Alþýðublaðið - 16.04.1993, Blaðsíða 8
V í K I N G A
LOTT
alltaf á irriövikiidöguin
JUJYIUBUNB
Föstudagur 16. apríl 1993
57. TOLUBLAÐ - 74 ARGANGUR
L #¥¥«
i
alltaf á miðvikudögtmi
Alþjóðlegur sjávarút
vegsskóli á íslandi?
Davíð Oddsson: Fyllilega athugunar virði. Össur Skarphéðinsson:
s
Mikilvœgur stuðningur við útflutning frá Islandi.
““ í umræfium á Alþingi í gaer tók
Davíð Oddsson undir með for-
manni þingflokks Alþýðuflokks-
ins, að nauðsynlegt væri að kanna
möguleikana á stofnun alþjóðlegs
sjávarútvegsskóla á Islandi.
Hann kvað málið hafa verið rætt
í ríkisstjórn, og starfshópur, sem
ynni að auknum verkefnaútflutn-
ingi frá íslandi myndi meðal ann-
ars skoða hvort ekki vaeri grund-
völlur fyrir slíkum skóla á Is-
landi.
Málshefjandi, Össur Skarphéð-
insson, kvað vaxandi eftirspum
þjóða þriðja heimsins eftir aðstoð
Islendinga við að þjálfa mannafla til
starfa í sjávarútvegi staðfesta að
Landssamband slökkviliðsmanna
Fordæmir
ríki, borg og
sveitarfélög
-fyrir að hafna því að sambandiðfái
samningsrétt. Aðilar gersamlega ósam-
mála um túlkun samningsréttarlaga
•-Kjara- og fulltrúaráð Lands-
sambands slökkviliðsmanna (LS)
fordæmdi afstöðu fjármáiaráðu-
neytisins, Reykjavíkurborgar og
Sambands íslenskra sveitarfélaga
til samningsréttar slökkviliðs-
manna í landinu, fyrr í mánuðin-
um. Umræddir aðilar höfðu þá
alfarið hafnað því að LS færi með
*sámningsumboð fyrir slökkvi-
liðsmenn.
Jón G. Kristinsson, starfsmanna-
stjóri Reykjavíkurborgar, segir það
alveg ljóst að samkvæmt samnings-
réttarlögum eigi LS ekki rétt á að
gerast lögformlegt stéttarfélag með
samningsrétt fyrir aðildarfélaga
*íína. Það sé samdóma álit borgar-
ráðs, fjármálaráðuneytisins og
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Því hafi þeim verið alfarið hafnað
sem samningsaðila. Jón G. sagði að
vildi Landssambandið ekki una nið-
urstöðunni gætu þeir að sjálfsögðu
farið með málið fyrir Félagsdóm.
í samþykkt frá LS segir: „Þá lýs-
ir fundurinn yfir furðu sinni vegna
grófrar íhlutunar borgarráðs í innri
-4élagsmál starfsmanna sinna. Fund-
' urinn krefst þess að virt séu þau
sjálfsögðu réttindi starfsstéttar
slökkviliðsmanna að semja um kjör
Össur Skarphéðinsson vill kanna
möguleika á að hér á landi verði
stofnaður alþjóðlegur sjávaútveg-
sskóli.
grundvöllur væri fyrir slíkum skóla.
Islendingar réðu jafnframt yfir
nægri þekkingu og mannafla til að
halda honum úti. Hann benti á, að
margar af helstu háskólaþjóðum
heimsins löðuðu til sín erlenda
námsmenn, því reynslan sýndi að
þegar þeir væru komnir til starfa í
heimalöndum sínum og teknir við
stjómunarstörfum beindu þeir
kaupum á tækjum og þekkingu til
síns gamla námslands. Þannig
hefðu erlendir námsmenn reynst
iðnaðarþjóðunum drjúg fjárfesting.
