum sem skila árangri á
næstu mánuðum og misserum. Samnings-
aðilar hafa því orðið ásáttir um að leggja
eftirgreind meginntarkið til grundvallar við-
ræðum sínum á næstu dögum og beita áhrif-
um sínum eftir mætti til þess að þeim verði
náð.
Raunvaxtalækkun.
Veruleg og varanleg lækkun raunvaxta er
forsenda þess að úrbætur í atvinnumálum
skili árangri. Hún er þannig stórvirkasta
breytingin sem stuðlað getur að auknum
fjárfestingum einstaklinga og fyrirtækja,
nýjungum og aukinni verðmætasköpun,
sem fjölgun atvinnutækifæra og traust kjör
hljóta að byggjast á.
Stöðugleiki í verðlagsmálum hefur sann-
að gildi sitt með því að samkeppni hefur
orðið virkari, hagræðingartilefni skýrari og
kaupmáttur traustari. Því er stöðugt gengi
og verðlag eitt mikilvægasta markmið efna-
hagsstjómar og forsenda raunhæfra kjara-
samninga.
Stöðugleiki á vinnumarkaði.
Aðilar eru samdóma um mikilvægi þess
fyrir efnahagsþróunina að fyrirtæki, ein-
staklingar, fjánnálakerfi og stjómvöld hafi
ömgga vissu um hvað sé framundan á
vinnumarkaði um nokkuð langan tíma. Því
er það sjálfstætt markmið til atvinnuupp-
byggingar að kjarasamningar náist til allt að
tveggja ára. Yfirstandandi samningsgerð
miðar að því, en forsenda þess að full sam-
staða náist um efnisatriði.
Þótt ofangreind markmið náist verður at-
vinnuleysi á þessu og næsta ári óásættan-
legt. Aðilar telja þvi fjölgun atvinnutæki-
færa eitt mikilvægasta viðfangsefni hag-
stjómar næstu mánuði og misseri. Móta
þarf öfluga atvinnumálastefnu í þríhliða
samstarfi aðila vinnumarkaðar og stjóm-
valda til að það markmið náist. í slíkri
stefnu þarf annars vegar markvissar breyt-
ingar á ýmsum starfsskilyrðum, skipulagi
og starfsaðferðum sem skila munu árangri
til lengri tíma. Hins vegar þarf sú stefría að
beinast að aðgerðum sem skilað geta ár-
angri hratt og gera aðilar sameiginlegar til-
lögur til stjómvalda um þau efni. I ljósi of-
angreindra markmiða vilja samtökin leita
samstarfs við stjómvöld um sókn í atvinnu-
málum á gmndvelli þeirra tillagna sem unn-
ar hafa verið í starfi fjölda þátttakenda í
samtals átta umræðuhópum. Þessir hópar
fjölluðu um sjávarútvegsmál, verklegar
framkvæmdir, orku og nýtingu hennar,
ferðaþjónustu, fiskeldi, nýsköpun, þjón-
ustumiðstöð í Atlantshafi og erlendar fjár-
festingar. Tillögur þær sem hópamir komu
sér saman um em mun fleiri og ítarlegri en
hér er lýst og fylgja þessu skjali.
1. Sjávarútvegsmál
Aðilar telja að auka þurfi rannsóknir á
möguleikum sjávarútvegs sem byggi á átaki
í rannsóknum á lífríki sjávar, átaki í fram-
leiðslumálum og sókn í markaðsmálum. Því
eru gerðar tillögur um að:
a) Veitt verði auknum fjármunum til rann-
sókna á lífríki fiskveiðilögsögunnar og
stærð og vexti ýmissa vannýttra fiskteg-
unda.
b) Þróunardeild Fiskveiðasjóðs verði efld
og fái það hlutverk að styðja verkefni á
sviði vömþróunar, vinnslutilrauna, mark-
aðsrannsókna og veiðarfærarannsókna.
c) Sendiráð íslands fái aukna möguleika til
að aðstoða íslensk fyrirtæki við markaðsleit
og markaðssetningu. Sérstaka áherslu þarf í
upphafi að Ieggja á aðstoð við markaðs-
setningu á síldarafurðum.
ist. Brýnt er að greiða fyrir endurskipulagn-
ingu í greininni og útflutningi vinnslubún-
aðar og veiðiskipa, m.a. með fjárfestingum í
sjávarútvegi annarra þjóða.
d) Mikið vantar á eðlilega nýtingu gistihúsa
og ljóst virðist að samkeppni um ferða-
menn fari harðnandi. Því er sérstaklega var-
að við úlagningu VSK á gistingu eins og
áformað er frá næstu áramótum.
