Alþýðublaðið - 16.04.1993, Page 5
Föstudagur 16. apríl 1993
5
Minningarorð um
Albert Magnússon
Fæddur 7. september 1929 - Dáinn 3. apríl 1993
Albert Magnússon alías Alli krati - lífið og
sálin í hópi Hafnarljarðarkrata - er fallinn í
valinn, aðeins 63ja ára að aldri. Jafnaðarstefn-
an var honum eins og köllun. Þeirri köllun var
hann trúr alla ævi til hinstu stundar. Þess
vegna kveðjum við.hann í dag með mikilli
virðingu, þakklæti og eftirsjá.
Aðrir munu rekja stutt en viðburðaríkt og
fjörmikið lífshlaup hans. Eg staldra við
tvennt: Trúmennsku hans við æskuhugsjón
sína og hjálpsemi við alla þá, sem höllum fæti
stóðu í lífsbaráttunni. Hann sýndi trú sína af
verkunum. Hann var heilsteyptur jafnaðar-
maður. Hann var ekta.
Þau Alli og Valgerður kona hans voru
Guði velþóknanleg í störfum sínum, svo sem
sjá má af því að allt blómstraði og dafnaði,
sent þau komu nálægt. Þannig blessaði for-
sjónin störf þeirra hjóna að þau gátu liðsinnt
þeim, sem ekki famaðist eins vel.
Albert Magnússon var liðsforingi í fram-
varðasveit íslenskra jafnaðarmanna. Hann
stjórnaði kosningabaráttu okkar í mörgum
kosningunt, ekki aðeins í Hafnarfirði heldur
einnig á Sauðárkróki og Stokkseyri, þar sem
þau hjón bjuggu um hríð. Það lýsir baráttu-
manninum Alla krata vel, að ungir jafnaðar-
menn í Hafnaríírði kusu hann heiðursfélaga
sinn. Hann átti alltaf heima í hópi hinna ungu
og áræðnu.
F.h. Alþýðuflokksins - Jafnaðarmanna-
flokks Islands, kveð ég Albert að leiðarlokum
og þakka honum liðveisluna og félagsskapinn
í blíðu og stríðu. Konu hans, Valgerði Valdi-
marsdóttur, sonunt þeirra og afkomendunt
sendi ég innilegustu samúðarkveðjur.
Jón Haldvin Hannibalsson
Traustur og góður liðsmaður jafnaðarstefn-
unnar er látinn. Albert Magnússon, eða Alli
krati eins við samherjar hans í pólitíkinni
kölluðunt hann, er farinn á vit feðranna. Það
er eftirsjá í góðum dreng og ötulum baráttu-
ntanni fyrir frelsi, jafnrétti og bræðralagi.
Við Hafnarfjarðarkratar áttum þess kost
urn árabil að njóta vináttu og krafta Alla
krata. I lann átti heimili sitt hér í Hafnarfirði
um langan aldur, þó með nokkrum hléunt.
Lengst af hafði Alli sitt lífsviðurværi af versl-
unarstörfum, rak einatt eigin verslanir.
í flokksstarfi var Alli aðjafnaði þessi hæg-
láti liðsmaður, sem hrópaði ekki á torgum, en
laumaði þó jafnan að góðum ráðleggingum
og skynsamlegum tillögum unt nteðferð
rnála. Þegar nær dró kosningum varð hins
vegar breyting á. Með sömu hægðinni og
fyrr, en knúinn ólýsanlegum krafti og einurð,
var hann príntus mótor í undirbúningi kosn-
ingastarfsins og gjörsamlega óþreytandi í bar-
áttunni. Bestur var hann „maður á mann“ og
ég minnist þess hvað helst í kosningaundir-
búningi síðustu ára, að sjá Alla nteð sfmtólið í
hendi á tali við kjósendur. Og drifkraflurinn á
bak við hans ötula starf var trúin á málstað-
inn, jafnaðarstefnuna og hugsjónina að baki
henni. Og þó heilsan liafi verið farin að bila,
þá var andinn og eldmóðurinn sarnur sem
fyrr.
