Alþýðublaðið - 22.06.1993, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 22.06.1993, Qupperneq 4
4________________________________ Þegar núverandi hæstvirt ríkis- stjóm, sem auðvitað hefur ekki aðeins glatað trausti samfélagsins heldur einnig sjálfstrausti og sjálfsvirðingu, hefur sagt af sér er það samt að fara úr ösku í eld, ef einhver ímyndar sér að háttvirtur þingmaður, Geir Hallgrímsson, og Kjartan Jóhannsson ráði við þau verkefni sem hæstvirtir ráð- herrar Gunnar Thoroddsen og Svavar Gestsson hafa ekki ráðið við. Slæmt er það, en verra getur það verið. Slíkt er auðvitað engin lausn, í besta lagi brosleg hug- mynd. Nei, lausnin verður að vera öðmvísi hugsuð. Við reynum fyrst meirihlutastjóm á Alþingi. En væntanlega mun það ekki reynast fær leið. Við reynum þá minnihlutastjóm. Það er einnig ólíklegt að það gangi, en þó ekki útilokað. Ef það bregst verðum við að mynda ríkisstjóm utan- þingsmanna. Vitaskuld em þeir háttvirtu þingmenn til, þverpólit- ískt talað, sem mundu sýna utan- þingsstjóm fulla ábyrgð meðan verið væri að koma skikki á efna- hagsmál, eftir því sem hægt er, og ganga frá drögum að nýrri stjómarskrá. Ég treysti til slíkra verka til dæmis háttvirtum þingmönnum, Geir Gunnarssyni, Sighvati Björgvinssyni, Halldóri As- grímssyni og Eyjólfi Konráð Jónssyni. Á meðan þessu færi fram em háttvirtir þingmenn, Matthías Bjamason, Helgi Selj- an, Stefán Valgeirsson og Jón Hannibalsson að dunda við at- kvæðaöflun í Framkvæmda- stofnun ríkisins, bankaráðum rík- isbankanna og rándýmm fjöl- skylduhátíðum í Broadway. Menn spyija: Hver ætti að veita slíkri utanþingsstjóm for- stöðu? Ég treysti til dæmis Jó- hannesi Nordal seðlabankastjóra til þess, manni sem hefur verið níddur sem ímynd kerfismennsk- unnar, en hefur nýverið gert heilli ríkisstjóm og ónýtu valdakerfi skömm til með því að freista þess að halda uppi landslögum og rétt- um leikreglum í verðtryggingar- málum, meðan fyrirgreiðslukerf- ið hefúr skolfið og titrað, nítt og nagað og reynst ófært um ein- földustu stjómarathafnir. Þeir háttvirtu alþingismenn em til, meira að segja margir, sem mundu koma fram af fullri ábyrgð við slíkar aðstæður, þó svo flokkakerfið, hin þrönga lok- aða lágkúra mundi auðvitað segja nei. Þetta um ríkisstjómina og van- traustið. Samandregið er svarið einfalt. Ríkisstjómin er ónýt og á að fara ffá. Og bráðabirgðalögin, eignatilfærslan vegna hinnar heimatilbúnu kreppu hins ónýta stjómkerfis, eiga auðvitað að falla. Ef menn og samtök þeirra hafa samið af sér, þá skulu stjóm- völd gefa samninga lausa. Það er einföld leið, ábyrgðin til fólksins. Menn hljóta að sjá og skilja undirstrikun þeirrar staðreyndar að valdakerfið í landinu, hin þröngu og lokuðu flokksvöld, hin fölsku völd hafa bmgðist, því að stjómmálasamtök sem enn em ekki formlega til þó undirbúning- ur sé vel á veg kominn. Bandalag jafnaðarmanna, hafa ein stjóm- málasamtaka sett fram skýrar til- lögur um kjördæma- og stjómar- skrármál. Síðan 1978 hefur setið stjóm- arskrámefnd undir forystu hæst- virts forsætisráðherra. Það að hann skuli enn sitja þar, þrátt fyr- ir sitt virðulega embætti nú, lýsir miklum metnaði en lítilli dóm- greind. Nýlega hafa háttvirtir alþingis- menn séð vinnugögn stjómar- skrámefndar. Vinnan er lítils, jafnvel einskis virði. Það er um- skrift á nokkmm gömlum grein- um stjómarskrárinnar. Ekkert er komið um nútímaleg ákvæði eins og eignarréttarhugmyndir eða mannréttindi minnihlutahópa, ekkert um frelsi til tjáningar eða hagsmunasamtök. Og að því er