Alþýðublaðið - 22.06.1993, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 22.06.1993, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 22. júnf 1993 13 „KRASN APOLSKI“ - Rœtt við Jón Stefánsson skáld um draug Jónasar Hallgrímssonar, rœstingar, arabísk kvœði, ástir og glœnýja Ijóðabók: Hún spurði hvað ég tœki með mér á eyðieyju Viðtal: Hrafn Jökulsson Jón Stefánsson skáld var „hafður með í far- angri unnustunnar" þegar hún fór til náms í Kaupmannahöfn í haust er leið. Og þar dvaldi hann, á slóðum Jónasar Hallgrímsson- ar og Jóhanns Sigur- jónssonar, sæll og glaður; enda eru þeir félagar eftirlætisskáld hans. Nú er Jón kom- inn heim í bili og búinn að gefa út Ijóðabók með fjarskalega löng- um titli: Hún spurði hvað ég tæki með mér á eyðieyju. Níu orð semsagt. En hvað var skáldið að stússa í Höfn annað en yrkja Ijóð? Jón: Ég var að telja strætisvagna og skúra bar. Áður en lengra er haldið: Jón Stefánsson ólst upp á Suðumesjum, hefur gefið út þtjár ljóðabækur og er tvímælalaust framtíðarmaður í skáldalandsliðinu. Hann er auk þess rauðhærður og verður þrítugur í desember. Bogamaður semsagt einsog svo mörg skáld önnur. Og nú segist hann hafa talið strætisvagna og skúrað bar í Kaup- mannahöfn. Við látum strætisvagn- ana liggja á milli hluta: hinsvegar bárust þau tíðindi til íslands í vetur að Jóni hefði verið sagt upp starfi sínu sem ræstitæknir á pólskum bar. Það hlýtur að hafa verið um- talsvert afrek? Skáldið hugsar sig lengi um og spýtir síðan einu orði útum vinstra munnvikið: „Krasnapolski." Það var og. Krasnapolski. „Barinn heitir • Krasnapolski,“ segir Jón. „Eigandinn var fúllyndur en lúsiðinn Asíumaður sem gerði ómannlegar kröfur um afköst. Hinn íslendingurinn fékk að vera áfram en var látinn sæta afarkostum. Ég fór mína leið, og vann að öðru leyti fyrir mér með því að skrifa í Mogg- ann og vinna fyrir útvarpið.“ Jón hefur skrifað margar skemmtilegar greinar um róman- U'sku skáldin okkar. Sum [reirra bjuggu í Höfn; bjuggu þar, drukku, suitu og ortu. Jón hlýtur að hafa far- ið í pílagrímsferðir á slóðir þeirra? „Öjá. Ég fór meira að segja og merkti gröf Jónasar Hallgrímsson- ar. Það er, einsog flestir vita, mis- skilningur að jarðneskar leifar skáldsins séu í þjóðargrafreitnum svokallaða á Þingvöllum. Björn Th. Björnsson listfræðingur hefur sýnt fram á að Jónas hvíli enn í Assi- stenskirkjugarðinum: á dálitlum grasbletti þarsem mjóslegin ösp hefur fest rætur. Grafreitur Jónasar er alveg ómerktur en gamli maður- inn er þarna einhversstaðar. Ég fékk Maríu Karen í lið með mér - enda er hún stórum handlagnari en ég - og hún ritaði snoturlega á spýtu: Jónas Hallgrímsson, 1807- 1845. Svo fór ég eitt kvöldið, rétt fyrir lokun kirkjugarðsins, og negldi þessa spýtu á öspina. Þannig hvfldi Jónas Hallgrímsson í merktri gröf eina nótt.“ Jón Stefánsson talar um þessi dauðu skáld einsog nána vini sína. En varð honum ekki hrasgjamt í stigum einsog Jónasi? „Nei, mér tókst ekki að fótbrotna og bjó ég þó á annarri hæð. Og þeir heimsóttu mig aldrei, strákamir. En María Karen, sem er skyggn, sá eitt kvöldið á Hviids Vinstue mann nokkum frá síðustu öld standa við barinn. Hann var á að giska 170 sentimetrar og klæddist sjakket. Þegar hún ætlaði að athuga hann nánar, þá máðist hann út einsog draugum er svo gjamt.“ Var þetta Jónas Hallgrímsson? „Ég held það bara. Örstuttu síðar orti ég að minnsta kosti kvæði um Hviids Vinstue: áreiðanlega var Jónas að reyna að koma sér inn í fs- lenskar bókmenntir á nýjan leik. Og hvar ætti Jónas betur heima en á Hviids Vinstue?" f meðferð? spyr tíðindamaður Alþýðublaðsins á móti. Jóni er greinilega misboðið. ,Áfengisvandamálin hljóta nú að leysast eftir dauðann," segir hann dræmt. Fram af hengifluginu En er hægt að vera gott, ungt skáld og sniðganga Ijóð Jónasar Hallgrímssonar? „Það er ekki hægt að sniðganga Jónas Hallgrímsson og íslenska bókmenntahefð. Reyndu að fá ein- hvem sem ekki kann stafrófið til jress að lesa fyrir þig: þetta er svip- að. Til jress að kynnast tungumál- inu og möguleikum þess er nauð- synlegt að leita til meistaranna." Yfir í aðra sálma. Er það ekki raunalegt hlutskipti að vera ungt skáld í landi þarsem sárafáir hafa áhuga á ljóðum: er það ekki einsog að æpa útí tómið? „Til em þeir sem hafa áhuga á ljóðum, sem betur fer. Og ég er ekkert viss um að þeir séu sárafáir. Svo er mér sama hvort ég yrki fyrir 25 manns eða 25 þúsund... Jú, auð- vitað þurfa skáld að fá viðbrögð. En áhugi á ljóðum er einfaldlega mis- mikill frá ári til árs. Ljóðið kemst stundum í tísku, rétt einsog útvíðar buxur.