Það er sjónarsviptir af Alla krata. Við
Hafnfirðingar söknurn vinar í stað. Eftirlif-
andi eiginkonu, Valgerði Valdimarsdóttur, og
fjölskyldunni allri sendi ég hugheilar samúð-
arkveðjur.
Guðmundur Árni Stefánsson
í dag er til grafar borinn frá Víðistaðakirkju
í Hafnarfirði Albert Magnússon. Albert var
fæddur 7. september 1929 og ólst upp að
Miðhúsum í Norðfirði, yngstur átta systkina.
Ungur þoldi hann sjúkdómsraunir, því 14 ára
gamall greindist hann með berkla og glínidi
við þann sjúkdóm í fjögur ár á sjúkrahúsunt,
fyrst eitt ár á Seyðisfirði, síðan þrjú ár á Víf-
ilsstöðum. Nærri má geta Itversu þungbær
þessi reynsla var fyrir óharðnaðan ungling, en
því fór tjarri að hún bugaði Albert Magnús-
son. Honunt var gefið mikiö sálarþrek sem
hann var óspar á í annarra þágu. Á Víftls-
staðaárunum kviknaði stjómmálaáhugi Al-
berts. Hann kynntist þar jafnaðarstefnunni og
gerðist liðsmaður Alþýðuflokksins. Svo sam-
gróinn var hann Alþýðuflokknum og stefnu-
málum hans að flestir þekktu Itann fremur
undir nafninu „Alli krati“ en Albert Magnús-
son.
Vífilsstaðavistin dugði til að hrekja burt
vágestinn hvíta og 18 ára gamall hóf Albert
sitt ævistarf sem sjómaður og verslunarmað-
ur. Þessi störf stundaði hann í Hafnarfirði, á
Sauðárkróki og Stokkseyri. En lengst af í
Hafnarfirði þar sem hann átti drýgstan hluta
sinnar starfsævi. Það einkenndi öll störf Al-
berts hversu gott samband hann hafði jafnan
við sína samferðamenn og lifandi áhuga á
högum þeirra og góðan vilja til að verða þeim
að liði. Hann var ákaflega hjálpsamur maður
svo oft gekk það út yfir hans eigin hag.
Állar götur frá Vífilsstaðaárunum var Al-
bert óþreytandi talsmaður og starfsmaður fyr-
ir Alþýðuflokkinn. Hann gegndi ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir flokkinn, var m.a. formaður
Félags ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði, í
stjóm Sambands ungra jafnaðarmanna og í
flokksstjóm Alþýðuflokksins var hann um
árabil. En umfram allt var hann alla sína ævi
óþreytandi að tala máli flokksins og vinna
fyrir hann í kosningum. Á þeint vettvangi átti
hann fáa sína líka. Svo vel fylgdist hann með
hræringum og straumunt meðal fólks, á
vinnustöðum og heimilum, að hann var einn á
við fjölmennar skoðanarannsóknastofur og
kosningaskrifstofur. Sá sem hafði „Alla
krata“ með sér í kosningabaráttu átti sannar-
lega hauk í homi.
Ég var svo lánsamur að njóta krafta Alberts
Magnússonar, þegar ég var valinn til að vera í
framboði fyrir Alþýðuflokkinn í Reykjanes-
kjördæmi við alþingiskosningamar vorið
1991. Reyndar var hann í hópi þeirra manna
sem í upphafi hvöttu mig til þessa framboðs.
Fyrir þann stuðning stend ég í ntikilli þakkar-
skuld við Albert Magnússon. Þegar við
kynntumst var heilsa Alberts farin að bila en
stjómmálaáhuginn og baráttuviljinn var óbil-
aður. Meðal minna bestu minninga úr stjóm-
málastarfi er samstarfið við Albert Magnús-
son. Þótt líkaminn væri hrjáður af erfiðum
sjúkdómi glömpuðu augun af áhuga æsku-
mannsins. Hann varglöggskyggn á kosninga-
horfur og fór mjög nærri um úrslitin í Reykja-
neskjördæmi fyrir Alþýðuflokkinn vorið
1991 alllöngu fyrir kjördag, en í þeim kosn-
ingum bætti flokkurinn stöðu sína að mun. Sá
árangur var ekki síst að þakka ósérhlífni fólks
eins og Alberts Magnússonar.
