Alþýðublaðið - 11.03.1993, Blaðsíða 8
POLAR
RAFGEYMAR
618401
RAFGEYMAR
618401
Frelsi í lyfsölu - lægra verð
Emkqsölukerfid
brotið á bak aftur
- segir Sighvatur Björgvinsson, heilhrigðis- og tryggingamálaráðherra í við-
tali við Alþýðublaðið um frumvarp um aukiðfrelsi í lyfjaverslun
Apótek, - lyf til almennings eiga í framtíðinni að verða ófýrari við frjálsa lyfsölu á íslandi.
„Það verður sett hámarksverð á öll lyf
sem fást ekki nema út á lyfseðil. Þannig
mun sjúklingar á engum stað á landinu
þurfa að borga hærra verð fyrir lyf en
gerist og gengur í dag“, sagði Sighvatur
Björgvinsson, heilbrigðis- og trygginga-
málaráðhcrra, aðspurður um hvort
frumvarp um breytingar á Iyfsölu í land-
inu myndi leiða til hækkunar lyfjaverðs á
landsbyggðinni.
Boðað frumvarp Sighvats Björgvinsson
um aukið frelsi í lyfsölu hér á landi hefur
sætt gagnrýni af einstaka aðilum. Talsmenn
lyfsala hafa gengið svo langt að hóta ríkinu
málsókn verði einkaleyfi þeirra á lyfsölu af-
numin. Alþýðublaðið spurði Sighvat hvort
slíkt stæðist.
Eg leitaði til valinkunns lögmanns og bað
hann að gera álitsgerð á því fyrir ráðuneytið
hvort það væru einhver rök til þess að slík
málshöfðun myndi skila árangri. Niðurstaða
hans er sú, að svo sé alfarið ekki og á því
leiki enginn vafi að það sé hægt að gera
svona breytingu án þess að ríkissjóður verði
skaðabótaskyldur.
Er einhver andstaöa viö þœr megin-
breytingar sem frumvarpið gengur út á í
rööum ríkisstjórnarflokkanna?
Eg hef ekki orðið var við það, hvorki inn-
an míns flokks né samstarfsflokks okkar í
ríkisstjóm, að það sé andstaða við þá megin-
stefnu um að gera lyfsöluna í landinu frjáls-
ari. Hins vegar er mikill andróður gegn
þessu frumvarpi frá þeim sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta. Þeirra röksemdir ganga
hins vegar ekki upp og menn fara þar alger-
Iega offari.
Því er t.d. haldið fram að þetta muni kalla
á aukinn kostnað og ekkert spara en jafn-
framt er því haldið fram í hinu orðinu, að
aukin samkeppni muni lækka svo verð á
lyfjum að það verði ekki lengur ábatavæn-
legt að versla með lyf í stjálbýlinu. Þetta eru
rök sem koma frá sömu mönnunum en
ganga þó sitt í hvora áttina.
Þá hefur því verið haldið fram að lyfsala
úti á landi muni leggjast niður og síðan
leggja menn til að heilsugæslustöðvar fái
ekki lyfsöluleyfi. Með þessu eru menn líka
að tefla fram gagnstæðum röksemdum
Vlnnlng laugard (s){
stótur 5_ mars 1993 |
Í8)(20)^!m
(24)
VINNINGAR FJOLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐÁHVERN VINNINGSHAFA
1. 5al5 0 2.325.513
2. 4SI* f? 1 202.079
3. 4af5 88 7.922
4. 3a)5 3.137 518
Heildarvinningsupphæð þessa viku: kr. 5.051.773
vegna þess að það er í þessu frumvarpi ör-
yggisnet hvað varðar landsbyggðina.
I fyrsta lagi er gert ráð fyrir því að ef um
lítið byggðarlag er að ræða, þar sem ekki er
talinn vera möguleiki fyrir lyfsala að opna
apótek vegna fámennis, að næsti lyfsali hafi
rétt til þess að opna þar útibú. Slík útibú eru
nú starfrækt víða á landinu. Þannig er t.d.
lyfsalinn á Patreksfirði með útibú á Þingeyri
og Bfldudal.
í öðru lagi er gert ráð fyrir því, til þess að
tryggja enn frekar að lyfjadreifíngin verði
eðlileg úti í dreifbýlinu þar sem engin Iyfja-
verslun ereða útibú, að þá hafi heilsugæslu-
stöðvar rétt til þess að afgreiða og selja lyf.
Það er þá trygging fyrir því, að jafnvel á
minnstu stöðum sé hægt að dreifa lyfjum í
gegnum heilsugæslustöðvar.
