Alþýðublaðið - 02.07.1993, Síða 13
13
Föstudagur 2. júlí 1993
Kópqvogur i gær
I íw' ■ JjjW 1 Tf i2m | rv-'-y/ 3
Mir* ; w\ .WiÆ 1 k -» 1 Lor.'* i
! i æm\\ m i riliffíiiii'iífl'iiii i ■
Sveinn bnknri
Fyrir nákvæmlega tíu árum réðst Sveinn Kristdórsson frá Akureyri í það að stofna fyrirtæki sitt Sveinn Bakari. Síðan þetta var hefur Sveini aldeil-
is gengið frábærlcga. Nú á hann og rckur hvorki fleiri né færri en sautján bakarí eðá útsölustaði víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu. Til að mynda er
eitt staðsett í Hamraborginni í Kópavogi. Brauðin hans Sveins falla íslcnskum brauðunnendum greinilega vel í geð því annar eins uppgangur er
sjaldgæfur ■ viðskiptaheiminum hér á landi.
Krakkarnir í Kópavogi
Hrcssir krakkar í Kópavogi. Það cr augljóst að strætóskýlin í Kópavogi þjóna margvíslegum til-
gangi fyrir krakka sem hundleiðist að bíða eftir strætó. Kanna má útsýnið, renna sér niður af, nú,
cða bara bæta við flóru veggjakrotsins sem ekki er nú of fjölbreytt hér á landi eða menningarlcgt.
Hugmynd: Skemmtilegt væri ef sveitarfélög tækju sig til og útrýmdu þessum blikkhólkum af
gömlu gerðinni og strætóskýlin úr glæra trefjaplastinu fengju að taka völdin. (A.myndir—E.ÓI.)
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS
Kópavogur Nature study centre
DIGRANESVEGUR 12 200 KÓPAVOGUR ÍSLAND SÍMI/TEL.: 40630
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS
Digranesvegur 12,200Kópavogur, sími/fax: 40630
LIFANDI SAFN !
Komið, skoðið og fræðist um íslenska náttúru.
Lindýr, Skrápdýr, Fiskar og Fuglar,
Krabbar, Spendýr og Kristallar.
Opið:
september - maí; sunnudaga og laugardaga frá kl. 13-18.
júní - ágúst; sunnudaga, laugardaga og miðvikudaga frá kl. 13-18.
Heimsóknartímar fræðslu- og uppeldisstofnana á virkum dögum eftir samkomulagi.
Gunnar
í Kress-
Hinn umdeildi Gunnar Þorsteinsson á ,,sínu
fjallahjóli“. Þarna er hann staddur í Auð-
brekkunni í Kópavogi. Nánar tiltekið fyrir
framan höfuðstöðvar sértrúarsafnaðarins
Krossinn. Gunnar er eins og flestir vita for-
stöðumaður safnaðarins og hefur vakið licitar
tilfinningar í brjóstum fylgjenda sem and-
stæðinga sinna. Margir segja að þeim mun
harðar sé deilt á Krossinn jæim mun fleiri
fylgjendur flykkjist til Gunnars. Annars er
það merkilegt með Kópavoginn. Ætli það eigi
eftir að fylgja Kópavogsbúum um ókomna
framtíð að vera miðstöð hræringa í trúmál-
um?
Alþýðublaðið
Fax 62 92 44