„Þau ríki, sem hafa óskað eftir
aðstoð íslendinga eiga það sameig-
inlegt að sjávarútvegur þeirra er
vanþróaður, og tækist okkur að
tengjast uppbyggingu greinarinnar í
þessum Iöndum er ekki efamál að
það mun skila sér margfalt í kaup-
um á skipum, vélbúnaði og hvers
kyns þekkingu héðan,“ sagði Össur.
Hann taldi að skólann mætti fjár-
magna með þrennum hætti: gegn-
um þróunaraðstoð; með því að láta
betur stæðar þjóðir borga fyrir
námsmenn þaðan, og að síðustu
með framlögum frá Sameinuðu
þjóðunum. En hér á landi er einmitt
starfræktur alþjóðlegur jarðhitahá-
skóli, sem Sameinuðu þjóðimar
kosta að verulegu leyti. „Hvers-
vegna myndu þær ekki líka vilja
styrkja alþjóðlegan sjávarútvegs-
skóla hér á íandi?“ spurði Össur.
Helgi Dan.
sextugur
Helgi Daníelsson, yfirlögreglu-
þjónn Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins er sextugur í dag. Hann er að
sjálfsögðu fæddur og uppalinn á
Akranesi og hélt á yngri árum
marki hins fræga gullaldarliðs
Skagans ótrúlega hreinu, eins og
margir kannast við. Og enn í dag
er Helgi án efa fyrst og fremst
Skagamaður.
Helgi hélt til Reykjavíkur ungur
að árum og lærði prentlist í Isafold.
Síðar hélt hann á sínar heimaslóðir
og tók brátt til við nýtt starf í lög-
reglunni á Akranesi. Síðar flutti
hann með fjölskyldu sinni til
Reykjavíkur og gerðist starfsmaður
rannsóknarlögreglunnar og síðar
RLR.
íþróttaferill Helga Dan var
glæsilegur. Hann var langbesti
markvörður landsins um árabil,
með ÍA-liðinu, Val meðan hann var
við prentnám, og með landsliði Is-
lands. Er það mál manna að annar
eins markvörður haft ekki sést á
knattspymuvöllum okkar.
Alþýðublaðið og Alþýðuflokk-
urinn eiga Helga Dan mikið upp að
unna. Árum saman var Helgi af-
kastamikill og hugmyndaríkur
fréttaritari blaðsins á Akranesi. Og í
flokksstarfinu hefur Helgi tekið
virkan þátt og situr nú í stjóm Al-
þýðuflokksfélags Reykjavíkur og
var í sjöunda sæti á Reykjavíkurl-
ista flokksins til Alþingiskosninga
vorið 1991.
Alþýðublaðið sendir Helga sínar
bestu kveðjur og ámar honum
heilla um framtíð alla. Helgi mun
taka á móti vinum sínum í Breið-
fírðingabúð við Faxafen (sama hús
og Bónus), 2. hæð, eftir kl. 20 í
kvöld.
Lúðrasveit Reykjavíkur heldur
fjölskyldutónleika í Ráðhúsi
Reykjavíkur á morgun laugardag.
kl 14:00. Bogarbúar em velkonmir
í Ráðhúsinu
á tónleikana. Sveitin mun leika þar
nokkur létt lög við allra hæft.
Stjómandi sveitarinnar er Helgi Þ.
Svarvarsson. Aðgangur er ókeypis.
Frumvarp um lögskráningu sjómanna
Allir sjómenn á námskeið
?r ekki til trillukarla, en ástœða til að skylda þá einnig á námskeið, segir Hilmar
sín líkt og aðrar fagstéttir í landinu.
Til að ná fram samningsrétti félags-
ins munu slökkviliðsmenn nú beita
öllum tiltækum ráðum.“
Guðmundur Vignir Óskarsson,
formaður LS, sagði við Alþýðu-
blaðið í gær að það væri alveg ljóst
að slökkviliðsmenn hefðu fuílan
lagalegan rétt á að stofna landssam-
band sem færi með samningsrétt
þeirra. Hann kvað þó sambandið
ekki vera með áform um að vísa
málinu til kjaradóms en myndi þess
í stað reyna að vinna því fylgis en
taldi að embættismenn hefðu afflutt
málið fyrir þeim stjómmálamönn-
um sem um það fjölluðu.