Alþýðuflokksmenn í Reykjaneskjördæmi
þakka allt þetta starf. Við munum sakna vinar
í stað.
Við Laufey þökkum liðnar samverustundir
sem vom því miður of fáar. Á þessari stundu
leita hugir okkar með djúpri hluttekningu til
eiginkonu Alberts, Valgerðar Valdimarsdótt-
ur og sona þeirra, Tómasar og Alberts Vals,
og fjölskyldunnar allrar, sem mikið hefur
misst. Minningin um góðan dreng mun lifa.
Jón Sigurðsson
Á lífsleiöinni hef ég kynnst einhverjum
þúsundum fólks, sent ég kalla kunningja
mína, og í þeim hópi eru trúlega einhver
hundruð, sem ég get kallað góðkunningja
mína, jafnvel vini. Þessum hópi til viðbótar
eru svo þeir, sem eru mér nánir og þeir, sem
eru vinir mínir með þeint hætti, að eiga trún-
að tilfinninga minna.
Einn þannig vin minn. Alla krata (Albert
Magnússon) kveð ég í dag er lík hans verður
til rnoldar borið í Hafnarfirði. Leiðir okkar
Alberts lágu fyrst saman fyrir 35 árum í stjóm
Félags ungra jafnaðannanna í Hafnarfirði, og
á sama tínta urðum við nágrannar á Vestur-
brautinni í Hafnarfirði. Náinn samgangur
varð þá þegar milli heimila okkar, samgangur
sem þroskaðist í einlæga vináttu mína og
konu minnar við þau Albert og Valgerði, sú
vinátta og væntumþykja náði svo gagnkvæmt
til bamanna okkar.
Það er því svo ntargs að minnast að allt
blaðið hrykki ekki til, hvað þá stutt kveðju-
grein. Ég mun því stilla mjög f hóf að rekja at-
burði og athafnir en reyna heldur að fjalla um
eiginleika vinar míns og persónugerð. Ég
mun heldur ekki fjalla um afskipti Álberts af
Alþýðuflokknum það ætlaég öðrum. En þeg-
ar ég var spurður liver hann væri þessi Alli
krati, þá svaraði ég yfirleitt; „Alli krati er sér-
stök stofnun í Alþýðuflokknum.”
Albert varmjög viturog vel greinduren lít-
ið skólalærður. Hann fékk berkla þegar hann
var ungur drengur og á táningsárunum, með-
an öðm ungu fólki gafst tími lil náms í mál-
fræði, stærðfræði og tungum útlendra þjóða,
var hann á sjúkrahúsunt og berklahæli. Oft
svo fársjúkur að það þótti einsýnna að hann
mundi deyja en lifa. Skort á skólagöngu bætti
hann sér svo síðar á ævinni með þvi' að læra
það, sem hann þurfti og gera það léttilega. Oft
sagði hann mér frá því að á berklaárunum
hefði viljastyrkurinn einn haldið í honum líf-
inu. Margir stofufélagar hans dóu fyrir aug-
unum á honum og hann sagði mér að því
hefðu fylgt svefnlitlar og erfiðar nætur, en þá
hefði hann ævinlega gert sig upp með því að
strengja þess heit, að hversu veikur sem hann
yrði, þá skyldi hann aldrei gefast upp, hann
skyldi lifa og hann skyldi fara út af Vífilsstöð-
unt á eigin fótum.
Þegar Albert hafði verið á Vífilsstöðum i
rúm þrjú ár og læknar höfðu staðfest að hann
væri ömgglega ekki smitandi þá vildi hann fá
útskrift af hælinu til að geta séð um sig sjálf-
ur, en læknamir neituðu og töldu hann alltof
þreklítinn til að vinna fyrir sér. Þá tók Albert
pokann sinn og fór án þess að kveðja. Ekki
var hann eltur en plássinu hans var haldið
auðu í þeirri vissu að hann gæfist upp og sneri
til baka. En læknamir þekktu ekki viljastyrk
unglingsins.