kjördæmamálið sjálft varðar er nefndin í sömu spomm og hún var þegar hún byrjaði. Með örfáum virðulegum und- antekningum sitja þama varð- hundar valdsins, varðhundar hins þrönga flokksræðis og hugsa um sjálfa sig og völd sín, völdin gegn fólkinu í landinu. Væntanlegt Bandalag jafnaðarmanna hefur hins vegar flutt hér á Alþingi til- lögur, sem ég veit að varla eiga enn mikinn hljómgmnn í þessu skelfilega húsi en ég er samt jafn sannfærður um að muni eiga fylgi að fagna út um hið víða og breiða land, ef tekst að bijótast fram hjá varðhundum valdsins og til fólksins sjálfs. Við leggjum til að forsætisráð- herra sé kosinn beinni kosningu í tvöfaldri umferð ef ekki næst hreinn meirihluti í þeirra fyrri. Með öðmm orðum, að landið verði eitt kjördæmi að því er tek- ur til framkvæmdavaldsins. Við leggjum til að því er tekur til löggjafarvaldsins verði kjör- dæmaskipun óbreytt. Við leggjum til að algerlega verði skilið milli löggjafarvalds og framkvæmdavalds, með öðr- um orðum að störf háttvirtra al- þingismanna verði að setja land- inu almennar leikreglur og síðan að hafa eftirlit með því að þess- um almennu leikreglum sé fylgt. Við leggjum til að mörkun utanríkisstefnu, sem vitanlega er afar viðkvæm fyrir eyland í Atl- antshafinu miðju, verði af hendi Alþingis, enda verði annað hættulegt. Og við leggjum til að þingrofs- réttur verði afnuminn, með öðr- um orðum að kosið sé reglulega á íjögurra ára fresti. Þetta mun í senn leiða til styrkrar stjómar og mikillar vald- dreifingar. Umfram allt em þetta tillögur, þar sem hægt er að ná fullum og réttmætum sáttum milli þéttbýlis og dreifbýlis, í stað þess byggðastríðs sem gamla flokkakerfið ástundar um þessar mundir. Vitaskuld em að hluta til tvær þjóðir í landinu, sú sem byggir þétt og hin sem byggir dreift. Ekki má gera of mikið úr slíkri skiptingu, en það má heldur ekki líta fram hjá henni. í þéttbýli er meiri þjónusta, erfiðara að kom- ast úr og í vinnu, en samt um sumt meiri möguleikar. í dreif- býli vítt hugsað er þessu öfugt farið. Við verðum að taka tillit til þessara staðreynda og umfram allt ná fullum sáttum. Forsvars- menn gamla flokkakerfisins vilja ekki sættir. Þeir vilja ómerkilegt stríð. Þeir vilja stríð milli lands- hluta, aðstöðu til sinna eigin at- kvæðaveiða. Sú leið sem væntanlegt Banda- lag jafnaðarmanna leggur til er fær. En hún felur miklu meira í sér. Hún felur það í sér að flokks- völdin, völd nokkurra hundruða karla og kvenna í svokölluðum stjómmálaflokkum - þar sem menn em auðvitað fyrst og fremst að vemda aðstöðu í verka- lýðshreyfingu eða verslunarráði - á fjölmiðlum eða jafnvel í heimi lista og bókmennta verði brotin upp. Lýðræði verði gert virkt og beint. Ekki aðeins á þessu sviði heldur mun fylgja í kjölfarið virkt og raunvemlegt lýðræði, ekki þröngt og lágkúm- legt flokksræði í hinum smærri einingum samfélagsins. Þetta em með öðmm orðum tillögur fyrir fólk, en ekki tillögur gegn fólki. Háttvirtir alþingismenn eiga ekki að sitja í Kröflunefndum neins konar, ekki bankaráðum, ekki Framkvæmdastofnun ríkis- ins. Þeir eiga ekki að sitja í út- varpsráði og ákveða hvaða varð- hundur valdsins fær að tala um daginn og veginn eða stjóma valdhlýðnum umræðuþáttum í sjónvarpi. Þetta lokaða valdakerfi verður brotið upp. Nú á rismikið fólk, allt fólk að fá sitt tækifæri. Nú skal bælingin f hinu niðumj- örvaða flokkavaldi vera á burt. Ég vil eindregið hvetja þá sem á mál mitt kunna að hlýða að kynna sér fyrsta þingskjal vænt- anlegs Bandalags jafnaðar- manna, þingskjals um