3. Átak í markaðsmálum
Breyta þarf skipulagi kynningarmála á ís-
lenskri framleiðslu, þjónustu og möguleik-
um til fjárfestinga hér á landi. Lagt er til að
þær stofnanir sem starfa á þessum sviðum
verði sameinaðar og komið verði á fót nýrri,
öflugri stofnun sem auk núverandi verkefna
sinni eftirtöldum málaflokkum.
a) Greiði götu áhugasamra fjárfesta um sem
flesta þætti viðvíkjandi stofnun og starf-
rækslu fyrirtækja hér á landi og bjóði upp á
heildarlausnir.
b) Kynni möguleika á notkun jarðgufu í
iðnaði.
c) Samræmi starf þeirra að-
ila sem vinna að kynningu
á íslandi sem ferðamanna-
landi.
Markvisst verði unnið að
því að greiða fyrir viðskipt-
um við erlend skip þannig
að Island geti orðið þekkt
þjónustumiðstöð í Norður-
Atlantshafi. Til þess þarf
m.a. að lækka álögur á ol-
íuvörur til skipa þannig að
íslensk olíufélög verði
samkeppnishæf' við erlend
og afnema takmarkanir á
löndunum úr fiskiskipum.
4. Nýsköpunarstarf og sam-
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og Benedikt keppnisstaða
Davíösson forseti ASÍ heilsast við upphaf fundar þar sem ASÍ,
VSÍ og Vinnumálasambandið kynntu ríkisstjórninni sameigin- a) Lítið eigið fé íslenskra
legar tillögur sínar í atvinnumálum.
2. Nýting vannýttrar fjárfestingar
a) Á meðan offramboð er á orku hér á landi
er lagt til að verulegur afsláttur verði veittur
til aðila sem hyggjast taka í notkun orku eða
auka orkunotkun sína. Tímabundin vildar-
kjör á slíkum orkusamningum geta orðið til
þess að ný framleiðsla komist á laggimar
sem síðar verði fær um að greiða hærra
verð.
b) Framleiðslugeta fiskeldisstöðva er van-
nýtt um þessar mundir og hætta er á að sú
þekking og aðstaða sem þar er fari fyrir lít-
ið. Brýnt er að fjárfestar og lánardrottnar
viðurkenni að stærstur hluti þessarar fjár-
festingar er í raun tapað fé en eftir standa
mannvirkin sem í mörgum tilvikum geta
staðið undir rekstrarkostnaði og skilað
nokkru fé upp í fastakostnað. Tekið er und-
ir tillögur Rannsóknaráðs ríkisins um að
veitt verði samtals 200 m.kr. á ári til fiskeld-
isrannsókna á næstu fimm ámm.
c) í sjávarútvegi er einnig um vannýtta fjár-
festingu að ræða, jaftit á vélum, búnaði sem
skipum, enda hefur afli dregist stórlega
saman frá því í þessar fjárfestingar var ráð-
fyrirtækja stendur nýsköp-
unarstarfi fyrir þrifum. Ein
leið til að bæta eiginfjár-
stöðu fyrirtækja er að efla markaðshlut-
deild þeirra. Herferð samtaka iðnaðar og
verkalýðshreyfingar nýverið hefur skilað
ótvíræðum árangri og er brýnt að áfram
verði veitt fjármunum til að efla skilning al-
mennings á samhengi atvinnustigs og þess
að kaupa íslenskar vömr.
b) Áhættuíjármagn til nýsköpunar er af
skomum skammti. Ein mikilvægasta for-
sendan fyrir því að framboð aukist er að líf-
eyrissjóðir og aðrir aðilar færi fjárfestingar
sínar í vaxandi mæli inn á þennan markað.
c) Breyta þarf skipulagi þjónustustofnana
atvinnuveganna þannig að þær sinni þjón-
ustuhlutverki sínu við minni framleiðslufyr-
irtæki betur en nú er þannig að þau geti sótt
upplýsingar, leiðbeiningar og aðstoð við að
hrinda í framkvæmd hugmyndum og áætl-
unum um nýsköpun í framkvæmd.
d) Mikilvægt er að stjómvöld jafni sam-
keppnisstöðu þeirra atvinnugreina hér á
landi sem em í harði samkeppni við styrktar
atvinnugreinar í öðmm löndum.
5. Verklegar framkvæmdir
Beðist undan álygum
I leiðara Alþýðublaðsins í dag er lagt út
af atkvæðagreiðslu í BSRB um verkfalls-
boðun. I leiðaranum em undimituðum
gefnai' ótal einkunnir og er ekkert við því að
segja.
Leiðarahöfundar dagblaða setja fram þau
sjónannið sem þeim eru að skapi og það er
hverrar ritstjómar og hvers blaðs að ákveða
hvaða málstað það vill verja.
Á hinn bóginn á enginn að þurfa að sitja
undir beinum lygum. Alþýðublaðið fullyrð-
ir að 5% kauphækkunarkrafa BSRB hafi
skyndilega og skýringalaust verið dregin til
baka og það hafi átt sinn þátt í að mgla fólk
í ríininu.