Albert var sannfærður um að hann væri
laus við berklana f eitt skipti fyrir öll og það
reyndist rétt. Hann hét að til Vffilsstaða færi
Itann ekki aftur, þó hann ætti þar skjól. Albert
sagði mér oft að fyrstu vikumar eftir að hann
kom út af berklahælinu hefðu verið erfiðar.
Hann fékk leigt ískalt kjallaraherbergi í Hafn-
arfirði en hann fékk enga vinnu og hann átti
enga peninga fyrir mat, hann átti aðeins vilja-
styrk. Hann komst yfir svolítið af kartöflum
og fann sér öngla og snæri og fór svo á
bryggjumar að veiða. Hann hló ævinlega jteg-
ar hann sagði mér þessar veiðisögur, „ég fékk
ekkert nema marhnúta, fyrst henti ég þeim en
það var sama hvað ég reyndi ég fékk alltaf
marhnút og aftur marhnút og ekkert nema
marhnút svo ég ákvað bara að prófa hvemig
væri að éta marhnút”. í kjallaranum þar sem
hann leigði var þvottahús með eldstæði. Á
nóttunni þegar aðrir sváfu þá læddist hann
fram og kveikti upp, og í fiskibolludós sauð
hann sér svo kartöfiur og marhnúta. Ég hef
orð Albert vinar mi'ns fyrir því að marhnútur
og þó sérstaklega marhnútalifur séu herra-
ntanns kræsingar.
Það þurfti rnikinn viljastyrk til að ln'rast al-
einn og allslaus í köldum kjallara og þurfa
ekki annað en taka strætó til að komast í hlýju
og skjól á Vífilsstöðum. Það þurfti nteira en
meðalmennsku til að standast þá freistingu.
En Albert Magnússon var ekkert nteðal-
ntenni, hann var hetja. Viljastyrkurinn, sem
var, að mér fannst, mest áberandi einkennið á
skaphöfn Alberts var því engin tilviljun. Lífs-
löngunin, sérstaklega hvöt alls þess sem lifir,
Itafði sjálf fléttað í hann þann viljastyrk sem
var síðasta haldreipið. Hugtakið uppgjöf not-
aði liann stundunt um aðra, en sjálfur gafst
hann aldrei upp við nokkurt viðfangsefni,
hvorki huglægt né verklegt, - aldrei.
Stundum leit ég á þennan viljastyrk sent
þvermóðsku eða þrjósku, ævinlega þó sem
staðfestu og oft sem ótrúlegt siðferðisþrek, og
ég lærði að virða þcnnan viljastyrk, sem gaf
honunt svo mikið afl að líkamsburðir virtust
skipta litlu. Því var það, að þegar Albert vinur
minn komst svo að orði við ntig upp úr ára-
mótum, að af sérstökum ástæðum, sem hann
tilgreindi, þá ætlaði hann sér að tóra að
minnsta kosti fram á sumarið. Þá hvarflaði að
mér efi um annað, og vissi ég þó vel að lík-
amsþrek hans var nánast þrotið.
Árið 1961 fluttum við hjónin norður á
Sauðárkrók, ári síðar fluttu þau Albert og
Valgerður til Sauðárkróks. Á Sauðárkróksár-
unum starfaði Albert í mörg ár sem mat-
sveinn á skipum Útgerðarfélags Skagfirð-
inga. Það lýsir vel umhyggju Alberts fyrir
öðru fólki að um borð í togaranum hirti hann
mikið af undirmálsfiski, sem hann verkaði í
bútung, stundum upp í tvær tunnur í ferð.
Hann verkaði ntikið í hverri ferð af sjósignum
fiski, hann flakaði fisk og frysti og hann bjó
til hakk og frysti. Þegar togarinn kom í land
og aðrir fóru heim til sín þá keyrði Albert um
bæinn og gaf allan þennan mat. Mest gömlunt
körlum og kerlingum og einstæðingum og
fólki, sent var þannig statt fjárhagslega að það
munaði um að fá gefinn mat. Og hann gaf
þennan mat svo laglega að enginn var auð-
mýktur. Ef hann vissi af einhverjum, sem var
þannig staddur að hann munaði um að fá gef-
inn mat, þá sætti Albert lagi að mæta viðkom-
andi og segja honum að hann væri með mik-
ið af fiski sem hann tímdi ekki að henda og
hvort hann mætti ekki færa honum í soðið.