hreinan aðskilnað löggjafarvalds og framkvæmdavalds og beina kosningu forsætisráðherra, og þá sérstaklega klassískar ritgerðir þeirra Gylfa Þ. Gíslasonar og Ól- afs Jóhannssonar. Þar er lýst með ljósum hætti hinum raunvemlegu vandamálum íslenskrar stjóm- málasögu, hættum sem stafa af hagsmuna- og flokkavaldi. Annað þingmál væntanlegs Bandalags jafnaðarmanna er um það bil að sjá dagsins ljós. Við viljum gefa fiskverð frjálst. Burt með oddamanninn, burt með rík- isvaldið. Samningar manna og samtaka þeirra eiga að vera frjálsir. Menn og samtök þeirra eiga að bera fulla ábyrgð á því sem þeir em að gera og semja um. Ef húsin semja um hærra verð en þau geta greitt, þá eiga þau að fara á hausinn. En ríkið á ekki að greiða þeim bakreikninga með lækkuðu gengi, hækkuðu vömverði fólksins í landinu. Við viljum frelsi, frelsi fyrir litlar ein- ingar. Við viljum ábyrgð, ábyrgð fyrir einstaklinga og samtök þeirra. Við viljum að samnings- gerð sé frjáls og við viljum að maðurinn sé fijáls. Varðhundar valdsins em víðar, varðhundar hins þrönga og lok- aða flokkakerfis. Menn spyija af hveiju við í væntanlegu Banda- lagi jafnaðarmanna tökum þá áhættu sem við gemm, því að ekki eigum við mikla peninga og ekki eigum við aðgang að stofn- unum valdsins. Ég vil segja pólitíska dæmi- sögu. Eitthvert veigamesta fmm- varp sem við höfum staðið fyrir hér á Alþingi er frumvarp til laga um heimild til handa starfsfólki á stærri vinnustöðum að semja sjálft um kaup sitt og kjör eða hvað annað, þar með talin félags- mál og aðild að stjóm eða eignar- aðild að fyrirtækjum. Þessi hug- sjón hefur víða verið kynnt á vinnustöðum og er óhætt að segja að fólk hafi sýnt henni áhuga. Það veit að hér er verið að fjalla um aukin réttindi og aukin völd, að vísu dreifð, en þess sjálfs. Við höfum þurft að sæta því, að í gamla flokknum er eitthvert appírat sem þeir kalla verkalýðs- málaráð. Þar sitja nokkrir tugir karla og kvenna sem meira og minna hafa atvinnu af störfum í þágu verkalýðshreyfingarinnar. Aftur og aftur hefúr þetta fólk kolfellt að gamli flokkurinn sem slíkur hafi nokkur afskipti af þessu máh, nú síðast fyrir nokkr- um vikum. Við vitum hins vegar að þetta kerfi er rammfalskt. Þetta fólk er ekki fulltrúar fyrir neinn nema sjálft sig og hags- muni sína. Nú verður auðvitað að álykta afar varlega og ekki vil ég gera þessu fólki eða yfir höfuð nokkrum manni upp illar hvatir. En hagsmunavarsla af þessu tagi er stórhættuleg. Og umfram allt stendur hún framförum og frelsi fyrir þrifum. Þessi litla dæmisaga segir rnikla póliríska sögu. Hún er lýs- ing á hagsmunavörslu gamla flokkakerfisins eins og það legg- ur sig. Helsti talsmaður gegn þessu frumvarpi á Alþingi hefur verið háttvirtur þingmaður Guð- mundur J. Guðmundsson. í vaxtamálum gengur hann ekki erinda síns fólks, svo mikið er víst. Og ég vil bæta við, að þrátt fyrir þetta og þrátt fyrir allt eru auðvitað góðar taugar í mínum gamla flokki. En þessi þrönga hagsmunavarsla er ekki aðeins ósæmileg, hún er beinlínis and- lýðræðisleg. Hin þröngu flokks- völd teygja arma sína víða. Yfir- stéttin hér á hinu háa Alþingi, dyggilega studd varðhundum valdsins, ekki síst á ríkisfjölmiðl- um og flokksblöðum, hefur sína siði og sínar leikreglur. Og ég vil bæta því við að verið er að lýsa reglu þó svo að frá henni séu veigamiklar undantekningar. Þið hafið heyrt þá hér í kvöld metast um það hver hafi skrökv- að mest að þjóðinni á árum áður og hver minnst. Allir hafa þeir nokkuð til síns máls, satt er það. Svo koma þeir fjallhlaðnir