“ Útvíðar buxur em greinilega í tísku nú um stundir. Hvað um ljóð- ið? „Fyrir svosem fimm ámm var ljóðið í tísku, held ég, en ekki um þessar mundir. Ég sef nú samt þokkalega og hef engar vemlegar áhyggjur af ljóðinu. Það spjarar sig alltaf." En er ekki ungt skáld dálítið ein- angrað í mannfélaginu? „Sú er árátta skálda," segir Jón, „að koma helst öllum heiminum í orð, öllum heimsins tilfinningum og öllum heimsins morgnum. Þannig er staða skáldsins öðmvísi en annarra. Þegar þú þarft að koma einhverju í orð, þaiftu að hugsa þig um, og meðan þú hugsar þig um þá talarðu ekki við aðra - þú einangrar þig. Þetta er árátta sem stappar nærri geðveiki; að þurfa að orða hlutina á afgerandi hátt. Og það liggur við að ég sé stundum reiðu- búinn að kasta mér fram af hengi- fluginu fyrir góða ljóðlínu.“ Niður með harðstjórann! En skyldi Jón hafa kynnst ein- hveijum dönskum skáldum í vetur? „Nei, enda bar ég mig ekki eftir slíkum kynnum. Ég var mest á randi í mínum eigin heimi og leitaði ekki eftir félagsskap. Ég sökkti mér ekki einu sinni ofan í danskar bók- menntir að ráði heldur las bækur um íslenskt þjóðlíf í kringum alda- mótin, og þýddi arabískan skáld- skap og ljóð Charles Bukowskys." „...reiðubúinn að kasta mér fram af hengifluginu fyrir góða ljóðlínu.“ dagurinn í gœr hejur breytt um nafn það hefur ekkert gerst nema dagurinn í gær hefur breytt um nafn hér er til dæmis ekkert orð sem stöðvar hjartsláttinn engin orð íyrir óstyrka elskendur ekki einu sinni orð til að fara með meðan beðið er eftir strætísvagni en ég ætla samt að yrkja jjetta tilgangslausa ljóð og tileinka andardrættí mínum ég bíð ekki eftir neinu ævintýri næturinnar einungis fyrir byrjendur hér fylgir einsemdin með í hveijum sopa og ég bíð ekki eftír neinu nema jjéttari reyk og jazzmanninum sem blæs myrkri Hversvegna valdi Jón ameríska rónahöfundinn Bukowsky? „Ég skemmti mér svo konung- lega við að þýða hann. Kannski er Bukowsky ekki mesta skáld heims- ins, en það er eitthvað við hann einsog sagt er. Heimur hans er ein- att hráslagalegur en það er aldrei langt í væntumþykju og mann- gæsku.“ En arabísku ljóðin, hvað eru þau fyrir nokkuð? „Hvad er det for noget," ansar Jón og tekur blaðamann í landhelgi dönskunnar. „Jú, jjetta eru arabísk ljóð sjöunda til níunda áratugar þessarar aldar: feikilega kröftugur og heillandi skáldskapur. Þessi ljóð búa yfir ógnum sem eru okkur framandi, þau eru viðbrögð við at- burðum úr samtímanum. Ég get nefnt til dæmis Eyðimörkina, ljóða- bálk sem var ortur eftir að ísraelar hemámu Beirút, höfuðborg Líban- ons. Israelar höfðu aldrei áður náð höfuðborg arabatikis á sitt vald, og það sem meira var: Arabar litu á Beiríit sem perlu, hún var jjeirra París. Hemám borgarinnar vakti reiði, örvæntingu og sársauka sent kristallast snilldarlega í þessu ljóði. Arabísk ljóðlist á sér langa og merkilega sögu. Súrrealistamir og spænsku skáldin sóttu til dæmis mikið til klassískrar ljóðlistar Mára. Arabísk skáld kunna að yrkja ádeiluljóð án þess að æpa einfald- lega: Niður með harðstjórann! Ljóðin em svellandi af tilfinning- um, og það er verulega lærdómsríkt að kynnast þeim.“ Um líf sem aldrei varð Ástarljóð em áberandi í bókum Jóns Stefánssonar: en sjaldnast em ljóðin um farsæla ást eða endur- goldna. Nú er Jón lukkulega trúlof- aður og getur fráleitt gert ástleysið að yrkisefni. Getur hann ort fram- ar? „Ohjákvæmilega verða ljóðin allt, allt öðmvísi en áður. Ég hef hingað til ort um eitthvað sem ég ekki hef. Um leið og maður fær það sem hann þráir minnkar þörfin fyrir að yrkja unt það: Þú lifir það. I flestum bestu ástarljóðum allra tíma em menn ekki að yrkja únt einhveija ákveðna konu - eða karl - heldur um tilfinningu, um líf sem aldrei varð. Þegar Jónas Hallgríms- son orti Ferðalok hafði hann áreið- anlega Þóiu í huga. En sú Þóra sent hann orti um var samt áreiðanlega aldrei til, nema sem háleit og hríf- andi sýn, tilfinning, í bijósti skálds- ins. Jónas gat ekki, fremur en önnur skáld, ort um ósýnilegan anda. Þessvegna klæddi hann draumsýn- ina holdi og blóði Þóm. En það hefði kannski sem best getað verið einhver önnur.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.