Það er rangt. BSRB setti fram kröfu um
leiðréttingu á kaupmætti almenns kauptaxta
um 5%, en jafnframt kom fram í þeim við-
ræðum, sem við höfum átt, og á öllum þeim
fundum sem við höfum rætt þessi mál við
okkar félagsmann, að þessu mætti ná með
því að færa útgjöld niöur ekki síður en með
kauplækkunum.
Þetta hefur ekki vafist fyrir fólki og það
hlýtur að vera gegn betri vitund að nafnlaus
leiðarahöfundur Alþýðublaðsins heldur
þessu fram.
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB
Ath. frá ritsjóra
Eins ogfram kemur í þessari athugasemd
formanns BSRB voru settirfram ýmsirfyr-
ityarar og 5% kauphœkkunarkrafan skilyrt
frá því aÖ hún var sett fram. Um þah þatf
ekki fleiri orð.
a) Gerð er tillaga um flýtingu tiltekinna
mjög arðbærra fjárfestinga í vegagerð og
samgöngumannvirkjum á þessu og næsta
ári sem nemur samtals 2.2 milljörðum
króna. Þessar framkvæmdir verði fjármagn-
aðarmeð erlendu láni sem endurgreitt verði
af mörkuðum tekjum til vegagerðar á ára-
bilinu 1995-2000.
b) Gerð er tillaga um átak í viðhaldi opin-
berra bygginga sem m.a. verði fjármagnað
með svigrúmi sem skapast getur mcð frest-
un á endumýjun ýmis konar innfluttra tækja
og búnaðar. Þeim tilmælum er beint til
sveitarstjóma að þær íhugi hvort ekki sé
mögulegt að flýta þegar höfnum fram-
kvæmdum sem ætlað er að dreifa á næstu
úr.
c) Gerð er tillaga um tilteknar breytingar á
húsnæðislánakerfinu með það að markmiði
að auka nýbyggingar, ívilna lyrstu íbúða-
kaupum, bæta nýtingu fjármuna og minnka
lánsfjáreftirspum.
OPIÐ HÚS
Opiö hús veröur n.k. laugardag, 13. mars, kl. 10.30 -12
í JMJ- húsinu.
Kaffi og spjall um þjóömálin.
Sigbjörn Gunnarsson alþm. veröur til viðtals.
Jatnaöarmannafélag Eyjafjaröar.
FUJ Reykjavík
Félag ungra jafnaöarmanna í Reykjavík heldur almennan félags-
fund mánudaginn 15. mars í RÓSINNI, Hverfisgötu 8-10, jaröhæö.
Gestur fundarins veröur
Þröstur Ólafsson
aöstoöarmaöur ráöherra og annar formanna
Tvíhöfðanefndarinnar
Hann mun ræöa um smábátaútgerðina og reifa þær hugmyndir
sem uppi hafa verið í nefndinni um málefni hennar.
Allir félagar eru hvattir til aö mæta.
Stjórnin.
Góugleði
Alþýöuflokksfélags Akraness veröur haldin í Röst, laugardaginn
13. mars nk. kl. 20.00.
Rósrauður fordrykkur
Girnilegt borðhald - þrír réttir a.m.k.
Söngur, glens og gaman í anda jafnaðarstefnu.
Húsiö opnaö kl. 19.30.
Miðaverð kr. 1.700,-
Þátttaka tilkynnist sem allra fyrst í síma 11306 (Edda) og 12952
(Ásta).
Stjórnin
Velkomin til
Bandaríkjanna
Sérstakt tilboö ríkisstjórnar Bandaríkjanna gefur þér nú tækifæri til
aö flytjast til Bandaríkjanna meö innflytjendaleyfi til frambúðar sam-
kvæmt AA-1 kerfinu, verðir þú fyrir valinu.
Þú getur fengiö tækifæri til aö lifa og starfa í Bandaríkjunum meö
fast aðsetur (handhafi Græna kortsins).
Síöasti frestur til aö sækja um rennur út 31. mars 1993. Þú þarft því
aö bregðast viö tímanlega til aö vera réttu megin viö umsóknarfrest-
inn. Þú eöa annað hvort foreldra þinna verður aö hafa fæöst á ís-
landi/Bretlandi/írlandi til aö eiga möguleika.
Sendiö póstávísun upp á $45 fyrir hvern umsækjanda sem óskar
eftir skjótri skráningarþjónustu ásamt eftirfarandi upþlýsingum, sem
skrifa þarf skýrt og greinilega á ensku:
Nafn umsækjanda, heimilisfang, fæöingardagur og ár, fæðingar-
staöur, nafn maka, ef umsækjandi er í hjónabandi, og nöfn og heim-
ilisföng barna yngri en 21 árs, séu þau ekki í hjónabandi.
Sendið póstávísun upp á 45 Bandaríkjadali fyrir hvern um-
sækjanda, sem stílaður er á: Visa USA, P.O. Box no. 822211,
Dallas, Texas 75382, U.S.A.