Vinningstölur .
miðvikudaqinn:!14- apnl 1993
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
|| 6 af 6 2 / á Islandi 0 10.527.000.-
-0 5 af 6 +bónus 2 396.725.-
3 5af6 7 36.699,-
□ 4 af 6 301 1.357,-
m 3 af 6 +bónus 956 184.-
Aðaltölur:
10) (18) (44
Heildampphæð þessa viku:
22.688.704.-
á ísl.:
1.634.704.-
SING- ,------
LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEO FVRIRVARA UM PRENTVILLUR
Nœr
Allir sjómenn sem starfa á ís-
lenskum skiputn og bátum sem
eru stærri en 12 brúttólestir
þurfa að hafa lokið námskeiði frá
Slysavarnaskóla sjómanna, ef
frumvarp samgönguráðherra
um lögskráningu sjómanna verð-
ur að lögum. Þetta þýðir að sýslu-
menn landsins geta neitað sjó-
mönnum um lögskráningu á skip
ef þeir geta ekki framvísað skír-
teini frá Slysavarnarskólanum.
Skólinn hefur verið starfræktur
frá árinu 1984 en það var ekki fyrr
en 1991 sem lög um Slysavamar-
skóla sjómanna vom samþykkt á
Alþingi. Þar er kveðið á um að
stefnt skuli að því að breyta lögum
um lögskráningu sjómanna í það
horf sem nú stefnir í. Frumvarpið
hefur hlotið blessun sína í báðum
stjómarflokkunum, þannig að búast
má við því að það verði samþykkt
fyrir þinglok. Ef svo verður
munu yfirmenn í sjómanna-
stétt fá tveggja ára aðlögun-
artíma til þess að uppfylla
þessi skilyrði, en undirmenn
þrjú ár.
Hilmar Snorrason skóla-
stjóri Slysavamaskólans og
skipstjóri á Sæbjörgu, sem er
skip skólans, segir að þarna
sé mjög gott mál á ferðinni
og nauðsynlegt sé að allir
sjómenn haft lágmarksþekk-
ingu á þeim björgunar- og
öryggisbúnaði sem sé um
borð í skipunum. Hann sagði
að það væri mjög raunhæft
að áætla tveggja til þriggja
ára aðlögunartíma, því sam-
skylda þá einnig
Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskólans
kvæmt könnun skólans séu það að-
eins um 800 af 7000 starfandi sjó-
mönnum sem ekki haft lokið nám-
skeiðum hjá skólanum. Þá má geta
þess að síðan Slysavamaskólinn
hóf starfsemi sína fyrir 9 árum síð-
an hafa 7400 manns sótt þar nám-
skeið. Sumir hafa að vísu farið oftar
en einu sinni á mismunandi nám-
skeið og þá telur Hilmar að það sé
tími til kominn fyrir suma að fara
aftur.
Lögin um lögskráningu sjó-
manna ná ekki til sjómanna á bátum
undir 12 brúttólestum, eða svokall-
aðra trillukarla.
Hilmar Snorrason segir að það
séu haldin sérstök námskeið fyrir
trillusjómenn og margir haft sótt
þau. „Hin tíðu slys hjá þessum hópi
og stækkun smábátaflotans hafa
hins vegar orðið til þess að við höf-
um vaxandi áhyggjur af trillusjó-
mönnum. Á trillunum er stór hópur
manna sem eru einir út á sjó og það
er ástæða til að gefa þeim meiri
gaum. Ég tel því að það sé full
ástæða til að skikka þá líka á nám-
skeið hjá skólanum", sagði Hilmar.
Námskeiðin hafa farið fram með
þeim hætti að skólaskipið Sæbjörg
hefur siglt í kringum landið og
komið við í flestum sjávarplássum
og boðið upp á sína fræðslu. Mörg
námskeið eru fyrirhuguð í sumar og
verður byrjað í Grindavík þann 5.
maí næstkomandi.
Ætli þessi sjómaður hafa farið á nám-
skeið?
**.