skýrslum úr Þjóðhagsstofnun og lesa verðbólgutölumar sínar. Þeir em ekki ósammála um neitt sem máli skiptir. I raun og veru eru þeir allir eins. Munurinn er að- eins sá, að sumir em ráðherrar en aðrir vilja vera ráðherrar. Ég vil segja sögu um hegðan valdakerfisins, aðferðimar sem það hefúr til þess að halda upp- reisnarmönnum niðri, gagnrýni úti. Eftir myndun núverandi rík- isstjómar kom fljótlega 1. mars 1980. Þá átti að leiðrétta vexti samkvæmt lögum um efnahags- mál, Olafslögum svokölluðum. Ég bað um orðið utan dagskrár til að spyrja hæstvirtan bankamála- ráðherra, Tómas Ámason, hveiju það sætti að það hefði ekki verið gert. Lögbijóturinn kom í þennan ræðustól og hafði nánast það mikilvægast að segja, að umræð- ur utan dagskrár væm hvimleiðar og spilltu fýrir eðlilegum þing- störfum, - eðlilegum þingstörf- um, sagði lögbijóturinn. Og uppistaðan í frétt Ríkisútvarpsins þá um kvöldið var svofelld: „Alexander Stefánsson," sá sem var hér áðan, „sem gegndi starfi forseta Neðri deildar í fjar- vist Sverris Hermannssonar, sagði úr forsetastóli að þessi um- ræða sýndi nauðsyn þess að end- urskoða reglur Alþingis við um- ræður utan dagskrár." Þetta var þjóðinni sagt um um- ræður um lögbrot á hinu háa Al- þingi. Svona dæmi má taka enda- laust. Annað dæmi er meðferð valds- ins á háttvirtan þingmann Guð- rúnu Helgadóttur, þegar hún reyndi að halda á lofti mannrétt- indum erlends pilts sem hingað kom til lands, sem gestur. Valdið, fjölmiðlamir hafði engan áhuga á prinsippinu, rétti mannsins til að hlýða samvisku sinni. Þeir hund- eltu hins vegar háttvirtan þing- mann með sitt eina áhugamál: Hvaða áhrif hefur þetta upp- hlaup, þessi uppákoma á stöðu valdsins í landinu? Þriðja dæmið um meðferð hins samtryggða valds á okkur, sem sjáum í gegnum þetta næfur- þunna og brothætta kerfi, sem samanstendur af nokkmm hundr- uðum karla og kvenna: Sýslu- maður einn lætur án heimildar og umboðs Ríkisútvarpið hafa eftir sér róg um nýlátna erlenda stúlku og særða systur hennar eftir harmleik erfiðari en támm taki. Spurt er á Alþingi hvort ráðu- neytið hafi séð ástæðu til að gera athugasemd við þessa fram- komu, en áður hafði Blaða- mannafélag Islands, ein vald- dmslan til, ályktað til vamar sýslumanni. Valdakerfið bannar þessa fyrirspum og ætlar enn- fremur að brjóta landslög á spyrj- anda með því að láta bannið ekki koma til atkvæða samdægurs eins og landslög þó mæla skýrt fyrir um. Þetta er aðferð sem ríkisfjöl- miðlar og flokksblöð taka fullan þátt í, til þess að láta gagnrýni líta út sem gífuryrði og upphlaup. Valdakerfinu tókst þó ekki atlag- an að þessu sinni því að flokks- bræður stóðu með, þó með hang- andi haus væri, umfram allt Al- þýðubandalagið þó með. Það mun hafa verið verk hæstvirts fjármálaráðherra, Ragnars Am- alds. Má upplýst fólk í landinu standa í þakkarskuld við hann fyrir það, að þessi atlaga valda- kerfisins að einstaklingi geigaði. Tveir fymim flokksbræður stóðu hins vegar upp og þurftu endi- lega, um leið og þeir afsakandi tilkynntu að þeir væm meðmælt- ir, að flytja ástarjátningar til valdsins, segja að þeir væm nú samt á móti efni fyrirspumarinn- ar, með rógi til valdsins. Og eitt stórmennið sat þess utan hjá. Á þeim degi, þeirra sem ég þekkti, var Alþýðuflokkurinn gamli lág- kúmlegastur. En hið þrönga flokksvald smýgur víðar. Meira að segja á bókmenntasviðinu vilja þeir taka ________Þriðjudagur 22. júní 1993 af okkur ráðin, segja okkur hver er skáld og hver ekki. Og nú sný ég blaðinu við. Á Morgunblaðinu, sem auðvit- að