Þannig lifði Alli krati sína lífsskoðun.
Að endingu vil ég víkja að einum þætti í
persónugerð Alberts, sem hafði mjög mikil
áhrif á æði hans allt og athafnir, en það var al-
gjör sannfæring hans um framhaldslíf persón-
unnar eftir líkamsdauðann. Vegna þeirrar
sannfæringar þá gat hann hispurslaust og
óttalaust við mig og aðra vini um dauða sinn
eins og um ferðalag. sem hann væri að fara í.
Ég ætla að leyfa mér að ljúka Jtessum
kveðjuskrifum með því að látast vera áhorf-
andi að einum liluta af Jtessu ferðalagi Alberts
vinar míns í þeint heimi framandi vídda, sem
hann var svo sannfærður um að biði okkar.
Sviðið er ótilgreint en ég sé töluvert af
fólki og Albert vinur minn er þar á tali við
stórvaxinn mann. Ég færi ntig nær og spyr
einhvem á leiöinni hver hann sé þessi stóri,
sem litli karlinn með skeggið sé að tala við. „-
Þetta er Itann Pétur postuli, það er hann sent
tékkar á því hvort maður eigi innistæðu fyrir
vistinni í bjarmalandinu þama hinum megin
við hliðið, það er toppurinn að komast þang-
að." Ég færi mig nú nær og sent ég fer að
nenta orðaskil, þá heyri ég að Pétur segir:
„Hér hafa hlaðist einhver ósköp af Guðs-
blessunar bænum og góðum óskum þér til
handa. Það sent þið gjörið einum af mínunt
minnstu bræðmm það hafið þið einnig mér
gjört, sagði Guðssonurájarðvistardögum sín-
um. Og satt best að segja Alli rninn þá hafa
safnast hér verulegar innistæður í hintnakl-
addann, sem fjöldi okkar minnstu bræðra hef-
ur lagt þar inn á þitt nafn.” Og postulinn bros-
ið breitt og ég sé að lófamir snúa upp Jtegar
hann réttir fram hendur sínar til Alberts vinar
míns, sem gengur í opinn faðm hans. Pétur
Ieggur amt sinn yfir bak hans og tekur urn þá
öxlina, sem honurn er fjær, og þannig horfi ég
eftir vini mi'num leiddan undir anni postulans
beina leið gegnum hliðið að heimi Ijóssins.
Eftir stend ég með verk í brjóstinu og ég
veit að hann stafar af sorg minni af því að sjá
ekki vin tninn framar. I huganum hrópa é_g
hinstu kveðjuna til Alla krata:
Farðu vel félagi og vinur og til hamingju
með að vera kominn á kjörskrá í ljóssins borg,
sem er stjómað að eilífum meirihluta jafnrétt-
is, frelsis og bræðralags. Jalnaðarstefnunnar,
sem lifir í hugsjónum þínum.
Birgir Dýrfjörð.
Albert Magnússon er látinn. Vandamenn
og vinireiga um sárt að binda. Hann hafði um
alllangt skeið átt við vanheilsu að strfða og
menn grunaði að hverju dró. En andlát góðra
ntanna kemur mönnunum, sem í kring um þá
em, alltaf jafn rnikið í opna skjöldu, jtegar
kallið kemur.
En kallinu mikla verður hver og einn að
hlýða, jafnvel þótt eindæma þrjóskir og stað-
festumiklir menn eins og Albert Magnússon
eigi í hlut. Jarðnesk ganga hans er til enda
gengin og við sem eltir lifum sitjum í sárum
með þökk og virðingu í hjarta. En minningin
um hugsjónamann og góðan dreng lifir hjá
Jteim sem hann þekktu.
Albert Magnússon fæddist á Miðhúsum í
Norðfirði hinn 7. dag septembermánaðar árið
1929. Foreldrar hans voru hjónin Magnús
Guðmundsson og Anna Aradóttir. Albert var
yngstur átta systkina. Fjölskyldan var því stór
og margir munnar að metta.