Þess vegna rekur sig hvert á annars hom
þegar þeir sem gagnrýna breytingamar
segja, að verið sé að drepa niður lyfsöluna í
drcifbýlinu en krefjast þess jafnframt að
heilsugæslustöðvar fái ekki leyfi til þess að
selja lyf. Það er því hinn mesti misskilning-
ur að þetta lyfjafrumvarp stefni lyfjadreif-
ingu í dreifbýlinu í einhverja hættu. Hins
vegar er það alveg Ijóst að þegar um er að
ræða frjálsa samkeppni eins og ráð er fyrir
gert að þá verði lyf út úr einstökum lyfja-
verslunum misdýr.
Hvaöa áhrif munu þessar breytingar
hafa á lyfjaverö?
Það segir sig sjálft að slíkt mun hafa í för
með sér mikla verðlækkun eins og skeð hef-
ur í allri annarri verslun þar sem slíkar
breytingar hafa verið reyndar. Það er hins
vegar rétt að taka það fram að með þessum
breytingum er ekki verið að slaka á neinum
öryggiskröfum. Þær verða áfram jafn harðar
bæði gagnvart innflutningi lyfja og dreif-
ingu lyfja og verið hefur. Lyfjaverð í Evr-
ópu er einna hæst á Islandi. Þannig er álagn-
ing í heildsölu t.d. tvíþætt, annars vegar er
prósentuálag og hins vegar með svokölluð-
um stuðlum sem leggjast á innkaupsverð.
Þetta er samtals hærra en gerist víðast hvar
annars staðar í heiminum.
Það gefur auga leið að þegar einkasölu-
kerfið verður afnumið og opnaðir mögu-
leikar fyrir hvem og einn, sem uppfyllir
ákveðin skilyrði sem eru ströng í þessari
grein, fyrir að flytja inn lyf frá þeim mörk-
uðum þar sem lyfin bjóðast á hagstæðustu
verði, leiðir það til verðlækkunar.
Það er verið að gera tvennt með þessum
breytingum. Það er verið að rjúfa einokun
einkaumboðsmannanna á innflutningi og
einkaleyfi apóteka. Eins og nú standa sakir
er ekki hægt að flytja inn lyf frá sumum
stærstu lyfjaframleiðendunum nema í gegn-
um einkaumboðsmannakerfi hér, sem flytja
svo aftur inn í gegnum umboðsaðila í Dan-
mörku og því verið að borga fyrir margfalt
kerfi milliliða.
Stærsta breytingin í innflutningsverslun-
inni verður sú að þeir sem uppfylla ákveðin
skilyrði hafa leyfí til að kaupa inn viður-
kennd lyf frá hvaða markaði sem er. Það
breytir gífurlega miklu vegna þess að sum-
staðar í Evrópu eru á markaði lyf frá lyfja-
fyrirtækjum sem við verslun mest við, boð-
in á 30% lægra verði en hér. Vilji umboðs-
mennimir hér heima halda innflutningnum
verða þeir að geta boðið þessi lyf frá sínum
umboðsaðilum á sambærilegu verði en hægt
er að fá á markaði erlendis. Elia verður fram
hjá þeim farið.
Þá verður tekið upp sérstakt kerfi. Það
lýsir sér þannig að þátttaka Tryggingastofn-
unar ríkisins miðast við ákveðið markaðs-
verð á lyfjum sem hún tiltekur. Ef þannig
tekst að ná ódýrari lyfjum inn þá hagnast
neytendur á því.
Segjum að viðmiðunarverðið á lyfí sé
1.000 krónur og af því greiði notandinn 200
kr. Þá myndi notandi greiða aðeins 100 kr.
fyrir lyfið ef það fengist á 900 kr. A sama
hátt þyrfti hann að greiða 300 kr. fyrir lyf
sem færi yfir viðmiðunarverðið og kostaði
1.100 kr. Þetta er það kerfi sem er búið að
taka upp í nágrannalöndunum.
Það er til þess gert að það verði virkilegur
áhugi, bæði hjá innflytjendum og lyfsölum,
að ná niður verðinu og geta jafnframt boðið
það á mun betri kjörum til almennings.
Þannig myndi lækkun á lyfi úr 1.000 kr. í
900 kr. hafa í för með sér 50% lækkun til
neytenda.
Þetta gengur þvert á það kerfi sem við bú-
um við í dag. Nú kemur því meira í hlut
heildsala og lyfsala eftir því sem lyfið er
dýrara í innkaupum en að sama skapi þurfa
þá bæði ríki og einstaklingamir að greiða
meirá.