er því miður óupplýst og þröngt flokksblað í vondum skilningi orðsins, hefur þó svona verið ort í síðustu bók höfundar: 1 svipnum hans sé ég œsku okkar og eitthvað svo viðkvœman sutnar streng, við skiljum vart þessi óblíðu örlög, sem ætla sér, vinur, þinn góða dreng. Við uxum úr grasi með glitrandi vonir en gleymdum oftast að hyggja að því að það er ekki sjálfsagt að sólin rísi úr sœ hvem einasta dag eins og ný. Og veröldin kom eins og vorbjört nóttin með vinalegt bros og gleði til þín, og lífið kom einnig með ótal drauma í óvœnta franska heimsókn til mín. Nú bíðum við þess að bráðum komi þessi broslausi dagur — og svo þetta högg. Þegar lífokkar er að lokum aðeins eitt lítið spor í morgundögg. Svona yrkir ekki nema ljóð- snillingur, meðal þeirra fremstu á tungunni sem nú em til. En þetta þrönga og lokaða flokkakerfi, - hafið þið hugsað um það? - hefur lagst á hann vegna stöðu hans. Við bjuggum meira að segja til orðið „sálmaskáld" sem háðs- yrði. Jafnvel á þessu sviði láta þeir fólk ekki í friði. Það skal breytast, það verður að breytast. Við viljum gera uppreisn í gras- rótinni úti á meðal fólks. Við treystum því að fólkið vilji. Við myndum ekki flokk, aldrei fram- ar flokk, heldur laustengt banda- lag laustengdra samtaka karla og kvenna, þar sem það ræður mið- að við höfðatölu. Við vitum um okkar vanda. Hann er sá að þó að við séum ídealistar í dag, þá get- um við verið orðin stofnun fyrr en varir. Engin hugsjón nær nema ákveðnum aldri, þá verður hún stofnun. Þess vegna verðum við alltaf að vita, væntanlegir þátttakendur í Bandalagi jafnað- armanna, að þó sú þörf sé fyrir okkur í dag, þá er langt frá því að sú þörf vari til eilífðamóns. Það kemur kannski fljótt og kannski seint, en það kemur að því að við fömm að þvælast fyrir eins og gamla flokkakerfið gerir í dag. Þetta verðum við að vita. Þeir munu ráðast að okkur með upplirópunum, með því að loka fjölmiðlunum. Þeir munu reyna að hæða okkur, reyna að láta allt líta út sem upphlaup eða gífur- yrði. Ég nefni dæmi. Hæstvirtur ráðherra, Svavar Gestsson, segir á fundi flokks síns að fram séu að koma mörg aukaframboð. Ég endurtek, aukaframboð. Hugsið ykkur mannfyrirlitninguna, þá fyrirlitningu á skoðunum annarra sem felst í þessu litla orði. Og lík- legt er að fjölmiðlakerfið kaupi þetta valdsins orð. Auðvitað vill Svavar Gestsson að aðeins hann sjálfur og Geir Hallgrímsson séu í aðalframboðum svo að þeir geti metist á um það hvor hafi skrökv- að meira og þrasað svolítið um NATO. Þetta er þeirra kerfi og þeirra vald. Við hin eru aukaper- sónur, - kannski auka-Islending- ar. Þeir mega kalla væntanlegt bandalag sérframboð. En við eig- um von og kannski erum við von. Við treystum því að fólkið í land- inu sjái í gegnum valdhrokann, hið niðumjörvaða vald með sama hætti og við gerum sjálf. Við höf- um nefnt lausnir, en þær lausnir snúast auðvitað einvörðungu um svokölluð stjómmál. Eftir sem áður er það einstaklingurinn, gleði hans og sorgir sem mestu máli skiptir. Hann er sjálfur bær- astur til að ráða fram úr eigin málum. Til þess þarf hann aðeins þolanlegar aðstæður, frelsi og frið. Ég þakka þeim sem hlýddu. Sigurður Pálsson Vængbjartur (draumorð) / I minningu V.G. Vœngbjartur komstu í draumi Nú ríkja auðnir einar Strœtin og merkurnar Hvergi vottur vœngjaþyts Enn krefég auðnirnar svara Vœngbjartur varstu Fljúgandi hærra og hraðar Bar við sólu vængbjartan í draumi Bar við blindandi sólu Úr ljóðabókinni Ljóð námu land, 1985.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.