Strax bam að aldri hóf Albert harðvítlega
baráttu við heilsuleysið. Þau vom ekki ófá
skiptin sem honum var ekki hugað líf, Jtegar
lífsloginn bltikti á skari. Og eitt sinn var meira
segja lítill frændi hans, Albert EymundssórT“
núverandi skólastjóri á Höfn, látinn heita eftir
honunt, því að Albert Magnússyni var þá vart
hugað líf.
En Albert var ákveðinn og einbeittur og lét
ekki hugfallast. Hann vildi lifa og skyldi lifa.
Og þessi kjarkur og lífsvilji fleytti honurn yfir
rúmlega 60 ára skeið.
Það þótti ekki einleikið, hve heilsutæpurv-
Albert var strax á unga aldri. Sjö ára gamall
var hann sendur til Reykjavíkur til rannsók-
nar. Þá Ienti Albert í fyrsta skipti inn á stofn-
un og henti Itann stundum garnan að því, að
sú stofnun, sem þá tók við honunt, var elli-
heimilið Gmnd.
Það er þó ekki fyrr en hann er 13 ára gam-
all, að það uppgötvast að Albert er smitaður
af berklum. Berklar vom þá mikill vágestur í
landinu og voru stundum nefndir hinn hvíti
dauði. Fjölmargir, konur jafnt sem karlar,
urðu berklunum að bráð og það þótti skelfi-
legt, þegar einhver uppgötvaðist nteð berkla.
Fólk óttaðist smitun og ntargir sjúklingar
lifðu i' angist og ótta, stundum nærri því í
einangmn.
Það er þess vegna hægt að t'mynda scr
hvemig Albert og fólki hans varð við, jtegar
ljóst var að hann var smitaður af berklum. En
eins og áður segir, var hugarþrótturinn mikill,
kjarkurinn ódrepandi og lífsviljinn ósveigjan-
legur, hjá þessum veiklulega grannvaxna
dreng. Hann var ekki til jtess fæddur að gefast
upp, þótt á móti blési. Hann háði margar
tvísýnar omstur við sjúkdóm sinn og kom frá,
Jteim sem sigurvegari, öllunt nema þeirri
síðustu.
Albert Magnússon fór á Vífilsstaðaspítal-
ann 14 ára og þar var hann sjúklingur í rúm
þrjú ár.
Þá fór hann til Hafnarfjarðar, leigði sér eitt
lítið herbergi, og hélt áfram lífsbaráttunni þar,
enda þótt læknar vildu hafa hann áfram á
V ífilsstöðum. En þá sem oftar fór Albert sínar
eigin leiðir. hvað sem aðrir sögðu eða töldu
skynsamlegt. Þetta var hans líf og það var
hans ákvörðun hvemig Jtví skyldi lifað. Og
þetla varð rauði þráðurinn í lífi hans og tilveru
og gæfan fylgdi ákveðni hans og æðruleysi.
Þetta var grunnurinn sem ævi lians byggði á.
Albert Magnússon varð að vinna fyrir
lífsviðurværi sínu hörðum höndum. Hann
lagði gjörva Itönd að mörgu verki. Hann var
verkaniaður, sjómaður, matsveinn og kaup-
maður og allt fór honum þetta einstaklega vef“
úr hendi. Hann lagði sig allan í hvert það starf
sem hann gaf sig f. Slíkir menn sjá oft árangur
af verkum sínum.
En Albert Magnússon gekk ekki einn göt-
una fram eftir veg. Fyrir réttum 40 ámm
kynntist harin konu sinni Valgerði Valdi-
marsdóttur, með þeim tókust ástir og síðan
hafa þau deilt saman bæði súm og sætu. __
Hún hefur verið hans góði fömnautur.
sívinnandi og sívakandi unt heill hans og
hamingju. Þau vom samhent hjónin, studdu
hvert annað í blíðu og stríðu, áttu saman
drauma og þrár, dugnað og þrek. Sarnan
Framhald á næstu síðu