STUTTFRETT'IR
Viso heitir o iondsliðið
Handbolta“veislan“ mikla er hafin og ekki örgrannt um að miklar vonir séu bundn-
ar við frammistöðu íslenska landsliðsins. Visa Island hefur ákveðið að verja hluta
þess fjár sem fyrirtækið hefur ánafnað á árinu 1993 til stuðnings við handknattleiks-
íþróttina til landsliðsins. Heitir Visa Island nú 100 þúsund krónum á íslenska lands-
liðið fyrir hvem unninn leik. Með þessu vill fyrirtækið efla sóknina til sigurs í þeim
harða slag sem hófst í fyrrakvöld. Þetta mættu fleiri gera, minnugir þess að fátt veitir
betri skemmtun en íslenska landsliðið, þegar því tekst vel upp. Það er skemmtun, sem
vel má borga fyrir.
Franski togarinn í franskri höfn, þar er nó dyttað að ýmsu, málað og fegrað fyrir íslands-
siglinguna.
Sq fronski oð komo til Eyjo
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum fær á næstu dögum togarann, sem fyrirtækið
keypti frá Frakklandi. Fréttir í Vestmannaeyjum segja að togarinn fái nafnið Guð-
mimda Toifadóttirog einkennisnúmerið VE 80. Guðmunda var eiginkona Sighvatar
Bjamasonar fyrrum framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar, afa Sighvatar núver-
andi framkvæmdastjóra.
Hroöomet q flugleiðinni Reykjovík-Höfn
Flugmenn hafa gaman af að setja hraðamet á ýmsum flugleiðum. Þriðjudaginn 2.
mars setti Kjartan B. Guðmundsson, llugstjóri og aðstoðarflugmaður hans hraðamet
á flugleiðinni Reykjavík - Höfn í Homafirði. Án þess að vera þess meðvitaðurað ver-
ið væri að setja met dró flugstjórinn snemma úr hraða og dólaði sér yfir jökulinn í
björtu, flaug langt út til aðflugs farþegum til þæginda, því einhver ókyrrð var í lofti,
segir í Eystrahorni.Flugtíminn var þó met, 41 mínúta frá því að flugvélin sleppti
braut í Reykjavík og þar til hún tyllti þeim niður á Ámanesflugvelli við Höfn. Gamla
metið var 42 mínútur á gömlum Fokker, sett í febrúar 1987, en þá var Guðmann
Aðalsteinsson flugstjóri við stýrið.
Hér sést hvernig Rín og Dóná skerast gegnum Evrópu og opna leiö meö tilkomu hins
mikla skipaskurðar.
SkipQskurður tengir Svortohof
og Norðursjó
I fréttabréfi Eimskips er greint frá opnun nýs skipaskurðar á síðasta hausti, en hann
tengir saman Dóná og Rín, 171 km langur skurður, 55 metrar á breidd. Með þessari
miklu framkvæmd sem stóð í 31 ár og kostaði 324 milljarða ísl. kr. opnast leið frá
Norðursjó í Svartahaf. Afkastageta á þessari leið er talin 20 milljónir tonna á ári.
Áætlaður kostnaður við flutning með sérhönnuðum Euro-prömmum sem ganga
munu um skurðinn er liðlega ein króna á hvert tonn á hvem kflómetra. Flutningabfl-
ar taka tífalt hærra gjald og jámbrautir fimm sinnum meira. Annmarkar eru á þessum
framkvæmdum. Má nefna að skip sem tekur tíu sinnum meiri fragt, er sex til tíu daga
að sigla sjóleiðina frá Svartahafi um Miðjarðarhaf til Rotterdam, 6.500 km leið.
Prammi sem fer eftir skurðinum endilöngum er fjórum sinnum lengur á leiðinni. Á
móti kemur a vegalengdin er næstum helmingi styttri.
StyðjQ við bokiö q sfnum mönnum
Forystumenn opinberra starfsmanna og kennara hafa mætt mikilli gagnrýni á störf
sfn að undanfömu, - en ekki allsstaðar. Trúnaðarmenn Kennarafélags Reykjavíkur
komu saman til fundar á mánudaginn og lýstu yfir fullum og eindregnum stuðningi
við forystu Kennarasambandsins. Sama gerði aðalfundur Starfsinannufélags
Reykjavíkurborgar á laugardaginn var. Þar var lýst yfir fyllsta trausti við stjóm og
samninganefnd félagsins í viðræðum um nýjan kjarasamning.